Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLABIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
Sonur fyrrum Iranskeisara:
Khomeini illfygli og
hinn versti skálkur
Andstæðingar erkiklerksins sameinist
Rajiv Gandhi:
„Þáði ekki mútufé“
Nýju Delhi, Reuter.
Paria, Reuter.
REZA Pahlavi, sonur fyrrum ír-
anskeisara, telur nú vera lag til
að efla andstöðu við klerka-
stjórnina í íran jafnt innan lands
sem utan. Pahlavi, sem er 27 ára
gamall, sagði & fréttamanna-
fundi í París í gœr að hann
hygðist beita sér fyrir þvi að
andstæðingar stjómar Aya-
tollahs Ruhollah Khomeini
sameinuðust.
Undanfarin átta ár hefur lítið
borið á Reza Palavi en faðir hans,
sem bar sama nafn, lést í júlímán-
uði árið 1980. Sagðist Palavi óttast
að öfgastefna Khomeinis, sem hann
sagði ekki andlega heilbrigðan,
myndi leiða hræðilega ógæfu yfir
þjóðina ef ekki yrði brugðið við
hart og stjóminni komið frá. Kvað
hann skipulega hryðjuverkastarf-
semi stjómarinnar hafa Ieitt til þess
að landið væri einangrað og ætti
sér formælendur fáa bæði á Vest-
urlöndum og f ríkjum araba.
Vonlaust væri að ná samkomulagi
við klerkastjómina eins og vera
erlendra herskipa á .Persaflóa væri
skýrt dæmi um. „Nú em skilyrðin
hagstæðari en áður og ég hyggst
Holland:
Líðan drottn-
ingar talin
viðunandi
Haag, Reuter.
LÆKNAR staðfestu í gær að Be-
atrix Hollandsdrottning væri með
heilahimnubólgu en eftir ítarlegar
rannsóknir sögðu þeir lfðan henn-
ar viðunandi.
Talsmaður konungsfjölskyldunnar
sagði í gær að óvíst væri hvenær
drottningin fengi að yfirgefa
Bronovo-sjúkrahúsið, þar sem hún
var lögð inn í gær. Hann sagði að
hún væri fær um að undirrita lög en
það er eitt mikilvægasta skylduverk
hennar.
Samkvæmt ákvæðum sfjómar-
skrárinnar getur drottningin útnefnt
son sinn og erfingja, Willem Alexand-
er prins, ríkissljóra ef hún er ófær
um að undirrita lög sjálf.
Jerú&aiem, Reuter.
BANDARÍSKUR skjalfræðingur
sagði fyrir rétti i Jerúsalem í gær
að flokksskírteini Johns Deny-
anjuk, sem lagt hefur verið fram
til sönnunar þvi að hann sé i
raun striðsglæpamaðurinn „ívan
grimmi“ væri bláber fölsun.
Denyanjuk hefur alla tið neitað
þvi að hann sé „ívan grimmi“ sem
stjórnaði fjöldamorðum á gyð-
ingum i Treblinka-útrýmingar-
búðunum i Póllandi á árum siðari
heimsstyijaldarinnar.
Edna Robinson, sem starfar sem
skjalfræðingur í Flórída í Banda-
rflqunum, sagði Demjanjuk ekki
hafa undirritað nafn sitt á skfrtei-
nið og kvaðst hafa borið rithöndina
saman við önnur plögg er hann
gegna stærra hlutverki en áður í
því að sameina hin ýmsu öfl bæði
innan landsins og utan“, tjáði hann
fréttamönnum.
Núverandi ráðamenn í íran við-
urkenna Palavi sem arftaka föður
sfns þótt þá greini á um hver staða
hans skuli vera. Hafa þeir boðið
honum að taka sér fasta búsetu þar
f landi en hann hefur hann ekki
þekkst boðið og býr nú í Banda-
ríkjunum.
Palavi tilkynnti fréttamönnum
að hann hygðist ferðast vfða um
hnattkúluna til að efla andstöðuna
við klerkastjómina og myndi hann
leita fulltingis jafnt stjómmála-
KRÍM-TATARAR eru athygl-
isverð þjóð. Þeir eru dugleg-
ir, baráttuglaðir og þraut-
seigir. í síðasta mánuði stóðu
þeir tvisvar sinnum fyrir frið-
samlegum mótmælaaðgerð-
um á Rauða torginu í Moskvu
til að fylgja eftir kröfum
sínum um að þeim verði leyft
að snúa aftur til heimkynna
sinna á Krimskaga.
