Morgunblaðið - 07.08.1987, Síða 30
30
e—
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
Haugnes-
ingar
fá nýjan
bát
NÝR bátur, Hafbjörg frá
Homafirði, kom til Hauganess
í gærmorgun og er hinn nýi
eigandi hennar Valdimar Kjart-
ansson, útgerðarmaður þar.
Hafbjörgin er 87 tonna trébátur
smíðaður árið 1961 í Danmörku
og var kaupverðið 32 milljónir
króna.
Með í kaupunum fylgdu 540
þorskígildi og sagði Valdimar að
af því væri eftir um 150 tonn af
þorski, sama magn af ufsa, 40
tonn af ýsu og eitthvað af karfa.
„Hér á Hauganesi er alveg yfir-
drifíð nóg að gera; helsta vanda-
málið er að fínna húsnæði handa
fólki sem vill flytjast hingað,"
sagði Valdimar, en kvaðst þó ekki
vera í neinum vandræðum með
að fá mannskap þessa stundina.
Hafbjörgin fer á þorskveiðar til
að byija með en síðan á rækju-
veiðar.
Hafbjörgin við bryggju á
Hauganesi.
Morgunblaðið/Kriatinn Jens Sigurþórsson
Sveitarsljóra-
skipti á Grenivík
SVEITARSTJÓRASKIPTI
fóru fram á Grenivík um
síðustu mánaðamót, en þá lét
af störfum Stefán Þórðar-
son, sem verið hefur í þvi
starfi um 8 ára skeið, og við
tók Guðný Sverrisdóttir frá
Lómatjörn.
Stefán Þórðarson er á förum
frá Grenivík því hann hefur verið
ráðinn til starfa hjá KEA á Akur-
eyri.
Stefán sagði í samtali að í
Grýtubakkahreppi hefði átt sér
stað allnokkur mannfækkun á
síðustu árum, en ástæðu þess
sagði hann aðallega vera þá að
atvinnulíf væri fábreytt; ungt
fólk færi í burtu til náms og
starfs, og kæmi fæst aftur til
baka. Einnig benti hann á að
bamsfæðingar í hreppnum væru
frekar fátíðar.
A undanfömum ámm hefur
þó nokkur uppbygging átt sér
stað, þrátt fýrir að íbúum hafí
fækkað úr 576 þegar flest var í
Morgunblaðið/Vigdls
Stefán Þórðarson, fráfarandi
sveitarstjóri Grýtubakkahrepps.
Tillögur um að hitaveitan
yfírtaki rafhitamarkaðinn
VEITUSTJÓRN Hitaveitu Akureyrar hefur lagt fram tillögur
við bæjarstjóm um hveraig hitaveitan geti lagt undir sig
rafhitamarkað hér í bænum. Tillöguraar fela í sér vissar
ívilnanir til þeirra sem tækju hitaveitu inn til sín á næstunni,
og er i þeim stungið upp á 35% iækkun hitaveitukostnaðar í
tiltekinn tíma og gert ráð fyrir að húsnæðisstjóraarlán sem
fást til breytinga á húshitunarkerfi geti hækkað um allt að
50-100%.
FVanz Ámason, hitaveitustjóri,
^sagði í samtali við Morgunblaðið
að ástæða þess að Hitaveita Akur-
eyrar vildi ná þessum markaði
væri augljóslega sú að tekjur
hennar hækkuðu, en einnig hefði
þetta bætta þjónustu í for með sér
þar sem húsnæði með rafhitun
yrði ekki lengur jafn mikið á víð
og dreif um bæinn, eins og nú er,
en það hefur fram að þessu haft
RÚMLEGA 70 bændur eru nú
búnir að framleiða umfram full-
virðisréttinn hér í Eyjafirði og
stefnir i að umframframleiðsla á
samlagssvæðinu verði um 1,6
miþjón lftra af mjólk. Fram-
jeiðsla f sfðasta mánuði dróst
samt nokkuð saman í júlímánuði
miðað við júlf á síðasta ári.
Leyfílegt er að framleiða 20,7
miiljón lítra á mjólkursamlagssvæði
KEA, og að sögn Þórarins Sveins-
sonar, mjólkursamlagsstjóra, er
framleiðslan á þessu ári þegar kom-
in yfír 20 milljónir lítra.
í för með sér að margir notendur
hitaveitunnar hafa ekki fengið eins
heitt vatn inn til sín og ella.
