Morgunblaðið - 08.07.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
17
80* W 60* 40’ 20’ 0* 20* 40"E
e==t> Atlantssjór —— +* Pólsjór •••■♦ Blandaður sjór
Meginhafstraumar við yfirborð í Norður-Atlantshafi.
Skýrslutæknifélag Islands:
Varað við sölu-
skatti á tölvur
m.a. byggst á því í framtíðinni að
selja afurðir sem unnar eru úr físki
sem veiddur er á lítt menguðu
hafsvæði, því er mikið í húfí. Nú
þegar eru ýmis teikn á lofti sem
styðja þessa skoðun.
Innan alþjóðasamþykkta, sem
flalla um vamir gegn mengun
hafsins, hafa málefni er varða los-
un geislavirkra efna verið mikið
þrætumál um langa hríð, annars
vegar á milli þeirra þjóða er nýta
kjamorku og hins vegar hinna sem
sjá fyrir orkuþörf sinni með öðmm
hætti.
Alþjóðakjamorkumálastofnunin
(IAEA) hefur lagt til að við
ákvörðun á losun geislavirks úr-
gangs í sjó sé miðað við að áhrif
losunarinnar verði aldrei svo mikil
að einstaklingar verði fyrir hættu-
iegri geislun, eins og skilgreint er
í staðli Alþjóðageislavamarráðsins
(ICRP — standard on dose limitati-
on).
Ótti almennings við geisla-
virkni, hvort sem hann er á rökum
reistur eða ekki, er staðreynd og
áhrifín af slysinu í Chemobyl sýna
að viðskiptaleg áhrif á sölu mat-
vöm, sem hefur orðið fyrir geislun,
hafa lítið sem ekkert með staðal
Alþjóðageislavamarráðsins að
gera. Augljóst dæmi um þetta em
fískveiðar í írska hafínu, þar sem
losun frá kjamorkuendurvinnslu-
stöðinni í Sellafíeld á Norður-
Englandi hefur haft veraleg áhrif
á fískveiðar íra, þrátt fyrir að
bresk stjómvöld hafí fylgt eftir
alþjóðlegum leiðbeiningum um los-
un á geislavirkum úrgangi í sjó.
Því tel ég afar mikilvægt að
þessi mál verði ekki aðeins tekin
til umfjöllunar af íslenskum emb-
ættismönnum í tækninefndum
alþjóðlegra samþykkta um vamir
gegn mengun sjávar eins og verið
hefur, heldur ekki síður á stjóm-
málalegum vettvangi með mun
meiri þunga en gert hefur verið
hingað til.
Höfundur er siglingamálaatjóri.
AÐ UNDANFÖRNU hefur komið
fram í fréttum, að ný ríkisstjóm
hyggst afla ríkinu aukinna tekna
með þvi að leggja söluskatt á tölv-
ur og tölvuþjónustu. Stjóm
Skýrslutæknifélags íslands vill
koma á framfæri alvarlegri við-
vörun vegna þessara áforma. Svo
virðist sem ekki hafi verið hugað
að þeim óheillavænlegu afleiðing-
um, sem þetta hefði.
Árið 1983 var felldur niður sölu-
skattur og aðflutningsgjöld af tölvum
og tölvubúnaði. Áhrif þeirrar skyn-
samlegu ákvörðunar hafa orðið þau,
að nauðsynleg tölvuvæðing hefur orð-
ið mun hraðari hér á landi en ella
hefði orðið. Það er því einkennileg
og hættuleg ráðstöfun, ef söluskatt-
sundanþágan verður nú úr gildi felld.
Afleiðingar þess að setja nú 25%
söluskatt á tölvur og tölvubúnað yrðu
m.a. þær, að mjög myndi draga úr
þróun í tölvumálum. Hætt er við, að
þessi vaxtarbroddur íslensks atvinn-
ulífs yrði lengi að ná sér eftir slíkt
áfall. Aðstaða íslenskra hugbúnaðar-
fyrirtækja í samkeppninni við útlend
fyrirtæki myndi versna verulega. Ein-
hver íslensku fyrirtækjanna myndu
hugsanlega neyðast til þess að leggja
upp laupana.
Undanfarið hefur mikið verið rætt
um nýsköpun í íslensku atvinnulífi
og miklar vonir verið bundnar við
tölvuiðnaðinn sem eina vænlegustu
nýsköpunargreinina. Því torskiljan-
legri em áform um að vega að þessari
atvinnugrein einmitt á þeirri stundu,
þegar hún er í ömm vexti, en að
sama skapi viðkvæm gagnvart öllum
óvæntum breytingum.
Ennfremur er hætt við, að sam-
keppnisaðstaða þeirra fyrirtækja, þar
sem tölvunotkun og aðkeypt tölvu-
þjónusta er mikil, versni til muna.
Einhver þeirra verða fyrir skakkaföll-
um, nái þessi skattheimta fram að
ganga. Önnur, t.d. opinber fyrirtæki,
munu velta kostnaðaraukanum út í
verðlagið, þ.e. almenningi verður gert
að axla hann. Skýrslutæknifélag ís-
lands hvetur því eindregið til þess
að fallið verði frá hugmyndum um
söluskatt á tölvur og tölvuþjónustu
og að leitað verði annarra leiða til
þess að leysa fjárhagsvanda ríkis-
sjóðs. (FréttatUkynning)
öruggar upplýshigar um
KASKÓ -ÁVÖXTUN
Síðasta vaxtatímabil gaf ársávöxtun
sem svarar24,51 %
Ávöxtun fyrir síðasta vaxtatímabil KASKÓ-reikningsins (apríl-júní) var 5,6%.
Það þýðir miðað við sömu verðlagsþróun fyrir heilt ár 24,51% ársávöxtun.
Ef miðað er við síðustu tvö vaxtatímabil KASKÓ-reikningsins (janúar-júní)
þá er ársávöxtun reiknuð á sama hátt 25,08%.
KASKÓ - öryggislykill Sparif) áreigenda.
VERZLUNARBHNKINN
-(AÓmcí/i með feé* (