Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
AUSTURBÆR ÚTHVERFI
Háteigsvegur
Bólstaðarhlíð
frá 40-56 og 58-68
Hverfisgata frá 4-62
o.fl.
Flókagata
Úthlíð
VESTURBÆR
Stóragerði
Heiðargerði
KÓPAVOGUR
Borgarholtsbraut
Kópavogsbraut
frá 84-113 o.fl.
Langabrekka
Miðbraut
Tjarnarstígur
TANGARSÓKN GEGN VÍMU
Ferðaáætlun unglinga frá
félagsmiðstöðvunum
ÞRÓTTHEIMUM OG
FROSTASKJÓLI
Dagur 7. júlí Viðkomuataðlr Krýsuvikurskólí Grindavík Njarðvfk Keflavík Qlstistaður Áætluð vegalengd
8. júlf Hafnarfjörður Kópavogur Reykjavfk Ártúnshöfði Þorlákshöfn Hveragerði Reykjavik ca 95 km.
9. júlf Selfoss Hella Hvolsvöllur Vfk í Mýrdal Félagsh. Heimal. ca150km.
10. júlí Kirkjubæjarkl. Fagurhólsmýri Félagsh. Hof ca 150 km.
HöfnfHomaf. Höfn f Hornaf. ca 130km.
n.júií 12. júlí Djúpivogur Breiðdalsvík Stöðvarfjörður Djúpivogur ca 105 km.
13. júlí Fáskrúðsfjörður Reyðarfjörður Eskifjörður Reyðarfjörður ca175km.
Neskaupstaður Seyðisfjörður Egilsstaðir Egilsstaðir ca 70km.
14. júlf Egilsstaðir Egilsstaðir ca Okm.
15. júlí Reykjahlfð Reykjahlfö ca 170km.
16. júií Húsavik Akureyri Akureyri ca 155 km.
17. júlí 18. júlí Akureyri Dalvík Ólafsfjörður Akureyri ca Okm
19. júlí Siglufjörður Hofsós Sauðárkrókur Hofsós ca155km.
Blönduós Hvammstangi Hvammstangi ca. 150 km.
20. júlf 21. júlf Hólmavik Súðavík Hólmavfk ca 50 km.
22. júlf isafjörður Bolungarvfk isafjörður ca 30 km.
23. júlf Flateyri Þingeyri Búðardalur Stykkishólmur Búöardalur ca 50 km.
24. júlf Borgarnes Akranes Borgarnes ca180km.
Mosfellssveit Reykjavfk Reykjavfk ca 160 km.
Samtals vegalengd ca 1.965km.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Kosningarnar í Ástralíu:
Hawke virðist hafa of-
metið vinsældir sínar
NÚ eru aðeins þrír dagar til þingkosninganna í Ástralíu og ef
marka má niðurstöður í skoðanakönnunum gæti svo farið, að
Bob Hawke forsætisráðherra biði ósigur og Fijálslyndi flokkur-
inn, sem er íhaldsflokkur, undir forystu John Howards og
Þjóðarflokkurinn sem Sir Johannes Bjælke-Petersen leiðir, myndi
næstu ríkisstjórn. Víst væru þau úrsiit með ólíkindum, þar sem
Bob Hawke og flokkur hans hafði mikinn byr í upphafi kosninga-
baráttu. Þá var talið að Verkamannaflokkurinn mundi vinna
glæsilegan sigur og fá að minnsta kosti fimmtán prósent meira
fylgi en stjórnarandstaðan, Fijálslyndi flokkurinn og Þjóðarflokk-
urinn. Og Hawke sæti við stjóm þriðja kjörtímabilið í röð.
hægur og ábyrgur. Og allt í einu
farinn að tala eins og stjóm-
málamaður, að sögn ástralskra
blaða; gaf innantómar jrfirlýsing-
ar í tíma og ótíma um allt og
ekki neitt. Hann forðaðist að
koma þar fram sem hann þyrfti
að halda ræður, en fór þess í stað
á mannamót þar sem hann þrýsti
hendur í gríð og ergi og kyssti
böm á vangann. Hann harðneitaði
Með það í huga, að ekkert
virtist ógna Verkamanna-
flokknum í upphafí kosningabar-
áttunnar er staðan nú með
ólíkindum; í staðinn fyrir fimmtán
prósenta forskot fyrir fáeinum
vikum, benda skoðanakannanir til
að Verkamannaflokkurinn sé nú
aðeins einu prósenti yfír. Það mun
svo ráðast á þessum síðustu dög-
um, hvort stjómarandstöðunni
tekst að hafa sigur, eða hvort
Hawke tekst að merja það að ná
meirihluta.
Stjómmálafréttaritarar segja,
að ýmsar ástæður ráði því, að
vopnin hafa snúizt í höndunum á
Hawke. í fyrsta lagi lagði stjóm-
arandstaðan fram mjög ítarlegar
tillögur um skattalækkanir, sem
kjósendur virðast ekki hafa gefið
gaum framan af. í þessum tillög-
um er gert ráð fyrir að lækka
hæstu skattprósentu á einstakl-
ingum úr 49% í 38%, afnumdir
verði ýmsir skattar, sem stjóm
Verkamannaflokksins hefur lagt
á, dregið stórlega úr rfkisútgjöld-
um, aðallega með auknum spam-
aði og hagræðingu í rekstri,
skattprósenta fyrirtaékja skal
lækka um allt að sjö prósent. í
efnahagstillögum FVjálslynda
fiokksins var einnig gert ráð fyrir
að hlutabréf í Australian Airlines,
sem annast innanlandsflug, verði
seld á almennum markaði, svo og
allt að 49% í Flugfélaginu Quant-
as. Minnzt var á að til greina
kæmi að bjóða til sölu hlutabréf
í fleiri ríkisfyrirtækjum.
