Morgunblaðið - 07.08.1987, Blaðsíða 52
tiBRunnBúT
■AFÖRYGGISASTÆÐUM
Nýjungar
í 70 ár
6DAGAR
KRINGWN
KÖHeNH
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
- :#
Gullskips-
menn enn
á ferðinni
Leiðangursmenn Björgunar
hf. hefja enn eina leitarferðina
í dag að hollenska skipinu „Het
Wapen van Amsterdam“ á Skeið-
arársandi.
Samkvæmt upplýsingum Krist-
ins Guðbrandssonar forstjóra
Björgunar hf. verður leitað með
mælitækjum vestarlega á sandin-
um, m. a. nýjum vatnabíl, sem þeir
hafa smíðað í vetur. Reiknað er
með að leitin standi jrfír í nokkrar
vikur.
Nýir mark-
aðir með
fullvinnslu
loðnulýsis
„Að undanförnu höfum við
lagt mikla áherslu á að fullvinna
loðnulýsi, m.a. með þvi að kald-
hreinsa það, aflykta og fleira og
með þessum vinnsluaðferðum
höfum við náð að auka verulega
verðgildi loðnulýsisins," sagði
Agúst Einarsson, forstjóri Lýsis
hf., í samtali við Morgunblaðið.
Lýsi hf. selur nú víða um heim
töluvert magn af framleiðslu sinni
úr Ioðnulýsi, m.a. til Asíu þar sem
framleiðslan er notuð í álafóður.
Þá er talsvert magn af loðnulýsi
einnig selt til Noregs, en stór hluti
af sardínum í niðursuðu þarlendis
er í íslensku loðnuiýsi. Ágúst sagði
að víða um heim væri verulegur
áhugi á loðnulýsi sem orkufóðri og
kvað hann stefna í verulega sölu-
aukningu frá íslandi. Hefur Lýsi
hf. verið beðið um verðtilboð fyrir
500 tonn af loðnulýsi í haust fýrir
erlendan aðila. Þá má geta þess að
Lýsi og Mjöl, sem er dótturfyrir-
tæki Lýsis hf., ásamt Hydrol
framleiðir um 400 tonn á mánuði
af fískeldisfóðri fyrir innlendar físk-
eldisstöðvar, en ýmislegt í fram-
leiðslu fyrirtækjanna þriggja er
samtengt og gert í samvinnu.
Morgunblaðið/RAX
Aframhaldandi veðurblíða um helgina
MIKIL veðurblíða hefur rikt á sunnan- og vestanverðu landinu
undanfama daga og samkvæmt spám Veðurstofunnar em allar
líkur á að góðviðrið haldist næstu daga. Hitinn í gær komst mest
í 22 stig á Hæli í Hreppum og víða, frá Horaafirði og vestur í
Borgarfjörð, var hitinn á bilinu 20 tíl 21 stig. Meðfylgjandi
mynd var tekin í sundlauginni í Mosfellssveit í gærdag og eins
og sjá má kunni ungviðið vel að meta veðurblíðuna.
Iðnrekendur kanna vilja
fyrir erlendu vinnuafli
Alhliða könnun á atvinnuástandi
FÉLAG íslenskra iðnrekenda
er um þessar mundir að kanna
atvinnuástand hjá iðnfyrirtækj-
um víðsvegar um landið, en
mikill skortur mun vera á
vinnuafli á mörgum stöðum.
Horfum á fjölskyld-
una sem útgangspunkt
en ekki afgangsstærð
Einnig er athugað viðhorf fyrir-
tækja til þess að flytja inn erlent
starfsfólk ef þess gerist þörf.
„Við erum fyrst og fremst að
kanna hvemig ástandið er hjá
þessum fyrirtækjum í framhaldi
af fréttum undanfarið um að mik-
ill skortur sé á starfsfólki í iðnfyr-
irtækjum,“ sagði Ólafur
Davíðsson, framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra iðnrekenda, í
samtali við Morgunblaðið. „Við
höfum því haft samband við fyrir-
tæki og kannað hvemig ástandið
er, til að fá vísbendingu um hversu
mikill vinnuaflsskorturinn raun-
vemlega er og hvort hann sé meiri
hjá faglærðu eða ófaglærðu iðn-
verkafólki. Einnig báðum við
fyrirtækin um að meta horfur á
næstu mánuðum og könnuðum
viðhorf manna til þess að fá erlent
vinnuafl ef um slíkt væri að ræða.“
Enn er verið að vinna úr niður-
stöðum könnunarinnar en þeirra
er að vænta í næstu viku.
— segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
Á rikisstjómarfundi í gær var samþykkt tillaga Þorsteins Pálsson-
ar forsætisráðherra um samstarfsnefnd ráðuneyta varðandi fjöl-
skyldumál.
Verkefnið, sem felst í tillögu
Þorsteins, er að gera úttekt og til-
lögur í málaflokkum sem miða að
því að treysta stöðu ijölskyldunnar
og auka velferð bama.
Forsætisráðherra mun skipa for-
mann nefndarinnar, en eftirtalin
ráðuneyti skipa einn fulltrúa hvert,
menntamálaráðuneytið, félags-
málaráðuneytið, flármálaráðuneyt-
ið og heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið.
„Með þessari nefndaskipan er
okkar ætlun sú að draga fjölskyldu-
hagsmunina fram á ýmsum sviðum
löggjafar og framkvæmda, þar sem
við getum gert betur ef við horfum
á fjölskylduna sem útgangspunkt
en ekki sem afgangsstærð þegar
við setjum lög og reglur um skatta,
lífeyrismál, skólamál, vinnutíma og
þar fram eftir götunum," sagði
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
í samtali við Morgunblaðið. „Það
er fyrst og fremst ætlun okkar að
horfa á þessa þætti út frá hagsmun-
um íjölskyldunnar og niðurstöðum-
ar eiga að styrkja stöðu fjölskyld-
unnar og sérstaklega bama í
þjóðfélaginu. Framkvæmd verður
síðan í höndum ráðuneytanna og
því er lögð áhersla á þetta breiða
samstarf. Við Sjálfstæðismenn höf-
um lagt ríka áherslu á þessa þætti
sem um er að ræða og nú er að
ná árangri," sagði forsætisráð-
herra.
Ágúst Einarsson, forsljóri Lýsis hf
Aukning lýsisneysl-
unnar með ólíkindum
„ÞAÐ er með ólíkindum hve
mikil aukning hefur orðið f
neyslu þorskalýsis innanlands
að undanförnu,“ sagði Ágúst
Einarsson, forstjóri Lýsis hf., í
samtali við Morgunblaðið.
„Til skamms tíma datt lýsis-
neysla alltaf niður yfír sumarmán-
uðina,“ sagði Ágúst, „en nú sjáum
við engan mun lengur eftir árstíð-
um. Það er augljóst að niðurstöður
vísindamanna um hollustu lýsis
fyrir hjarta og æðar, vegna sjúk-
dóma eins og gigtar, og fleiri
þætti, hefur haft mikil áhrif varð-
andi aukna lýsisneyslu og á
sfðastliðnum fímm árum hefur
lýsisneyslan fímmfaldast. Við selj-
um nú árlega 500 þúsund flöskur
af lýsi innanlands og að auki eru
lýsispillumar, sem eru með sam-
svarandi aukningu."