Morgunblaðið - 08.07.1987, Page 43

Morgunblaðið - 08.07.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987 43 Grísk heimspeki og* bókmenntir Erlendar baekur Siglaugur Brynleifsson The Cambridge History of Classical Literature I. Greek Lit- erature. Edited by P.E. Easterling and B.M. Knox. Cambridge University Press 1986. W.K.C. Guthrie: A History of Greek Philosophy. Vol. IV: Plato the Man and his Dialouges. Earlier Period. Vol. V: The later Plato and the Academy. Cambridge University Press 1986. Elstu brot úr fomgrískum bókum eru frá því seint á 4. öld f. Kr. Fyrir þann tíma var ort, sungið og leikið og Hómerskviður eru taldar elstar. Saga grískra bókmennta spannar því meira en þúsund ár, því að höfundamir binda sig við þriðju öld e.Kr., sem lok hinnar eig- inlegu grísk-rómversku bókmennta og siðmenningar. Pjallað er um rómverskar bókmenntir í II. bindi þessa ritverks, en það kom út 1982 undir sama höfuðtitli. Höfundamir miða við 3ju öld og gera því enga tilraun til þess að fjalla um kristnar bókmenntir, né upphaf bysankra bókmennta, tíma- markanir eru tengdar heiðnum sið. Það em gömul sannindi að grískar bókmenntir gegna lykil- hlutverki í sögu vestrænnar menningar og em meira en snar þáttur sömu menningar. Grískar bókmenntir em sérstætt og furðu- legt fyrirbæri mannheima. Þótt mikið hafi glatast er magnið furðu- lega mikið og við það hefur bæst síðastliðin hundrað ár, því talsvert hefur fundist af brotum úr fomum ritum. Bækur og lesendur í gríska heim- inum er inngangskafli þessa rits, Platon allt frá upphafi og til Alexandríu, en í þeirri borg var gengið að lokum frá niörgum grískum textum í því formi sem við þekkjum. Síðan hefst eiginleg saga grískra bókmennta með Hómer. Hann orti fyrir daga skriftar, kvæðin vom lærð utan að og vom þáttur uppfræðslu þeirra, sem hennar nutu. ■ Strax og ritöld hófst með hellenum vom bálkamir skráðir. Fyrst í stað var röðun og niðurskipan nokkuð á reiki, en frá því á fimmtu og fram á aðra öld f.Kr. var unnið að Hómerskviðum af fræðimönnum og bókfræðingum í Aþenu, Alexandríu og Pergamon. Höfundamir lýsa flutningi kvæð- anna fyrir ritöld og stfl og allri gerð báíkanna og þeim margvíslegu skoðunum sem settar hafa verið fram um skáldið og skáldin og til- urð kvæðanna. Síðan relg'a þeir sögu grískra bókmennta eftir tíma- röð fram á 3ju öld e.Kr. Þeir leggja höfuðáherslur á þau verk, sem mótað hafa menningu Vesturlanda, bókmenntaverk, heimspeki, sagn- fræði og í síðari hluta ritsins er fjallað um gríska bókmennta- og heimspekisögu eftir að gríska menningarsvæðið var hluti Róma- veldis. I bókarlok eru upplýsingar um höfundana og bókfræðilegar upplýsingar um verk þeirra og loks skrá um helstu heimildarrit. Ritið er um 950 blaðsíður í stóru broti og ætti að koma öllum þeim að gagni, sem áhuga hafa á fomgrísk- um bókmenntum og menningu, vel skipuagt fræðirit og lipurlega skrif- að og öllum aðgengilegt. Cambridge-saga grískrar heim- speki tók að koma út 1962. Ritin hafa einnig komið út óbundin og eru alls komin út fímm bindi, þessi tvö þau síðustu á fyrra ári. Cam- bridge-útgáfan hefur gefíð út mörg viðamikil fræðirit og þá oft unnin af nokkrum hóp fræðimanna. Þessi heimspekisaga er skrifuð af einum manni, sem telst til færustu fræði- manna í grískri menningarsögu og heimspeki. í formála fyrsta bindis skrifar Guthrie: „Hingað til hefur eina fá- anlega verkið um þessi efni verið „Greek Thinkers" eftir Theodor Gompertz, þýtt úr þýsku á ensku, en lokabindinu var lokið 1909. Þetta var gagnlegt verk á sínum tíma og er enn, en á síðustu hálfri öld hefur margt nýtt komið í ljós, sem hefur meira og minna snert þessi fræði og valdið róttækum breytingum á vissum þáttum heimspekisögunnar, svo að full þörf er á nýju verki. Stjómendur útgáfunnar töldu hent- ast að grísku kunnáttu þyrfti ekki við, af lesendum verksins ...