Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987 Eg fæ kraft frá foikinu Elísabet drottningarmóðir 87 ára rottningarmóðirin breska | J héit upp á 87. afmælisdag sinn á þriðjudaginn, það er 4. ágúst. Enn tekur hún þátt í ýmsum skyldustörfum sem stöðu konungafólks fylgja. Mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan Clarence House þar sem hún býr, eins og alltaf á afmælisdögum hennar, og beið eftir færi á að hylla þennan elsta meðlim bresku konungsfjölskyldunnar. Það hefur orðið að hefð á síðustu árum að börn bíði við hliðin ásamt foreldrum sínum og kennurum með blóm og afmæliskort handa drottningarmömmunni, sem kemur ávallt út og þakkar þeim í eigin persónu. Þrátt fyrir að hún fari sjaldan í ferðir erlendis núorðið tekur Elísabet drottningarmóðir þátt í ýmsum opinberum athöfnum að meðaltali 150 sinnum á ári. Hún sagði einu sinni í viðtali um mikið vinnuálag á sér: „Stundum finn ég fyrir einhverju streyma frá mér. Það gerir mig mjög þreytta um stund. En þá virðist ég fá einhvern kraft til baka frá fólkinu." Hún er jafnframt þekkt fyrir kímnigáfu sína og er til ógrynni af sögum því til stuðnings. Ein þeirra segir frá því að eitt Hún hefur verið ekkja síðan árið 1952 þegar maður hennar, George VI, lést. Á síðari árum hefur hún að sögn orðið æ meiri áhrifavaldur í lífi yngri meðlima konungsfjölskyldunnar. Hún er sögð hafa hjálpað Díönu prinsessu meir en nokkur annar að undirbúa sig fyrir framtíðarhlutverk hennar sem drottning Bretaveldis. Reuter Elísabet drottnlngarmóðir velfar til mannfjöldans sem safnast hafði saman til að hylla hana á 87 ára afmnlisdegl hennará þriðjudaginn. Börn báru hennl blóm og heillakort áður en herhljómsveit þrammaði hjá og spilaði „Hún á afmæli í dag." stormasamt rigningarkvöld hafi hún sett upp sjóhatt, farið í stígvél og haldið með hundana sína út að ganga. Starfsmaður í þjónustu hirðarinnar hitti hana á göngunni, en bar ekki kennsl á hana í myrkrinu með sjóhattinn. Hann lét í Ijós samúð með aumingja konunni að þurfa að fara og viðra hundana í slíku veðri. Drottningarmamman benti á hin konunglegu híbýli og sagöi: „Ég er viss um að þau myndu ekki nenna því." Engir venjulegir húsamálarar Það hefur alltaf þótt kost- ur að vera uppáfyndinga- samur. (bænum Mezokovesd í Ungverjalandi norðanverðu þjást menn ekki af skorti á þeim eiginleika. Þegar Ijóst Reuter Wallenberg minnst ÍWashington-borg í Bandaríkjunum var haldin athöfn þann 4. ágúst síðastliðinn til að minnast 75 ára af- mælisdags Raoul Wallenberg. Wallenberg var ritari í sænska sendiráðinu í Búda- pest í Ungverjalandi í heimsstyrjöldinni síðari og bjargaði þúsundum gyðinga fré útrýmingarbúðum nasista með því að útvega þeim sænsk vegabréf, eins og heims- þekkt er orðiö. Sovétmenn handtóku Wallenberg eftir að þeir höfðu lagt undir sig Ungverjaland og héldu hann vera njósnara. Hvarf hann mönnum eftir það sjónum. Sovétmenn halda því fram að hann hafi dáið í fangabúð- um árið 1947, en allt fram á þennan dag hafa borist fregnir um að Wallenberg hafi sést á lífi í fangabúðum Stillansar afþakkaðir. var að mála þurfti turn kirkj- unnar á staönum, ef ekki áttu að verða skemmdir á honum, voru góð ráð einmitt ódýr. Hefðbundna aðferðin að reisa Reuter ffclk í fréttum \Wsik'**il IhM9 J fr 3j þeirra og eru margir þeirrar trúar enn. Eru starfandi Wallenberg-nefndir í nokkrum löndum og margsinnis hafa bæði einkasamtök og þjóðarleiðtogar skorað á Sovétmenn að lyfta hulunni af dularfullum dauða hans. Á meðfylgjandi mynd les Ulf Jertonsson frá sænska sendiráðinu í Washington upp tilkynningu við athöfnina, en lengst til hægri stendur Rachel Haspel formaður Wallenberg-nefndarinnar í New York. mikla stillansa frá jörðu og upp með öllum turni hefði kostað mikið fé og alltaf verið talsvert fyrirtæki. Þá var það að einhverjum snillingnum datt í hug að hóa í vana fjall- göngumenn bæjarins og biðja þá að mála turninn hangandi í sigvöðum sínum. Þeir slógu til og máluðu turninn af mik- illi fimi nú í byrjun ágúst. Var það miklu ódýrara en ef stillansar og stirðari málarar hefðu verið notaðir. Eins og myndirnar sýna er það kannski ekki á færi meðal- jónsins í málaraiðninni að leika þetta eftir. Kannski stéttarfélagið hór heima ætti að standa fyrir námskeiði í fjallamennsku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.