Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987 39 • • ____ Ossur B. Jensson, * 7 Isafirði — Minning Fæddur 20. febrúar 1908 Dáinn 18. júlí 1987 Látinn er á ísafírði ömmubróðir minn, Össur Jensson, verkamaður. Þegar ættingjar og vinir eru kvadd- ir láta þeir sem eftir lifa hugann reika og safna saman minningum sem tengjast þeim sem kvaddur er. Þessar minningar — eða minninga- brot — mynda sjóð sem hægt er að ganga að vísum eftirleiðis. Slíkir minningasjóðir eru hveijum og ein- um dýrmætir og nauðsynlegir því þeir gefa okkur þann styrk sem þarf til að halda göngunni áfram. Minningar mínar um Össa frænda eru dálftið með sérstöku móti. Þær tengjast fremur hugblæ en athöfnum eða sameiginlegri reynslu. Augnatillit, hlýjar strokur um hárið, sætindi eða peningaseð- ill, sem laumað er í lítinn lófa, eru meðal þess sem ég og síðar dætur mínar munum í tengslum við Össa. Honum virtist láta betur að segja það sem hann vildi sagt hafa með snertingu en með orðum og aldrei þurfti maður að velkjast í vafa um hvað hann meinti. Össur fór fjarska sparlega með orð. Þess vegna urðu orð hans innihaldsríkari og maður vissi að hann ástundaði ekki kurt- eisishjal þegar hann spurði: — Og nær ætlarðu svo að koma vestur, elska? — Þótt Össur væri fremur fámáll var hann langt frá því að vera fáskiptinn. Hann fylgdist vel með og það sem hann sagði var vel ígrundað og skaðaði engan. Hann átti gott með að umgangast fólk og böm hændust að honum. Þau láta ekki smjaður og orðagjálfur viila um fyrir sér en em næm á viðmót manna. Össur fann blíðu sinni farveg þótt ekki eignaðist hann böm sjálfur. Hann hélt heim- ili með foreldrum sínum, Guðrúnu Þórðardóttur frá Hymingsstöðum í Reykhólasveit og Jens Jónssyni frá Hanhóli í Bolungarvík, og Elísabetu systur sinni — fyrst f Bolungarvík, síðar á ísafírði — og á því heimili ólst móðir mín upp frá sex ára aldri. Þá ólu þau systkinin upp syst- urdóttur sína, Jenný Breiðfjörð, og gekk Össur henni í föðurstað. Hann bjó hjá henni til æviloka og annað- ist hún hann af alúð þegar árin færðust yfír. Hjá henni er söknuð- urinn mestur við fráfall Össurar. Össur kvaddi lífið á sama hátt og hann lifði því — án hávaða og fyrirgangs. Hann vann sína vinnu- viku alveg til enda og að lokinni vinnu á laugardegi hné hann niður og var allur. Hann hafði unnið frá bamsaldri, var lengstum sjómaður eða vann við fískvinnslu, nú síðustu tuttugu árin hjá íshúsfélagi ísfírð- inga. Hann var svo lánsamur að fá að vinna eins lengi og hann lifði. Annað hefði honum ekki líkað. Vinnuveitendur virtust kunna að meta framlag hans og veittu honum heimild til að vinna þegar heilsan leyfði en haga vinnutíma sfnum að vild. Össur var ákaflega þakklátur fyrir þessa hugulsemi sem er dálftið óvenjuleg á okkar tímum þegar hinn mannlegi þáttur vill oft gleymast. Össur var ekki það sem kallað er skólagenginn maður. Nú í vor fór hann þó í skóla og fékk viður- kenningu sem hann hafði bersýni- lega verið stoltur af, þótt ekki hefði hann mörg orð um: Viðurkenningu sem sérhæfður fiskvinnslumaður. Hún hangir uppi á vegg hjá honum og snertir mann dálítið — þetta er í raun viðurkenning fyrir heila ævi við fískvinnslustörf af einhverju tagi. Óssur var jarðsunginn frá ísa- fjarðarkirkju laugardaginn 25. júlí. Honum er þökkuð samfylgdin. Þórunn Blöndal Magnús Ingi Sigurðs- son — Kveðjuorð Fæddur 5. september 1961 Dáinn 23. júlí 1987 Til minningar um félaga minn, Magnús Inga Sigurðsson, fæddan 5. september 