Morgunblaðið - 19.08.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987
17
að til þess að viðunandi árangur
næðist í þessari atvinnugrein, yrðu
þeir að ráða sjálfir yfir útflutnings-
málunum. Eigin útflutningsfyrir-
tæki eða önnur öflug íslenzk
fyrirtæki voru algjört skilyrði þess
að vel tækist til í þessum efnum.
Að sjálfsögðu þurfti að hafa góða
samvinnu við erlenda kaupendur í
þeirra eigin heimalöndum, en salan,
sölustefnan varð að vera í höndum
þeirra sjálfra.
Það er þeim mun athyglisverðara
að athafnamaðurinn Guðbjöm Guð-
jónsson skuli leggja áherzlu á það
atriði, að eignarhaldið skuli vera
hjá íslendingum en ekki útlending-
um, þar sem á síðustu árum hefur
gætt almennrar vantrúar á að ís-
lendingar ættu yfirleitt að vera að
eiga sjálfir í stórfyrirtækjum, sem
þyrftu að keppa við erlenda aðila
úti í hinum stóra heimi. Hart hefur
verið sótt að stóru íslenzku útflutn-
ingsfyrirtækjunum og jafnvel að því
unnið af hálfu óábyrgra aðila, að
reyna að kljúfa þau niður í margar
smáeiningar. Slík iðja er mikið
ófremdarverk og myndi leiða til
aukins ósjálfstæðis og tekjurýmun-
ar. Hinir erlendu aðilar myndu
stöðugt vilja stærri hluta kökunnar
og eftir því sem ítök þeirra í
íslenzku atvinnulífi yrði meiri, kæmi
minna í okkar hlut. í sjálfstæðis-
baráttu þjóðar felast m.a. átök um
eigna- og tekjuskiptingu við aðrar
þjóðir. í heimi nútímans er áferð
þessara átaka yfírleitt fágaðri en
áður fyrr, sérstaklega á milli hinna
háþróuðu iðnaðarríkja á vesturhveli
jarðar. En átökin em eftir sem áður
til staðar. í slíkum heimi er staða
smáþjóðar með einhæfa atvinnu-
vegi mjög viðkvæm.
Höldum fast í sjálfstæðið
Augljóst er að á ýmsum sviðum
verður að eiga sér stað náið sam-
starf íslenskra aðila og erlendra í
uppbyggingu atvinnuvega. I sum-
um tilvikum þarf að vera um
sameiginlegt eignarhald að ræða í
lengri eða skemmri tíma, en fyrir
smáþjóð, sem vill vera sem sjálf-
stæðust, verður að fara mjög
varlega í sakimar. íslendingar
verða að gæta þess vel að vera
ekki settir í það að inna aðeins af
hendi frumstörfin í atvinnulífinu.
Salan, þjónustan og stjómunin
verða stöðugt mikilvægari. Þar er
tekjuskiptingin, arðurinn, raun-
verulega ákveðin. Það að vera sem
næst markaðnum, ræður úrslitum
um lífskjör þjóðarinnar. Það er ekki
unnt að eftirláta erlendum aðilum
einum, yfirumráð og ákvarðana-
töku í þessum efnum. Of mikil
uppskipting og dreifing í sölu sjáv-
arafurða frá Islandi, býður þessari
hættu heim. Síðustu dæmin um
vanskil og óheiðarleg vinnubrögð
ákveðinna erlendra aðila gagnvart
nokkmm íslenzkum framleiðend-
um, sem seldu utan stóru sölufyrir-
tækjanna, sýna hvað í vændum er,
ef slakað er á kröfunum.
Reynslan hefur sýnt að samfellt
eignarhald íslendinga á útgerð,
fiskvinnslufyrirtækjum og öflugum
útflutningsfyrirtækjum, hefur
reynzt þeim vel. Hin góðu lífskjör
síðustu áratuga hafa byggst á þessu
árangursríka skipulagi. Nútíma,
sjálfstæður athafnamaður undir-
strikar þessa stefnu með uppbygg-
ingu glæsilegs hótels í einkaeign,
sem mun eiga í harðri samkeppni
um hylli ferðamanna. Hann leggur
áherzlu á sjálfstætt eignarhald og
telur það forsendu góðs árangurs í
framtíðinni. í þessum efnum fara
saman sjónarmið þeirra íslendinga
sem hafa áratuga reynzlu í sölu
sjávarafurða á samkeppnismörkuð-
um heims og athafnamannsins, sem
hættir öllu á nýju sviði athafna og
framfara á íslandi. Hvoru tveggja
er byggt á traustum grunni. Trúnni
á því sem íslenzkt er. Trúnni á ís-
lendinginn sjálfan í forystu fram-
kvæmda heima og erlendis.
Höfundur er einn þingmanna
Sjálfstæðisflokksins ÍReykjavik.
Sumarbúðirnar í Ölveri.
Biblíu- og kristniboðsnámskeið í Ölveri
Borgarfirði.
HIN ÁRLEGA kaffi- og randa-
brauðssala í Sumarbúðunum í
Ölveri var sl. sunnudag til styrkt-
ar starfinu og helgina 21.-25.
ágúst nk. verður Biblíu- og
kristniboðsnámskeið í Ölveri.
Það er Samband íslenskra
kristniboðsfélaga sem stendur
fyrir þessu námskeiði.
Kristniboðamir Ragnar og Guð-
laugur Gunnarssynir, Jónas Þóris-
son og Skúli Svavarsson verða með
fyrirlestra um starf í kristniðboðs-
hópum, kristniboð í fortíð, nútíð og
framtíð og kristniboð/hjálparstarf.
Biblíulestrar verða um endur-
komuna í ljósi 2. Pétursbréfs og
um Abraham-köllun til þjónustu.
Guðmundur Guðmundsson æsku-
lýðsleiðtogi fjallar um efnið
„Samfélag mitt' við Guð“, „Um-
hyggja trúsystkina" og „Umhyggja
fyrir öðrum“.
Á laugardagskvöldi verður
Eþíópíukvöldvaka og mánudags-
kvöldið Kenýukvöldvaka. Messa
verður á sunnudeginum þar sem
Stína Gísladóttir guðfræðingur
predikar.
Hinu hefðbundna starfi Sumar-
búðanna í Ölveri er lokið og voru
um 270 böm þar í sumar í 8 flokk-
um.
- pÞ
Seltjarnaraessöfnuður
fer í safnaðarferð
Seltjarnarnessöfnuður stend-
ur fyrir sinni árlegu safnaðar-
ferð sunnudaginn 23. ágúst nk.
og er ferðinni heitið austur í
Skálholt.
Lagt verður af stað frá nýju
kirkjunni á Seltjamarnesi kl. 10.00
f.h. og ekið sem leið liggur austur
í Skálholt þar sem nesti ferðalang-
anna verður snætt. Þá verður farið
í messu í Skálholtsdómkirkju kl.
14.00 þar sem sr. Guðmundur Óli
Ólafsson þjónar fyrir altari og pred-
ikar. Að messu lokinni verður ekið
að Laugarvatni, þar sem dmkkið
verður kaffi í boði safnaðarins. Það
sem eftir er ferðar verður leikið
eftir veðri og vindum og ef til vill
stansað á Þingvöllum. Seltimingar
eru hvattir til að taka þátt í þess-
ari ferð og tilkynna þátttöku sína
á skrifstofu sóknarprests milli kl.
11.00 og 12.00 í síma 611550.
(Fréttatilkynning)
Sunnudas,sjóeúrt með
BANÖNUM
OG KÓKOS
i r
Forvitnileg og feiknagóð.
nmr
g
ri
t