Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987 1Ö I Land o g vinir Nick Nolte og Alonso í Sérsveitinni. Kvikmyndlr Arnaldur Indriðason Sérsveitin (Extreme Prejudice). Sýnd í Bíóborginni. Stjörnugjöf: ★ ★ Bandarísk. Leikstjóri: Walter Hill. Handrit: Deric Washbum og Harry Kleiner. Framleið- endur: Mario Kassar og Andrew Vaiýa. Tónlist: Jerry Goidsmith. Helstu hiutverk: Nick Nolte, Powers Boothe, Michael Ironside, Maria Alonso Conquita og Rip Thora. Lögregluþjónninn Jack Bente- en (Nick Nolte) er heiðarleikinn gljáfægður. Réttvísin skín úr stingandi augnaráðinu, andjitið er meitlað úr sannleikanum. Röddin er hijúf og kemur langt innan frá hans hreinlynda hjarta. Sál hans er eins hvítþvegin og Stetson-hatturinn hans, æran glitrar eins og lögreglumerkið í barminum. Ef það skyldi fara framhjá einhveijum þá er hann hetjan eina og sanna. Hvað er það sem knýr hann áfram? Hver veit? Svarið er a.m.k. ekki að fínna í sjálfri myndinni, sem lætur sig slík smáatriði engu varða. Nær væri að leita í kreditlistanum. Nick Nolte, sem hér er svona sjoppuhetja á la Louis Masterson, gefur honum steinandlitið; John Milius, sem sendi Rauða herinn inn í Bandaríkin í Rauðri dögun (Red Dawn) gefur honum söguna til að lifa í; Mario Kassar og Andrew Vanja, sem færðu lang- þreyttum föðurlandsvinum Rambó til hughreystingar, sjá honum fyrir skotfærunum (og öðrum fyrir meiri föðurlandsást); Walter Hill, sem gerir ofbeldis- fullar hasarmyndir af sömu natni og Spielberg semur sínar bama- gælur, blæs í hann lífí. Guðinn hans er Sam Peckinpah, dauðinn er sýndur hægt. Og hver er útkoman? Sitt lítið af hveiju og mikið af því sama. Sérsveitin (Extreme Prejudice), sem sýnd er í Bíóborginni, er sífellt að minna á sjálfa sig og mennina sem standa að baki. Þama fer Nick Nolte en ekki lög- reglustjórinn Jack Benteen. Gat verið að Milius, sem líka stjómaði vöðvaæfíngum Schwartzenegger í Conan villimanni, ætti eitthvað í lcjánalegri sögunni. „Ég trúi á land mitt og vini," segir einn af sex hermönnum myndarinnar og gæti verið að tala við Rambó (eða Reagan). Og lokabardaginn sýnir sundurskotna menn falla hægt til jarðar og þama einhverstaðar er Hill að skipa mönnum að deyja eðlilega. Látið það ekki bleklcja ykkur þótt Sérsveitin gerist í nútímanum með hvínandi drossíum og háþró- aðri tölvutækni. Hún er vestri eins og þeir gerast vestast. „Segðu honum að hitta mig kluklcan 12 á hádegi," skipar Nolte, afsakið Benteen, og er á svipinn eins og Gary Cooper með byssubeltið við mjöðmina. „Þetta er eins og í vestra," segir einhver og fær 10. Og svo er það einvígið í lokin. Powers Boothe leikur dóp- smygil sem er líka æskuvinur lögreglustjórans og hefur yndi af að rausa um sjálfan sig og bófatil- vemna í heimspekilegum anda. Líklega er þetta í fyrsta sinn sem hinn viðkunnanlegi Boothe leikur krimma og það fer honum betur að vera góði gæinn. Maria Alonso leikur ástkonu lögreglustjórans og fyirum ástkonu tiófans, er fyr- ir þá eins og Afton í Dallas er fyrir aulann Cliff Bames og leikur miklu meira en hún þarf. Michael Ironside er foringi sérdeildar- hermanna sem lengi framan af mætti halda að væm ekki í réttri mynd en tengjast loks þessari með öllum sínum tölvubúnaði ogdular- fullu ráðagerðum. Myndin hefði kannski orðið betri ef einhver af öllu þessa góða fólki hefði fengið snert af frum- legri hugsun við gerð hennar. En fmrnleg hugsun er hugtak sem þessir menn fréttu af síðast árið 1700 og súrkál. í staðinn flettir hver upp í sinni