Morgunblaðið - 19.08.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987
25
Nazistar syrgja Hess
Bonn, Berlín, Moskvu, Reuter.
HERSVEITIR hernámsveldanna fjögnrra í Berlín héldu í gær enn
strangan vörð um jarðneskar leifar Rudolfs Hess í brezkum herspít-
ala og um Spandau-fangelsið, þar sem hann var fangi. Nasistar í
Þýzkalandi og fleiri Evrópulöndum syrgðu Hess ákaft og sögðu
sumir hann hafa beðið píslarvætti í þágu friðarins.
Fáum stundum eftir að Hess lézt,
kom hópur nýnazista saman fyrir
utan Spandau til þess að minnast
hans. Sex unglingar veifuðu fánum,
sem á stóð: „Deutschland, Deutsc-
hland iiber alles,“ eða „Þýzkaland
ofar öllu,“ sem voru fyrstu orðin í
þýzka þjóðsöngnum, en honum var
breytt eftir stríð. Aðrir tuttugu
nýnazistar héldu á logandi kertum.
í Hamborg gekk hópur nýnazista
til brezku ræðismannsskrifstofunn-
ar og mótmælti því sem göngumenn
kölluðu slæma_ meðferð banda-
manna á Hess. Í Hannover máluðu
fylgismenn Hess orðin „Rudolf Hess
dó fyrir ykkur“ á vegg þinghúss
Neðra Saxlands í borginni.
Flokkur nýnazista í Vestur-
Þýzkalandi, Þjóðlegi lýðræðisflokk-
urinn, sagði að póstþjónustan hefði
neitað að senda ekkju Hess, Ilse,
skeyti frá flokknum. í skeytinu
sagði: „Hugur allra sannra Þjóð-
veija er með Rudolf Hess á þessari
stundu. Hann var tákn hins her-
numda Þýzkalands, fulltrúi þjóðar
sem var leiksoppur sigurvegar-
anna.“ Póstþjónustan neitaði að
senda skeytið af smekkvísisástæð-
um.
Talsmaður hernámsveldanna
sagði í gær að lík Hess yrði afhent
fjölskyldu hans í Vestur-Þýzka-
landi, en tók ekki fram hvenær.
Heimildarmenn í Berlín töldu að
líkið yrði kistulagt að viðstaddri
fjölskyldunni nálægt Munchen, þar
sem sonur Hess býr. Að sögn Karl
Walters, bæjarstjóra í fyrrum
heimabæ Hess, Wunsiedel í Bæjara-
landi, fór Hess fram á það fyrir
tveimur árum að verða grafínn þar
í fjölskyldugrafreit sínum. Walter
sagði að slíkt kæmi ekki til greina,
þar sem hann vilji ekki að bærinn
verði „pílagrímamiðstöð, Mekka
nýnazista og gamalla nazista."
Talsmenn hemámsveldanna
sögðu að fangelsisstjóm Spandau
yrði nú lögð niður innan viku og
fangelsið rifíð til þess að koma í
veg fyrir að það verði „helgistaður
nýnazista." Verzlunarmiðstöð fyrir
brezka hermenn verður reist á lóð-
Spandau er einn þriggja staða í
Vestur-Berlín sem sovézkir her-
menn hafa haft reglulegan aðgang
að. Heimsóknir sovézkra sendi-
nefnda vom tíðar til fangelsisins,
þar sem þær ræddu við Hess og
héldu nánari tengslum við hemáms-
lið Vesturveldanna en annars hefði
verið. Nú mun þessum heimsóknum
verða hætt.
Laxeldissjúkdómar í Noregi:
Yfirvöld sektuð
fyrir vanrækslu
Ósló. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, Jan Erik Laure.
DÓMSTÓLAR hafa gert norska norskra króna
ríkinu skylt að greiða 35 laxeld-
isfyrirtækjum 109 milljónir
„Fljótandi
draugur-
• ll *
mn a
ferli
á Borneó
Kuala Lumpur, Reuter
SÖGUSAGNIR um, að „fljót-
andi draugurinn“ hafi sézt á
kreiki í norðaustur Borneó í
Maiasíu, hefur orðið til þess
að íbúar í nágrenninu hafa
birgt sig upp af sítrusviðar-
greinum, sem eru taldar
vörn gegn hrellingum
drauga og illra anda. Frá
þessu sagði fréttastofa
landsins í morgun, þriðju-
dag.
