Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 12
12____________MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987_ Alþingi, sljómarráðið og fjöldi ráðherra eftirBolla Héðinsson Á miðju sumri, þegar stjómar- myndunarviðræðumar stóðu sem hæst, gaf að lesa í Morgunblaðinu gagnmerkt Reykjavíkurbréf þar sem vikið var að því ofurmati á ráðherrastörfum, sem viðgegnst í þjóðfélaginu, samanborið við önnur störf og einnig því að svo sé komið fyrir Alþingi, samkomu löggjafar- valdsins, að það er nánast eingöngu orðið handbendi framkvæmdavalds- ins. Hvemig má verða að virðing, staða og mögulekar Alþingis til sjálfstæðrar ákvarðanatöku og stefnumörkunar sé svo lítilfjörleg sem raun ber vitni? Höfundur Reykjavíkurbréfsins stillir upp virðingu og áliti því sem ráðherrar fá notið annarsvegar og sem forsetar Alþingis fá notið hins- vegar, en þeir fá hvorki notið virðingar, álits eða þeirra kjara sem ráðherrar búa við og höfundurinn spyr síðan sjálfan sig hvort ekki ætti að vera samræmi þama á milli. Þessu viðtekna skipulagi verð- ur hinsvegar erfítt að breyta á meðan Alþingi er fyrst og fremst biðsalur ráðherrastarfs, með 63 ráðherraefnum sem kallaðir hafa verið til ráðherradóms, en af þeim eru aðeins 11 útvaldir til starfans. í stað þess ættu löggjafarsamko- man að vera atkvæðamikil stómar- stofnun lýðræðisríkisins með frumkvæði að lagasetningu og virkt eftirlit með framkvæmdavaldinu. Aukin virðing Alþingis Höfundur Reykjavíkurbréfsins getur um nokkur atriði sem mættu verða til þess að Alþingi fengi no- tið eðlilegrar virðingar og því skipaður sá sess sem því bæri í stjómkerfínu og þar yrði unnið metnaðarfyllra starf að löggjöf og eftirliti með ráðherram en nú er gert. Þannig mætti hefja störf á Alþingi til vegs og aukningar virð- ingar, t.a.m. störf forseta Alþingis svo og formanna þingflokka og helstu neftida. Yrði það einna helst gert með því að þeir nytu hinna sömu skjar og fríðinda sem ráð- herrar njóta í dag. Auk þess þyrfti Alþingi sérfræðiþjónustu á eigin vegum, þar sem lagafrumvörp framkvæmdavaldsins væra tekin til ítarlegrar skoðunnar þegar að hinni þinglegu meðferð framvarpanna kæmi. Sérfræðiþjónusta af þessu tagi gæfí Alþingi og einstökum þingmönnum betra tækifæri til samnings og undirbúnings laga- frumvarpa heldur en nú er, þegar frumkvaeði nær allrar lagasetningar kemur frá ráðuneytunum. Við val á ráðherram þá velja stjómmalaflokkamir þingmenn sína til að gegna störfum ráðherra, næstum án undantekninga. Því undarlegra má þetta tejast að ef málum væri háttað líkt og stjóm- skipun landins gerir ráð fyrir, þá væri þingið eingöngu að ráða menn itl að gegna framkvæmdastórastöð- um, þ.e. embættismann til að vinna að framkvæmd þeirrar stefnu sem Alþingi mótar í einu og öllu án þess að viðkomandi ráðherra þurfí að koma nálægt nokkurri stefnu- „Ljóst virðist vera að á meðan ráðherrar sitja í tilteknum ráðherra- embættum verður aldrei hróflað við ráðu- neytaskipan þeirri sem nú er við lýði. Eini tíminn sem gæti verið til slíks er sá tími þegar stórn landsins er í höndum starfsstjórnar sem bíður þess eins að verða leyst af hólmi af annarri stjórn.“ mótun af hálfu Alþingis fyrr en hún væri fullbúin. í nágrannalöndum okkar er það mjög algengt að menn sem ekki eiga sæti á þingum þjóð- anna gegni þar ráðherrastörfum. Gefur auga leið að í miklu mann- vali stjómmálaflokkanna þá hljóta fleiri en þeir sem gegna þing- mennsku fyrir flokkana að koma til greina sem ráðherraefni þeirra. Er nú jafnvel svo komið, að þegar þingmenn hafa setið nægjanlega lengi á þingi, þá telja þeir sig hin sjálfkjömu ráðherraefni flokksins. En hér kemur aftur að því að ásókn- in í þau embætti er meiri en góðu hófi gegnir m.a. vegna þess að