Morgunblaðið - 07.08.1987, Síða 15
MÖRGUNBLAÐEÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
Dr. Hannes Jónsson
þróun okkar öryggis- og vamar-
stefnu (þá átt, að við sem sjálfstætt
og fullvalda ríki tökum sjálf skref
fyrir skref á okkar herðar eftirlits-
starfið og gæslu hemaðarmann-
virkja í landinu fyrir NATO og
Bandaríkjamenn með þeirra tækj-
um og á þeirra kostnað á friðartím-
um. Aðeins lítið brot þjóðarinnar
tekur mark á aulastefnu Alþýðu-
bandalagsins í vamar- og öryggis-
málum. Vegna þess hve óraunhæf
hún er hafa menn ekki fundið þörf-
ina fyrir að leita nýrra leiða heldur
aðeins afgreitt málið á hvítum nót-
um og svörtum, fómað höndum og
sagt sem svo, að vitleysan í Al-
þýðubandalaginu ríði ekki við
einteyming. Afstaða aðalgagnrýn-
anda öryggis- og vamarstefnunnar
hefur m.ö.o. verið svo óraunhæf og
aulaleg, að hún er almennt talin
ómarktæk. Þess vegna hefur hún
ekki örvað faglega alvöruumræðu
um málið. Þar í liggur hluti skýring-
arinnar á því að hin nýja flotastefna
Bandaríkjamanna hefur ekki verið
rædd á íslandi. En til er líka önnur
skýring.
Hin nýja „flotastefna
Bandaríkjanna“
Með fullri virðingu fyrir Benedikt
Gröndal og bandaríska flotanum
held ég að mér sé óhætt að segja,
að ég hef ekki séð meiri íjarstæður
á prenti en kjama hinnar nýju flota-
stefnu eins og Benedikt lýsir henni.
Finnst mér ástæða til að endur-
prenta þetta sýnishom:
„Hugmyndin er að gera flotasókn
norðaustur fyrir ísland, meðfram
ströndum Noregs alit norður í
Barentshaf. Kafbátar eiga að
fara fyrir, hefja árásir á eld-
flaugakafbáta Sovétríkjanna,
sem em þar norðurfrá, og þar
með þvinga Rauða flotann til að
hörfa norður eftir, kjamorkuflot-
anum til vamar. Síðan eiga
amerísk flugvélamóðurskip að
sækja inn í Noregshaf, tiyggja
flugvelli í Norður-Noregi og gera
árásir á Kolasvæðið. Með þessu
á að fást tangarhald til að knýja
Sovétríkin til að semja fljótlega
um frið (War Termination le-
verage). Miðað er við að allt þetta
gerist án þess að gripið sé til
kjamorkuvopna. “
Hvemig getur heilvita mönnum
dottið í hug að gera flotaárás á
annað stórveldi, árás á landsvæði
þess og eldflaugakafbáta án þess
að reikna með að svarað verði af
fyllstu hörku með sterkustu tiltæk-
um vopnum? Og verði það gert,
hver verður þá afleiðingin?
Ég leyfí mér að efast um að þessi
fabúla verði nokkum tíma formlega
samþykkt sem flotastefna Banda-
ríkjanna eða NATO. Ég geri líka
ráð fyrir því, að enginn (slenskur
ráðamaður sýndi það ábyrgðarleysi
í NATO-ráðinu, að samþykkja þar
slíka stefnu fyrir bandalagið.
Endaskipti örygfgis-
þversagnarinnar
Það virðist eðlilegra hlutverk
okkar íslendinga að stuðla að því
að reynt verði að draga úr vígbún-
aðarkapphlaupinu heldur en að
styðja hugmyndir um flotaárásir á
annað stórveldi. Vígbúnaðárkapp-
hlaupið hefur leitt til þess, að
, kjamorkuveldin í forystu vamar-
bandalaga austurs og vesturs geta
reikningslega tortímt hvort öðru og
heiminum öllum a.m.k. 10 sinnum.
