Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 7
ð STÖÐ2 EÐALEFNI í KVÖLD 22:05 KÖNNUÐIRNIR (Explorers). Bandarisk kvik- myndmeð Ethan Hawke, River Phoenix og Amanda Peterson. Myndin fjaiiar um þrjá unga drengi sem eiga sér sameigin- legan draum. ánæstunn: (The scar). Afbrotamaður er lát- inn laus úr fangelsi. Hann þykist heppinn erhann rekstá tvifara sinn sem er virtur sálfræðingur og ákveður að notfæra sér þessa tilviljun ■ Sunnudagur FLORENCE NIQHTINQALE nm 21:15 (The Nightingale saga). Bandarisk kvikmynd byggð á ævi Florence Nightingale. Florence vann brautryðjendastarf i hjúkrun, fann nýjar leiðir til að berjast gegn kóleru og stóð fyrir bættum að- búnaði á sjúkrahúsum. Auglýsingasími Stöðvar 2 er 67 30 30 Lykillnn færð þúhjá Heimilistsðkjum <8> Heimilistæki hf S:62 12 15 I MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987 7 Morgunblaðið/Ámi Sœberg Mara Helen Woods, sem haft hefur veg og vanda af uppsetningu sýning-arinnar ásamt einu verka Widerbergs. Sýning á verkum Frans Widerbergs Hringormurinn ekki hættulegur SÝNING á verkum norska iista- mannsins Frans Widerberg verður opnuð í Norræna húsinu laugardaginn 8. ágúst kl. 15.00. Sýningin stendur til 30. ágúst, og er opin kl. 14-19 daglega. Sýning þessi kemur til íslands frá Bretlandi, þar sem hún hefur verið sett upp í fjórum borgum, og mun hún fara aftur til Bretlands eftir að henni lýkur hér. Á sýning- unni eru olíumálverk, grafík og teikningar unnar sl. þijá áratugi. Frans Widerberg er fæddur 1934. Hann er einn þekktasti myndlista- maður í Noregi í dag og hefur hann af sumum verið nefndur arftaki Edvards Munchs. Breski listsagnfræðingurinn Mic- hael Tucker mun halda fyrirlestur um list Widerbergs í Norræna hús- inu kl. 17 á laugardag 8. ágúst. LÍTIL sem engin hætta mim vera á að hringormur í íslensk- um fiski geti valdið veikindum í fólki. Að sögn Jakobs Jakobs- sonar fiskifræðings, mun ormur sá er fundist hefur í sOd í Norð- ursjó, og ollið hefur almennri hræðslu við fiskneyslu í Þýska- landi, ekki vera sama tegund og hringormurinn sem finnst í þorski og fleiri fisktegundum við ísland. Eins og kunnugt er hefur sjón- varpsþáttur sem sýndur var í Þýskalandi, þar sem sagt var frá að ormar í fiski úr Norðursjó gætu valdið alvarlegum veikindum, vald- ið miklu verðfalli á fískmörkuðum þar í landi. Ormasýking í sfld úr Norðursjó hefur lengi verið vanda- mál, að sögn Jakobs, og hafa menn þar brugðið á það ráð að djúp- frysta saltsfld í þijá daga til að drepa orminn. Ekki er vitað til þess að nokkur islendingur hafi veikst af sökum hringorms, að sögn Erlings Hauks- sonar, sjávarlíffræðings, enda drepst ormurinn við söltun, suðu eða frystingu. Erlingur sagðist ekki geta tjáð sig um orsakir þess að menn hefðu veikst í Þýska- landi, enda hefði hann ekki séð umræddan sjónvarpsþátt. Hugsan- lega væri verkun físksins um að kenna, því að hringormur, sem er samheiti yfír ýmsar sníkjandi þráð- ormstegundir, gæti lifað af kal- dreykingu og marineringu. Til að koma í veg fyrir slíkt væru í gildi lög í Hollandi og Þýskalandi sem kvæðu á um að fískur sem þannig væri verkaður