Morgunblaðið - 19.08.1987, Page 36

Morgunblaðið - 19.08.1987, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987 Hvalveiðar í nafni vísindanna Greinargerð um áskorun 21 líffræðings Undanfarið höfum við orðið vitni að miklum deilum um hvalveiðar, þar sem íslendingar horfast í augu við alvarlegan þrýsting frá ríkis- stjómum margra landa og alþjóð- legum umhverfisvemdarsamtökum. Á nýafstöðnum fundi Alþjóðahval- veiðiráðsins var samþykkt að skora á ríkisstjóm íslands að hætta hval- veiðum í vísindaskyni. í umræðum um hvalveiðar ís- lendinga og áskomn hóps líffræð- inga til ríkisstjómarinnar um að hætta hvalveiðum, þeim er kenndar hafa verið við vísindi, hefur gætt nokkurs misskilnings. Formælend- ur hvalveiða í vísindaskyni hafa haldið því fram að áskorunin væri ekki reist á faglegum forsendum. í greinargerð þessari viljum við mót- mæla slíkum fullyrðingum og leitast við að útskýra hinar faglegu for- sendur sem liggja að baki áskomn okkar. Rétt er að fram komi að sam- kvæmt alþjóðasáttmála getur sérhvert aðildarríki Hvalveiðiráðs- ins veitt eins marga hvali og það kýs, svo fremi það sé gert í vísinda- legum tilgangi. Erlendis hefur sú skoðun víða komið fram að allir íslenskir líffræðingar þjóni stjóm- völdum til þess að komast hjá tímabundinni veiðistöðvun. Tor- tryggni í garð íslenskra líffræðinga er skiljanleg því að önnur hvalveiði- ríki hafa notað vísindi sem skálka- skjól fyrir áframhaldandi hvalveiðar þegar friðun hefur þótt nauðsynleg. Sú ákvörðun íslenskra stjómvalda að heija veiðar í vísindaskyni, ein- mitt þegar veiðistöðvunin var að taka gildi, eykur á slíka tor- tryggni. Má hér minna á álit PANASONIC FOTORAFHLAÐAN Sú rétta í myndavélina. Rafborgsf. s.11141. vísindanefndar Alþjóðahvalveiði- ráðsins þess efnis að hvalveiðar þær sem rannsóknaáætlun íslands gerir ráð fyrir muni „bæta sáralitlu við núverandi þekkingu að því er tekur til veiðistjómunar" („provide only a minimal improvement in our curr- ent knowledge with respect to providing management advice"). Formælendur hvalveiða í vísinda- skyni halda því fram að þær séu ómissandi þáttur í heildarrannsókn- um á hvölum. í ljósi þess að Alþingi íslendinga hefur fallist á tíma- bundna veiðistöðvun Alþjóðahval- veiðiráðsins og annarra aðstæðna er eðlilegt að við sem líffræðingar spyijum hvort hvalveiðar í vísinda- skyni séu nauðsynlegar. Rannsóknir á stórhvelum eru ýmsum erfiðleikum háðar. Fram á síðustu ár þótti eðlilegt að slíkar rannsóknir væm eingöngu í sam- bandi við hvalveiðar. Og veiddir hvalir voru því undirstaða rann- sókna af ýmsu tagi, stofnvistfræði- legra rannsókna jafnt sem ýmissa grunnrannsókna. Vert er að benda á að aðeins lítill hluti þeirra athug- ana, sem hægt er að gera á veiddum hvölum, koma fyrirsjáanlega að haldi þegar ákvarða á veiðiþol stofnanna. Aðrar athuganir verða eftir sem áður grunnrannsóknir sem ekki eru í neinum sérstökum tengsl- um við vandamál okkar íslendinga, nefnilega að viðhalda veiðanlegum hvalastofnum. Við teljum ekki rétt að afsaka „hvalveiðar í vísinda- skyni" með þörf á grunnrannsókn- um af þessu tagi. Má kannski minna á að síðustu geirfuglamir voru veiddir í vísindaskyni? „ Á síðustu árum hefur orðið ör tækniþróun, sem menn eru smám saman að byija að beita í stofnvist- fræði. Má þar nefna aðferðir til athugana úr lofti og notkun sendi- tækja sem sett eru á lifandi dýr, þar á meðal hvali. Fullvíst er að aðferðir þar sem beitt er hátækni muni verða undirstaða þeirra stofn- mælinga sem eru nauðsynlegar til þess að hvalveiðar verði