Og það sem verra er: Tæknin og
tölvuvæðing nútímavígbúnaðar er
orðin svo háþróuð, að lítiisháttar
bilun í tölvu gæti leitt til þess að
gjöreyðingarstríðið hæfíst sem eng-
inn ætlaði sér að hefja.
Eftir Reykjavíkurfund Gorba-
chevs og Reagans 10.—12. október
1986 og samþykkt Alþingis í af-
vopnunarmálum frá 23. mal 1985
virðist rökrétt hlutverk íslendinga
innan Atlantshafsbandalagsins að
reyna að draga úr áhrifum þeirrar
óvinarímyndar, sem svo margir í
austri og vestri eru haldnir og
mögnuð er upp í grein Benedikts.
Með því að eyða óvinarímyndinni
myndi opnast möguleiki til þess að
draga úr spennu, eyða tortryggni,
efna til vinsamlegra viðskipta, sam-
skipta og samvinnu ríkja austurs
og vesturs. Ef vel tækist til gæti
komið til eins konar afvopnunar-
kapphlaups í stað vígbúnaðarkapp-
hlaupsins. Endaskipti yrðu höfð á
öryggisþversögninni. Samkvæmt
henni leiðir sérhver aðgerð annars
aðila hinna keppandi heimskerfa til
styrktar vömum sínum sjálfkrafa
til hlutfallslega minna öryggis hins.
Hann fínnur sig knúinn til að svara
með því að efla eigin vamir. Hinn
fyrri svarar aftur með því að styrlcja
herbúnað sinn. Þannig leiða þessar
víxlverkanir til sífellt vaxandi
víbúnaðar beggja og knýja vígbún-
aðarkapphlaupið áfram. Sama
gildir vafalítið um hugmyndimar
um hina nýju flotastefnu Banda-
rílqamanna. Hún hefur vafalaust
þegar kallað fram áætlanir um
vamarviðbrögð ( Moskvu. Einhvers
staðar þarf að byija á að eyða óvin-
arímyndinni, uppræta tortryggni og
stuðla að afvopnun. Tækist að snúa
við áhrifum öryggisþversagnarinn-
ar stigi mannkynið mikið gæfuspor,
sem með tíð og tíma gæti stuðlað
að alhliða afvopnun, friði, öryggi
og samvinnu ríkja.
Á Reykjavíkurfundi Gorbachevs
og Reagans í október 1986 vora
þessir tveir leiðtogar risaveldanna
mjög nærri því að ná samningum
um meiriháttar afvopnun. Samt
fóra samningamir út um þúfur
vegna óvildarviðhorfa hvors aðila
til annars, skorti á gagnkvæmu
trausti og vegna of mikillar tor-
tryggni. Óvinarímynd beggja af
hinum var of sterk. Reagan var
ekki reiðubúinn að afsala sér
„stjömustríðs“-prógramminu fyrir
samning um meiriháttar afvopnun,
eyðingu kjamaeldflauga, kjam-
orkutilraunabann, virðingu mann-
réttinda o.fl., sem hefði verið
mögulegt annars, og Gorbachev sat
fastur við sinn keip um að sam-
komulag um þessa víðtæku af-
vopnun, sem var annars á borðinu,
væri ekki til neins nema því aðeins
að bremsur yrðu settar á sljöm-
ustríðsprógrammið, af því að það
mundi setja aftur í gang nýtt
vígbúnaðarkapphlaup og rannsókn-
ir til að framleiða nýja tegund
gjöreyðingarvopna með þeim afleið-
ingum, að öryggismál heimsins
yrðu ekki að neinu leyti betur á sig
komin en áður.
En hvaða fólk mundi Gorbachev
„frelsa" yfír í kommúnisma og
hvaða menningu, erfðavenjur og
kerfí mundi Reagan veija með því
að skiptast á skotum í allsheijar
lqamorkustríði nútímans? Ef til
þess yrði gripið mundu markmiðin
sjálf tortímast og allt annað með
þeim.
