Morgunblaðið - 08.07.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
31
/O LÍMBÖND
TIL MARGRA HLUTA NYTSAMLEG
Atríði úr myndinni “Hættuástand“ sem nú er sýnd í Regnboganum.
Hættuástandu í Regnboganum
KVIKMYNDAHÚSIÐ Regnbog-
inn sýnir um þessar mundir
bandarísku grínmyndina
„Hættuástand" (Critical Conditi-
on). í aðalhlutverki er gaman-
leikarinn Richard Pryor en með
önnur hlutverk fara Rachael
Tictin, Ruben Blades, Sylvia Mi-
les o.fl.
í fréttatilkynningu frá Regn-
boganum segir að myndin fjalli um
það hættuástand sem skapast þegar
rafmagnið fer af stóru sjúkrahúsi
og vararafstöðin fer ekki í gang.
Undir þessum kringumstæðum not-
ar einn sjúklingur af geðdeild,
leikinn af Richard Pryor, tækifærið
til þess að læðast á brott. Honum
tekst þó ekki að flýja en er tekinn
í misgripum fyrir frægan lækni sem
von var á og látinn taka við stjóm
sjúkrahússins.
Leikstjóri myndarinnar er Micha-
el Apted en hann leikstýrði einnig
myndinni „Dóttir kolanámumanns-
ins“.
Hin þekktu TESA-LÍMBÖND eru til í mörgum gerðum, enda
eru þau til margra hluta nytsamleg. Við bjóðum upp á máln-
ingarlímbönd, einangrunarlímbönd, teppalímbönd, kjallím-
bönd, viðgerðarlímbönd, sjálflímandi þéttilista, límbands-
statív og fleira, allt frá TESA.
Ennfremur eigum við hin frábæru TESA-innpökkunarlím-
bönd fyrirliggjandi, brún og glær í mörgum gerðum.
VIÐ PRENTUM Á INNPÖKKUNARLÍMBÖND
-þar með er límbandið orðið að góðri og ódýrri auglýsingu.
Heildsölubirgðir:
J.S. HELGASON HF
Draghálsi 4, Reykjavík.
Símar: 91-37450 & 91-35395.
Selfoss:
Fékk f imm laxa
á Halta hanann
4-6 laxar á stöng á dag að meðaltali
Selfossi.
STANGVEIÐIMENN á Selfossi
bíða eftir þvi að fá góða göngu
í ána. Frá þvi stangveiðin hófst
hafa fengist þetta 4 til 6 fiskar
á dag að meðaltali. Sigurður
Sveinsson lögfræðingur fékk á
dögunum 5 laxa fyrsta daginn
sem hann var í ánni og alla á
Halta hanann sem er ný túba,
hönnuð af Helga Finnlaugssyni
á Selfossi.
Laxamir voru 5, 13, 14, 16 og
17 pund og fékk Sigurður fjóra
þeirra í Víkinni og einn á Miðsvæð-
inu. Jafnframt því að þetta var
fyrsti dagur Sigurðar þá voru þenn-
an dag 14 ár síðan hann setti í sinn
fyrsta lax og einnig var þennan dag
85 ára afmælisdagur föður hans,
Sveins Sveinssonar bflstjóra.
Veiðimenn telja að laxinn hafi
gengið snemma upp Ölfusá, áður
en stangveiðin hófst, og segja það
ástæðuna fyrir góðri veiði á efri
svæðum Hvítár. Þeir laxar sem
fengist hafa á veiðisvæðunum á
Selfossi hafa flestir tekið túbu.
— Sig. Jóns.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Kópavogshælis
Heilbrígðisráðherra hefur ný-
veríð skipað Pétur J. Jónasson,
sálfræðing, framkvæmdastjóra
Kópavogshælis.
Pétur gegndi áður starfi starfs-
mannastjóra Ríkisspítala.
Menningarstofnun Bandaríkjanna:
Ein myndanna á sýningunni
Sýning á myndverkum
Jóns Baldvinssonar
Grímuteikning-
ar í Hafnarborg
HÉR á landi er nú staddur danski
myndlistamaðurínn Anders Hjul-
er. Á morgun, fimmtudag, opnar
hann sýningu á teikningum af
grímum i sýningarsalnum Hafn-
arborg í Hafnarfirði.
Anders Hjuler er fæddur í
Holstebro árið 1946 og hefur nú
vinnustofu í Kaupmannahöfn. Hann
stundaði nám í listasögu við Árósa-
háskóla og málaralist og grafík við
listaakademfuna f sömu borg 1967
- 68. Einnig hefur hann stundað
nám í París og víðar.
Hjuler hefur haldið fjölmargar
sýningar m.a. í listaakademíunni í
Árósum, Listasafninu í Ribe, „Hús-
inu“ í Kaupmannahöfn og enn
fremur hefur hann haldið sýningar
í Grikklandi.
Sýning Hjulers f Hafnarborg
verður opin frá kl. 14 - 18 frá 9.
til 23. júlí.
SÝNING á myndverkum Jóns
Baldvinssonar verður opnuð i
Menningarstofnun Banda-
ríkjanna á morgun, fimmtudag-
inn 9. júlí.
segir þann 9. júlí kl. 18.00 og verð-
ur opin alla virka daga nema
fimmtudaga frá kl. 8.00 til 17.00,
frá 8.00 til 20.00 á fímmtudögum
og frá 14.00 til 22.00 um helgar.
í fréttatilkynningu frá stofnun-
inni segir að Jón hafi undanfarin
tvö ár stundað nám við San Fran-
cisco Art Institute og hafí þar þróað
nýjan persónulegan stfl. Þar segir
að honum hafi tekist að blanda
saman hinum hefðbundna íslenska
stfl sínum og þeim straumum og
stefnum sem ríkjandi eru í myndlist
í Bandaríkjunum í dag. Með þessum
hætti takist honum að fjá tilfínning-
ar sínar á áhrifaríkan hátt.
Listamaðurinn mun verða á
staðnum frá kl.15 virka daga og
allar helgar. Sýningunni lýkur 20.
júlí 1987.
Jón Baldvinsson er fæddur 29.
október 1927 og hefur hann lagt
stund á málaralistina frá árinu
1957. Hann hóf þó ekki nám fyrr
en 1971 í Det Jydste Kunstakademi
í Danmörku og í Myndsýn í
Reykjavík undir stjóm Einars Há-
konarsonar og Ingibergs Magnús-
sonar.
Jón hefur haldið tólf sýningar á
Eitt verka Jóns Baldvinssonar á
sýnmgunni í Menningarstofnun
Bandaríkjanna.
verkum sínum bæði hérlendis og í
Danmörku.
Sýningin í Menningarstofnun
Bandaríkjanna hefst, eins og áður
Fatlaðir
safna fyrir
íþróttahúsi
ÍÞRÓTTAFÉLAG fatlaðra
stendur nú fyrir fjársöfnun
og á að nota það fé sem safn-
ast til að reisa iþróttahús að
Hátúni 12 í Reykjavík.
Um síðustu helgi sigldu
nokkrir úr íþróttafélaginu í
gúmmíbátum niður Hvítá og var
ætlunin að safna peningum
meðal almennings með áheitum
á siglingamenn.
Viðbrögð fólks reyndust held-
ur dræm og því hefur ÍÞróttafé-
lag fatlaðra opnað gíróreikning
númer 3200-5 fyrir þá sem
leggja vildu fram fé til söfnunar-
innar.