stundaðar. Markmið rannsóknanna Samkvæmt rannsóknaáætluninni er heildarmarkmið rannsóknanna „ .. . að auka á þekkingu okkar á ástandi hvalastofna sem nýttir eru (árið 1985, innskot okkar) hér við land, á veiðiþoli þeirra og stöðu stórra og smárra hvala í lífkerfi íslenska hafsvæðisins. Rannsókn- unum er ætlað að áuðvelda endur- skoðun ákvörðunar um stöðvun hvalveiða, sem kveðið er á um í samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins frá 1982, og verða m.a. grundvöllur að endurmati á áhrifum veiðistöðv- unar á hvalastofnana, sem ætlunin er að fram fari eigi síðar en árið 1990.“ (Átak í hvalarannsóknum árið 1986—1990. Drög að rann- sóknaáætlun, Hafrannsóknaáætl- unin mars 1985). Gögn úr veiðinni Þær upplýsingar sem fást með veiðum og sagðar eru lúta að ofan- greindu meginmarkmiði eru eftir- farandi: 1) Samband afla og sóknar, þ.e. hversu lengi hvalbátamir þurfa að leita að hval á miðunum. 2) Hlutfall kynþroska dýra. 3) Hlutfall þungaðra dýra. 4) Aldursdreifing dýra, þ.e. hve gamlir hvalimir eru þegar þeir veiðast. 5) Fæða dýranna. 6) Orkuinnihald veíja. 7) Erfðamörk. 8) Endurheimtur merkja sem áður hefur verið skotið í hvali. Hér á eftir skulu einstök atriði rædd nánar í ljósi þess hversu áreið- anlegar upplýsingamar eru, hvort slíkar upplýsingar liggja fyrir, og hvort unnt sé að nota aðrar aðferðir. Af li og sókn Samband afla og sóknar hefur verið notað sem mælikvarði á stofn- stærð langreyðar. Almennt er nú viðurkennt að verulegir fræðilegir annmarkar eru á að nota þetta sam- band til að meta breytingar á hvalastofnum. Aðferðin er helst notuð ef engar aðrar aðferðir eru tiltækar, t.d. þegar rannsökuð eru gögn um veiðar fyrr á öldinni. Þeg- ar veitt er á frekar takmörkuðu svæði, sem jafnframt er eftirsótt- asta átusvæði hvalanna, er við því að búast að ný dýr komi í stað þeirra sem drepin eru. Breytileiki í aflabrögðum milli ára er einnig svo mikill að líklegt er að raunverulegar stofnbreytingar dyljist mönnum. Ef ástæða þætti til að halda áfram að safna gögnum um afla miðað við sókn, til samanburðar við fyrri ár, væri nægilegt að hvalbátarnir leit- uðu hvalina uppi en skytu þá ekki. Kynþroski Upplýsingar um kynþroskaaldur eru æskilegar við að áætla vaxtar- hraða stofna. Meðalkynþroskaaldur getur breyst nokkuð með tímanum, og talið er að það endurspegli breyt- ingar á vaxtarskilyrðum dýranna. Breytingar á kynþroskaaldri lang- reyðar við ísland eru þó hægar, og ekki er hægt að búast við marktæk- um breytingum þau ár sem veiði- stöðvun Hvalveiðiráðsins stendur. Þungnnartíðni Tíðni þungunar þarf helst að vera þekkt til þess að unnt sé að áætla mögulegan vaxtarhraða hvalastofnanna. Stóru reyðarhval- imir eiga afkvæmi annað hvert ár eða sjaldnar. Þungunartíðni lang- reyðar, sandreyðar og hrefnu er þekkt hér við land og breytingar milli ára afar litlar. Aldur Athugun á aldursdreifíngu í stofnum er beitt til að reikna út dánartölu, en með henni og upplýs- ingum um stofnstærð ásamt þungunartíðni má áætla stofnbreyt- ingar. Vegna skorts á upplýsingum um stofnstærð hefur ekki reynst unnt að áætla veiðiþol á hveijum tíma. Aldursdreifing í langreyðar- stofninum er allvel þekkt hjá dýrum ofan ákveðinna stærðarmarka. Langreyðurin nær mannsaldri ef hún er heppin, og er því langlíf tegund. Nær útilokað er að aldurs- dreifmg í stofninum breytist að marki á því 5 ára tímabili sem veiði- bannið gildir. Fæða Fæðusamsetning langreyðar, sandreyðar og hrefnu hér við land er vel þekkt. Sýnatökur á meðan veiðistöðvun Hvalveiðiráðsins stendur yfir virðast því