Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
25
Tveir hryðjuverka-
menn Baska gripnir
Weizsacker í
Sovétríkjunum
RICHARD von Weizsficker, for-
seti Þýska sambandslýðveldisins,
Ijær hér túlki sínum eyra á fundi
þeirra Gorbachevs Sovétleiðtoga
í gær. Weizsficker er nú í fimm
daga opinberri heimsókn í Sov-
étrikjunum.
Leiðtogamir áttu tveggja stunda
fund í gær. Að honum loknum sagði
Weizsácker að Gorbachev og Kohl
Þýskalandskanslari myndu hittast
seint á árinu og áhersla yrði lögð
á góð samskipti ríkjanna. Einnig
Zambía-Zaire;
Rúmlega
300 menn
drukkna
með ferju
Ain morandi af
krókódílum
Lusaka, Reuter.
ÓTTAST er að á fjórða hundrað
menn hafi drukknað er ferju
hvolfdi á ánni Luapala á landa-
mærum Zambiu og Zaire i
fyrrinótt. Áin er morandi af
krókódilum á þeim slóðum, sem
feijunni hvolfdi.
Um borð í feijunni voru 470
manns, að því er næst verður
komizt. Áttatíu mönnum tókst að
synda til lands og 34 lík höfðu
fundizt þegar síðast fréttist. Því
er talið að á fjórða hundrað manns
hafi drukknað. Þeir sem björguð-
ust voru flestir ofan þilja á efsta
dekki.
Feijunni hvolfdi er hún tók niðri
á sandrifi skammt frá landi. Var
hún þá komin af siglingaleið og
alltof nálægt árbakkanum. Slysið
varð um miðja nótt og bendir allt
til þess að bátsmaður, sem var á
vakt í brú, hafi dottað. Talið er
að flestir farþeganna hafi verið
sofandi þegar feijunni hvolfdi
skyndilega.
Feijan var á leið frá Pweto til
Kasenga er henni hvolfdi. Slysið
varð skammt frá hafnarborginni
Katabulwe í Zaire. Slysstaðurinn
er um 640 km norður af Lusaka,
höfuðborg Zambíu.
í ^
ERLENT
var ákveðið að Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
kæmi til Bonn.
Madríd, Reuter.
TVEIR hættulegustu hryðju-
verkamenn Baska voru hand-
teknir á hótelherbergi í
Saragossa í fyrradag og er hand-
takan talin vera meiriháttar
sigur fyrir spænsku lögregluna.
Jafnframt sagðist lögreglan hafa
komið í veg fyrir öldu hryðju-
verka á Costa del Sol.
Kennsl voru borin á mennina við
vegtálma við Barcelona. Var þeim
veitt eftirför og fylgst með þeim
allt þar til þeir fóru inn á hótel í
Saragossa. Umkringdi lögreglan
hótelið og voru mennimir tveir
síðan teknir í áhlaupi.
Hryðjuverkamennimir voru eftir-
lýstir og taldir þeir hættulegustu í
röðum Baska. Þeir heita Ines del
Rio og Jose Luis Hermosa Urra.
Sá fyrmefndi er talinn vera foringi
hryðjuverkasveitanna í Madríd.
Við vegtálmann uppgötvaði lög-
reglan að þeir höfðu fölsuð skilríki
en leyfðu þeim að halda áfram í
von um að geta fylgt þeim eftir og
náð félögum þeirra einnig. Var
hryðjuverkamönnunum veitt eftir-
för um 300 kílómetra leið til
Saragossa. Þar sáust þeir skoða
bifreið á bílastæði og fundust 35
kíló af sprengiefni í henni.
Vegtálmar vom reistir við allar
götur sem liggja til Barcelona í kjöl-
far sprengjuárásar í verzlunarmið-
stÖð í síðasta mánuði. Biðu 18 menn
bana í sprengingunni.
Þá var Frakki að nafni Jean
Philippe Casavonne handtekinn í
sólbaðsborginni Torremolinos á
Costa del Sol á Spáni í gær. Hann
er talinn vera félagi í hryðjuverka-
sveitum Baska. Honum er gefið að
sök að hafa verið að undirbúa felu-
stað á Costa del Sol fyrir Ines del
Rio og Jose Hermosa. Hann var
einnig sagður undirbúa áætlun að-
skilnaðarsamtaka Baska, ETA, um
sprengjutilræði í verzlunarmiðstöð-
um, ríkisfyrirtækjum og gegn
hemaðarlegum skotmörkum. Lög-
reglan lýsti yfír því að henni hefði
tekizt að koma í veg fyrir sprengju-
herferð á Suður-Spáni.
Sjö bflar skemmdust þegar
sprengja sprakk í gærmorgun í
Baskaborginni Durango. Sex
bflanna vom eign Frakka. Látið var
vita um sprengjuna fyrirfram og
sakaði því engann. Talið er að ETA
beri ábyrgð á verknaðinum. Þau
hafa beint spjótum sinum gegn
frönskum fyrirtækjum á Spáni í
þeirri von að hindra framsal meintra
baskneskra spellvirkja frá Frakk-
landi. Frakkar hafa afhent spænsk-
um yfírvöldum 69 slíka á þessu ári.
Loks særðust fjórir hermenn í
eldflaugaárás á yfírmann spænska
hersins í borginni San Sebastian á
Norður-Spáni.
'AN TOMMUR
STGR.
BYÐUR EINHVER BETUR?
HUOMBÆR
| . I e
■
'•'v.' w\! •' v.\_______-'1
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Umboðsmenn: Bokaskemman Akranesi, Kaupfélag Borgfirdinga, Hljómtorg ísafirði, Kaupfélag Skagfirdinga Sauðárkróki, KEA Akureyri,
Hadiover Húsavík, Skógar Egilsstöðum, Kaupfélag Héraösbúa Egilsstöðum, Myndbandaleiga Heydarfjardar Reyðarfirði,
Ermœ Neskaupsstað, Djúpiö Djúpavogi, Hornabær HomaUröi, Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, M.M. búdin Selfossi,
Has Þorlákshöfn, Fataval Keflavík, Hafeindaþjónusta Ómars Vestmannaeyjum, Hadioröst Hafnarfirði, JL Húsid Reykjavík.