Morgunblaðið - 08.07.1987, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
Hestamennimir Ásgeir, Þorkell, Helgi, Bergur og Páll.
„Hér er allt sem
maður þarfnast“
- segir ferðafólk
í Húsafelli
ÞEGAR blaðamenn Morgnn-
blaðsins voru á ferð í Húsafelli
litu þeir við í sundlauginni, hjól-
hýsi og sumarbústað.
Frá Las Vegas
í Húsafell
í sundlauginni hittum við Val,
Ástu, Jónas, Guðmundu og Thelmu.
Valur og Ásta voru í bústað Félags
flugnmsjónarmanna en Jónas, Guð-
munda og Thelma voru gestkom-
andi hjá þeim. Thelma býr í Las
Vegas. Hún er hálflslensk og ætlar
að vera i mánuð á íslandi. Jónas
og Guðmunda sögðu að bústaðurinn
hefði verið byggður í Reykjavík
árið 1980 og fluttur í Húsafell. Þau
höfðu komið á hverju sumri síðan
og áttu bústaðinn pantaðan í ágúst.
Öllum líkaði þeim mjög vel í
Húsafelli. „Hér er allt sem maður
þarfnast, ég þarf ekki einu sinni
að hafa bíl,“ sagði Valur.
Hestamenn í langferð
í hjóihýsinu sem við heimsóttum
voru flmm flallhressir hestamenn
úr Kópavogi. Þeir heita Ásgeir
Guðmundsson, Þorkell Jónsson,
Helgi Jasonarson, Bergur Haralds-
son og Páll Valmundsson. Þeir
lögðu upp frá Kópavogi 2. júní sl.
og riðu upp á Hvítárvelli. Þann 20.
júní sl. héldu þeir svo áfram þaðan.
Þeir sögðust í rauninni vera á leið
austur í Landeyjar en hefðu tekið
Morgunblaðið/Börkur
Guðmunda í sundlauginni í Húsa-
felli.
„smá krók". Ásgeir sagðist vera
með hestana í haga í Borgarfírði
og félagar hans væru að fylgja
honum þangað fyrst. Þeir fóru frá
Þverárrétt klukkan níu um morgun-
inn og komu í Húsafell um klukkan
ijögur. Þar ætluðu þeir að vera í
eina nótt. Sautján hross voru með
f ferðinni og þau voru geymd í
Kalmanstungu yflr nóttina. Þeir
félagar voru einnig með pallbílinn
Palla með sér og Helgi var bflstjór-
inn.
Hestamennimir voru búnir að
elda kjötsúpu er okkur bar að garði.
Þeir sögðu að það tilheyrði alltaf á
þessum ferðum að vera með kjöt-
súpu í Húsafelli. Þeir vom svo
heppnir að hafa kokk í hópnum.
Við ræddum leiðina sem þeir ætluðu
að ríða og þeir sögðu hana vera
mjög skemmtilega. Af lýsingum
þeirra að dæma virtust þeir einnig
hafa iagt í svaðilför. Sérstaklega
voru þeir hrifnir af Löngufjörum,
niður af Snorrastöðum. „Þar var
stórkostlega fallegt."
Systur í Húsafelli
Við litum inn í einn sumarbústað
og þar hittum við þrjár systur.
Herdísi frá Hafnarfirði, Kristínu frá
Hellu og Elínu frá Stykkishólmi.
Þær leigðu bústaðinn í viku af
Verkalýðsfélagi Stykkishólms. Þær
voru með sjö böm með sér og sögðu
að það væri mjög gott að vera í
Húsafelli. Þær fóru á bæ sem var
með hestaleigu og þar fengu krakk-
arnir að skoða húsdýrin. „Það er
mjög sniðugt að gefa kost á þessu,"
sögðu systumar. Það eina sem þeim
fannst að mætti færa á betri veg
í Húsafelli var gjaldið í sundlaug-
ina. „Það er svolítið dýrt þegar
maður er með fullt af bömum.“
í bústaðnum vom einnig stödd
þau Jóhanna og Albert. Þau vom
í bústað Verkakvennafélagsins
Framsóknar. Þau vom sammála
systmnum um að aðstaðan væri
góð í Húsafelli. Þau höfðu komið
oft áður, síðast um páskana. Albert
vann eitt sumar við að reisa sumar-
bústaði. í Húsafelli em möguleik-
amir margir og meðal annars höfðu
þau farið í dagsferð í Reykholt.
Kristín, Jóhanna, Herdís og Albert slappa af eftir sólríkan dag.
Páll útskýrir leiðina sem þeir félagar riðu.
Jónas í heita pottinum,
Thelma og kanínan sem krökkunum þótti svo gaman að.