óþarfar, nema gert sé ráð fyrir miklum brejrtileika í fæðu milli ára, en ekk- ert bendir til þess að svo sé. Orkuinnihald Mælingar á orkuinnihaldi vefja í hvölum snerta útreikninga á nær- ingarbúskap þeirra og „stöðu í lífkerfinu". Þessar mælingar eru þó aðeins örlítið brot af þeim mæl- ingum sem gera þarf til að athuga stöðu hvala í lífkerfi sjávar. Fæstar þeirra mælinga verða gerðar á dauðum hvölum. Þau gögn sem veiðunum er ætlað að skila hrökkva skammt til að meta orkuflæði gegn- um hvalastofna við ísland. Erfðamörk Rannsóknir á erfðabreytileika hvala geta gefíð upplýsingar um tengsl milli hvalastofna. Hérlendis er til mikið af gögnum um hvali veidda við ísland. Fyrst og fremst skortir gögn frá öðrum hafsvæðum í Atlantshafí. Ekki er fyrirsjáanlegt að þau gögn fáist á meðan veiði- stöðvun Hvalveiðiráðsins stendur yfir. Frekari gagnasöfnun hér við land virðist því varla tímabær. Merkingar Merkingar á hvölum með núver- andi aðferðum (merki skotið í hval og endurheimt ef hvalurinn veiðist) þjóna þeim tilgangi (1) að kanna ferðir hvalanna og (2) að meta stofnstærðir þeirra. Upplýsingar af þessu tagi eru þýðingarmiklar en reynslan af notkun merkinga með hinum viðteknu aðferðum, sem byggjast á hvalveiðum, er vægast sagt ekki góð. Þær geta aldrei kom- ið í staðinn fyrir radíómerkingar og beinar athuganir sem eru óháðar veiðunum. Sem dæmi má nefna að ein langreyður sem merkt var með senditæki í júní 1980 gerbreytti hugmyndum manna um göngur þessarar tegundar hér við land. Lokaorð Öll túlkun á gögnum sem fást með veiðum byggist á því að þekkja í smáatriðum ferðir og dreifingú hvalanna í N-Atlantshafí. Ekki er vitað um vetrardvalarstaði lang- reyðar, sandreyðar, hrefnu og steypireyðar, svo dæmi séu nefnd, og samband milli veiðistofna er óþekkt. Við teljum að leggja beri kapp á að afla slíkra upplýsinga og höfum fagnað öllum tilraunum í þá átt. Það er faglegt álit okkar að óþarfi sé að afla gagna með veiðum nú á meðan veiðistöðvun stendur. Því áliti okkar, sem fram kom í áskorun til ríkisstjórnarinnar, að rangt væri að kenna hvalveiðar ís- lendinga við vísindi, var ekki beint til þeirra sem nýta sér dauða hvali til ýmiss konar líffræðilegra rann- sókna. Við teljum þær rannsóknir í sjálfu sér hinar merkustu. Það er hins vegar mat okkar að öflun gagna með veiðum skili svo litlum viðbótarupplýsingum um stærð og veiðiþol stofnanna að rangt sé að tala um „hvalveiðar í vísindaskyni“ og notfæra sér þannig undanþágu- ákvæði í Alþjóðasáttmálanum um hvalveiðar. Reykjavík, 17. ágúst 1987, Agnar Ingólfsson, Amþór Garðarsson, Árni Einarsson, Ástrós Arnardóttir, Guðmundur A. Guðmunds- son, Guðmundur V. Helgason, Guðrún Narfadóttir, Hrefna Sigurjónsdóttir, Jón Gunnar Ottósson, Jón S. Ólafsson, Karl Skírnisson, Kristinn H. Skarphéðinsson, Kristján Lilliendahl, Ólafur S. Andrésson, Sigrún Helgadóttir, Sigurður S. Snorrason, Sigurður Á. Þráinsson, Skúli Skúlason, Snorri Baldursson, Stefán Bergmann, Þóra E. Þórhallsdóttir. Nýtt vélaverkstæði opnað í Hafnarfirði NÝLEGA var opnað Vélaverk- stæði J. Kjartanssonar í Hellu- hrauni 6 í Hafnarfirði. Eigendur verkstæðisins eru hjónin Helga Egilson og Jón Fr. Kjartansson vélstjóri og bifvéla- num“) og stillingum á flestum virkjameistari. Verkstæðið sérhæfir sig í við- gerðum á forþjöppum („túrbí- starfsmenn. gerðum véla í bifreiðum og bátum. Hjá fyrirtækinu starfa þrír m FÆR I BAN DA- MOTORAR = HEÐINN = VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIPJÓNUSTA - LAGER

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.