Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987 Jafnaðarmannaflokkurinn í Bretlandi: Sameínast fijálslynd- um eftir liarðar deilur St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frlmannssvni, fréttaritara Morgunblaðsins. FLokksmenn Jafnaðarmanna- flokksins samþykktu í gœr í atkvæðagreiðsu að sameinast Fijálslynda flokknum i nýjum flokki. David Oven, leiðtogi Jafn- aðarmannaflokksins, lýsti þá yfir að hann hygðist segja af sér. Mikil átök höfðu verið um þetta mál innan flokksins, og er ekki séð fyrir endann á þeim. Um helgina birtist kafli úr væntan- legri viðtalsbók David Owen, leiðtoga flokksins, sem talið er að kunni að reynast olia á eldinn. Mikil átök höfðu verið innan flokksins vegna þessarar atkvæða- greiðslu. Roy Jenkins, Shirley Williams og William Rodgers, þrír úr „fjórmenningaklíkunni", sem yfirgaf Verkamannaflokkinn árið 1981, studdu sameininguna við Frjálsljmda flokkinn, en David Owen, , sem einn fjórmenninganna situr á þingi, beitti sér harkalega gegn henni. Hann lýsti því yfír, að sameinaður flokkur væri ekki fyrir sinn hatt og yrði sameiningin sam- þykkt, yrðu aðrir en hann að semja við Fijálslynda flokkinn. Bæði talsmenn og andmælendur sameiningarinnar voru vongóðir um sigur. Máli sínu til stuðnings gátu talsmennimir bent á skoðanakann- anir, sem gáfu til kynna, að mikill meirihlutastuðningur væri við sam- eininguna. Andmælendumir töldu hins vegar að flokksmenn styddu leiðtoga sinn afdráttarlaust og tryggð við hann myndi koma í veg fyrir, að sameiningin yrði sam- þykkt. Sameiningin var samþykkt með 57 prósentum atkvæða gegn 43. Verstu úrslitin fyrir flokkinn voru talin þau að mjótt yrði á mununum í atkvæðagreiðslunni og hvorugur armurinn gæti talist sigurvegari. Talsmenn sameiningar sögðust stefna að því að fá 60% atkvæða, sem teldist vemlegur sigur. Ef Owen ákveður að kljúfa sig frá Jafnaðarmannaflokknum, er talið líklegt, að þrír af fímm þingmönn- um flokksins muni fylgja honum fremur en sameiningarmönnunum. Um síðastliðna helgi birtist í The Observer kafli úr viðtalsbók David Owen, sem væntanleg er á markað í byijun næsta mánaðar. Þar segir hann frá aðdraganda þess, að þeir flórmenningamir sögðu sig úr Verkamannaflokknum fyrir sex árum og stofnuðu Jafnaðarmanna- flokkinn. Það, sem knúði þá úr Baskaland: Tveir lög- regluþjón- armyrtir Vitoria, Spáni, Reuter. TVEIR lögreglumenn létust í sprengjutilræði nærri bænum Vitoria í Baskalandi á Spáni í gær. Mennirnir, sem óku bif- reið, biðu bana er sprengja sprakk við vegarkantinn. Enn er ekki vitað hverjir báru ábyrgð á ódæðisverkinu, en grunur- inn beinist að aðskilnaðarhreyfíngu baska, ETA, sem berst fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis þeirra. Ifyrir þremur vikum biðu tveir herlögreglumenn bana í bænum Onate f Baskalandi og lýstu samtök baska ábyrgðinni á hendur sér. Þann 19 júní komu flugumenn samtakanna fyrir sprengju í stór- verslun í miðborg Barcelona og beið 21 þá bana. Var það hrottaleg- asta óhæfuverk hreyfíngarinnar til þessa. flokknum, var andstaða innan hans við NATO og Evrópubandalagið, sem gaus upp af fullum krafti eftir að Thatcher sigraði í kosningunum árið 1979. Úrslitum réðu átök um aðferð við leiðtogakjör. Owen lýsir því, hvemig tryggð við flokkinn togaðist á við óánægju, hvemig efasemdir sóttu að þeim og hann vantreysti Roy Jenkins og studdi Shiriey Williams við kjör fyrsta flokksleiðtogans. Andstæðingar Owens segja hann einungis vera að kasta rýrð á and- stæðinga sína í