Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
Skipavík hf.:
45% atikning veltu milli ára
Stykkúhólmi. ' '
AÐALFUNDUR Skipasmíða-
stödvarinnar Skipavíkur hf.
Stykkishólmi, var haldinn 23.
júli sl.
Formaður, Sigurður Kristjáns-
son, flutti skýrelu stjómar, fram-
kvæmdastóri, Ólafur Kristjánsson,
las og skýrði reikninga. Velta fé-
lagsins var árið 1986 kr. 71.796.
352 og er það 45% aukning milli
ára. Niðuretöður efnahagsreiknings
voru kr. 51.653.261 og eigið fé
hefír aukist um 31% og er nú rúm-
ar 38 milljónir. Skuldir hafa
minnkað mikið og em nú varla telj-
«ndi. Fyrirtækinu tókst að selja
vélar fyrir 16 milljónir króna sem
er 22% af veltu. Verkefnin hafa
aðallega verið á sviði vilhalds og
stærri breytinga á skipum og einn-
ig varð verulegur vaxtarbroddur á
smíði fískvinnsluvéla aðallega til
útflutnings. Þá var tilkynnt að
Skipavík mun taka þátt í Sjávarút-
vegssýningu nú í haust. Þátttaka í
þessari sýningu fyrr átti verulegan
átt í sölu er átti sér stað á sl. ári.
desember nk. minnist félagið þess
að 20 ár em liðin frá því að starf-
semin hófst.
Hjá fyrirtækinu störfuðu á árinu
35 manns og vom vinnulaun 22
milljónir. Þá var kynnt á fundinum
kandidatsritgerð Sigrúnar Rögnu
Ólafsdóttur er hún samdi yfir rekst-
ur félagsins fyrir sl. 5 ár eða
1982-1986 að báðum ámm með-
töldum. í stjóm vom kosnin
Guðmundur Kristíánsson, Rögn-
valdur Lámsson, Ölafur Kristjáns-
son, Ellert Kristinsson og Sigurður
Kristjánsson. Ákveðið var að greiða
hluthöfum 10% i arð.
Um ffamtíðarverkefni og eins um
framtíðaretarf félagsins voru tals-
verðar umræður og séretaklega hve
erfitt er að fá lærða starfsmenn til
vinnu og er þetta fyrirtæki sinnar
tegundar ekki eitt um það.
Afmæliskveðja:
Vilborg þorsteins
dóttir Hafberg
í dag er Vilborg Þorvaldsdóttir
Hafberg 90 ára. Hún er fædd í
Önundarfírði þ. 7. ágúst 1897. Hún
giftist Friðrik Hafberg kafara og
eignuðust þau fjögur böm, þrjú
þeirra em á lífi. Starf Friðriks við
köfun gat verið oft á tíðum
lífshættulegt og uggur í bijósti
ungrar eiginkonu með bömin sín
heima. Öryggi í þessu starfí er sem
betur fer ólfkt meira í dag. Friðrik
var einnig formaður verkalýðsfé-
lagsins „Skjaldar" í flöldamörg ár.
Á Flateyri stóð heimili þeirra hjóna
opið fyrir gestum og gangandi. Er
ég fluttist vestur á Flateyri með
fósturforeldmm mínum, 6 ára göm-
"líi, kynntist ég fljótt Villu, en svo
er hún nefnd af flestum. Fóstur-
móðir mfn og Villa vom æskuvin-
konur úr Önundarfírði og var
vinátta þeirra mikil, eins og bestu
systra. Á heimili Villu varð ég
heimagangurj dætur hennar, Ingi-
björg og Agústa, urðu mfnar
vinkonur og em margar minningar
sem ég á frá þessu heimili. Við feng-
um að leika okkur og æralast,
eitthvað hlýtur að hafa heyret í
okkur og mikið gengið á, þegar
flögur systkini fengu að hafa vini
sína í stofunni eða vera í feluleik
um allt húsið. En Villa var ekki
með neinar skammir eða hávaða,
bað okkur bara hægt og hljótt að
lækka í okkur.
Á heimilinu dvöldu einnig sfðustu
æviár sín foreldrar Villu, Kristín
Halldóredóttir og Þorvaldur Þor-
valdsson, góðar manneslqur, ekkert
kynslóðabil þekktist þá. Einu sinni
á ári var haldið mikið og fínt hjóna-
ball á Flateyri sem kallað var
„Stútungur", þá var tilhlökkun mik-
il hjá mér, því að þá mátti ég gista
hjá vinkonunum. Eftir að Friðrik
lést bjó Villa áfram nokkur ár í
húsinu sínu, en fluttist 1973 f Kópa-
vog til Ágústu dóttur sinnar og
manns hennar Ólafs Guðmundsson-
ar. Þau hafa búið þar vel að henni
og böm þeirra tvö notið ömmu
sinnar. Villa hefur um dagana haft
góða heilsu og munar ekkert um
að skreppa í sund daglega eða í
leikfími hjá öldruðum í Kópavogi. í
þeim félagsskap hefur hún verið
af lífí og sál. Hún hefur unnið ótal
marga hluti í höndunum og eru
máluðu dúkamir hennar vitni þar
um. Aldraðir í Kópavogi hafa farið
oft í ferðalög, og auðnaðist henni
að komast vestur fyrir tveimur
ámm í „fjörðinn" sinn. Með þessum
Ifnum langar mig að þakka Villu
minni allt sem hún hefír verið mér,
og óska henni alls hins besta. Megi
hún eiga fagurt ævikvöld. Til ham-
ingju með 90 ára afmælið.