Fram að þessu hefur Mikhail
Gorbachev Sovétleiðtoga tekizt
fremur vel upp í meðferð þessa
máls og náð að sýnast í senn sann-
gjam en ákveðinn. Hann hefur
ekki viljað hitta forystumenn tat-
ara sjálfur og hefur neitað að
verða við kröfum þeirra um að fá
að snúa nú þegar aftur til
Krímskaga. En hann hefur leyft
þeim að tjá óánægju sína að mestu
leyti óáreittum. Jafnframt hefur
hann skipað neftid valdamikilla
embættismanna til að athuga mál
hefði ritað nafn sitt undir. Sagði
hún einnig að myndin sem uppruna-
lega hefði verið í því hefði verið
ftarlægð og annarri komið þar fyrir.
Ákærandinn í máli Demjanjuks
fullyrðir að flokksskírteinið sanni
sekt hans. Það var gefið út í Traw-
inki-búðunum en þar þjálfuðu
nasistar stríðsfanga frá Úkraínu til
gæslustarfa í Treblinka-búðunum.
Sovétmenn komu skírteininu á
framfæri við ákæmvaldið og segir
Demjanjuk að með þessu vilji þeir
ófrægja þá Úkraínubúa sem flutt-
ust til Bandaríkjanna.
í maímánuði sagði bandarískur
sérfræðingur, sem rannsakaði
skírteinið, að hann teldi það vera
ófalsað.
Reuter
Reza Palavi yngri.
manna og almennings. Lét hann
þess ennfremur getið að hann
myndi innleiða pólitískt frelsi í íran
ætluðu örlögin honum að taka við
völdum þar.
þeirra og leyft þeim að ræða við
sjálfan Andrei Gromyko, forseta
Sovétrílq'anna, sem er einmitt
formaður þessarar nefndar.
Gromyko, sem er því ekki vanur
að taka ákvarðanir í flýti, skýrði
talsmönnum tatara frá því 27.
júlí, að bíða bæri með að ræða
mál þeirra, unz tilfínningahitann
lægði. Tatarar létu þetta hins veg-
ar ekki hafa áhrif á sig. Þeir urðu
um kyrrt í Moskvu, þar sem þeir
hyggja á frekari mótmælaaðgerð-
ir svo sem hungurverkföll.
Fjöldi Krím-tatara í Sovétríkj-
unum er um 400.000 og búa flestir
þeirra í Uzbekistan. Ekki má
blanda þeim saman við Kazan-
tatara, sem eru miklu Qölmennari
og tala annað tungumál, enda
þótt þessar þjóðir séu skyldar.
Krím-tatarar eru að nokkru
komnir af mongólskum töturum,
sem héldu inn á steppumar fyrir
norðan Krím á 13. öld. En þeir
eiga einnig uppruna sinn að rekja
til tyrkneskra þjóðflokka, sem
bjuggu á þessum slóðum á undan
Mongólum. Þá eiga þeir einnig
að einhveiju leyti ættir að rekja
til Grikkja, sem bjuggu á suður-
strönd Svartahafs.
Tatarar voru áður fyrr herskáir
stríðsmenn, sem áttu öldum sam-
an í styijöldum við Rússa, og
settust m.a. um Moskvu 1571.
En smám saman dró úr mætti
Tyrklands, er verið hafði aðal-
bandamaður tatara og Krím
komst undir stjóm Rússa 1783.
Stjóm Rússakeisara hvatti tat-
ara til að flytja úr landi. Margir
fóru og þá einkum til Tyrklands.
Er Lenín kom á bolsévikastjóm
sinni fengu tatarar sitt eigið sjálf-
stjómarlýðveldi 1921, en urðu
fljótt fyrir vonbrigðum. „Smá-
borgaralegir þjóðemissinnar"
tatara vom ofsóttir í lok þriðja
áratugar aldarinnar og á árunum
upp úr 1930 vom 30.000-40.000
bændur á meðal tatara fluttir til
Síberíu.
Á meðan hemám Þjóðveija stóð
yfír í síðari heimsstyijöldinni börð-
ust mörg þúsund tatara, aðallega
fyrrverandi stríðsfangar, í sex
herfylkjum undir stjóm þýzkra
herforingja gegn sovézkum
skæmliðum á þessu svæði. Enn
fleiri tatarar börðust með Sovét-
mönnum og vom sæmdir heiðurs-
RAJIV Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, visaði í gær
á bug ásökunum þess efnis
að hann og fjölskylda hans
hefði þegið mútugreiðslur frá
sænsku vopnaframleiðendun-
um Bofors.
