Morgunblaðið - 19.08.1987, Síða 7

Morgunblaðið - 19.08.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987 7 Framleiðnikönnun: MEÐALEFNIS í KVÖLD ELTONIOHN Þáttur um Elton John þar sem hann segir frá baráttu sinni við fjölmiðla og sýnd verða bæði gömul og ný myndbönd. A NÆSTUNNI IfT Flmmtudagur 119:001 ÆVINTÝRIH.C. ANDERSEN (Næturgaiinn). Teiknimynd með íslensku tali. 22:05 Föstudagur SKILNAÐUR (Breaking up). Áströlsk sjón- varpsmynd frá 1985. Mynd þessi fjallarum tvo unga bræður og þau áhrifsem skilnaður for- eldra þeirra hefurá lifþeirra. STÖÐ2 ll L fb^ K ýÖ Auglýsingasími Stöövar 2 er 67 30 30 Lykllinn fnrð þú hjá Heimilistsokjum Heimilistæki hf S:62 12 15 Verðmætasköpun á sérhvern vinnandi mann með minna móti BIRTAR hafa verið niðurstöður könnunar á framleiðni vinnuafls á íslandi. Þar kemur fram að samanborið við þau lönd sem einkum er miðað við sé framleiðni vinnuafls einna minnst hér á landi. Einn- ig segir að svo virðist sem ástandið sé einna verst í aðalatvinnugrein- um okkar, landbúnaði,fiskveiðum, matvælaiðnaði og í sumum greinum iðnaðar. Verðmætasköpun á sérhvern vinnandi mann er þvi með minna móti hér á landi miðað við það sem þekkist í öðrum löndum og hefur jafnframt vaxið hvað minnst á því tímabili sem rannsíknin nær yfir. Það er Iðntæknistofnun íslands sem hleypti af stokkunum svoköll- uðu „framleiðniátaki" árið 1985, í samvinnu við Iðnaðarráðuneytið, Alþýðusamband íslands, Félag íslenskra iðnrekenda, Landsam- band iðnaðarmanna og Landsam- band iðnverkafólks. í formála nýútkominnar skýrslu segir að markmið átaksins sé að gera al- menning og forráðamenn fýrir- tækja betur meðvitaða um mikilvægi þess að auka framleiðni í íslensku atvinnulífi. Útgáfa skýrslu um framleiðnimælingar sé eitt verkefna í anda þess markmiðs og sé þar um að ræða umfangs- mestu athuganir sem gerðar hafa verið á þróun framleiðni í íslensku atvinnulífi. í könnuninni er sýnt fram á hver þróunin hafi orðið á framleiðni vinnuafls í íslenskum atvinnugrein- um og er við mælingamar höfð hliðsjón af svipuðum mælingum erlendis. Mælingarnar ná yfir tíu ára tímabil, frá árinu 1973 og til ársins 1983. Það vekur athygli að helstu nið- urstöður mælinganna eru þær að framleiðni vinnuafls sé einna minnst á íslandi í samanburði við þau lönd sem einkum er miðað við. Landsframleiðsla á hvem vinnandi mann hefur hvergi aukist eins lítið og hér á landi á tímabilinu og árið 1983 var framleiðnin einna minnst hér miðað við þau lönd sem höfð vom til samanburðar. Hins vegar leiða niðurstöðumar í ljós að lands- framleiðsla á hvem íbúa hefur aukist hér að jafnaði og að staða hennar og vöxtur er í meðallagi miðað við önnur lönd. Ástæða þess að landsframleiðsla á hvem íbúa eykst mun meira en landsframleiðslan á hvem vinnandi mann er, að því er segir í skýrsl- unni, aðallega aukin atvinnuþáttt aka, en hún jókst helmingi meira hér en í öðmm löndum. Munar þar miklu um aukna þátttöku kvenna í atvinnulífinu á fyrri hluta umrædds tímabils. Því virðist sem sá hag- vöxtur og sú aukna verðmætasköp- un á hvem íbúa sem kemur fram á íslandi á tímabilinu eiga að vem- legu leyti rætur að rekja til aukinn- ar atvinnuþátttöku, en ekki eins og víðast hvar erlendis, til aukinnar landsframleiðslu á hvern vinnandi mann. Þegar litið er á niðurstöður mæl- inganna í einstaka atvinnugreinum vekur athygli að framleiðni vinnu- afls í landbúnaði jóks á tímabilinu mikið á öllum Norðurlöndunum nema á íslandi. Framleiðni vinnu- afls í fiskveiðum virðist í meðallagi hér á landi, en með minnsta móti í framleiðsluiðnaði í heild sinni mið- að við þau lönd sem höfð vom til samanburðar, en það em Norðurl- öndin, Bandaríkin, Japan og Þýskaland. VORIJSYNINGAR & HAMARKS ARANGUR AF ÞÁTTTÖKU f VÖRUSÝNINGUM, ERLENDIS SEM HÉR ÁIANDI Námskeið ætlað þeim starfsmönnum sem hafa umsjón með kynningu á framleiðsluvörum og markaðssetningu þeirra. Fjallað er um hvenær rétt sé að taka þátt f vörusýningum og hvernig megi stefna á hámarksárangur af þátttökunni. EFNISATRIDI Helstu þættir vörukynningar Val einstakra þátta. Undirbúningur þátttöku á vörusýningu. Undirbúningur kynningarherferða. Störf á sýningarsvæði. Úrvinnsla gagna að sýningu lokinni. LEIDBEINANDI Sigurður Ágúst Jensson frá Útflutningsráði íslands. 25. ágúst 1987 kl. 8:30 til 17:30 að Ánanaustum 15. UTFLUTNINGS OG MARKAÐSSKÓLIÍSLANDS THE ICELANDIC INSTITUTE OF MARKETING AND EXPORT Ánanaustum 15-101 Revkjavík- Simi 91 -62-10-66

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.