gatslitnu handbók og reynir að rifja upp hvemig þeir vom síðast. Og þar áður. Raul Julia í Norrismynd? Hættuförin (Florida Straits). Sýnd í Regnboganum. Stjömugjöf: ★ */2 Bandarisk. Leikstjóri: Mike Hodges. Handrit: Roderick Ta- ylor. Framleiðendur: Stuart B. Renkt og Stephen L. Wald. Helstu hlutverk: Raul Julia, Fred Ward og Daniel Jenkins. Fyrsta spumingin, sem kemur uppí kollinn þegar Ijóst verður að Hættuförin (Florida Straigts) sem sýnd er í Regnboganum er svona Chuck Norris-mynd án Norris, er hvað vandaður og virðulegur leik- ari eins og Raul Julia er að gera í henni. Hann er eiginlega í hlut- verki Norris nema hvað slags- málakunnátta hans er langt undir meðallagi. En svo er þetta kannski ekki dæmigerð Norris-mynd að öllu leyti eða getið þið ímyndað ykkur karate-kungfú-ninja sérfræðing- inn lesa Don Kíkota sér til dægrastyttingar? Varla. Julia set- ur nefnilega svolítinn menningar- svip á rútínuna en hún ætti samt að vera langt fyrir neðan hans virðingu. Harðjaxlinn Fred Ward passar hér aftur eins og flís í rass og félagi hans, grænjaxlinn Daniel Jenkins, gefur myndinni svolítið kómískan svip. Hún segir frá þremur mönnum sem fara frá Florída til Kúbu, tveir (Ward og Jenkins) em að leita að gulli sem sá þriðji, Carlos (Julia), veit hvar er að fínna í landi Kastros. Carlos hefur gist fangageymslur á Kúbu í 20 ár fyrir eitthvað sem handrits- höfundurinn Roderick Taylor hirðir aldrei um að skýra frá frek- ar en svo mörgu öðm, en áður en Carlos fór í fangelsið náði hann að koma dýrmætum gullfarmi í felur. Hann er þó ekki á höttunum eftir því heldur gömlu kæmstunni sinni. Ást og flársjóðsleit í Kúbu. En af hveiju Kúba? Það er mjög óvíst en líklega á nærvera Kastrós að hrella eitthvað mannskapinn. Ef maður er ekki að vænta mikils má með góðum vilja hafa svolítið gaman af myndinni, sem annars er illa gerð og gloppótt undir slakri leikstjóm Mike Hodg- es. Það er aðallega gaman að félögunum þremur, sem reyna sitt besta, en það dugir ekki til. Raul Julia mundar litla vasahnífinn sinn í myndinni Hættuförin. OCTAVIO PAZ Erlendar baskur Siglaugur Brynleifsson Octavio Paz: On Poets and Oth- ers. Translated by Michael Schmidt. Carcanet 1987. Octavio Paz: The Labyrinth of Solitude. Life and Thought in Mexico. Translated by Lysander Kemp. Penguin Books 1985. Octavio Paz er kunnasti höfundur Mexíkó og meðal fremstu skálda í Suður-Ameríku og þeirra sem yrkja á spænsku. Hann er nú rúmlega sjötugur, fæddur 1914 í Mexíkó City. Hann hefur dvalið langdvölum erlendis, m.a. í París, sem sendifull- trúi Mexíkó. Fyrsta meiriháttar ljóðasafn hans kom út 1949 og árið eftir E1 Labertino de la soledad," sem er hér í enskri þýðingu, og hefur verið þýdd á flestallar þjóð- tungur Vesturlanda. í þessari bók segist hann leitast við að fínna „meðvitund þjóðar og inntak sögu, sem hefur verið ýtt til hliðar, graf- in lifandi". Hann rekur sögu þjóðar, sem hefur lifað hálfu lífí ofan jarð- ar og hálfu neðanjarðar, dregur fram svipmyndir úr mexíkanskri sögu, atburði sem eiga að vera gleymdir og viðbrögð sem mótast af fálmi „milli tveggja siða“. Paz fæddist í landi, þar sem bylting var einn þáttur sögunnar og stöðug spenna átti sér stað í raun á milli hagsmuna- og valdahópa. Hugtakið stéttabarátta í því sambandi er inn- antómt Ijas, vissir hópar eru oft notaðir í valdabaráttu fámennra hópa, en þeir verða venjulega verr settir eftir byltinguna, en fyrir hana, að öðru óbreyttu. Paz varð fyrir svipaðri reynslu í borgarastyij- öldinni