Morgunblaðið - 08.07.1987, Side 52
52 MORGUNBLADIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
Gat ekki gengið ítvo daga
eftir ég setti heimsmetið
Rætt við Robert Walters, sem átti heimsmetið í því að halda knetti á lofti
ENGLENDINGURINN Robert
Walters vaktl töluveröa athygll
hór á landi þegar hann sýndi hina
ótrúlegu knatttœkni sfna 6 ýms-
um stö&'m um landlö. Hann er
'fyrrum heimsmeistari f aö halda
knetti á lofti og var met hans 13
tfmar, 2 mfnúturog 19 sekúndur.
Robert setti þetta met árið 1984
en það var slegiö af Svía nokkrum
fyrirtveimur mánuðum. Sem sönn-
um keppnismanni sæmir ætiar
Robert að reyna að endurheimta
heimsmetið í ágúst næstkomandi.
Blaðamaður Morgunblaðsins náði
tali af Róbertií Vestmannaeyjum
þar sem hann var að sýna kepp-
endum á Tommamótinu listir
sínar. Varð hann fúslega við beiðni
um viðtal.
Reyndi fyrir sér sem
atvinnumaður
Við höfðum mælt okkur mót í
matsal Gestgjafans eftir að Robert
hafði sýnt listir sínar á opnunar-
hátíð Tommamótsins. Tíminn leið
og ekkert bólaði á Róberti og und-
irritaður fór að ókyrrast. Var
heimsmeistarinn fyrrverandi e.t.v.
einn af þessum hrokafullu mönn-
um sem héldu að þeir gætu alltaf
látið bíða eftir sér. En eftir rúman
klukkutíma kom Róbert móður og
másandi og baöst innilega afsök-
• Robert var óþreytandi vlö aö gefa eiginhandaróritanir meðan hann
var f Vestmannaeyjum.
unar á því að vera svona seinn því
hann hefði verið á fuliu að gefa
eiginhandarárítanir. Það kom á
daginn að hann hafði staðið út á
velli í rúman klukkutíma og gefið
krökkunum eiginhandaáritanir.
Eg spurði Róbert hvers vegna í
ósköpunum hann hefði haft þolin-
mæði í þetta og þetta var ekki í
fyrsta skipti á mótinu sem hann
,var upptekinn í lengri tíma að
skrifa nafnið sitt a blöð.skó.hatta
og jafnvel handleggi. „Þetta eru
mínir tryggustu aðdáendur og ég
veit hvernig ég var sjálfur á mínum
yngri árum en ég átti heima
steinsnar frá heimavelli Aston
Villa. Það var því oft sem maður
reyndi að fá eiginhandaráritun hjá
goöum sínum." Þetta svar lýsir
e.t.v. öðru fremur persónuleika
þessa geðþekka unga Englend-
ings. Hroki er ekki til hjá honum
og hann er mjög hógvær um afrek
sín: „að halda boltanum svona
Jengi á lofti er ekki eins erfitt og
fólk heldur. Það geta þetta flestir
en þeir verða auðvitað að hafa
rétt hugarfar til þess. Þetta er
vinna og aftur vinna en ekki ein-
hverjir náttúruhæfileikar"
En til að byrja á byrjuninni þá
spurði ég Róbert hvar hann sé
fæddur og hvenær hann hafi feng-
ið áhuga á svona boltaþrautum.
„Eg er fæddur 19. apríl árið 1964
þannig að ég er 23 ára gamall.
Eins og hefur komið fram þá er
ég fæddur skammt frá heimavelli
Aston Villa þannig það leiðir beint
af sér að ég byrjaði mjög ungur
að leika mér með bolta. Þegar ég
var 16 ára fékk bráðabirgðasamn-
ing með Birmingham-liðinu en það
gekk ekki nógu vel. Þá flutti ég til
Wolverhampton og fékk að reyna
mig með Wolves í nokkra mánuði
en sá brátt að ég myndi ekki ná
langt í atvinnuknattspyrnunni"
Hugmyndin kviknaði í
garðinum
„Það var skömmu síðar er ég var
kominn heim til Birmingham sem
hugmyndin að þessum boltaþraut-
um kviknaði. Eg var að leika mér
með bolta í garðinum þegar ég
ákvað að prófa hve lengi ég gæti
haldið boltanum á lofti. Eg hætti
eftir rúma fjóra tíma og hafði þá
haldið tuðrunni á lofti í tæplega
20 þúsund skipti. Eftir að hafa
haft samband við heimsmetabók
Morgunblaðið/Andrós
• Krakkarnir á Tommamótinu voru dolfallnir yfir boltatæknio Ro-
berts.