Skömmu eftir að Fijálslyndi
flokkurinn hafði lagt fram þessar
tillögur kom fram í skoðanakönn-
unum, að meirihluti kjósenda taldi
að skattamál væru aðalmál kosn-
inganna. Flestum spurðra hugn-
aðist vel þær hugmyndir sem
Fijálslyndir settu fram, en sögð-
ust þó flestir ætla að kjósa
Verkamannaflokkinn. Af þessu
mátti auðvitað draga þá ályktun,
að persónulegar vinsældir Haw-
kes myndu verða það sem réði
úrslitum, þrátt fyrir allt. Því að
bersýnilega höfðu kjósendur ekki
trú á fæmi Howards, hvorki til
að vera í forystu né framkvæma
þau áform, sem hann og flokkur
hans boðuðu.
John Howard sýndi þess engin
merki, að þessar niðurstöður
drægju úr honum kjarkinn. Hann
hefur verið á stöðugum ferðalög-
um síðan kosningabaráttan hófst,
haldið margar ræður dag hvem
bæði til að kynna skattatillögum-
ar og hann hefur gagnrýnt mjög
harðlega efnahagsstefnu þá, sem
hefur leitt til þess, að eriendar
skuldir hafa margfaldast, ástr-
alski dollarinn hefur snarlækkað
og fyrirtæki hafa unnvörpum orð-
ið gjaldþrota. Howard hamraði á
þvf, að Hawke væri að fara aftan
að kjósendum; hann boðaði til
Bob Hawke og Hazel eiginkona hans
kosninganna 13 mánuðum fyrr
en hann þyrfti, af þeirri einföldu
ástæðu að ástandið myndi versna
enn á næstu mánuðum. Þess
vegna sæi Hawke fram á að eini
' möguleikinn á að ná forsætisráð-
herraembættinu í þriðja sinn,
væri að halda kosningar áður en
ástandið versnaði enn.Á þingi nú
hefur Verkamannaflokkurinn 82
sæti, Fijálslyndir 45 og Þjóðar-
flokkurinn 21.
Bob Hawke þótti mjög sérstak-
ur pólitíkus í upphafí ferils síns.
Hann var nánast uppalinn í verk-
lýðshreyfingunni. Gat með
nokkmm rétti státað af því að
vera í orðsins fyllstu merkingu
„maður fólksins." Hann var
hreinn og beinn í framkomu, sum-
ir sögðu að hann væri beinlínis
óheflaður. Málflutningur hans og
málfar var umdeilt, sumir lofuðu
hann fyrir einlægni og að hann
væri laus við skrúðmælgi og gjálf-
ur stjómmálamannanna, aðrir
sögðu að hann talaði ekki kjam-
yrt heldur ruddafengið mál og
gróft. Mörgum fannst ósköp sjar-
merandi og manneskjulegt, að
hann skyldi ekki fara í launkofa
með það, að honum þætti gott að
fá sér neðan í því - og ætti til að
fá sér einum of marga.
í kosningabaráttunni nú birtist
svo allt í einu allt annar Bob
Hawke. Vel greiddur, landsföður-
legur og prúðmannlegur í fasi,
að tala við blaðamenn, nema um
„mjúku“ málin og tókst það þá
óhönduglega. Brátt var mörgum
nóg boðið. „Hawke hefur viílzt inn
í amriska sápuóperu, hann segir
ekkert nema rugl og vitleysu.
Hann virðist vera búinn að gleyma
því að það eru kosningar í undir-
búningi,“ sögðu blöðin og lesenda-
bréfín streymdu inn þar sem menn
lýstu vonbrigðum sínum. Hin nýja
ímynd Hawke féll aldeilis ekki í
kramið hjá kjósendum. Stjómar-
andstaðan færðist í aukana og
hafði nú betra tak á Hawke en
áður, þar sem kjósendur vom
ekki aðeins undrandi, heldur fam-
ir að gera stólpagrín að forsætis-
ráðherranum. Hawke hélt enn um
hríð áfram landsföðurleiknum og
lét Paul Keating, fjármálaráð-
herra það eftir, að halda bitastæð-
ar ræður eða reyna að veija
stjómina. En forystu Verka-
mannaflokksins var orðið ljóst,
að þeim hafði orðið á dæmalaus
skyssa og nú var annað hvort að
duga eða drepast. Eins og áður
sagði hafði forskot Verkamanna-
flokksins verið traust , þegar
Hawke blés til baráttu í apríliok,
en nú örfáum dögum fyrir kosn-
ingar nánast að engu orðið.
I lok síðustu viku kom forystu-
sveit flokksins saman til skyndi-
fundar. Þar hefur væntanlega
verið rætt um þau herfílegu mis-
tök sem stjómin hefur gert, og
hversu mjög menn hafa ofmetið
Hawke og vinsældir hans. Og
væntanlega hefur einnig verið
rætt, að Verkamannaflokkurinn
hefur stórlega vanmetið hæfíleika
John Howards. Altjent var gefín
sú tvíræða yfirlýsing að fundinum
loknum, að Hawke myndi „bretta
upp ermamar" og taka tií hend-
inni. Það þýðir væntanlega, að
Hawke á að fara úr yfírvegaða
og pottþétta landsföðurgervinu og
taka upp fyrri háttu. En það er
spumingin.hvort þessir sfðustu
dagar duga til að stöðva fram-
gang stjómarandstöðunnar.
Heimíld: Far Eastern Economic
Review, Reuter