Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚS.T 1987 31 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Garðabær Blaðbera vantar í Flatir og í Lyngmóa. Upplýsingar í síma 656146. Léttir réttir íKringlunni Óskum eftir að ráða duglegt og ábyggilegt fólk til starfa strax. Vinnutími og laun sam- kvæmt samkomulagi. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „LR — 6435“ fyrir 10. ágúst. Fiskvinna Starfsfólk óskast til fiskvinnslustarfa. Unnið eftir bónuskerfi. Fæði og húsnæði á staðn- um. Upplýsingar í síma 92-68144 og hjá verk- stjóra í síma 92-68451. Hraðfrystihús Þórkötlustaða hf. Vörumóttaka Okkur vantar starfsmenn í vöruskemmu okk- ar við vörumóttöku og frágang. Starfsmenn þurfa að geta hafið störf strax. Upplýsingar á skrifstofu. Vörufiutningamiðstöðin, Borgartúni 21. Kennarar Lausar eru stöður við Gerðaskóla í Garði. Meðal kennslugreina eru: Tungumál, stuðn- ings- og sérkennsla og almenn kennsla yngri barna. Lítill skóli í þægilegu samfélagi, aðeins 50 km frá Reykjavík. Uppl. veitir skólastjóri í símum 92-27020 og 92-27048 og yfirkennari í síma 92-37584. Kennarar óskast Við grunnskóla Stokkseyrarhrepps eru tvær kennarastöður lausar til umsóknar. Kennslu- greinar: Enska og kennsla yngri barna. Ódýrt húsnæði. Upplýsingar veitir skólastjóri í símum 99-6300, 99-3263 eða sveitarstjóri í síma 99-3267. Skólanefnd. íslenskt - franskt eldhús Óskum að ráða starfsfólk í eftirfarandi störf: 1. Bílstjóra í útkeyrslu. 2. Aðstoðarfólk í kjötvinnslu. 3. Aðstoðarfólk í pökkun. Uppl. hjá íslenskt-franskt eldhús, Völvufelli 17, sími 71810. Framkvæmdastjóri Arkitektafélag íslands óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf (eða hluta- starf) sem fyrst. Fjölbreytt starfssvið. Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlanda- máli skilyrði ásamt kunnáttu í stjórnun og bókhaldi. Laun skv. samkomulagi. Umsóknir ásamt upplýsingum og meðmæl- um leggist inn á auglýsingadeild Mbl merktar: „F — 6055“ fyrir 17. ágúst. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Hafnarfjörður — blaðberar Blaðbera vantar í Setbergshverfi strax. Upplýsingar í síma 51880. Hjúkrunarfræðingar — skurðstofa Sjúkrahús Siglufjarðar óskar eftir skurðstofu- hjúkurnarfræðingi eða hjúkrunarfræðingi með reynslu á skurðstofu. Húsnæði í boði. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir sjúkra- hússins í síma 96-71166. Sjúkrahús Siglufjarðar. Fóstrur/starfsfólk! Vantar ykkur ekki líflegt starf í fögru um- hverfi? Við leitum að barngóðu, jákvæðu og hressu fólki til starfa sem fyrst. Hjá okkur er góður starfsandi og hlýlegt húsnæði. Líttu inn eða hafðu samband við Emelíu eða Kristbjörgu í síma 84150 eða 82921. Leikskólinn Árborg, Hlaðbæ 17, Árbæjarhverfi. Kennarar — kennarar Kennara vantar við grunnskójann í Stykkis- hólmi. Kennsla yngri barna. Ódýrt húsnæði í boði. Upplýsingar veitir yfirkennari Gunnar Svan- laugsson í síma heima 93-81376, vinna 93-81304 og formaður skólanefndar, Ríkharður Hrafnkelsson í síma heima 93-81449 og vinna 93-81225. Starfsfólk Opinber stofnun óskar að ráða strax: - Einn starfsmann við bókhaldsstörf. - Þrjá starfsmenn til vinnu við skráningar- vélar (diskettuvélar). Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „T — 4089“ fyrir 15. ágúst. RÍKISSPÍTALAR LAUSAR STÖÐUR Kópavogshæli Yfirþroskaþjálfi óskast við Kópavogshæli frá 1. september nk. eða eftir samkomulagi. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist Kópavogshæli fyrir 24. ágúst nk. Deildarþroskaþjálfar óskast til starfa á vinnustofum Kópavogshælis og á deildum. Deildarþroskaþjálfi óskast til starfa við Kópavogshæli bæði í afleysingar og til fram- búðar. Starfsfólk óskast nú þegar til sumarafleys- inga og til frambúðar. Upplýsingar um ofangreind störf veitir fram- kvæmdastjóri eða yfirþroskaþjálfi í síma 415000. Reykjavík, 7. ágúst 1987. , a Óskum eftir blaðberum víðs vegar í Reykjavík, Kópavogi og á Seltjarnarnesi meðal annars til sumarafleysinga. Sjá auglýsingu annars staðar í blaðinu. Verksmiðjustörf Hydrol hf. óskar að ráða vélagæslumann og starfskraft í pökkun. Upplýsingar veitir verkstjóri í síma 36450. Hydrolhf. v/Köllunarklettsveg Við framleiðum Óskum að ráða: - Starfsmann í markaðssetningu og al- menn skrifstofustörf. - Tvo laghenta starfsmenn í framleiðsluna. Upplýsingar: Leðuriðjan hf., Hverfisgötu 52, sími 21454. Kennarar Einn yngri barnakennara vantar í Borgarnes. Húsnæði fyrirliggjandi. Upplýsingar í símum 93-71297 og 93-71579. Skólastjóri. Fiskeldi Bændaskólinn á Hólum óskar eftir sérfræð- inngi í fiskeldi. Verkefni: Kennsla — rann- sóknir — leiðbeiningar. Umsóknir sendist til landbúnaðarráðuneytis- ins fyrir 1. september nk. Landbúnaðarráðuneytið, 5. ágúst 1987. Afgreiðslustarf hálfan daginn Starfskraftur óskast í sérverslun milli kl. 12.30 og 17.00 sem fyrst. Frekari upplýsingar í síma 14005. Sölumenn Vantar sölumenn, í fullt starf, sem geta starf- að sjálfstætt og hafa bíl til umráða. Um er að ræða söluferðir bæði á Stór- Reykjavíkursvæðinu og úti á landsbyggðinni. Mjög góðir tekjumöguleikar fyrir rétta aðilja. Upplýsingar í síma 689133. Hrossarækt — tamningar — reiðkennsla Kennari óskast að Bændaskólanum á Hólum. Aðalkennslugreinar: Hrossarækt, tamningar og reiðmennska, ásamt umsjá með hrossa- rækt kynbótabúsins á Hólum. Umsóknir sendist til landbúnaðarráðuneytis- ins fyrir 1. september nk. Landbúnaðarráðuneytið, 5. ágúst 1987.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.