„Engin ákvörðun hefur verið
tekin um að leggja hitaveitu í
Gerðahverfí II og verður ekki í
bráð, en fyrir utan það eru um
500 íbúðir hér sem 'ekki nota hita-
veitu. Þetta er um 15-20% af öllu
íbúðarhúsnæði í bænum og við
viijum bjóða eigendum þess viss
„Ef miðað er við tölur um fram-
leiðsluna fram að 6. þessa mánaðar
þá er eftir að framieiða um 552
þúsund lítra af mjólk og stefnir allt
í að framleiðslan verði um 1,6 millj-
ón lítrum framyfír fullvirðisréttinn
þrátt fyrir að mjólkurframleiðslan
hafí dregist saman um 8,4% í
síðasta mánuði miðað við sama tíma
í fyrra. En heildarframleiðslan á
þessu verðlagsári hefur hins vegar
aukist um 4,4%,“ sagði Þórarinn.
„Það er því öruggt að á þessu sam-
lagssvæði verður farið fram yfír það
framleiðslumark sem bændur fá
greitt fyrir í næstu viku.“
kjör til þess að auðvelda þeim að
taka hana inn,“ sagði Franz.
„Segja má að tillögur okkar til
bæjarstjómar um hverskonar lgor
eigi að bjóða þeim séu í megin-
dráttum tvennskonar. í fyrsta lagi
bjóðum við þeim sem nú þegar
hafa vatnsmiðstöðvarlagnir, en
hita vatnið með rafmagni, lækkun
á tengigjaldi, en það er eini kostn-
aðurinn sem þeir þyrftu að leggja
út í. Undir þennan hóp falla einn-
ig þeir sem eru með næturhitun.
I öðru lagi er það svo tillaga
okkar að bjóða þeim sem hafa
rafmagnsþilofna, en ekkert vatns-
hitakerfí, um 35% afslátt á
orkuverði í ákveðinn tíma, og jafn-
framt reyna að stuðla að því að
húsnæðisstjómarlán, sem hægt er
að fá til þessara breytinga, hækki
úr 100 þúsund krónum í 150-200
þúsund krónur. Þau lán ber síðan
að endurgreiða á átta árum.
Þetta er í stórum dráttum það
sem við hér hjá hitaveitunni höfum
látið okkur detta í hug og gert
að okkar tillögum," sagði Franz.
Franz benti jafnframt á að
áætlað væri að núverandi taxtar
rafhitakostnaðar breyttust eftir
nokkur ár, enda líklegt að boðuð
sölufyrirkomulagsbreyting Lands-
virkjunar yrði til að hækka suma
raftaxta vemlega.
„Það liggur alveg ljóst fyrir að
ef Landsvirkjun breytir töxtum
sínum þá þarf rafhitun hér að
hækka, en þeim verður breytt í
síðasta lagi um áramótin 1992-93,
og líklega fyrr. Þegar fram líða
stundir verður því hagur að því
að hafa hitaveitu, og því fyrr sem
menn skipta yfír þeim mun iengur
munu þeir njóta afsláttarins. Það
mun þó ekki liggja fyrir í bráð
hversu hár hann verður; við höfum
stungið upp á 35% afslætti en
bæjarstjóm mun fjalla um þetta
mál á ftindi sínum á þriðjudag og
vonandi verður ákvörðun um það
tekin sem fyrst“ sagði Franz Áma-
son, hitaveitustjóri, að lokum.
FRAMKVÆMDIR vlð 3,5 km á
Ólafsfjarðarvegi, frá Baldurs-
haga og að Fagraskógi, hófust i
byrjun vikunnar og er verið að
keyra nýtt burðarlag í veginn.
Guðmundur Svavarsson, um-
dæmisverkfræðingur Vegagerðar
ríkisins, sagði að slitlag hefði verið
Iagt á þennan veg árið 1979 og það
væri því orðið það gamalt að tími
530, og sagði Stefán að miklar
framkvæmdir í umhverfísmálum
hefðu farið fram; búið væri að
malbika nokkrar götur og væm
flest hús á Grenivík til mikillar
fyrirmyndar.
íbúar Grýtubakkahrepps
þakka Stefáni störf hans í þágu
sveitarfélagsins um leið og þeir
bjóða hinn nýja sveitarstjóra vel-
kominn til starfa.
hefði verið kominn til að skipta um
það. Þá sagði hann að vegurinn
hefði verið nokkuð missiginn og
með því að keyra í hann nýtt burð-
arlag væri verið að rétta hann af.
Að því loknu verður síðan nýtt slit-
lag lagt á veginn, og bjóst
Guðmundur við að öllum fram-
kvæmdum yrði lokið í þessum
mánuði.
Mjólkursamlagssvæði KEA:
Stefnir í 1,6 milljón
lítra framleiðslu á
verðlausri mjólk
Vigdís
Morgunblaóið/Kristinn Jens Sigurþórsson
Unnið við að bera nýtt burðarlag I Ólafsfjarðarveginn.
Unnið við að styrkja
Olafs fjarðarveginn