Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987 21 við og í hugum þeirra sem hér búa. Við höfum oft orðið varir við að þær samþykktir og ályktanir sem við höfum gert um hin ýmsu mál hafa ekki vegið eins þungt og sam- svarandi aðgerðir bæjarstjóma á landinu og þannig mætti lengi telja", sagði Páll. Hann kvaðst vera bjartsýnn á framtíð Mosfellsbæjar. Hvað at- vinnutækifæri varðaði stæðu vonir til að halda mætti því hlutfalli sem verið hefði að undanfömu, en sam- kvæmt könnun frá 1981 hefðu stöðugildi innan bæjarmarkanna svarað til 75% af þeim flölda íbúa sem var á vinnumarkaði. Stærsti vinnuveitandinn í byggðarlaginu er Álafoss, en þar starfa að jafnaði 350 manns. Annað sem Páll nefndi í þessu sambandi vom hinar ýmsu stofnanir á heilbrigðissviðinu, sem hafa sett sig niður í Mosfellssveit, svo sem Reykjalundur, með um það bil 200 manns í vinnu og svo Skálat- ún, Tjaldanes og Hlaðgerðarkot. Þá nefndi hann einnig framleiðslu landbúnaðarafurða, einkum fugia- kjöts. Páll kvaðst ekki vera f vafa um að fjölbreytni atvinnulífs í Mos- fellsbæ myndi aukast í nánustu framtfð enda væm möguleikamir miklir og landrými nóg. Hátíðíbæ Samþykktin um breytingu Mos- fellshrepps f Mosfellsbæ tekur formlega gildi næstkomandi sunnu- dag. Verður þeirra tfmamóta minnst með hátfðardagskrá sem standa mun allan daginn og fram á kvöld. Klukkan 9.00 um morgun- inn verður merki Mosfellsbæjar afhjúpað á mörkum bæjarfélagsins og Reykjavíkurborgar. Því næst verður boðsmót Golfklúbbsins Kjal- ar sett á Hlíðarvelli við Leiruvog, en þar keppa félagar klúbbsins og boðsgestir í 18 holu golfkeppni. Klukkan 11.00 verður hátíðarguðs- þjónusta í Lágafellskirkju. Verðandi bæjarfulltrúar munu taka þátt f messuhaldi. Eftir hádegi hefst hátfðardag- skrá f íþróttahúsinu. Klukkan 14.00 verður lokafundur hreppsnefndar Mosfellshrepps og fyrsti fundur bæjarstjómar Mosfellsbæjar. Jó- hanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra flytur ávarp auk ávarpa annarra gesta. Þá verða veittar við- urkenningar umhverfísmálaráðs fyrir fagra og snyrtilega garða og lóðir. Milli atriða mun hljómskála- kvintettinn leika og skemmtiatriði verða flutt. f Hesthúsahverfí og á skeiðvellinum verður Hestamanna- félagið Hörður með góðhestasýn- ingu þar sem póstlest að gömlum sið mun meðal annars fara um svæðið. Um kvöldið býður bæjarstjóm íbúum til grillveislu við Hlégarð sem hefst klukkan 19.30. Grillaðir verða heilir lambaskrokkar, en að auki verða grillin til afnota fyrir þá sem matreiða vilja sína sérrétti. Ýmsar uppákomur verða á staðnum, leikir söngur og grín í umsjón JC Mos- fellssveit og Lionsklúbbs Kjalar- nessþings. Veislunni lýkur síðan með varðeldi og flugeldasýningu. 21 hestur með flug- vél tíl Bandaríkj anna Kaupendur hestanna hafa flestir valið þá sjálfir hér á landi Morgunblaðið/SAS Reynir Hjartarson tíl vinstrí ásamt Bandaríkjamönnum sem komu hingað til lands í fyrra til að skoða íslenska hesta. Ann Passann- ante, helstí hvatamaður að stofnun íslenska hestafélagsina I Bandaríkjunum, er þríðja frá hægri en lengst til hægri er Láfjs EFTIRSPURN eftir íslenskum hestum erlendis virðist vera tölu- verð og hefur færst í í vöxt að flytja hross til útlanda með flug- vélum. Á miðvikudaginn var til dæmis tuttugu og einn hestur fluttur út til Bandarikjanna með flugvél & vegum Reynis Hjartar- sonar bónda á Brávöllum í