Morgunblaðið - 08.07.1987, Síða 50

Morgunblaðið - 08.07.1987, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987 „ þetta. er ckCjrzzsbcx. 'ilmvatrvs- giasiti sem éc) gat -Pund'tá án /e5g le-ravQnanrvx mínru\. " ást er... ... að láta bera sig burtu TM Rðfl. U.S. Pat Oft—aH rtghts resarvad C1966 Los AnQttes Times Syndfcate Þetta er brunaútkall, ekkert annað ... Þetta er svakalegt. Með morgunkaffinu Þessi málverk eru öll frá þeim tima sem þakið lak hjá meistar- anum_____ HÖGNI HREKKVÍSI " HANN e-R ae> gera 8irge>a- talningu." Þekkir einhver þessi börn? Velvakanda hefur borist í hendur meðfylgjandi ljósmynd sem líklega var tekin á bamaheimili á Eiríks- götu einhvem tímann í kringum árið 1950. Ef einhver kannast við þessi böm sem nú ættu að vera um fertugt getur hann haft samband við Sigríði Sigurðardóttur í síma 12392 á vinnutíma eða í síma 666990 á kvöldin og fengið eintak af myndinni ef hann kærir sig um. HEILRÆÐI Garðvinna Garðvinnan á að vera þeim til ánægju og heilsubótar sem hana stunda. Sláttuvélar og tijáklippur létta mönnum vinmi en gæta þarf varúðar í meðferð þessara tækja svo að ekki hljótist slys af. Víkverji skrifar Við eigum ekkert dýrmætara en móðurmálið. Það knýtir okkur fastar saman sem þjóð en nokkuð annað, enda hornsteinn þjóðernis, menningar og fullveldis okkar. Flest viljum við varðveita móður- málið vel og nota það á réttan hátt, bæði í ræðu og riti. En góð áform verða sér á stundum til skammar, því miður, þrátt fyrir vilja og við- leitni. Þetta á ekki sízt við um þýðingar úr erlendum málum. Orðfæri fréttar í „EB-UPPLÝS- INGUM FYRIR ÍSLAND", sem Framkvæmdanefnd Evrópubanda- lagsins gefur út, kemur sjálfsagt ýmsum spánskt fyrir sjónir. Þar sagði m.a.: „Umframframleiðslan á land- búnaðarafurðum á heimsmæli- kvarða er ástæðan til að fleiri viðskiptakreppur milli EB og USA eru nærliggjandi. Benedicte Fed- erspiel, sem er deildarstjóri í danska Neytendaráðinu, og varaforseti í Sambandi evrópskra Neytendasam- taka, segir, að sér finnist það vera lélegt af samgöngumálaráðherrun- um, að þeir vilji ekki gefa sam- keppnina um verð á flugferðum fijálsa, svoleiðis að hægt sé að setja verðin niður. Fyrst héldu menn fram, að þjón- ustuatriði eins og flugferðir, sé ekki getið í Rómarsáttmálanum. En Evr- ópu-dómstóllinn neitaði því. Einmitt núna er eitt af vandamálunum, að svör til Framkvæmdanefndarinnnar við slíkum fyrirspurnum taka mjög langan tíma þegar nefndin vill rann- saka flug-markaðinn ..." Með góðum vilja er hægt að ráða í það, hver meining frásagnarinnar er, en framsetningin er framandi. Hugsanlega er höfundur hins íslenzka texta útlendingur. Það skýrði orðfærið. En þeir, sem koma vilja upplýsingum á framfæri á íslenzku máli, verða að standa betur að verki en hér er gert, svo hóflega sé til orða tekið. XXX Tungutak, húsblað ríkisútvarps- ins, sem Ámi Böðvarsson ritstýrir, fjallar í júníhefti um fram- burð móðurmálsins. Þar var ádrepa í tíma töluð. Orðrétt segir: „Eitt einkenni vandaðs fram- burðar er að svo til öll atkvæðin í orðunum heyrast, líka þau sem em alveg áherslulaus. Áherslulausu at- kvæðin eiga raunar að vera mjög fyrirferðarlítil og rýr, en þau mega ekki hverfa algjörlega . . .“ Blaðið nefnir nokkur dæmi um framburð, „sem ekki er boðlegur í Ríkisútvarpinu. Rangur framburður er sýndur á undan merkinu *** en vandaður á eftir því. Orðunum er raðað eftir því hvaða hljóð brengl- ast helst." Hér verða tínd til nokkur dæma úr Tungutaki: A-greiðsla *** afgreiðsla A-drín *** afdrifin Minum *** miðunum Þjófélagi þjóðfélagi Oulea *** ógurlega hambolti *** handbolti Nyðrí *** nyrðri Vegsummckki *** vegsummerki. Höfundur leggur áherzlu á mikil- vægi vandaðs málfars í hljóðvarpi og sjónvarpi. „Allt málfar er smit- andi,“ segir hann, „hvort sem flytjanda og viðtakanda líkar betur eða verr. Vegna þess að sjónvarp er sterkari miðill en útvarp eru áhrif þess meiri og þeim mun ríkari sem áhorfandinn er yngri. Illa tal- andi stjórnandi sjónvarpsefnis fyrir börn eða unglinga gerir sitt til að þau verði líka i!la talandi." Víkveiji tekur undir það með Árna Böðvarssyni að málfar í út- varpi og sjónvarpi „er smitandi", raunar áhrifarík kennslustund í framburði, góðum eða vondum eftir atvikum. Víkveiji er og þeirrar skoðunar að margur flytjandi talaðs máls í þessum fjölmiðlum mætti taka sér Pétur Pétursson og fleiri gamalkunna þuli ríkisútvarpsins til fyrirmyndar hvað framburð áhrær- ir. Og skólarnir mættu gjaman auka talkennslu að mun. Móðurmál- ið er framburður ekkert síður en réttritun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.