Morgunblaðið - 19.08.1987, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987
23
Búlgaría:
Víðtækar stjórnkerfis-
breytingar samþykktar
Sófíu, Reuter.
BÚLGARSKA þingið samþykkti í gser víðtækar breytingar í efnahags-
málum og stjórnskipan, sem taka gildi hinn 1. janúar næstkomandi.
Meðal annars er í hyggju að stofna sérstök fríhafnarsvæði á næsta
ári til þess að laða að erlent fjármagn.
Þarna er á ferðinni enn ein breyt-
ing Todors Zhikovs í umbótaátt, en
hann er sá leiðtogi Austur-Evrópu,
sem hvað mest hefur tekið undir
breytingar Gorbachevs þó svo að það
hafi frekar verið í orði en á borði
til þessa.
Verulegar breytingar eru ætlaðar
á stjórnkerfi kommúnistaríkisins, en
nokkur lykilráðuneyti verða lögð nið-
ur og málaflokkar þeirra látnir
tilheyra öðrum. Þá verða einnig
stofnuð ný ráðuneyti, sem fara með
mál sem tvö eða fleiri ráðuneyti fóru
með áður. Við þetta var nokkrum
ráðherrum ýtt út í kuldann, en aðrir
verða enn valdameiri en fyrr.
Meðal þeirra ráðuneyta, sem lögð
verða niður, eru fjármálaráðuneytið,
viðskiptaráðuneytið, heilbrigðis-
ráðuneytið og menntamálaráðuneyt-
ið.
Sá, sem mesta upphefð hlaut af
stólabrölti þessu, var Stojan Koslov
Oveharov, sem verður ráðherra hins
nýstofnaða efnahags- og áætlana-
ráðuneytis. Hann er tiltölulega
ungur, aðeins 45 ára gamall, og er
verkfræðingur frá Moskvuháskóla.
Hann hefur ekki gegnt ráðherra-
embætti fyrr.
Reuter
Glass tekur í hönd sýrlenska utanrikisráðherrans, Farouq al-Shara
i utanríkisráðuneytinu í Damaskus i gær er Glass var afhentur sendr-
áði Bandaríkjamanna.
Ævintýralegur flótti Charles Glass:
Læsli mannræningjaiia irnií
og klifraði út um glugga
Beirút, Damaskus, Reuter.
BANDARÍSKI blaðamaðurinn
Charles Glass, sem arabísk
hryðjuverkasamtök rændu í
Vestur-Beirút fyrir um tveimur
mánuðum, slapp frá ræningjum
sinum með ævintýralegum hætti
í fyrrinótt. Glass tjáði blaða-
mönnum i gær að hann hefði náð
Bandaríkin:
Háskaleikur
í háloftunum
New York, Reuter.
EITT hundrað og sextiu manns létu lífið í flugslysinu við De-
troit, aðeins fjórum dögutn eftir að Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti komst naumlega hjá árekstri við litla einkaflugvél sl.
fimmtudag á leið í sumarleyfi sitt í Kaliforniu.
Það vakti flugmálayfirvöld til
umhugsunar um öryggi og flug-
umferð að þyrla forsetans skyldi
næstum því hafa lent í árekstri
Flugslysið á mánudag á örugg-
lega eftir að tvíefla þá, sem vilja
auka öryggi í flugmálum.
Eitthundrað fjörutíu og sex far-
þegar voru um borð í McDonnell
Douglas MD-60 flugvélinni frá
flugfélaginu Northwest Airlines,
sem hrapaði niður á hraðbraut
nokkrum sekúndum eftir flugtak
á flugvellinum í Detroit. Far-
þegarnir létu allir lífið ásamt
áhöfn vélarinnar og talið er að
allt að sextán ökumenn og far-
þegar í bílum kunni einnig að
hafa farist..
í flugslysinu í fyrradag kom
aðeins ein flugvél við sögu, en
áhyggjur Bandaríkjamanna stafa
fyrst og fremst af því hversu oft
kemur fyrir að flugvélar rekast
næstum því á í háloftunum, eins
og rétt henti forsetann.
„Það er nánast talið sjálfsagt
og eðlilegt að það gerist í hverri
viku að engu muni að flugvélar
rekist á flugi,“ sagði Hank Duffy
fyrr á árinu, en hann er formaður
samtaka atvinnuflugmanna, sem
í eru þrjátíu og níu þúsund félag-
ar. Hann segir að allt bendi til
þess að í flugmálum Banda-
ríkjanna hangi öryggi manna á
bláþræði.
Aukin samkeppni milli ýmissa
flugfélaga og lækkanir fargjalda
hafa leitt til þess að nú hafa millj-
ónir ferðalanga bæst í hóp þeirra,
sem ferðast um loftin blá, og þótti
mikið flogið fyrir. Að auki hefur
verið mannekla í flugumferðar-
stjórn frá því að Reagan forseti
rak flugumferðarstjóra í verkfalli,
árið 1980. Ýmsir hafa leyft sér
að efast um hæfni þeirra, sem
settust i sæti verkfallsmannanna,
en aðrir benda á að þegar flugum-
ferðarstjórar hersins tóku við
farþegaflugi til bráðabirgða hafi
óhöppum í flugi snarfækkað.
