Morgunblaðið - 08.07.1987, Page 24

Morgunblaðið - 08.07.1987, Page 24
I 24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987 Chernobyl: Morgunblaðið/PPJ. Flugvélin sem fórst. Hún var af gerðinni Partenavia P-68 Victor og var notuð við hvalatalningu hér við land fyrir nokkrum árum á vegum alþjóða hvalveiðiráðsins. Flugslysið í Færeyjum: Rakst á Högafjall 1 miklu þokuþykkni Var að koma inn til lendingar í V ogey i Þórshöfn, Færeyjum. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Helmingur hæðarstýrisins, sem fannst uppi á kletti í nágrenni flugvallarins, nægði til að sann- færa leitarmennina um, að flugvélin, sem var með þrjá menn innanborðs, hefði rekist á bjargið og fallið síðan í sjóinn. Síðla dags á mánudag átti að heQa grindartalningu við Færeyjar. Var flugvélin fengin á leigu í þessu skyni og kom hún frá Kirkwall á Orkneyjum. Flugvélin var í aðflugi að flugvellinum á Vogey um klukk- an hálfeitt á mánudag og átti skammt eftir ófarið, þegar flug- tuminn missti sambandið við hana. Umfangsmikil leit var þegar hafin og stóð alla nóttina. í gærmorgun (þriðjudag) sá áhöfnin á færeyska landhelgisskip- inu Olavur helgi annan helming hæðarstýris vélarinnar uppi í Höga- ijalli, sem er 515 m hátt og stendur við Sörvogsfjörð. Annars voru menn í fyrstu ekki vissir um, hvort flug- vélin hefði fallið í sjóinn eða hvað hefði gerst, en um nóttina fannst brak úr henni í sjónum. Flugvélin var komin í aðflugs- stefnu, þegar hún rakst á fjallið í lágfluginu. Tekið skal fram, að hvorki áætlunarflug frá íslandi né Danmörku var til Færeyja á mánu- dag vegna slæms skyggnis af völdum þokuþykknis. Leit var haldið áfram fram eftir gærdeginum, en lítil von þótti til, að mennimir þrír fyndust á lífi. I vélinni voru tveir Bretar og einn Bandaríkjamaður. í Vogey stóð til, að Færeyingur bættist í hópinn til að taka þátt í hvalatalningunni í kringum Færeyjar. Ekki er vitað um ástæður þess, að flugvélin rakst á fjallið, en rann- sókn er þegar hafín. Frakkland: Verður stjórnmála- samsambandinu- við fran slitið? París, Reuter. Forsætisráðherra Frakka, Jacques Chirac, sagði í gær að tíl greina kæmi að Frakkar slitu stjónunálasambandi sinu við ír- an, ef starfsmaður sendiráðs landsins neitaði að bera vitni við rannsókn hryðjuverkamáls. í við- tali við dagblaðið Le Monde sagði Chirac m.a.: „Það er augljóst að við getum ekki beðið til eilífðar- nóns og verðum að neita allra bragða til þess að tryggt sé að réttlætinu verði fullnægt. Til þess eru ýmsar leiðir, þar með talin stjóramálasambandsslit. Ný sovézk kjarnorku- tilraun Moftkvu, Reuter. SOVÉTMENN sprengdu í gær tilraunakjaraorkusprengju á til- raunasvæði sínu í Yakutskaya i Síberíu. Að sögn talsmanns hins opinbera var sprengjan 20 kílótonn, sem jafn- gpldir að í henni hafí verið 20.000 tonn af dínamiti. Hann sagði einnig að hún hefði verið sprenngd í „þágu kjameðlisfræðinnar". Sovétmenn hafa sprengt sjö kjamorkusprengj- ur í tilraunaskyni frá þvi í febrúar sl. Allt veltur á afstöðu írana.“ Maðurinn, sem hryðjuverkadóm- stóll Frakklands vill ná tali af heitir Vahid Gordij og er skráður sem sendiráðstúlkur og nýtur því ekki friðhelgi stjómarerindreka. Lög- reglan telur að þrátt fyrir að Gordij sé lágt settur að nafninu til, sé hann næstráðandi í sendiráðinu og í raun háttsettur leyniþjónustumað- ur. Hún hefur því umkringt sendi- ráðið til þess að geta komið yfír Gordij höndum reyni hann að yfir- gefa það. Hryðjuverkadómstóllinn telur að hann sé á einhvem hátt tengdur sprengjufaraldrinum í París í fyrra, en þá létust 13 manns og meira en 250 særðust. Chirac útilokaði alfarið að lög- reglan kynni að freista þess að hafa hendur í hári Gordijs innan sendiráðsins. „Það em alþjóðaregl- ur [um sendiráð] og Frakkland hlítir þeim.