1961, dáinn 23. júlí 1987. Mér bárust þau hörmulegu tíðindi sl. föstudag að vinur minn, Magnús Ingi Sigurðsson, hafði látist í fiug- slysi daginn áður. Þar sem ég hef ekki tök á að vera við útför hans, langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Ég kynntist Magnúsi fyrst í 4. flokki knattspymufélagsins Fram sumarið 1973. Maggi var þá ný- fluttur til Reykjavíkur frá Vest- mannaeyjum. Hann vann sér fljótt sæti í liðinu og var traustur leik- maður að leika með. í knattspymu er það liðsheildin og samheldnin sem skiptir máli eigi góður árangur að nást. Það var einmitt að þessu leyti sem það var gott að fá Magga í hópinn. Hann var óvenjumikill baráttumaður og spilaði fyrir liðið. Leiðir okkar lágu aftur saman í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Þar endumýjuðum við kunnings- skap okkar og ásamt fleirum stofnuðum við til óijúfanlegrar vin- áttu. Þetta voru skemmtileg ár, margt var brallað og mörg prakk- arastrikin framin. Á seinni ámnum í FB sá ég að Maggi var líka af- burða námsmaður. Reikningshald var hans besta fag en á því sviði hafði hann einstaka hæfíleika. Maggi tók sér frí frá námi í eitt ár að loknu stúdentsprófí. Hann hóf síðan nám við Viðskiptafræðideild Háskóla íslands haustið 1982, það- an sem hann lauk prófi af endur- skoðunarsviði vorið 1986. Að námi loknu hóf Maggi störf á Endurskoð- unarskrifstofu Bjöms og Ara og stefndi á að taka löggildingu. Ég vissi að Magga líkaði vel í hinu nýja starfí. I bréfí sem hann skrif- aði mér í vetur sagðist hann vera ánægður og vera á réttri hillu í lífínu. Því miður entist honum ekki aldur til að njóta þess. Magnús var ákaflega traustur vinur sem gott var að eiga að. Hann var rólegur og yfírvegaður en á góðri stundu var hann glaðvær t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför SVEINS MAGNÚSSONAR, Hólsgötu 4, Neskaupstaö. Anna Jónsdóttir og fjölskyldur hlns látna. Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsfjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tek- in til birtingar fmrnort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. og skemmtilegur. Hann hafði ákveðnar skoðanir og var rökfast- ur. Fráfall Magnúsar er mér mikið áfall. Ég hef alltaf talið það gæfu mína að vera þátttakandi í fjöl- mennum ogtraustum vinahóp. Eftir tæplega ársdvöl erlendis hef ég sannfærst í þessari trú. Stórt skarð hefur nú verið höggvið í þennan hóp. Þetta skarð verður ekki fyllt, það verður tómlegt að koma heim í haust og hafa ekki tækifæri til að hitta Magnús. Þegar ég kveð Magnús er mér efst í huga þakk- læti fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Ég og félag- ar mínir höfum misst góðan vin sem við munum sakna mikið. Ég sendi mínar innilegustu sam- úðarkveðjur til Ámýjar, móður hans, bræðra hans og fjölskyldna þeirra, ömmu hans og afa á Akra- nesi svo og til annarra ættingja og vina. Minningin um góðan dreng lifír. Rochester USA, 29. júlí 1987, Gunnar Baldvinsson Blóm og skreytingar við öll tœkifœri [ 4. FLOKKI 1987-1988 Vinningur til íbúðarkaupa, kr. 600.000 57247 Vinningur tii bílakaupa, kr. 200.000 8537 23664 57054 68205 Utanlandsferðir eftir vali, kr. 40.000 168 22455 35947 52201 67813 2330 23726 36132 53081 68693 2375 23844 36872 55577 69686 2669 24680 37863 56100 70675 5313 24841 38517 56219 72226 6064 25204 39233 58099 72471 7252 28746 39349 58311 73355' 9468 29018 39613 58378 75052 12484 29536 40945 59588 75455 12667 30496 41246 60069 75586 14370 30575 41560 60597 75599 16098 32343 44869 61021 76244 17371 32840 44999 62001 77979 18423 33450 45609 62441 78166 20729 33767 46738 62478 78283 20730 33968 46745 63423 78445 21113 34691 47510 64437 78777 21319 35487 47786 65344 79005 21468 35527 50042 66835 79750 22088 35770 5217? 