skyldi vera frystur við -20 gráður C í sólarhring. Sýk- ing af völdum orma hefur verið vandamál í Japan, þar sem neysla á hráum físki er mikil. Þyrla varnar- liðsins: Sækir sjúk- an sovéskan sjómann ÞYRLA frá vamarliðinu sótti á miðvikudagsnótt sjúkan sjómann í sovéskan verksmiðjutogara, sem staddur var um 250 mflur vestur af landinu. Það var um kl. eitt á miðvikudag- snótt, sem beiðni barst um aðstoð frá sovéska verksmiðjutogaranum Luga, en einn skipveijanna hafði fengið botnlangakast. Skipið var statt á 62,30 0 norður og 32,30 0 vestur. Þyrla vamarliðsins fór á stað- inn og um kl. sjö í gærmorgun var komið með hinn sjúka mann á Borg- arspítalann, þar sem hann fékk aðhlynningu. Minnisvarði um Arnar- bæliskirkju afhjúpaður AFHJÚPAÐUR verður minnis- varði um Amarbæliskirkju og kirkjugarð sunnudaginn 9. ágúst nk. kl. 13.30. Það er kirkjugarðsnefnd Hvera- gerðis og Kotstrandar sem stendur að þessu og eru gamlir Ölfusingar sérstaklega velkomnir. (Úr fréttatilkynningu) Evrópumótið í brids: Stórsigur á Lúxemborg fleytti íslandi í 5. sæti Frá Guðmundi Hermannssyni, blaðamanni ÍSLENSKA karlaliðið skaust upp í 5. sætið á Evrópumótinu í brids eftir stórsigur á Lúxem- borg i 9. umferð. Kvennaliðið tapaði fyrir Ungveijalandi og var í 7. sæti eftir 3 umferðir en spilaði við Grikki í 4. umferð í gærkvöldi meðan karlaliðið átti frí. Jón, Sigurður, Aðalsteinn og Ásgeir spiluðu allan leikinn við Lúxemborg. Spilaramir frá Lúx- emborg sáu aldrei til sólar og staðan eftir fyrri hálfleik var 87-25. í seinni hálfleik bættu ís- lendingar síðan um betur og unnu Morgunblaðsins í Brighton, Englandi. hann 110-2. Lokastaðan var því 197-27 sem er mesti munur sem sést hefur enn á Evrópumótinu og ósennilegt að þetta met verði slegið. ísland fékk 25 stig en Lúxemborg ekkert. Esther og Valgerður spiluðu allan leikinn gegn Ungveijalandi, en hin pörin skiptu hálfleikunum. Staðan í hálfleik var 28-13, en Ungveijamir bættu við inneignina í seinni hálfleik og unnu 53-16 og leikinn 23-7. Svíar náðu forystunni í karla- flokki með því að vinna Tyrki 24-6, en Norðmenn hjálpuðu þeim með því að vinna Pólveija, 16-13. Svíar era nú með 166,5 stig, Pól- veijar 166, ísraelsmenn 157,5, Danir 154,5, íslendingar 154, Bretar 153 og Frakkar 152. Evrópumeistarar Frakka vora í efsta sæti í kvennaflokki eftir 3 umferðir með 60 stig, Hollending- ar með 56 stig og Austurríkis- menn með 54. ísland var í 7. sæti með 48 stig. Það vekur at- hygli að heimsmeistarar Breta hafa átt erfitt uppdráttar og tapað þremur fyrstu leikjum sínum._ í dag keppir karlaliðið við ítali og Svía, en kvennaliðið við Búlg- ara og Hollendinga. j®Abu Garcia Með Cardinal 900 línunni hefur Abu Garcia tekist að sameina húgœða framleiðslu- aÖferðir nútímans og áratuga þróun veiði- hjóla. Cardinal 900 veiðihjólin eru smíðuð úr bestu fáanlegum efnum eins oggrafiti sem er sérlega sterkt og létt. Tœknileg hönnun Abu Garcia veiðihjólanna eykur þœgindi og ðryggi við veiðarnar. Hjá okkur fást Abu Garcia veiðihjól við allra hœfi. Cardinal 900 HAFNARSTRÆTI 5 SÍMAR 16760 og 14800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.