Andstæðingar Gandhis á þingi
vilja að skipuð verði sérstök
rannsóknamefnd til að kanna
hvort eitthvað sé hæft í ásökun-
um þessum en samkvæmt
fréttum í sænskum fjölmiðlum
greiddi Bofors-fyrirtækið um
1,6 milljarða íslenskra króna í
umboðslaun er indversk stjóm-
völd ákváðu á síðasta ári að
festa kaup á fallbyssum fyrir
rúma 50 milljarða króna.
merkjum fyrir. En ekki liðu nema
fáeinir dagar frá því að Þjóðveijar
höfðu verið hraktir frá Krím í maí
1944 er allir tatarar þar voru flutt-
ir burt í skyndi, alls um 250.000
manns. Samkvæmt heimildum
tatara týndi nær helmingur þeirra
lífí sem sendir voru til Uzbekist-
an. Samkvæmt hinum opinberu
tölum í Sovétríkjunum fórust „að-
eins“ 20% þeirra.
Krím-tatarar voru opinberlega
„beðnir afsökunar" á brottflutn-
ingnum árið 1967, en þeir fengu
ekki heimild til að snúa aftur til
Krím. Þrátt fyrir það að margir
virkir andófsmenn úr þeirra röð-
um hafí verið fangelsaðir hafa
þeir haldið áfram baráttu sinni
fyrir því að fá að snúa til sinna
fyrri heimkynna. Þessi þrákelkni
kann að virðast undarleg, þar sem
töturum hefur vegnað vel í sínum
nýju heimskynnum í Mið-Asíu.
Það virðist hins vegar ekki nægja
þeim. Tataraskáldið Ismael Yazid-
ziyev kemst svo að orði á einum
stað: „Enginn má líta svo á, að
Krím-tatarar séu hópur sauð-
kinda, sem skipti það engu máli,
hvar bithaginn er svo lengi sem
nóg er þar að bíta.“
Ymsar ástæður hafa verið
Gandhi ávarpaði þingmenn í
gær og bar af sér þessar áskan-
ir. Sagðist hann öllum fremur
vilja að hið sanna í málinu kæmi
í ljós og hvatti menn til að sam-
einast um þetta markmið. „Ef
rannsókn leiðir í ljós að einhver
hefur þegið ólöglegar greiðslur
verður gripið til þyngstu refs-
ingar. Þessu hef ég marglýst
yfír í báðum deildum þingsins,"
sagði Rajiv Gandhi.
Enn hefur ekki tekist að
skipa óháða rannsóknamefnd í
málinu. Óttast stjómarandstæð-
ingar að þess verði gætt við
skipan neftidannnar að stuðn-
ingsmenn Gandhis verði þar í
meirihluta.
færðar fyrir því, hvers vegna
sovézk yfírvöld hafa neitað að
leyfa töturum að snúa heim. Á
meðal þeirra er nefnt það tjón,
sem brottför tatara gæti valdið
efnahagslífí Uzbekistans, en einn-
ig erfíðleikar á því að útvega þeim
húsnæði og atvinnu á Krím. Meg-
inástæðan er þó sennilega tregða
við að fá þetta fólk aftur svo
næm Vesturlöndum.
Á Gorbachev eftir að gefa eft-
ir. Geri hann það, þá á hann á
hættu að kalla yfír sig gagnrýni
frá sínum eigin mönnum, Rússum.
Margir þeirra trúa því, að Stalín
hafi haft rétt fyrir sér og tatarar
hafi aðeins fengið það, sem þeir
áttu skilið. Með því að láta undan
töturum gæti farið svo, að svipt
yrði hulunni af öðrum dimmum
köflum f sögu Sovétríkjanna, eins
og Ijöldaflutningum fólks frá Lit-
haugalandi, Lettlandi og Eistlandi
1940, eftir að lönd þeirra höfðu
verið innlimuð í Sovétríkin og svo
aftur 1945. Enn má nefna fjölda-
flutninga á úkra- ínskum bændum
í þjóðnýtingunni á Qórða áratugn-
um. Er það víst, að Gorbachev
geti leyft sér svo mikla opinskáa
umræðu (glasnost)?
(Heimild: Economist)
Réttarhöldin yfir John Demjanjuk:
Flokksskír-
teínið falsað
- segir bandarískur sérfræðingur
Tatarar snúa sér á ný
gegn Moskvuvaldinu
Morgunblaðið/AM