önn- ur sambærilegri störf innan þings- ins bjóðast ekki. Ráðherrar settir af Á meðan malum hattar eins og nú er, að ráðherrar veljast eingöngu úr hópi þingmanna er líka næsta útilokað að Alþingi setji ráðherra af, þó svo hann gangi freklega í móti vilja meirihluta Alþingis. Fræg era dæmin um misnotkun Qármála- ráðherra á • aukasjárveitingum, algjörlega að eigin geðþótta. Þann- ig munu til dæmi um fjárveitingar frá liðnum áram sem emirihluti Alþingis felldi við afgreiðslu fjár- laga fyrir jól en fjármalaráðherra veitir svo upp á sitt eindæmi strax í janúar. Vitanlega bæri Alþingi án tafar og reflalaust að setja slíkan mann af án tillits ti hvaða stóm- málaflokki hann tilheyrir og án þess að slíkt þýddi vantraust á þá ríkisstóm er sæti, að öðra leyti. Ef sá ráðherra sem í hlut á er ekki jafnframt þingmaður, væri langtum hægara um vik að fella hann án þess ða ríkisstjómin teldi það van- traust. íslendingar eiga sjálfir að annast fisksölur erlendis Af innreið ferskra hugmynda og ævintýrum í útlöndum eftir GuðmundH. Garðarsson í síðustu viku birtust í Morgun- blaðinu athyglisverðar fréttir um meint misferli erlendra aðila, er tóku að sér sölu físks fyrir íslenzka fískframleiðendur, án milligöngu íslenzkra útflutningsfyrirtælqa. í einu tilviki er um að ræða erlent/ íslenzkt fyrirtæki, sem í skjóli er- lends flármagns ætlaði að hefja innreið sína inn í íslenzkan fískiðn- að og gerast umtalsverður aðili í útflutningi sjávarafurða frá íslandi. Tilkoma þessa fyrirtækis, sem hefur aðsetur á Suðumesjum, varð tilefni þess, að einn þingmaður Suðumesja fann hjá sér sérstaka hvöt til að lýsa ánægju sinni eftir þátttöku þessara erlendu aðila í íslenzkum fískiðnaði og útflutningi. Nú myndu ferskar hugmyndir halda innreið sína. Greinarhöfundur og nokkrir aðrir þingmenn vora ekki jafn ginnkeypt- ir fyrir aðild erlendra manna að fisksölumálum íslendinga og um- ræddur Suðumesjaþingmaður og lýstu efasemdum áinum um ágæti þessa. Töldu þeir, að útflutningur og sala islenzkra sjávarafurða væri best kominn í höndum íslendinga sjálfra í skjóli öflugra fyrirtækja, jem hefðu vald og styrk til að fylgja viðskiptunum eftir og tryggja já- kvæða niðurstöðu íslendingum til handa. Hafa ber í huga að loka- markmiðið í brauðstriti fólks, hvort sem það era íslendingar eða aðrar þjóðir, er að fá sem mestan afrakst- ur fyrir þá, sem framleiða og selja vörana. í þessu tilfelli er um að ræða afraksturinn, tekjumar af grandvallarauðlind þjóðarinnar, sjávaraflanum. Það er því mikil- vægt að vel takist til í þessum efnum. Ótryggir og vafasamir við- skiptahættir geta reynst dýrkeyptir. Stórfelld viðskiptasvik ' Tilefni þessara skrifa er ekki ein- göngu umrætt dæmi um meint misferli í tengslum við fyrirtækin Isskott og Icescot, sem era í eigu íslendinga, Skota og Svía með meirihlutaaðild erlendu aðilanna, heldur sú staðreynd, að hér mun ekki vera um einangrað tilfelli að ræða. í fyrri fréttum í Morgun- blaðinu er skýrt frá stórfelldum viðskiptasvikum, þar sem erlendur aðili tekur að sér sölu físks fyrir íslenzk fyrirtæki og hverfur síðan sporlaus, án þess að greiða fyrir vörana. Kunnugir segja, að tjón þeirra, sem aðild eiga að þessum útflutningi, nemi tugum milljóna króna. Mllljóna tjón Ungir Akureyringar, fískimenn, hugðust efna til beinna útflutnings- viðskipta við danskan aðila. Þeir senda vöruna út ísaða og fullnægja öllum framleiðslu- og gæðakröfum. Hinn danski viðtakandi lætur vöra íslendinganna greinilega mæta af- gangi á markaðnum. Niðurstaðan var milljóna ijón. Einn Akureyring- anna, Halldór Baldursson, segir m.a. við fréttaritara Morgunblaðs- ins (29/7) orðrétt: „Granur minn er sá, að þetta sé gert vísvitandi (innskot H.B.: Við fengum í upphafí rangar