Morgunblaðið - 07.08.1987, Qupperneq 5
C'VM | Í?-T. 'i * r • *•
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987 5
ísafoldin
skírð
Hrísey
KAUPSKIPIÐ ísafold, sem skírð
hefur verið Hrísey, kom tíl hafn-
ar á Neskaupstað í fyrradag frá
Skotlandi.
Skipafélagið Kaupskip hf. á Ak-
ureyri hefur nýverið keypt skipið,
en það hafði verið kyrrsett í Goole
í Bretlandi síðan í maí, vegna skulda
fyrrverandi eigenda, Kæliskips hf.,
við skoska eignaraðila.
Við fljúgum til útianda
yfir 100 sinnum í hverri viku
- sumarið út! *
Norræn leik-
listarmið-
stöð áformuð
FYRIR skömmu hélt norræna
áhugaleikhúsráðið sinn 20. aðal-
fund í Lýðháskólanum i Rómal-
andi í Noregi. Fundinn sóttu 23
islendingar viðs vegar að af
landinu, en á honum var meðal
annars samþykkt ályktun nm að
reyna að koma á fót norrænni
leiklistarmiðstöð áhugafólks sem
sinnti leiklistarmenntun og upp-
lýsingamiðlun ásamt öðru.
Auk þess samþykkti fundurinn
almenna menningarstefnuskrá fyrir
ráðið.
Bandalag íslenskra leikfélaga
hefur tekið virkan þátt í starfsemi
norræna áhugaleikhúsráðsins síðan
1970, en sem dæmi um árangurinn
af því samstarfi má nefna norrænu
leiklistarhátíðina sem haldin var í
Reykjavík síðasta sumar, auk þess
að íslenskum leikfélögum hefur ver-
ið gefinn kostur á að sækja
námskeið og að fara í leikferðir til
hinna Norðurlandanna.
Fræðslufundur
fyrir tungu-
málakennara
Fræðslufundur fyrir tungu-
málakennara verður haldinn 10.
ágúst kl. 15.00 í Kennaraháskóla
íslands, stofu 201.
Á fundinum verða kynnt verkefni
sem eru örvandi fyrir fjölbreytilega
málnotkun nemenda.
Leiðbeinendur verða Sallie Hark-
ness og Steve Bell, lektorar við
Jordanhill-kennaraháskólann í
Skotlandi. Þau hafa haldið kennara-
námskeið í Skotlandi og víðsvegar
um heiminn. Þau eru stödd hér á
landi vegna kennslu á námskeiði
Kennaraháskólans fyrir grunn-
skólakennara sem haldið var í
Þelamerkurskóla 4.-8. ágúst.
Leiðréttíng
í Morgunblaðinu 31. júlí sl. þar
sem skattskrár fyrir 1987 voru
lagðar fram var rangur nafna-
listi þeirra einstaklinga sem
greiða hæst gjöld á Austurlandi.
Kristín Guttormsdóttir, Nes-
kaupstað, fellur út en við bætist
Magnús Ásmundsson, Neskaup-
stað.
Þeir einstaklingar sem greiða
hæst gjöld á Austurlandi eru því:
1. Jón G. Helgason, Höfn,
2.021.254 kr.
2. Stefán Amgrímsson, Höfn,
1.924.559 kr.
3. Hjálmar Jóelsson, Egilsstöðum,
1.165.931 kr.
4. Ragnar Steinarsson, Egilsstöð-
um, 1.128.673 kr.
5. Magnús Ásmundsson, Nes-
kaupsstað, 1.116.199 kr.
Hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
3 x BALTIMORE/WASHINGTON
APEX kr. 25.270 (15/8-14/10)
2xB0ST0N
APEX kr. 23.840 (15/8-14/10)
5xCHICAG0
APEX kr. 26.950 (15/8-14/10)
7xNEWY0RK
3xORLANDO
APEX kr. 30.990 (15/8-14/10)
3xBERGEN
PEXkr. 15.850
3xFÆREYJAR
PEXkr. 11.530
3 x GAUTABORG
PEXkr. 17.200
17 x KAUPMANNAHOFN
PEX kr. 17.010
4xNARSSARSUAK
Kr. 14.910
8xOSLO
PEXkr. 15.850
7 x STOKKHOLMUR
PEXkr. 19.820
2xFRANKFURT
PEXkr. 15.190(1/9-31/10)
20xLUXEMBORG
PEXkr. 14.190
/
2xPARIS
PEX kr. 20.630
2xSALZBURG
APEX kr. 18.670
3xGLASG0W
PEXkr. 13.370
* Miðað er við háannatíma, júní, júlí, ágúst.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
_ 8XL0ND0N FLUGLEIÐIR
“ PEXkr. 15.450
FLUCLEIDIR
---fyrir þfg--
Söluskrifstofur Flusleiða: Lækiareötu 2. Hótel Esiu 00 Álfahakka 10. Upplvsingasími 25100