Morgunblaðið - 07.08.1987, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
17
glíma nú við hönnun hreylla, sem
gætu knúið flugvélar á allt að tutt-
ugu og fímmföldum hraða hljóðsins.
Flestir þeirra líta á hugmjmd Gener-
al Electric-fyrirtækisins í Banda-
ríkjunum sem hina heppilegustu.
Hún byggist á því að sameina kosti
þotuhreyfla með hverfli annars veg-
ar og hins vegar þrýstiloftshreyfla,
sem vinna þannig að eldsneytinu
er brennt með því að spýta þvi í
loftstraum, sem hraði flugvélarinn-
ar heldur undir þiýstingi. Engir
hlutir sem hreyfast eru í slíkum
hreyflum.
Hugmyndir tæknifræðinganna
gera ráð fyrir að hverfilhreyflamir,
sem hvorki valda of miklum hávaða
né mengun, knýi flugvélina áfram
þar til þreföldum hljóðhraða er náð.
Þá taki hinir við og komi vélinni á
ofurhraða.
Vestur-þýska tækni- og rann-
sóknaráðuneytið, ásamt Geimferða-
stofnun Evrópu, hefur falið
MBB-verksmiðjunum þýsku hönn-
un hreyfla, sem verði byggðir á
hinni svokölluðu Sánger-hugmynd
um eldflaugaknúna geimflugvél í
tveimur hlutum, sem var sett fram
af Þjóðveijanum Eugen Sánger í
byijun fímmta áratugarins. Sam-
kvæmt heimildum frá MBB á
Sánger-flugvélin að geta flutt 250
farþega og haft 13.000 kílómetra
flugþol.
British Aerospace hefur einnig
hafið tilraunir með vélar í margnota
geimskutlu, sem fyrirtækið hyggst
smíða og á að ná ofurhraða. Áætlað
er að fyrstu gerðir hennar yrðu
teknar i notkun á síðustu árum ald-
arinnar til geimferða, en síðar gæti
svo farið að önnur útfærsla af skutl-
unni yrði notuð til farþegaflutninga.
Nýrra og sterkari efna til flugvél-
asmíða er þörf fyrir jafnhraðfleygar
flugvélar og þær, sem hér eru
nefndar. Menn telja að þau verði
að standast hita frá 80 og allt upp
f 600 gráður. Flugvélasmiðjur og
rannsóknarstofnanir hafa verið afar
þagmælskar um allar tilraunir í
þessum efnum, og enn er lítið vitað
um það hvemig gengur að fínna
nægilega hita- og þrýstingsþolnar
efnablöndur.
28.000 kilómetra hraði
Vinnan að smíði ofurhraðaflug-
vélar er líkast til lengst komin í
Bandaríkjunum. Geimferðastofnun
Bandaríkjanna, NASA, og Vamar-
málaráðuneytið vinna saman að
smíðinni. Þróun hreyfla vélarinnar
er í höndum General Electric og
Pratt & Whitney. Ef smiðunum
tekst að fínna réttu efnin, munu
hreyflamir geta komið ofurhraða-
vélinni á tuttugu og fímmfaldan
hljóðhraða, 28.000 kflómetra hraða
á klukkustund. Slfk vél kæmist
kringum hnöttinn á. um það bil
hundrað mínútum — álíka og það
tekur marga stórborgarbúa að aka
í vinnuna.
Karl vann
í Póllandi
FYRSTA umferð á skákmótinu í
Polaniza Zdroj i Póllandi var
tefld í gær. Karl Þorsteins sigr-
aði andstæðing sinn Stempen,
alþjóðlegan meistara frá Póll-
andi í 60 leikjum.
Stigahæsti skákmaður mótsins
er Stolmapov frá SoVétríkjunum.
Keppendur verða væntanlega 14,
en í gær var einn þeirra enn ókom-
inn að sögn Karls. Mótið er í 9.
styrkleikaflokki.
Siglufjörður:
Bygging
íþrótta-
skemmunar
gengur greitt
Sigiufirði.
LOKIÐ er við fyrsta og annað
byggingarstig íþróttaskemm-
unnar á Siglufirði. Er nú búið
að. einangra húsið og klæða að
utan.
Það er fyrirtækið Börkur frá
Hafnarfírði sem hefur séð um verk-
ið ásamt undirverktökum frá
Siglufírði. Verkið hefur gengið
ljómandi vel sfðan byijað var á því
í sumar.
Einnig hefur verið endanlega lok-
ið við að tyrfa grasvöllinn og ætti
að vera hægt að byija að spila á
honum um miðjan ágúst.
— Matthías
VORN GEGN VEÐRUN
Það er misskilningur að járn þurfi að veðrast.
Alltof lengi hafa menn trúað því að galvaníserað
járn eigi að veðrast áður en það er málað. Þannig
hafa menn látið bestu ryðvörn, sem völ er á
skemmast og afleiðingin er ótímabær ryðmyndun.
Með réttum HEMPELS grunni má mála strax
og lengja þannig lífdaga bárujárns verulega.
HEMPELS þakmálning er sérhæfð á bárujárn
og hefur frábært veðrunarþol.
b
ÞAKMÁI MING 51 #
Kmrnm
íslenskt veðurfar gerir meiri kröfur til utanhússefna en
veðurfar flestra annara landa. Ef steinn er óvarinn við þessar
aðstæður grotnar hann niður á skömmum tíma, aðallega
vegna frostþíðuskemmda.
Steinsílan gefur virka vörn gegn þess konar áhrifum.
Opin veggjamálning, grunnur jafnt og yfirefni á stein, múr-
stein og eldri málningu. Hefur afbragðs þekju og mikið veðr-
unarþol. Fjöldi lita sem halda skerpu sinni lengi án þess að
dofna.
SEPPFEIAGIÐ
Dugguvogi 4 104 Reykjavik 91*8 42 55