Götur í bænum Sibu, þar
sem fréttir um drauginn voru
hvað ákveðnastar, vom auðar
þegar dimmdi. Sítmsviðarsalar
í bænum höfðu átt góðan dag
og sögðust naumast hafa ann-
að eftirspurn. Lögreglan í Sibu
sagði, að líklega hefðu einmitt
ópmttnir sítmsgreinasalar
komið sögunum af stað. „Fljót-
andi draugurinn" í Malasíu,
sem sézt alltaf öðm hveiju,
leggst á vanfærar konur og
sýgur úr þeim blóð, með þeim
afleiðingum að fóstrið í kviði
þeirra deyr.
skaðabætur
vegna fisksjúkdóms sem átti
rætur að rekja til innflutnings
á skoskum laxeldisseiðum.
Sovétmenn hafa þó enn nokkum
aðgang að vesturhluta hinnar her-
numdu borgar. Tveir sovézkir
hermenn standa stöðugan vörð við
stríðsminnismerkið í Vestur-Berlín
og Sovétmenn starfa með vestaii-
mönnum í flugöryggismiðstöð
Berlínar, sem fylgist með flugum-
ferð til vesturhlutans. Vesturveld-
unum ber einnig að upplýsa sovézka
sendiráðið í Austur-Berlín um
ástand mála í borginni. Vestrænir
heimildarmenn Reuter-fréttastof-
unnar segja því að missir fangelsis-
ins skipti engu höfuðmáli fyrir ítök
Sovétmanna í Vestur-Berlín.
Ung hjón með barn ganga fram
hjá veggspjöldum, sem nýnazist-
ar í Madrid á Spáni komu fyrir
í gær. A spjöldunum stendur:
„Rudolf Hess er látinn. Nú er
hann frjáls.“
Reuter
Árið 1985 gaf landbúnaðar-
ráðuneytið leyfí til að flytja eldis-
seiðin til Noregs og voru þrír
skipsfarmar sendir til stöðva í
Norður-Þrændalögum. Fiskurinn
reyndist smitaður sjúkdómi er
nefnist furunkulose. Að lokum fyr-
irskipaði ráðuneytið stöðvunum 35
að slátra seiðunum til að koma í
veg fyrir að sjúkdómurinn breidd-
ist út til annarra fiskeldisstöðva.
Yfirvöld vissu að umræddur
sjúkdómur hafði komið upp í
skosku stöðinni árið áður en inn-
flutningurinn var leyfður. Sam-
kvæmt norskum lögum á eldisstöð
erlendis að vera í sóttkví í minnst
fjögur ár eftir að sýking hefur
verið staðfest. Eftir mikinn þrýst-
ing frá viðkomandi yfírvöldum í
Skotlandi lét norska landbúnaðar-
ráðuneytið samt undan og leyfði
innflutninginn.
„Yfirvöld bera alla sökina og
eiga því að bæta tapið,“ sögðu
forstöðumenn fiskeldisstöðvanna,
sem urðu fyrir tapinu. Þeir höfð-
uðu mál og kröfðust 109 milljóna
norskra króna (um 600 milljóna
ísl. króna) í skaðabætur.
í dómsúrskurðinum er því hald-
ið fram að eftirliti ríkisins með
innflutningi eldisseiða hafí verið
ábótavant. Auk þess er sagt að
baráttan gegn sjúkdómnum hafí
verið skipulagslaus. Hann hafi
borist til Noregs í júní 1985. Hins
vegar hafi skipun um slátrun ekki
verið gefin fyrr en seint um suma-
rið og þá hefði sjúkdómurinn þegar
náð að breiðast út til annarra
stöðva - þær eru samanlagt 35 -
sem ekki fluttu inn eldisseiði frá
Skotlandi.
UTSALA
ÚTSALA
30%
ta 50%
AFSLÁTTUR
VISA
»hummél^P
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40 Reykjavík s:83555