á Spáni og Orwell. Sú reynsla gerði honum augljósara markleysi og mýraljós hugmynda- fræðanna. Síðan hefur Paz farið aðrar leiðir í gagnrýni sinni en tíðkast meðal vinstri manna og sumra rithöfunda í Suður-Ameríku. Hann hafði hug til þess að hefja opinskáar árásir á þrælaríki sósíal- ismans þegar á 5. áratuginum og jafnframt aðskildist hann þeim hal- elúja-kór rithöfunda og listamanna sem jörmuðu um að e.t.v. myndi Eyjólfur hressast, eftir að tók að glitta í gulagið. Greinamar í The Labyrinth of Solitude skera sig úr flestu sem skrifað hefur verið um samfélags- mál og sögu Mexíkó, vegna þess að Paz er óbundinn af þröngum marxistakreddum og þeim óheilind- um sem einkenna sagnfræðiskrif marxískra sagnfræðinga. Octavio Paz varð tvímælalaust talinn mesta skáld Mexíkó og spænskumælandi þjóða með kvæðabálknum „Piedra de sol“, Sólarsteinninn, sem hann orti 1957. Því hefur verið haldið fram að áhrif þess ljóðabálks hafí markað ljóða- gerð spænska málheimsins á álíka afgerandi hátt og „The Waste Land“ Eliots á ljóðheim Englend- inga. „On Poets and Others" er safn greina um skáld og höfunda, sem Paz hefur átt samskipti við eða hafa haft djúpstæð áhrif á hann. Meðal þeirra eru Robert Frost, Sar- tre, Breton, Solzhenitsyn, Ortega y Gasset ofl. Alþjóðamál og stjómmál em und- irtónn í mörgum þessara skrifa, enda snerta þau málefni afstöðu Paz framar öðmm. Lýsingin á Sartre sem vonsviknum manni, sem hann segir að „hafi í lokin ásakað sjálfan sig í ofsafenginni iðmnar- þörf", allar hugsjónir hans reyndust í lokin mýraljós, heimspeki hans einhverskonar kommentar við Heid- eKKer. »en hann var maður til þess að horfast í augu við sóað líf“. í greininni um Solzhenitsyn og Gulagið rekur Paz eigin hugmynda- sögu og viðhorf. Hann rekur hin oft átakanlegu viðhorf sósíalista til uppljóstrana Solzhenitsyns um við- bjóðinn. Reynt var að gera hann tortryggilegan, gera hann að aftur- haldssegg og að lokum hálfbijálað- an. En allur rógburðurinn varð til einskis, hann sýndi fram á sanna innviði þessa „ríkis framtíðarinnar", svo rækilega að síðan hafa málsvar- ar verkalýðsbaráttu og sósíalisma orðið að leita annars staðar að frambærilegri framkvæmd vísinda- legs sósíalisma og eins og nú hagar til, mun Kúba vísa veginn til fram- tíðarlandsins. Kaflinn um Ortega y Gasset em minningar höfundar um einhvem snjallasta essayista spænska mál- svæðisins og þann spænska höfund sem var talinn marktækur spænskra hugsuða eftir langt hlé. Viðfangsefni hans vora ákaflega fjölbreytileg og snilli hans og hug- kvæmni vom á þann veg að rit hans em sígild. Hann varð á sínum tíma kunnastur fyrir „La rebelión de las masas" 1930. Inntak þeirrar bókar hefur orðið tímabærara með hveijum áratugi og glöggskyggni hans augljósari. Paz skrifar þáttinn 1980 og lýkur honum með þessum orðum; „ég veit eitt og það er að án hvatningar hans og leiðsagnar myndi ég ekki hafa verið fær um að hugsa, nú og hér“. Þessir þættir em hver öðmm áhugaverðari og þeir em uppbyggi- leg lesning og mjög vel skrifaðir. Til sölu í Hafnarf irði 2ja herbergja íbúð með bílskúr: Björt og falleg 2ja herb. íb., um 65 fm á aðalhæð í stein- húsi við Hverfisgötu. Nýstandsett baðherbergi. Parket á gólfum. Bílskúr. Einkasala. 4ra herbergja íbúð við Álfaskeið: Á 2. hæð í fjölbýli. Parket á stofugólfi. Bílskúr. Hef kaupendur að flestum gerðum íbúða og húsa í Hafnarfirði og nágrenni. Árni Gunnlaugsson, hrl., Austurgötu 10, sími: 50764.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.