„Flugumferðarstjórar eru
ýmist of fáir, eða þeir eru of
margir og ekki starfinu vaxnir,"
sagði John Galipault, forseti flu-
göryggisstofnunarinnar, sem
hefur fylgst með því að öryggis
sé gætt.
Æ oftar gerist það að flugvélar
rekast nærri því á. Árið 1982
gerðist það 311 sinnum; 475 sinn-
um árið 1983; 589 sinnum árið
1984; 777 sinnum árið 1985 og
í 812 skipti lá við árekstri árið
1986. Ekki hefur verið tekið sam-
an hversu oft legið hefur við
flugslysi á þessu ári, en undanfar-
ið hefur verið greint frá fjölda
atvika, þar sem farþegaflugvélar
komu við sögu.
Kathleen Bergen, talsmaður
Flugumferðarstjórnar Banda-
ríkjanna, sagði í viðtali við
Reuter-fréttastofuna í síðustu
viku að það gerðist að meðaltali
tvisvar á dag að við lægi árekstri
í bandarískri lofthelgi. Aldrei má
vera minna en 8 km á milli flug-
véla í lofti. Komi slíkt fyrir ber
að bókfæra það og tilkynna sam-
gönguráðuneyti.
Opinberir starfsmenn viður-
kenna að nú sé oftar greint frá
því að flugvélar rekist næstum
því á en áður. Þeir segja aftur á
móti að þetta sé ekki áreiðanleg
vísbending um að öryggi hafí
minnkað í háloftunum. Hér sé
verið að fjalla um „næstum því
slys“ og aðeins íjórtán af hverjum
hundrað hlutaðeigandi flugmönn-
um hafi orðið uppvísir að gáleysi
og þeim hafi þá verið hegnt fýrir.
handjárnum og járnkeðjum af
sér, beðið þess að ræningjarnir
sofnuðu, læst þá inni og fleygt
lyklunum. Síðan klifraði hann út
um glugga.
íbúðin, þar sem Glass var haldið,
var á elleftu hæð í háhýsi. Er Glass
hafði tekist að troða sér út um
gluggann, fann hann stiga utan á
húsinu þar sem hann komst niður
á götu. Hann rakst þar á hjón fyr-
ir framan bakarí og sagðist þurfa
að ná í lækni fyrir dóttur sína á
Summerland-hótelinu. Hjónin óku
honum til hótelsins, og er hann kom
þangað var klukkan 2.30 að nóttu
á staðartíma, hálfgengin í tólf á
miðnætti að íslenskum tíma.
Vitni sögðu að Glass hefði vakið
undrun er hann gekk inn í anddyri
fimm stjörnu hótelsins, órakaður
og í bláum íþróttagalla og sumar
útvarpsstöðvar greindu frá því að
hann hefði einnig verið berfættur.
Glass lét það verða sitt fyrsta
verk að hringja í lækni sinn, en
síðan hafði hann samband við
gæslusveitir Sýrlendinga í Vestur-
Beirút, sem komu á vettvang í
skyndi, fluttu Glass á brott og
hindruðu aðgang fólks að hótelinu.
Glass var síðan fluttur til Dam-
askus, höfuðborgar Sýrlands, þar
sem hann var afhentur bandaríska
sendiráðinu við athöfn í sýrlenska
utanríkisráðuneytinu í gærdag.
Glass, sem hafði greinilega
gi-ennst í gíslingunni, en virtist
annars í góðu ásigkomulagi, faðm-
aði að sér starfsbræður sína úr
blaðamannastétt og þakkaði Sýr-
lendingum hjálpina. „Það gleður
mig að vera hér hjá ykkur,“ sagði
hann.
Sýrlenski utanríkisráðherrann,
Farouq al-Shara, sagði að ránið á
Glass hefði á sínum tíma verið óvið-
unandi ógnun við Sýrlendinga,
sérstaklega þar sem það hefði farið
fram í Vestur-Beirút, en þar hafa
þeir hersveitir til að gæta öryggis
í borgarhlutanum. Shara sagði að
Assad Sýrlandsforseta hefði því
verið afar umhugað að Glass yrði
frelsaður og skipað leyniþjónustu
hersins að leita hans ásamt Ali
Osseiran, sonar líbansks ráðherra.
Osseiran var rænt um leið og Glass
þann 17. júní en sleppt viku síðar.
I samtali við fréttamenn sagði
Glass að hann hefði fengið slæma
meðferð, en þó ekki verið barinn
nema þegar honum var rænt. Hann
svaf á dýnu á gólfinu og nærðist á
fábreyttum mat. Honum var skipað
að binda fyrir augun í hvert sinn
sem vörður kom inn til hans, og
hann sagðist ekki hafa litið mann-
sandlit allan tímann sem hann var
í haldi hjá ræningjunum. Þeir kalla
sig „Samtök til varnar frjálsri þjóð“,
og eru taldir hliðhollir Irönum.
Er Glass var spurður hvort hann
myndi koma aftur til Beirút, svar-
aði hann: „Ekki í nokkra manns-
aldra.“
Noregur:
Bandaríkin segja upp
samninm við Kongsberg
Osló, Router.