Eyjafirði. Daginn áður fóru hest- arnir sem keppa á Heimsmeist- aramótinu í Austurríki fljúgandi með Flugleiðum. Tiu hross fóru með flugvél til Svíþjóðar fyrir skömmu og fjórír hestafarmar hafa faríð til Danmerkur í sum- ar. Hestar hafa einnig veríð fluttir út með skipum og voru tiu hross flutt með Norrænu til Fær- eyja á dögunum. Fyrr á þessu ári voru um 300 hross, þar af um 80 sláturhross, flutt til Evr- ópu með sérstöku hestaflutn- ingaskipi á vegum Félags Hrossabænda og Sambands islenskra samvinnufélaga. Reynir Hjartarson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að fíutningur hrossanna væri skipulagður í sam- vinnu við íslenska hestafélagið hesta f New York og væru flest hrossin þegar seld. Undirbúningur hefur staðið jrfír í tvö ár, en í fyrra voru sendir út nokkrir hestar og fóru tveir íslendingar með þeim til Bandaríkjanna til þess að kenna nýju eigendunum að sitja hestana og einnig var þeim kennd meðferð og umgengni við þá. Nú hefur einn maður dvalið í Bandaríkjunum í Qórar vikur til að undirbúa komu hestanna og annar fylgdi þeim út. Reynir sagði að oft hefði viljað brenna við hjá íslendingum að þeir seldu hesta út og þar með væri málið afgreitt af þeirra hálfu. Hann sagði að alls konar rang- hugmyndir væru um íslenska hestinn erlendis og þess vegna væri nauðsynlegt að fylgja kaupun- um eftir með fræðslu. Bandaríkja- menn stæðu til dæmis í þeirri meiningu eftir að íslenskir hestar tóku þátt í Ameríkureiðinni miklu fyrir rúmum áratug að íslenskir hestar væru svo harðgerðir að það þyrfti ekki að jáma þá. Á íslandi væru engar skeifur notaðar. Einnig héldu margir að íslenskir hestar þyldu að ganga úti allan veturinn og hægt væri að sleppa þeim sveitt- um út á vetuma. Reynir sagði að þetta gengi alls ekki upp og þess vegna legði hann áherslu á að kenna dóttír Reynis. kaupendunum hvemig bæri að umgangast hestana. íslenski hest- urinn væri það sérstakur að ekki væri nóg að selja hann og láta þar við sitja. „Í fyrra sendum við út venjulega fjölskylduhesta sem allir geta riðið og þeir hafa vakið verðskuldaða athygli þama úti,“ sagði Reynir. „í sumar hafa svo komið hópar Bandaríkjamanna og riðið út hjá okkur. Nokkrir hafa keypt sér hesta í leiðinni til þess að taka með sér heim og þannig ætlum við að byggja þetta upp. Þetta er rétt að fara í gang en virðist ætla að ganga vel, enda er áhuginn feyknalega mikill. Við höfum reynt að fara hægt í sakimar vegna þess að Bandaríkin em mjög viðkvæmur markaður. Ekki þarf nema smávægileg mistök til þess að þeir vilji ekkert meira við okkur tala. Við þurfum að vera í sambandi við fólk og reyna að fínna út hvað það vill“. Reynir sagði að þessi viðskipti stæðu varla undir sér ennþá, en Félag íslandshestaeigenda i New York hefði fjármagnað þau að hluta, til dæmis flutninga og ferðir á sýningar. „Við erum búin að taka þátt í fjölda sýninga og þegar hest- amir koma út fara nokkrir þeirra beint á sýningu í Chicago þar sem búast má við nokkur hundruð þús- und áhorfendum. Eftir mánuð fer ég út til Kanada og ráðgert er að við tökum þátt í sex til átta sýning- um fram í október,“ sagði Reynir. Mest hefur farið af hestum til New York og New Jersey, en einn- ig eru dæmi um að hestar hafí farié til Flórída, Vestur-Virginíu, Fflad- elfíu og víðar. „Þetta byijar með því að fólkic kemur hingað og fer á hestbak og byijar að upplifa hestinn hér é