upplýsing- ar um verðið frá Danmörku) og dæmi era um að fiskurinn er sagð- ur ónýtur, enda enginn til að fylgjast með því og sannreyna það. Eg er hættur þessum útflutningi og vona að aðrir megi læra af þess- ari reynslu minni, svo að þeir verði ekki féflettir eins og ég“. En sagan er ekki enn sögð að fullu. í Morgunblaðinu 1. ágúst sl. er viðtal við Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóra Landssambands íslenzkra fískeldisstöðva um út- flutning eldisfísks. í viðtalinu segir Friðrik Sigurðsson m.a.: „Þessa dagana eram við að senda forráðamönnum laxeldisstöðva leið- beiningar og tilmæli um hvemig þeir eiga að standa að viðskiptum við einstaklinga, sem vilja taka að sér að selja lax á erlendum mörkuð- um. Við stöndum frammi fyrir sömu hættum varðandi svik og aðrir físk- seljendur." Áreiðanleiki er grundvallaratriði Þetta er Ijót lýsing á því, hvað gerist þegar los kemst á útflutning sjávarafurða frá íslandi. Staðreynd- in er sú, að verzlun með sjávaraf- urðir er afar viðkvæm framkvæmd, sem gerir miklar kröfur til allra aðila sem þar koma við sögu. Áreið- Guðmundur H. Garðarsson „Tilefni þessara skrifa er ekki eingöngu um- rætt dæmi um meint misferli í tengslum við fyrirtækin Isskott og Icescot, sem eru í eigu Islendinga, Skota og Svía með meirihlutaað- ild erlendu aðilanna, heldur sú staðreynd, að hér mun ekki vera um einangrað tilfelli að ræða.“ anleiki og skilvisi er grandvallarat- riði í samskiptum aðila, hvort sem um er eða ræða framleiðendur, selj- endur að kaupendur. Að víkja út frá þeirri meginreglu, að heiðarleiki skuli ríkja í samskiptum manna, er í þessum viðskiptum sem öðrum, þess eðlis að íslendingar geta ekki tekið þá áhættu, sem því er sam- fara, að gefa allan útflutning sjávarafurða og eldisfísks ftjálsan. Viðkvæm verzlun í þessari framkvæmd verða að gilda strangar reglur um hæfni, áreiðanleik og styrkleika til að ann- ast þessi mál svo fullnægjandi sé. Svo dæmi sé nefnt. Vanhæfni eins eða fárra seljenda til að tryggja góða vöra, getur leitt til óbætanlegs tjóns fyrir alla heildina, þ.e. aðra framleiðendur og seljendur. Að koma óorði á íslenzkan físk vegna slóðaskapar, kæraleysis eða ann- arra skyldra atriða, getur leitt til óbætanlegs tekjutaps, ekki aðeins hjá viðkomandi aðila, heldur hjá þjóðinni allri. Vanhæfni eða svik- semi í afgreiðslu vöra, myndi hafa svipuð áhrif í för með sér. Dráttur á greiðslu af hálfu kaupanda, eða órökstuddar kvartanir um hugsan- lega gallaða vöra, getur skaðað framleiðendur ómælanlega. Tilvikin um hugsanlegar vanefndir og und- anbrögð við það að standa við gerða samninga, geta verið óteljandi í sambandi við fiskverzlun. Ástæðan er augljós: Fiskur er mjög viðkvæm vara. Til þess að unnt sé að tryggja alla þætti þessara viðskipta, verða aðilar að hafa gott yfírlit og vald yfír framkvæmd þessara mála, allt frá veiðum til afhendingar hjá neyt- endum. Því aðeins er unnt að hámarka heildartekjumar af útgerð og fisk- vinnslu, að gæði vörannar séu 100%. Það gerist ekki, nema að- gerðir séu samræmdar og að baki standi öflugir aðilar, fjármagns- sterk fyrirtæki, sem geta axlað þá ábyrgð sem fiskútflutningur krefst. í þessum efnum dugar engin hálf- velgja. Enn síður innantóm slagorð eða sýndartillögur um losaralegt fyrirkomulag, sem hentar ekki fá- mennri þjóð, sem vill fá sem mestan afrakstur af bestu auðlind sinni með sem minnstri þátttöku erlendra fyrirtækja. Tryggjmn afraksturinn Þessi afstaða, þ.e. að tiyggja það að sem mestur afrakstur komi ör- ugglega heim til íslands vegna útflutnings sjávarafurða, réði því á sínum tíma að fslenzkir útgerðar- menn og fískframleiðendur stofn- uðu útflutningsfyrirtæki sín. Þau

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.