Morgunblaðið - 19.08.1987, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.08.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987 37 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Vaínsberinn í dag ætla ég að fjalla um Vatnsberann (21.janúar—19. febrúar). Fjarlcegur Af öllum merkjum er einna erfíðast að lýsa Vatnsberan- um. Ástæðan er sú að hann gefur lítið færi á sér persónu- lega. Hann talar sjaldan um tilfínningar sínar eða per- sónulega hagi. Hann er stoltur og fer eigin leiðir og á því til að virðast heldur flar- lægur. Tvœr tegundir Oftast birtist Vatnsberinn í tveim útgáfum. Annars veg- ar er hinn opni og félagslyndi Vatnsberi og hins vegar hinn sérvitri sem fer utan við al- faraleið og á oft litla samleið með öðrum. Fyrir útan þenn- an mun hafa báðir hóparnir síðan sameiginleg einkenni. Fastur fyrir Einkennandi fyrir alla Vatns- bera er að þeir eru fastir fyrir, stöðugir, heldur ráðrík- ir og þijóskir. Ef Vatnsberinn hefur bitið ákveðna afstöðu í sig er ólíklegt að hann breyti henni. Hugsanlega er hægt að tala hann til, ef rök- in eru sterk og skynsamleg. Aldrei borgar sig hins vegar að skipa honum fyrir eða ætla að þvinga hann til hlýðni. Þó hann segi já, breytir hann litlu og er fljót- lega fallinn í sama farið og áður. Hvatinn að því sem Vatnsberi gerir verður að koma frá honum sjálfum. Hugmyndaríkur Vatnsberinn er hugmynda- ríkur og uppfínningasamur. Hann er framfarasinnaður en þessum eiginleikum beinir hann að öllum sviðum mann- lífsins. Móðir í Vatnsbera- merkinu hefur t.d. áhuga á nýjungum í bamauppeldi, les gjaman bækur og veltir hin- um ýmsu uppeldisleiðum fyrir sér. Sérstakur stíll Flestir Vatnsberar móta sér snemma sinn sérstaka stíl. Oft er hann óvenjulegur og í sumum tilvikum sérvisku- legur. Þegar Vatnsberinn hefur síðan fundið sinn stíl á hann til að halda fast í hann. Hið óbreytanlega og óhagg- anlega eðli Vatnsberans birtist þar ekki síður en á öðrum sviðum. MannúÖarmál Oft hafa Vatnsberar áhuga á mannúðar- og félagsmál- um. Þeir hafa áhuga á mannlífinu í víðu samhengi og vilja gjaman breyta heim- inum og bæta hag þeirra sem minna mega sín. Tilfinningatjáning Það sem helst getur háð Vatnsbera er að hann á stundum erfitt með tilfinn- ingar sínar, að tjá þær eða viðurkenna að hann er einnig tilfínningavera. Fyrir vikið getur hann lokast inni í sjálf- um sér. Öðm fólki fínnst t.a.m. Vatnsberinn oft kaldur og ópersónulegur. Lífsorka Þar sem orka Vatnsberans liggur á félags- og hug- myndasviðum þarf hann að hitta fólk, ræða málin og skiptast á upplýsingum, eða fást við einhver skemmtileg andleg áhugamál. Annars er hætt við að hann verði lífsleiður og orkulítill. Vingjarnlegur Vatnsberinn er yfírleitt opinn í fasi og að öllu jöfnu vin- gjamlegur og þægilegur í umgengni. GRETTIR FERDINAND Nei, þetta heimaverkefni Og við erum á bls. 23, ekki var í gær, herra. 16 ... Og við erum í rauðu bók- Hvaða skóli er þetta? inni núna, ekki þeirri grænu. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Aðalsteinn Jörgensen og Ás--*>- geir Ásbjömsson voru óheppnir í eftirfarandi spili úr leiknum við Belgp'u á EM i Brighton. Þeir komust í góða slemmu á lítil - spil, en slæm lega setti strik í reikninginn. Suður gefur; enginn á hættu. Norður K4 D765 Á963 DG4 Suður ÁD10865 K2 7 ÁK87 Belgamir blönduðu sér ekkert í sagnir, svo „Pumpu-Precisi- on“-kerfi þeirra Ásgeirs og Aðalsteins fékk að njóta sín til fulls. Norður Ásgeir Suður Aðalsteinn 1 lauf 2 lauf 2 hjörtu 3 lauf 4 lauf 4 hjörtu 6 spaðar1 1 grand 2 tíglar 2grönd 3 spaðar 4 tíglar 4 spaðar Pass Þessar sagnir þarfnast skýr- inga: 1 lauf: 16 punktar eða meira. 1 grand: meira en 8 punktar og tvílitur í spaða. 2 lauf: spuming um hjartalengd. 2 tíglar: fjögur hjörtu. 2 hjörtu: spuming um láglita- skiptingu. 2 grönd: fjórir tíglar og þrjú lauf. 3 lauf: spuming um styrk. 3 spaðar: 12—13 punktar. ’ 4 lauf: spuming um kontról. 4 tíglar: þtjú. 4 hjörtu: biður um staðsetningu háspila. 4 spaðar: háspil í spaða 6 spaðar: .akk fyrir. Flókið kerfi, vægast sagt, en þama skilaði það sannarlega góðum árangri. Og þó. Vömin tók fyrsta slaginn á hjartaás og svo kom á daginn að spaðinn lá 4—1 og gosinn með fjórlitnum. Einn niður, óverðskuldað. Umsjón Margeir Pétursson Á opna alþjóðlega skákmótinu í Gausdal í Noregi sem nú stend- ur yfir, kom þessi staða upp í skák tékkneska stórmeistarans Jansa, sem hafði hvítt og átti leik, og norska alþjóðlega meist- arans Tisdall: 24. Dxf6! og svartur gafst upp því eftir 24. - Hxf6, 25. Hgxgi*” - Hk8, 26. Hxh7+ - Kg8, 27. Hef7+ - Kf8, 28. Rd7+ - Ke8, 29. Hg8+ er hann mát í næsta leik. Þrátt fyrir þennan glæsi- lega sigur hefur Jansa gengið illa á mótinu. Eftir fimm um- ferðir hafði hann aðeins 2 vinning og tapaða biðskák.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.