landi. Við viljum að þeir sem ætls að kaupa hesta komi hingað og velji þá sjálfír og kaupi beint ai eigandanum. Þetta skilur þá eftii eitthvað flármagn í landinu. Ég ei ekki eins hrifinn af því að selja hesta í stórum hópum út úr landinu og þar með fær framleiðandinn ekkert af raunverulegu verði. Allir, sem við höfum selt hesta, eru vanir öðrum hestum. Eldra fólk sem ekki kemst lengur á bak stóru hestunum finnur hér lausn á því vandamáli. Um daginn komu nokkrar fatlaðar konur og fóru með mér í tveggja daga ferð upp í fjöll. Það þurfti að hjálpa þeim á og al baki. Þær keyptu einn hest. íslendingar mega passa sig á þv að kynna ekki bara einhveija topp gæðinga erlendis. Við eigum ekk: nógu marga svoleiðis hesta til þess að flytja út og auk þess reynasl fjölskylduhestamir best. Bandaríski markaðurinn er mjög stór. Þai þurfa ekki nema fáir að fá áhugs og þá getum við ekki annað eftir- spum. En það er allt i lagi að fars hægt og byggja þetta upp í róleg- heitunum. Best er að alltaf vanti hross á markaðinn því allt sem er- fítt er að fá er spennandi aí eignast," sagði Reynir Hjartarsor að lokum. Fyrsta skútan í ára tugi í Bjarnarfirði Laugarhóli, Bjarnarfirði. ÞAÐ ER ekki á hverjum degi að skúta kemur inn á Bjamarfjörð og leggst þar við akkeri. En ein- mitt þetta gerðist nú um verslun- armannahelgina, er Jón Steingrímsson, skipstjóri á ísafirði, sigldi skútu sinni, Skvettu S 198, hér inn á fjörðinn og lagði við bólfærí inn af Kaldr- ananesi. Hafði hann þá siglt frá ísafirði á tveim dögum. Um nótt- ina dvaldist hann með fjölskyldu sinni f Furufirði. Jón Steingrímsson er skipstjóri rækjutogarans Hafþórs á ísafírði, en sá togari er gerður út á djúp- rækju. Skútuna Skvettu S 198 keypti hann fyrir rúmu ári. Er hún tuttugu og átta fet og fimm brúttólestir, byggð árið 1983 hjá Polyester í Hafnarfírði. Jón keypti skútuna í Vogunum og sigldi henni heim til ísaflarðar. Jón sagði þetta vega lengstu sigl- ingu sína á skútunni sfðan þá. Hins vegar væru upþi áætlanir um að sigla á henni til Evrópu. Yrði þá farið í Eystrasaltið og til Skotlands og Englands. Em þessar skútur kallaðar „túrbátar". Er fréttamaður spurði hann um verð, sagðist hann hafa keypt hana á sínum tíma fyrir átta hundruð þúsund krónur, en síðan bætt Loran og fleiru við. Mundi verðmæti henn- ar í dag vera um ein og hálf milljón. Jón sagið að siglingin í Bjamar- flörð hefði gengið vel. Þó hefði verið helst til lítill byr fyrri daginn og hefðu þau því gist í Furufírði, sem er norðarlega á Ströndum, rétt sunnan Hombjargs. Þess má og geta að Skjaldarbjamarvík og Bjamarfjörður nyrðri, þar sem Bjöm sá er nam land á Bjamamesi kom fyrst að landi, eru rétt sunnan Furufjarðar. Föstudaginn 31. júlí var svo hald- ið í Bjamarflörð syðri og skipinu lagt þar, rétt innan við Kaldrana- Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson Skútan Skvetta siglir inn Bjara- arfjörðinn. nes. Er þetta hin glæsilegasta skúta og fór fréttamaður með Jóni að skoða hana og taka myndir af sigl- ingunni um Bjamaifyörð. Það er því á margan hátt sem verslunarmannahelginni var eytt hér um slóðir. Siglingar, útivist og ættarmót eru ekki síðri leiðir til að njóta þessarar helgar en stórmót á útivistarsvæðum. Vegir hafsins em auk þess mun auðveldari að ferðast á en þjóðvegimir. Þar eru engir umferðarhnútar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.