Anna Hannesdóttir Scheving
Morgunblaðið/Björgvin Haraldsson
Mótsg-estir byijuðu hátfð sína í kirkjunni.
Afkomendur Reyk-
hólahjóna halda mót
Miðhúsum, Reykhólasveit.
NIÐJAMÓT þeirra Amdísar
Bjamadóttur og Hákonar Magn-
ússonar húsbænda á Reykhólum
frá 1899 til 1920 var haldið laug-
ardaginn 1. ágúst. Arndís var
fædd 27. október 1862 og lést
6. júlí 1926, Hákon var fæddur
1. september 1864 og lést 6. ágúst
1938.
Mótsgestir byijuðu hátíð sfna
með því að ganga til kirkju og var
prestur þar séra Baldur Vilhelms-
son í Vatnsfírði og þar var afhent
gjöf frá afkomendum þeirra hjóna,
en það voru tveir blómavasar.
Formaður sóknamefndar, Stefán
Magnússon, þakkaði fyrir hönd
kirkjunnar.
Arndís hafði verið tvígift og átti
hún þijár dætur með fyrri manni
sínum. Böm sem á legg komust
vom: Kristín Guðmundsdóttir,
Bjami Hákonareon, Sólborg Há-
konardóttir, Ingibjörg Hákonar-
dóttir, Sigríður Hákonardóttir,
Kristinn Hans Hákonareon, tvíbur-
amir Jón og Magnús Hákonareynir,
tvíburamir Jóhanna og Ragnheiður
Hákonardætur og Oddfríður Há-
konardóttir. Fósturdætur vom þær
Filipía Blöndal, Guðrún Guðmunds-
dóttir og Ingunn Jónasdóttir og gat
hún sótt þetta ættarmót.
Þess má geta að þau hjón Amdís
og Hákon vom einkar kirkjurækin
og hlúðu að kirkjulífí í sókninni og
auk þess var búskapur þeirra á
Reykhólum landsfrægur á sínum
tíma fyrir myndarekap.
Eftir guðsþjónustu hófst sjálft
niðjamótið í samkomuhúsinu og
setti Amdís Magnúsdóttir frá Bæ
mótið með ræðu, en mótsstjóri var
Magnús Friðgeireson framkvæmda-
stjóri Búvömdeildar SÍS.
Mótsgestir vom um 300 talsins
og elsti mótsgestur var Eyjólfur
Magnússon úr Svefneyjum, rúm-
lega 91 áre gamall, en hann var
tengdasonur þeirra Reykhólahjóna.
Yngsti mótsgesturinn var tæplega
2ja mánaða.
Afkomendur þeirra Hákonar og
Amdísar skipta mörgum hundrað-
um. Einn þeirra, Biynhildur Eyj-
ólfsdóttir, rakti minningar frá
Reykhólum.
I ræðu Amdísar Magnúsdóttur
kom fram að rætur þessa stóra
hóps lægju allar að Reykhólum.
Hún bað fyrir þakkir til organ-
ista og allra þeirra sem gerðu þetta
niðjamót svona ánægjulegt.
I kirkjunni var sungið þetta er-
indi Til Breiðafjarðar eftir Friðgeir
Sveinsson frá Sveinsstöðum:
Breiðafjarðar byggðin kær,
blessuð vertu stundir aliar.
Okkar IjúS bemsku bær,
brattar hlíðar, eyjar, sær,
engi tún og elfan tær
elska drottins til þín kallar.
Breiðafjarðar byggðin kær,
blessuð vertu stundir allar.
Sveinn
Blómavasarnir eru gjöf sem afkomendur færðu kirkjunni.
raðauglýsingar — radauglýsingar — raöauglýsingar |
SÍNE-félagar athugið
Sumarráðstefna SÍNE
Sumarráðstefna SÍNE verður haldin í félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut laugardag-
inn 8. ágúst kl. 14.00.
Félagar, mætum öll. „ . .
Stjornm.
Nauðungaruppboð
Eftlr kröfu skiptaréttar Reykjavíkur o.fl. verða ýmsir munir úr dánar-
búum, félagsbúum og þrotabúum seldir á opinberu uppboði, sem
haldið verður í uppboðssalnum í Tollhúsinu, Tryggvagötu 19, í
Reykjavík, laugardaginn 8. ágúst 1987 og hefst kl. 13.30.
Meðal þess sem selt verður eru ýmis konar skrifstofubúnaður, tölva
af gerðinni IMB System 34 með 5 útstöðvum, símtæki, skrifborð,
hillur, húsgögn alls konar, ýmis listaverk, eftirprentanir listaverka,
frímerki, bækur, verulegt magn af myndbandsspólum fyrir BETA-
myndbandstæki, bifreiðatjakkar, loftpressa, búðarkassar, ýmsar
vörur til Ijósmyndunar og framköllunar, varahlutir i myndavólar og
margt fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn i Reykjavik.
Eggjasaf n óskast keypt
Bandarískur safnari óskar eftir að kaupa
eggjasafn. Aldur eða fjöldi eggja skiptir ekki
máli. Þeir sem hafa áhuga á frekari upplýs-
ingum skrifi til:
N. Thompson,
2603 South Street,
Rolling Meadows, lllinois,
60008 U.S.A.
Aðalfundur Fylkis, FUS
Aðalfundur Fylkis, FUS, verður haldinn I Hafnarstræti 12, 2. hæð,
sunnudaginn 9. ágúst kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á SUS-þing.
3. önnur mál.
Mætið stundvísiega.
Fylkir, FUS.
Metsölubladá hverjum degi!