Hemaðarlegt öryggi á þessum
grandvelli er greinilega ekkert ör-
yggi. Það er aðeins, eins og þýski
höfundurínn Erhardt Eppler segir,
hin drepandi öryggisdraumsýn, þar
sem öllu því, sem á að veija með
hemaðarmöguleikunum, verður
gjöreytt, vegna þess að hver sá, sem
mundi vilja rejma að veija líf sitt
með nútímavopnabúnaði í allsheijar
kjamorkustríði mundi öragglega
tapa því.
Þetta er hin mikla öryggisþver-
sögn og vandræði vopnakerfís
nútímans. Ef til ógnarvopnanna
yrði gripið, mundi hvoragur aðilinn
ná sínum meginmarkmiðum. Báðir
mundu tapa öllu sfnu. Og það er
furðuleg einfeldni að hugsa sér að
gera árásir á eldflaugakafbáta Sov-
étríkjanna og á Kolaskaga án þess
að svarað verði með sterkasta vopn-
inu. Framkvæmd flotastefnufabúl-
unnar mundi stigmagnast; hún
gæti leitt til algjörrar tortímingar.
Með slíka vissu í huga virðist
réttlætanlegt að gera ráð fyrir því,
að þessi flotastefna verði aldrei
annað en fabúla. Hitt er líka ljóst
að bæði Gorbachev og Reagan, ráð-
gjafar þeirra, samstarfsmenn og
eftirmenn mundu haga sér skjm-
samlega og sýna virðingarvert
hugrekki með því að þora að taka
þá öiyggisáhættu að slaka örlítið á
ógnaijafnvæginu til þess að ná
samningum um að stöðva vígbúnað-
arkapphlupið og í framhaldi af því
að rejma að koma afvopnunarvíxl-
genginu af stað. Hafa Islendingar
þar meira hlutverki að gegna heldur
en að útbreiða flotastefnufabúlu
nokkurra manna sem virðast vilja
haga sér í samræmi við lífsstíl
sumra frambyggjanna í villta vestr-
inu: „Hef byssu og vil ferðast." —
Sem betur fer hefur slík glæfra-
mennska aldrei verið stefna ríkis-
stjómar Bandaríkjanna og verður
vonandi aldrei stefna NATO.
Höfundur er annar af tveimur
heimasendiherrum utanríkisþjón-
ustunnar, sem annast stjómm&la-
sambandið við fjarlægríki.
Breiðari dekk
Örugg fótbremsa
Dömu.
Kalkhoff V-þýska gæðahjólið var kosið hjól árs-
ins af V-þýska hjólreiðasambandinu ADFC. Við
getumnú vegna hagstæðra samninga boðið
þau á einstöku tilboðsverði.
Mjúk sæti með verkfæratösku
Öryggishandfang með fingragripi
Bögglaberi með öryggisgliti
Dömu.
Stærð:
20" án gíra
24" án gíra
24" 3 gírar
26" án gíra
26" 3 gírar
Herra.
Stærð:
20" án gíra
■Auka handbremsa 24" 3 gírar
Vandaður
3-gírabúnaður
Aldur:
fyrir 6-9 ára
fyrir 9-12 ára
fyrir 9-12 ára
fyrir 12 ára og eldri
fyrir 12 ára og eldri
Aldur:
fyrir 6-9 ára
fyrir 9-12 ára
fyrir 12 ára og eldri
fyrir fullorðna
Afturljós
Sérverslun Reiðhjólaverslunin,—^
ímeiraen ORNINNL við Óðinstorg
Verð:
7.210, -
7.320,-
9.310,-
8.210, -
10.490,-
Verð:
7.186,-
8.960, -
9.960, -
19.960,-
hálfaöld
Slitsterkt lakk með serstakri ryðvörn
26" 3 girar
28" 3 gírar
Allur Ijosabunaöur
Lyklalas
Handpumpa
Lokaður keðjukassi
Niðsterkt stell
og framgaffall með 10 ara abyrgð
Spitalastig 8
Símar: 14661 og 26888