sameiningarmálinu með því að birta þessar endurminn- ingar nú og gera hlut sinn sem bestan. Kröfum námamanna í Suður-Afríku hafnað Jóhannesarhorg, Reuter. SAMTÖK námaeigenda í Suður- Afríku hyggjast ekki bjóða námamönnum í gull- og kolanám- um betri kjör en þeir hafa þegar gert, að þvi er samtökin til- kynntu á þriðjudag. Svartir námamenn hefja verkfall um alla Suður-Afriku á sunnudag hafi ekki samist fyrir þann tima. Stéttarfélag suður-afrískra námamanna, sem í eru 200 þúsund félagar, boðaði til verkfallsins á mánudag. KreQast námamenn 30 prósenta launahækkunar og aukins öryggisviðbúnaðar á vinnustað. Námaeigendur hafa boðið allt frá 15 til 23,4 prósenta launahækkun. Formaður stéttarfélags náma- manna, Cyrill Ramaphosa, sagði að svo gæti farið að verkfallið yrði það mesta frá því námavinnsla hófst í Suður-Afríku. Suður-Afríkubúar sækja rúman helming útflutnings- tekna sinna í námumar. Verð á gulli hefur hækkað vegna þessa yfírvofandi verkfalls og hafa námaféiög hlaðið upp mánaðar- birgðum af gulli til að búa í haginn fyrir sig. * » ••••- •• ■ . •••> Reuter Hiroshima minnst Dúfur flögra yfir Friðargarðinum í Hiroshima í Japan í gær er minnst var kjarnorkuárárásarinnar á borgina fyrir 42 árum. í baksýn er grind hvelfingar sem skemmdist í árásinni. Hagkerfi heimsins: Heldur verðbólgan innreið sína á ný? Á FYRSTU sex mánuðum þessa árs hækkaði verð á neyziuvörum í Bandaríkjunum um 5,5%. Þetta er örari hækkun en nokkru sinni síðan 1982. Verð á olíu er nú komið yfir 20 dollara tunnan, sem er meira en helmingi hærra en það var fyrir einu ári. í síðasta mánuði hækkaði verð á ýmsum málmum yfir 9%. í meira en 10 löndum OECD (Efnahags- og þróunarstofnunarinnar) jókst pen- ingaframboð um 11% á árinu 1985 og 13% á síðasta ári og bankaútlán hafa aukizt jafnvel enn hraðar í sumum löndum. Það er þvi ekki nema von að margir spyiji nú: Er verðbólgan að hefja innreið sína á ný í iðnvæddum löndum hins fijálsa heims? Slíkar tölur benda vissulega til ört vaxandi verðbólgu. Samt eru ekki nema nokkrir mánuðir síðan að ríkisstjómir ýmissa landa kvörtuðu hástöfum yfír minnk- andi hagvexti og vaxandi atvinnu- leysi. Nýjustu hagtölur benda hins vegar til hins gagnstæða. Þjóðar- framleiðslan í Bandaríkjunum jókst um 3,5% miðað við árs tíma- bil á fyrstu 6 mánuðum þessa árs. Þegar kom fram í marz hafði Japan náð aftur sínum sess sem það land innan OECD þar sem hagvöxtur var mestur. Hann var þá orðinn 4,5% meiri en einu ári áður. Á þremur sfðustu mánuðum jókst smásala í sjö löndum innan OECD um 7,5% miðað við heilt ár. Japanir gengu svo langt í maí sl. að setja sérstök flárlög hjá sér sem gera ráð fyrir því að eftir- spum eftir vörum og þjónustu vaxi aukalega um sem nemi 2% af vergri þjóðarframleiðslu. Sumar af þessum tölum minna talsvert á ástandið eins og það var snemma árs 1972. Þá var atvinnuleysið í aðildarlöndum OECD ískyggilega mikið en verð- bólgan sakleysisleg eða aðeins um 4%. Samt leið ekki á Iöngu unz verðbólgan var komin yfír 10%. Það var líkast því að sumir stjóm- málaleiðtogar eins og Richard Nixon, þáverandi forseti Banda- ríkjanna, og Edward Heath, forsætisráðherra Bretlands, hefðu látið sannfærast um að verðbólg- an stjómaðist af sjálfrí sér og það sem gera þyrfti væri að halda aftur af henni með hömlum og lagaboði. Þeir og ýmsir aðrir voru þá önnum kafnir við að auka á peningaeftirspum jafnt hjá ríkis- sjóði sem annars staðar. Gæti það sama gerzt á ný? Svarið er næstum afdráttarlaust nei, en ekki af