Bandaríkjastjórn skýrði frá því
í gær að hún myndi ekki skipta
við norsku vopnaverksmiðjuna
Kongsberg þar til að búið væri
að ganga frá öllum málum
viðvíkjandi viðskipti fyrirtækisins
við Sovétmenn. Þetta gæti haft
gjaldþrot ríkisfyrirtækisins í för
með sér.
Fyrr í ár kom á daginn að Kongs-
berg-verksmiðjan hafði selt Sovét-
mönnum háþróaðan tölvubúnað til
kafbátaskrúfusmíðar í trássi við
sáttmála vestrænna ríkja um bann
við sölu hergagna eða tæknibúnaðar
í hernaðarþágu til Sovétríkjanna og
lepprikja þeirra. Vegna þessa máls
þurfti Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, að biðja
Bandaríkjaforseta velvirðingar, en
Öldungadeild Bandaríkjaþings sam-
þykkti ályktun þess efnis að banna
skyldi verslun við Kongsberg og jap-
anska fyrirtækið Toshiba, sem
einnig sledi tæknibúnað til Sovét-
manna.
Ottast er að Kongsberg verði
gjaldþrota vegna þessa, en stjóm-
endur þess höfðu reitt sig mjög á
samning um smíði flugskeyta fyrir
Bandaríkjaher. Auk þess kunna þeir
nú að verða af samningi við banda-
ríska fyrirtækið Pratt & Whitney,
sem hugðist kaupa flughreyfladeild
Kongsberg, en í samningum var
kveðið á um að Pratt & Whitney
gæti rift samningnum ef Banda-
ríkjastjóm gripi til refsiaðgerða
gegn Kongsberg.
Nú þegar fer fram gagnger endur-
skipulagning á fyrirtækinu, en það
tapaði 918 milljónum norskra króna
(5,3 milljarðar ísl. kr.) á síðasta
rekstrarári. Þessi áfoll munu ekki
létta því róðurinn.
Bandaríkin:
Bóluefni
við al-
næmi
reynt í
mönnum
Washington, Reuter.
Matvæla- og lyfjaeftirlit
Bandaríkjanna hefur veitt sam-
þykki sitt fyrir fyrstu tilraunum
á mönnum með bóluefni gegn
alnæmi. Þær munu fara fram
eins skjótt og auðið er í Heil-
brigðisstofnum Bandaríkjanna
og verður 75 manna úrtakshópur
sjálfboðaliða notaður við þær.
Bóluefnið var upp fundið af
fyrirtækinu MicroGeneSys í
Connecticut, en vonast er til þess
að tilraunirnar leiði í ljós hvort
það hafi einhveijar óvæntar
aukaverkanir í för með sér. Að-
altilgangurinn er þó að sjálf-
sögðu að komast að raun um það
hvort bólefnið fái líkamann til
þess að mynda mótefni gegn
veirunni.
I úrtakshópnum verða einung-
is heilbrigðir einstaklingar, sem
ekki hafa sýkst af alnæmisvei-
runni.
Ítaiía:
Cicciolina at-
vinnulaus
Rómaborg, Reuter.
ítalska þingkonan og fatafell-
an Ilona Staller, sem betur er
þekkt undir atvinnuheitinu
Cicciolina, á nú í erfiðleikum með
að fínna vinnu við sitt hæfi, þrátt
fyrir að hún sé vafalaust þekkt-
asta fatafella heims.
Ástæðan mun vera sú að eig-
endur nektarklúbba telja að
Cicciolina muni draga of mikla
athygli að sér, en klúbbgestir
kunna því illa að heimsóknir
þeirra komist í hámæli.
Þýskaland:
Fjölskylda
f lýr í land-
græðsluvél
Miinchen, Reuter.
Austur-þýsk íjölskylda flúði í
gær yfir járntjald í áburðardreif-
ingarvél, en fyrir rúmum mánuði
átti annað slíkt atvik sér stað.
Flugmaðurinn fór í venjulegt
áburðarflug, en í stað þess að
dreifa áburði yfir lönd og akra
lenti hann á túni nokkru og tók
þar konu sína og fimmtán ára
dóttur upp í vélina.
Önnur flóttatilraun mistókst
hins vegar í gær þegar maður
reyndi að komast yfir Berlínarm-
úrinn. Landamæraverðir skutu
þremur viðvörunarskotum að
honum, en þá gafst hann upp.
Frakkland:
Naut braut
úlnlið land-
búnaðarráð-
herra
Paris, Reuter.
Franski landbúnaðarráðher-
rann, Frangois Guillaume, sem
til þessa hefur verið harðfylginn
málsvari franskra bænda, varð
fyrir árás óvænts andstæðings í
gær, því þar var komið eitt af
eigin nautum ráðherrans.
Talsmaður ráðuneytisins út-
skýrði ekki á hvem hátt nautið
hefði brotið úlnliðinn, en sagði
að atvikið hefði átt sér stað á
búgarði ráðherrans við Ville-en-
Vermois í Mósel. Guillaume
verður fimm vikur í gipsi.