67379 79946 Myndbandstæki, kr. 40.000 1974 15426 28318 39566 49578 3741 18254 30107 40186 57874 .10848 22480 33194 46087 59387 12838 24940 33993 49149 74387 Húsbúnaður eftir vali, kr. 10.000 141 14135 28263 50016 64211 241 14313 28995 50046 64504 809 14377 29279 50937 66011 1338 15567 . 30000 51123 66679 1349 15853 30418 51140 66954 1898 17008 31880 51211 67896 3546 17167 32428 51429 69495 3559 17188 36777 52505 69956 4499 17411 37814 53000 70713 5373 18236 38938 53734 70799 5704 19465 39795 54270 70980 5863 19829 40025 54459 71382 5953 21456 40318 54693 71820 8028 22528 42536 56517 72742 9151 22617 42620 57539 72795 10177 23518 42764 58203 73374 10235 23553 43246 59193 73896 10358 23741 43532 59609 73912 11959 24007 47034 59783 75254 12915 24763 47179 59958 75436 13121 25418 47890 61103 75982 13160 26049 48025 61225 76081 13957 26079 48257 62854 76573 14121 26087 49880 63257 79482 Húsbúnaður eftir vali, kr. 5.000 84 7222 14630 21522 30608 36375 44618 52992 62251 73188 374 7700 14783 21683 30654 36535 44942 53176 62421 73358 400 7737 14885 21782 30884 36587 45101 53188 62579 73614 522 7776 15043 22631 30955 36673 45221 53204 62977 73682 714 7777 15071 22680 31164 36704 45377 53205 63053 74261 945 7992 15080 22871 31189 36833 45617 53882 63434 74713 1129 8026 15205 23165 32336 37351 45873 53968 63465 75075 1624 8114 15558 23252 32404 37447 45958 54209 64074 75120 1927 8430 15612 23359 32799 37754 46261 54851 64277 75272 2002 8581 16050 24143 32857 37770 46351 56200 64588 715298 2079 8834 16221 24863 33039 37889 46571 56473 64755 75621 2262 9339 16344 24985 33196 38201 46802 57027 64916 75671 2453 9479 17510 25194 33430 38336 46900 57378 65391 76305 2672 9706 17536 25202 33480 39028 47045 57469 65407 76416 2833 9950 17612 25230 33492 39548 47118 57665 66031 76504 2992 10146 18029 25363 33552 39568 47456 57666 66084 76944 3121 10296 18115 25845 33578 39741 47620 57669 66831 77125 3432 10381 18118 26930 33580 39961 47753 57722 67087 77192 3551 10405 18173 26988 33609 40115 47888 57785 67260 77627 3825 10605 18288 27263 33783 40361 47968 58715 67504 77981 4370 10682 18508 27464 33889 40493 48500 58879 67742 78151 4504 10982 18611 27751 33913 40745 48596 59009 68099 78700 4509 11046 18703 27752 34061 40796 48722 59305 68331 78755 4896 11150 18849 28319 34194 40845 49122 59580 68645 78775 5319 11513 18951 28406 34508 40884 49130 59618 69076 78791 5710 11572 19449 28487 34543 41587 49323 59907 69104 78865 5733 11783 19754 28656 35061 41741 49782 60017 69668 79155 5838 11819 20249 28843 35638 41800 50165 60044 69752 79156 5843 12156 20332 29006 35661 41830 50322 60284 70677 79496 6096 12494 20371 29111 35724 42033 50498 60376 70806 79519 6285 12694 20558 29388 35891 42264 50757 60991 70996 79816 6294 12760 20631 29427 35906 42519 50918 61045 71001 6422 12778 20913 29753 36103 42664 51464 61406 72070 6533 13235 21282 30135 36154 43111 51661 62076 72413 6534 13249 21360 30251 36190 43626 52071 62121 72654 6768 13745 21449 30357 36333 44579 52395 62143 72739 Afgralðsla hútbúnaöarvlnnlnga hefst 15. hvere mánaöar og etendur tll mánaöamóta. HAPPDRÆTTI DAS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.