neinum þeim orsök- um, sem ástæða væri til að gleðjast yfír. Hvað verður um raunvextí? Meginástæðan fyrir því að verðbólgan náði að búa svo um sig sem raun varð á, var sú, að almenningur gerði sér ekki grein fyrir því hvað var að gerast. Þetta kemur bezt fram í því hvað varð um raunvexti sem voru þá sem nú góð vísbending um það hvað er framundan. Á árunúm 1950-1970 vom raunvextir í Bandaríkjunum stöðugir og yfír- leitt jákvæðir um 2-2,5% á ári. Það var því engin tilviljun, að þesssir áratugir einkenndust af lítilli verðbólgu og nokkuð jöfnum hagvexti. Á þessu tímabili gátu Bandaríkjamenn gert bjartsýnar langtímaáætlanir varðandi lán, spamað og eyðslu, sökum þess að þeir voru sannfærðir um, að lán og sparifé myndu halda sér. Morgunblaðið/AM Raunvextir urðu hins vegar neikvæðir að mestu á árunum 1971- 1980 og þó sér í lagi frá því um mitt ár 1975 til ársloka 1975 (sjá meðfylgjandi töflu). Neikvæðir raunvextir eru bragð, sem lántakendur beita sparifjár- eigendur. Líkt og um önnur bellibrögð, þá er ekki unnt að beita því til frambúðar og þeir, sem blekktir hafa verið, reyna síðan að svara fyrir sig. Það liðu mörg ár, unz banda- rískir sparifláreigendur áttuðu sig til fulls á því, að ekki fékkst það sama í vörum og þjónustu fyrir peninga þeirra og áður. Þegar að því kom, tóku þeir hins vegar að kreflast miklu hærri raunvaxta, jafnvel „of hárra" í hlutfalli við verðbólguna. En þeir vildu fá það bætt, sem þeir höfðu misst á þeim árum, sem þeir höfðu verið snuð- aðir. Afleiðingin varð sú m. a., að raunvextir á skammtímalánum snarhækkkuðu upp í allt að 6% á fyrstu árum þessa áratugar, sem varð til þess, að efnahagskreppa hélt innreið sína í Bandarflqunum. Á árunum 1982-1986 voru raunvextir í Bandaríkjunum stöð- ugir að meira eða minna leyti, sem varð til þess að draga úr verð- bólgu og innleiða hagvöxt á ný. Þeir voru samt hærri en á árunum 1950-1970, sem kann' að skýra, hvers vegna hagvöxtur jókst ekki eins hratt og þá. En svo lengi sem raunvextir eru jákvæðir, þá skipt- ir það minna máli hversu háir þeir eru, ef þeir bara eru stöðug- ir. Sérhver skörp breyting er vísbending um erfiðleika fram- undan. Lækki þeir skyndilega þýtur verðbólgan upp og hækki þeir allt í einu þá vofír kreppan yfír. Eins og er þá fara raunvextir lækkandi í Bandaríkjunum og mörgum öðrum löndum. Ef svo heldur áfram má búast við verð- bólgu svipaðri þeirri sem átti sér stað 1972-1973 og frá því um mitt ár 1975 til ársloka 1978. Ef lækkun raunvaxta er hins vegar aðeins skammtímafyrirbrigði áður en þeir snarhækka á nýjan leik er kreppa framundan. Af þessum tveimur möguleik- um þá virðist kreppan líklegri. Minningin um það, hvemig verð- bólgan fór með sparifé fólks síðast, er enn nógu fersk til þess, að erfítt er að ímynda sér, að al- menningur bíði bara álengdar á meðan vaxandi verðbólga heggur æ dýpra skarð í sparifé þess. Nafnvextir eru þegar teknir að hækka vegna óttans um vaxandi verðbólgu. Fari svo á þessu ári, að fregnir taki að berast um óvenju miklar verðhækkanir, þá eiga vextir eftir að hækka jafíivel enn meira og kæfa þannig hag- vöxt á næsta ári og með því allar vonir um að draga megi úr at- vinnuleysi í iðnvæddu löndunum. Það er nauðsynlegt fyrir ríkis- stjómimar að láta sér það, sem gerðist á sfðasta áratug, að kenn- ingu verða þar á meðal það, að þeir stjómmálaleiðtogar, sem inn- leiddu yfír 10% verðbólgu, urðu ekki langlífir í embættum sínum. Heimild: Economist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.