“ Forsætisráðherrann sagði að það væri alfarið á hendi írana að leysa málið og bætti við að hann myndi ekki grípa fram fyrir hendumar á dómskerfínu með því að veita Gordij friðhelgi á einn eða annan hátt. Samskipti írana og Frakka hafa aldrei verið jafnslæm og nú og voru þau þó ekki upp á marga físka fyr- ir. Frakkar hafa stutt við bakið á írökum í stríði þeirra við írani og er Frakkland annað mesta vopna- söluland íraka á eftir Sovétríkjun- um. Réttarhöld vegna kjarn- orkuslyssins hefjast Þrír sakborninga í Chemobyl: Viktor Bryukhanov, fyrrv. forstjóri, Anatoly Dyatlov, aðstoðarverkfræðingur, og Nikolai Fomin, yfirverk- fræðingur. Moftkvu, Reuter. FYRRVERANDI forstjóri kjara- orkuversins í Chernobyl og fimm aðstoðarmenn hans komu fyrir rétt í dag, en sovéskir saksóknar- ar freista þess nú að koma lögum yfir þá sem ábyrgð bera á mesta kjaraorkuslysi sögunnar. Málið er rekið i sal Menningarhússins í Chernobyl, aðeins 18 km frá kjamorkuverinu. Dómarinn í málinu, hæstaréttardómarinn Raimond Brize, sagði að málið gegn mönnunum sex væri rekið til þess að komast að þvi í hveiju „brot þeirra á reglum um tækni- öryggi" fælust. Réttarritari las upp skýrslu rann- sóknamefndar um meint brot sakbominga á öryggisreglum kjamorkuvera. Ákærumar vom reyndar ekki lesnar upp, en samkvæmt hinni opinberu fréttastofu TASS verða þeir kærðir fyrir brot á 220. grein refsilaga Úkraínu. í greininni er kveðið á um ábyrgð þeirra sem bijóta öryggisreglur í sprengihætt- um verksmiðjum, sem valda alvar- iegu tjóni á mönnum eða öðmm alvarlegum afleiðingum. Talið er að réttarhöldin standi í a.m.k. þijár vikur — jafnvel lengur. A þeim tíma verða um 50 manns leidd fram til vitnis, en talið er fullvíst að málinu verði áfrýjað til hæstaréttar. Að minnsta kosti 31 maður lést og 135.000 vom flutt burt af svæð- inu eftir sprengingu og eldsvoða í kjamorkuverinu hinn 26. apríl í fýrra. í kjölfar þessa barst geisla- virkt ryk yfír mikinn hluta Evrópu. Reuter Stúdentar mótmæltu hástöfum fyrir utan sjúkrahús Yonsei-háskóla, þar sem Lee lést. Suður-Kórea: Sakaruppgjöf sljórnar- andstæðinga á næsta leyti Seoul, Reuter. CHUN DOO HWAN, forseti Suð- ur-Kóreu, mun að öllum líkindum náða stjórnarandstæðinginn Kim Dae Jung innan skamms. Talið er að það geri hann á fimmtudag — sama dag og stúdentinn, sem lést í óeirðum fyrir nokkru, verð- ur borinn til grafar. Sagði embættismaður í dómsmálaráðu- neytinu að auk Kims yrði um 2000 manns gefnar upp pólí- tískar sakir og borgararéttindi þeirra tryggð. Er þetta i sam- ræmi við lýðræðisáætlun þá, sem forsetinn samþykkti í síðustu viku. Til þessa hefur Kim Dae Jung verið meinuð stjómmála- þátttaka samkvæmt úrskurði herréttar árið 1980, en þá var Kim dæmdur fyrir undirróðurs- starfsemi. Helstu samtök stjómarandstæð- inga sögðu í dag að þau hygðust taka snaran þátt í jarðarför Lee Han Yol, stúdents sem lést af völd- um höfuðáverka er hann hlaut þegar táragaskútur lögreglu skaust á hann. Lee varð nokkurs konar tákn baráttu stúdenta gegn stjóm- völdum. Samtökin ítrekuðu þó að minning Lees yrði ekki óvirt á neinn hátt, en seinna yrði lýst yfír sérstök- um mótmæladegi vegna dauða hans. Roh Tae Woo, leiðtogi stjómar- flokksins og sá sem Chun forseti vill að taki við af sér, sendi blóm- sveig til sjúkrahússins þar sem Lee Bahrain, Reuter. ÍRAKSKAR herflugvélar réðust á olíuskip við Kharg-eyju í fyrri- nótt. Skipið, sem siglir undir fána Kýpur, varð eldi að bráð, en ekki er kunnugt um manntjón. í tilkynningu frá írökum sagði lést, en stúdentar tröðkuðu sveiginn niður í svaðið. í gær baðst yfírmaður lögregl- unnar, Kwon Bok Kyung, opin- berrar afsökunar á dauða Lees. „Ég fínn til í hjarta mínu vegna hins ótímabæra dauða hans,“ sagði Kwon, „en hann hefur kennt lög- reglunni lexíu um hlutverk sitt, sem er að vemda líf og eignir borgar- anna, en einnig að tryggja öryggi ríkisins og halda lög og reglu." að flugherinn hefði ráðist á tvö „stór skotmörk" og er þá yfirleitt átt við stór olíu- eða vöruflutninga- skip. Engin staðfesting fékkst á að á annað skip hefði verið ráðist. Persaflói: Enn ein árás , . é

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.