Guinnes komst ég að því að heims-
metið væri rúmir 11 tímar. Eg
hugsaði með mér að ef ég gæti
fengið eitthvað fyrirtæki til að
styðja mig ætti ég góða möguleika
á því að slá heimsmetið. Eg fór
því á stúfana og fljótlega fann ég
fyrirtæki sem heitir Sport Projects
og þeir ákváðu að styðja mig."
129 þúsund snerting-
ar
í hverju felst styrkur sem þessi?
„Þetta þýðir að fyrirtækið greiðir
fyrir fæði, húsnæði og föt og svo
vissa upphæð á viku. Upphæðin
fer dálítið eftir því hve mikið er að
gera en þeir nota mig til að aug-
lýsa vörur þeirra. Eg hætti nýlega
hjá þessu fyrirtæki þar sem NIKE
bauö mér betri samning og ég
auglýsi nú vörur þeirra."
Hvað tók þaö þig langan tíma
að undirbúa þig undlr aö setja
heimsmetið? „Ég æfði í tæp-
lega ár. Það fólst í daglegum
æfingum að meðaltali 3-4 tíma á
dag. Þá er ég venjulega 2-3 tíma
með bolta en svo hleyp ég mikið
og lyfti lóðum. ( fyrstu tók ég
stórstígum framförum en og ég
hefði getað 9-10 tíma eftir tvo þrjá
mánuði. En ég var orðinn svo stað-
ráðinn í því að setja heimsmet að
þrjóskan rak mig áfram. Það var
síðan árið 1984 að ég setti nýtt
heimsmet: 13 tíma, 2 mínútur og
19 sekúndur. Þá var ég búinn að
snerta boltann 129 þúsund sinn-
um“
Hvernig var tilfinningin aö hafa
sett heimsmet?
„Fyrsti hálftíminn var alveg frá-
bær. Eg hafði ekki við að taka við
hamingjuóskum og mér leið alveg
frábærlega. Síðan fór líkaminn að
segja til sín og lappirnar á mér
fóru að stífna upp. Samkvæmt
læknisráði fór ég þá i rúmið og ég
gat ekki gengið í tvo daga á eftir."
Þú hefur ekki getað hvflt þig
meðan á heimsmetstilrauhinni
stóð?
„Nei.það er málið að maður
verður að vera á fullu allan tímann.
Það er engin 5 mínútna pása á
klukkutíma og boltinn verður sífellt
að vera á ferð."
ísland frábært land
Hvernig atvikaölst þaö aö þú
komst til íslands?
„Upprunalega átti ég að koma
hingað til að sýna á góðgerðar-
leiknum á 17.júní en vélin var full
af íslendingum á leið heim til að
halda upp á þjóðhátíðina. Eg
komst því ekki í tæka tíð en Hall-
dór Einarsson sem sá um ferðina
mína hingað útvegaði ýmsar aðrar
uppákomur til að sýna á.“
Hvert hefur þú farið?
„Eg fór til Akureyrar og átti að
fara til Húsavíkur en það var ófært
þangað. Síðan sýndi ég í Reykjavík
og nú hér íVestmannaeyjum. Einn-
ig tók stöð 2 upp þegar ég var að
sýna listir mínar.
Eg verð að viðurkenna að ég vissi
ekki neitt um ísland áður en ég
kom hingað og bjóst hálfvegis við
jöklum og snjókomu. Landið hefur
svo sannarlega komið mér á óvart.
Veðrið hefur verið alveg frábært
og fólkið verið mjög vinsamlegt
og hjálpsamt. Einnig má ekki
gleyma kvenfólkinu sem er upp til
hópa gullfallegt. Það er öruggt að
ef ég fæ tækifæri til þá ætla ég
að koma hingað aftur og þá í lengri
tíma til að kynnast landi og þjóð
betur"
Bjó á Ítalíu í 10
mánuði
Hefur þú sýnt f öörum löndum?
„Eg hef farið til Frakklands, Dan-
merkur og Hollands og sýnt þar.
Einnig fór ég til Ítalíu á vegum fyrir-
tækisins og bjó þar í 10 mánuði.
Það var mjög þroskandi tími og
skemmtilegur enda kann ég vel við
mig í sól. Það sem ég stefni að
nú er aö kómast til Bandaríkjanna
því ég hef trú á því að þar geti
haft mikið upp úr því að sýna knatt-
listir."
Ef við snúum okkur nú aö þér
persónulega, eru foreldrar þfnir
fæddir f Englandi?
„Nei, þau eru fædd í Jamaica
en hafa búið í Englandi í 35 ár.
Pabbi minn er leigubílstjóri í Birm-
ingham en mamma mín er
húsmóöir."
Hvaða önnur óhugamál hefur
þú fyrir utan boltaþrautir?
„Eg hef mjög gaman af því að
spila borðtennis og knattborðs-