“ Fyrstu þtjú bindin hlutu lof fræðimanna og menn skildu eftir útkomu verksins, að full þörf var á slíku verki, þar sem saga grískrar heimspeki væri ítarlega umfjölluð, eins og hér er gert. Þessi tvö bindi, það fjórða og fímmta, eru helguð Platon. Hin leikræna heimspekium- íjöllun Platons í gervi dialoga hafði þann tilgang „að aðstoða menn við að gera sér grein fyrir hlutverki sínu og átta sig á stöðu sinni í heim- inum ...“ Guthrie segir að það sé mjög vafasamt að gera „útdrætti" úr kenningum Platons, hann sé „svo magnaður persónuleiki og einn af furðulegustu höfundum, sem uppi hafa verið og hafí ekki aðeins áhuga á hugmyndum heldur einnig á ein- staklingum". Guthrie ræðir því heimspeki Platons eftir tímaröð dia- loganna en ekki eftir efnisþáttum. Hann hvetur alla þá sem lesa þessi rit, að lesa verk Platos sjálfs til þess að nálgast frumlegasta og magnaðasta höfund allra tíma, sem er jafnframt mótandi heimspeki- legrar hugsunar allar aldir. Fjórða bindið er inngangur að lífí og ritverkum Platons, fyrri og miðhluta heimspekilegra umþenk- inga hans, þar með flokkast m.a. „Ríkið". í fímmta bindinu eru síðari og siðustu dialogamir ræddir og ýmis rit, sem hafa varðveist í frá- sögn annarra, einnig rit lærisveina hans. Guthrie er mjög læsilegur og skrifar ljóst, en það er einkenni fremstu fræðimanna Englendinga. AGFA+3 Alltaf Gæðamyndir VEISLA í HVERRI DÓS KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA AKUREYRI SÍMI: 96-21400 Þakkir til sr. Gunn- arsog Ágústu eftirJónKr. Ólafsson STATTU GÆÐAVAKT MED KODAK í SUMAR! Stattu gæðavakt með Kodak í sumar! Þér býðst að taka þátt í skemmtilegum sumarleik um leið og þú nærð í myndirnar úr framköllun hjá næstu Kodak Express framköllunarþjónustu. Hér á Bfldudal á síðastliðnum sjómannadegi var afhjúpaður minn- isvarði um sjódrukknað fólk. Til þessarar virðulegu en látlausu athafnar komu þau listahjónin séra Gunnar Bjömsson og Ágústa Ágústsdóttir söngkona og fluttu tónlist með miklum glæsibrag. Þau hjónin em ekki að ganga sín fyrstu spor í þessum efnum, þau hafa stráð rósum allstaðar sem þau hafa farið, og mætti að mínum dómi og margra annarra, láta þess getið víðar en raun ber vitni. Koma þeirra hingað til Bfldudals var hrein opinbemn, þau lyftu öllu í _ hærra veldi með sinni fögm list. Ég hef að minnsta kosti ekki heyrt í annan tíma, þá með virðingu fyrir öllum öðmm, flutt betur Ave María eftir Bach- Gounod, sem þau hjón gerðu með glæsibrag. Ég undirritaður óska þeim alls góðs og vona að listagyðj- an verði þeim hliðholl. Höfundur er söagrarí, búsetturá Bíldudal. FJOLMARGAR VIÐURKENNINGAR! Kodak Express gæðaframköllun er á eftirfarandi stöðum: Akranesi: Bókaverslunin Andrés Níelsson hf. Akureyri: Pedrómyndir og | Nýja Filmuhúsið. Hafnarflrði: Radíóröst Myndahúsið, Dalshrauni 13. 5 Kópavogi: Bókaverslunin Veda, Hamraborg. Reykjavík: Verslanir Hans * Petersen, Bankastræti, Austurveri og Glæsibæ. < Selfossi: Vöruhús KÁ. ísafjörður: Bókaverslun Jónasar Tómassonar. Kodak Express \ Gæðaframköllun JL vy Væntanlegir Kodak Express staðir: Sauðárkróki: Bókabúð Brynjars. Reykjavík: Verslun Hans Petersen, Kringlunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.