Morgunblaðið - 07.08.1987, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
11
Þróunarsamvinnustofnun Islands:
Fengur aftur til Græn-
höfðaeyja í nóvember
Þróunarsamvinnustofnunm
hefur nýverið sent frá sér
skýrslu um starf stofnunarinnar
á Grænhöfðaeyjum frá árinu
1984 til 1986. Fiskiskipið Fengur
sem notað hefur verið á eyjunum
fer utan aftur f nóvember til
þess að halda áfram starfinu.
Að sögn dr. Bjöms Dagbjartssonar
framkvæmdastjóra stofnunarinnar
mun Fengur áfram verða við botn-
fískveiðar við eyjamar.
„Botnfískurinn er mjög smár og
því seinlegt að veiða hann með
handfæmm. Við höfum verið að
kenna sjómönnum á Grænhöfðaeyj-
um botnvörpu- og dragnótaveiðar
en þær henta vel þegar veiða á
botnfísk" sagði Bjöm.
Aðspurður sagði Bjöm að íslend-
ingar þekktu ekki þann botnfísk
sem þama veiddist en hann væri
mjög góður matfískur.
„Ætlunin er að Fengur hefji
botnfískveiðar við Grænhöfðaeyjar
í nóvember en báturinn er nú í slipp
til yfírferðar og smábreytinga. Afl-
inn verður frystur í frystihúsum á
eyjunum en fíystigeta þar er mjög
mikil. Síðan verður fískurinn fluttur
út og er t.d. verið að rejma að semja
við íslensku fyrirtækin í Englandi
um kaup á fískinum. Einnig verður
reynt að semja við önnur fyrirtæki
í Englandi og Portúgal" sagði
Bjöm.
Búið er að auglýsa eftir yfír-
mönnum og verða þeir ráðnir frá
1. september n.k. til tungumála-
"T-
X
Fiskiskipið Fengur er i slipp þessa dagana en fer til Grænhöfðaeyja
í nóvember. Myndin er tekin í Bolungarvíkurhöfn fyrir tveimur árum.
náms og annars undirbúnings en Stefán Þórarinsson hefur verið
ráðningatími þeirra er fram á mitt ráðinn verkefnastjóri þessa verk-
ár 1989. efnis sem fer af í tranír í nóvember.
Doktor í þjóð-
félagsfræðum
INGIMAR Einarsson varði dokt-
orsritgerð sina þann 1. júni sl. við
Uppsalaháskóla i Sviþjóð. Ritgerð-
in nefnist „Pattems of Societal
Development in Iceland".
í ritgerðinni er fyrts og fremst leit-
að fræðilegrar undirstöðu til þess að
skýra ákveðnar þjóðfélagsbreytingar
sem átt hafa sér stað á íslandi á
þessari öld. Er rannsóknin aðallega
miðuð við tímabilið 1930—1980. Ein
megintilgáta verksins er sú að ís-
landi svipi til þeirra ríkja sem nefnd
hafa verið hálfjaðarlönd (semiperip-
heral countries). En slík ríki hafa
annars vegar til að bera viss ein-
kenni sem eru dæmigerð fyrir
kjamlönd (core countries) og hins
vegar aðra þætti sem oft auðkenna
jaðarlönd (peripheral countries).
Samfélagsgerð þessara svonefndu
hálfjaðarlanda getur því verið mjög
frábrugðin frá einu landi til annars.
f ritgerðinni er þar af leiðandi lögð
áhersla á gildi þess að draga fram
ýmis séreinkenni íslensks þjóðfélags
fremur en beinan samanburð við önn-
ur lönd.
Andmælandi við doktorsvömina
var Katrín Friðjónsdóttir. Prófdóm-
endur vom prófessor Kaj Hákanson,
Dr. Ingimar Einarsson
dr. Gunnar Olafsson og dr. Sverker
Lindblad.
Ingimar Einarsson er sonur Einars
Magnússonar bifreiðastjóra og
Guðnýjar Þóm Kristjánsdóttur, sem
látin er fyrir allmörgum ámm.
Ingimar er kvæntur Stefaníu R.
Snævarr og eiga þau tvö böm. Hann
starfar nú sem ráðgjafí við embætti
Norrænu ráðherranefndarinnar (Nor-
disk Ministerrád) í Kaupmannahöfn.
BAR
Ólafur Þ. Stephensen, varaformaður Heimdallar, afhendir Ólafi G.
Einarssyni, formanni þingflokks sjálfstæðismanna, skilaboðin frá
Heimdalli í Alþingishúsinu.
Heimdallur:
Þmgflokkur hvattur til
að selja ríkisfyrirtæki
HEIMDALLUR, félag ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík,
færði sfðastliðinn miðvikudag
þingflokki sjálfstæðismanna að
gjöf innrömmuð skilaboð, þar
sem til þess er mælst að á þriðja
tug fyrirtækja verði komið úr
eigu hins opinbera.
Texti skilaboðanna er á þessa
leið: „Skilaboð frá ungum sjálfstæð-
ismönnum — vinsamlegast komið
eftirtöldum fyrirtækjum úr eigu
hins opinbera." Þá kemur listi yfír
ríkisfyrirtæki, sem meðal annars
inniheldur ríkisbankana, Áburðar-
verksmiðjuna í Gufunesi, Skipaút-
gerð ríkisins, Ferðaskrifstofu
ríkisins og Póst og síma. Þingmenn
eru svo beðnir um að krossa við
jafnóðum og þessi fyrirtæki hverfa
úr eigu ríkisins.
Ólafur Þ. Stephensen, varaform-
aður Heimdallar, afhenti þing-
flokksformanni sjáifstæðismanna,
Ólafi G. Einarssyni, skilaboðin og
sagðist vona að þingmönnum yrði
litið á þau sem oftast. Ólafur G.
Einarsson þakkaði gjöfina og sagð-
ist mundu hengja hana upp á
viðeigandi stað í þingflokksherbergi
Sj álfstæðisflokksins.
10. ágúst -10. september
Byrjendur og framhaldsnemar, 13 ára og eldri.
Síðustu fcrvöð að skró sig!
Síminn er 687701 - 687801
Pantaðutíma
ísíma 689320
Tímabilið hefst 10.
Nokkrir lausir
tímareftir.
Hringdu og pantaðu
ingapjOnustan.sía