Morgunblaðið - 19.08.1987, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 19.08.1987, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987 41 Minning: Sigríður Hannesdótt■ irfrá Hleiðargarði Fædd 5. janúar 1911 Dáin 18. október 1986 Þann 18. október síðastliðinn lést eftir mikla vanheilsu Sigríður Hannesdóttir frá Hleiðargarði í Eyjafirði. Foreldrar hennar voru Hannes Jónsson bóndi og fræði- maður. Hann fæddist 1873, dáinn 1957. Jón faðir hans var Jóhannes- son frá Möðruvöllum í Eyjafirði Jónssonar. Móðir Hannesar var Sigríður Ólafsdóttir bónda í Hleið- argarði Guðmundssonar. Móðir Sigríðar var Jónína Jóhannsdóttir bónda á Gautstöðum á Svalbarðs- strönd Bergvinssonar og konu hans, Elínar Sesselju Jónsdóttur. Jónína fæddist 1871, hún lést úr krabba- meini 1921. Þau Jónína og Hannes gengu í hjónaband 1897 og bjuggu þau í Hleiðargarði. Böm þeirra vom: Hleiður, fædd 1898, dáin 1903; Snorri bóndi í Hleiðargarði, fæddur 1901, dáinn 1963; Elín Jóhanna, fædd 1904, dáin 1922; Gauti kenn- ari í Reykjavík, fæddur 1909, dáinn 1982; Sigríður sem hér er minnst, fædd 1911, dáin 1986; Bragi, fædd- ur 1912, dáinn 1914; Bragi fæddur 1914, dáinn 1915. Vigfússonar frá Gullberastöðum bar saman. Hún var þá fimmtug, hann 12 árum eldri. Þau urðu ást- fangin og gengu í hjónaband 9. september 1961. Mér er þessi dagur minnisstæð- ur. Þá sá ég Bjöm, umtalað glæsi- menni, í fyrsta sinn. Þótti mér sem með þeim Sigríði væri mikið jafn- ræði. Og á brúðkaupsdegi sínum vom þau eitthvað það ástfangnasta par sem ég hef verið samvistum við. Björn var ekkjumaður þegar þau Sigríður kynntust. Hann hafði áður verið kvæntur Önnu Hjaltested píanóleikara. Það veit ég fyrir víst að þarna gekk Sigríður mikið gæfuspor. Bjöm varð Ingimundi sá besti afi sem bam getur hugsað sér. Ólst hann alveg upp hjá þeim hjónum. Sigríður flutti til Björns í góða íbúð og fór nú líf hennar í farveg sem hæfði skaphöfn hennar. Það er vissa mín að fyrsti áratugurinn með Bimi var sem sumarið í lífi hennar. Samvistir þeirra vom góðar og Ingimundur óx upp eins og fífill í túni. En svo fór hún að kenna van- heilsu sem ágerðist hægt og sígandi og síðustu árin var hún alveg farin að heilsu. Þessi veikindi vom þess- ari óvílsömu konu mikil raun. Hún hélt andlegu atgervi til hins síðasta. Dauðinn var henni kærkominn úr því sem komið var. En hún var þakklát fyrir margt. Ingimundur mesti myndarmaður, lærði vélvirkj- un. Hann hafði kvænst góðri glæsilegri konu, Oddnýju Magnús- dóttur. Þau stofnuðu heimili sitt á Kjalamesi. Heilbrigt ungt fólk sem hafa verið þeim afa og ömmu góð. Sigríður lést 18. október sl. og fór útför hennar fram í kyrrþey að ósk hennar. Hvílir hún í Fossvogs- kirkjugarði. Bimi, sem nú dvelur á Dvalar- heimili aldraðra í Borgarnesi, sendi ég kveðju og óskir um milda framtíð. Elín Guðjónsdóttir Hannes kvæntist öðm sinni 1925 Helgu Friðriksdóttur frá Nesi í Saurbæjarhreppi, mikilli sómakonu. Þau áttu eina dóttur saman, Elínu Hermínu, sem ein lifir af þessum systkinahópi, en hún er búsett á Akureyri. Sigríður ólst upp í Hleiðargarði en fór upp úr fermingu að vinna fyrir sér og kom sér alls staðar vel. Hún var bráðdugleg, óvenjufríð, björt yfirlitum, glaðsinna og hlátur- mild. Á þessum ámm var hún oft kölluð Sigríður Eyjaíjarðarsól. Um tvítugt giftist hún Ingimar Ólafssyni. Þau hófu búskap á Akur- eyri. Þau eignuðust son 1932 sem skírður var Guðmundur. En krepp- an fór í hönd. Það var atvinnuleysi og allsleysi í kjölfarið. Þau Ingimar fluttu til Reykjavíkur í von um eitt- hvað skárra þar. En ástandið versnaði fremur en hitt. Ingimar var kominn undir áhrifavald Bakk- usar, það vald ágerðist og má segja að hann hafi verið hjá honum í ánauð síðustu árin. Ingimar lést fyrir nokkmm ámm. Eftir erfið- leikatímabil sem Sigríður talaði aldrei um, skildu þau Ingimar. Sigríður, sem hafði verið fyrir- vinnan á heimilinu að mestu, barðist fyrir afkomu sinni og Guðmundar sonar síns. Á þessum ámm vann hún mest við saumaskap, rak um árabil drengjafatasaumastofu í Ing- ólfsstræti 21. Það var ekki hátt til lofts né vítt til veggja í Ingólfs- strætinu, samt var sem maður kæmi þar á höfðingjasetur. Sigríður var meðal glæsilegustu kvenna. Hún var gestrisin, alltaf vel til fara og hress í viðmóti. Guðmundur sonur hennar veikt- ist ungur og var upp frá því skertur á heym, sem háði honum mjög. Hann vann um árabil hjá Ágli Skallagrímssyni og um annað ára- bil hjá Sláturfélagi Suðurlands. Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Þórann Björgúlfsdóttir. Þau eignuðust einn son, Ingimund, fæddan 1958. Þau slitu samvistir eftir sjtamma sambúð. Hann kvæntist öðm sinni Rögnu Ólafs- dóttur. Guðmundur lést eftir mikla vanheilsu 1978. Sigríður hafði fest kaup á góðri íbúð við Stigahlíð og skömmu eftir sambúðarslit Þómnnar og Guð- mundar fór Ingimundur í fóstur til ömmu sinnar. Eftir að Guðmundur óx upp fór Sigríður til starfa út á vinnumarkaðinn. Hún vann ýmist við saumaskap eða var matráðs- kona, meðal annars í Ingólfskaffi, en það var matsala sem rekin var í húsakynnum þeim þar sem veit- ingastaðurinn Ai-narhóll er nú. Þar var hún þegar fundum þeirra Bjöms Minning: Egill Gíslason bakara- meistari ogkonditor Vinarkveðja Fæddur 16. april 1905 Dáinn 7. ágúst 1987 Egill Gíslason er horfinn úr okk- ar hópi. Hann lést 7. þ.m. á elliheim- ilinu Gmnd hér í borg, 82 ára gamall. Við Egill vomm æskuvinir og fór vel á með okkur alla tíð. Þegar við kynntumst átti Egill heima í húsinu Bjargarstíg 2. Faðir hans bjó þar og yngri bróðir Egils, Sighvatur, en elskuleg móðir þeirra bræðra var þá látin. Allt fór þó vel, því faðir þeirra var skilnings- góður og græddi sárin. Það var sumarið 1922 að við sátum saman á grasbala niðri í Vatnsmýri og hugleiddum framtíð- ina. Við töldum að best væri fyrir okkur að læra eitthvert handverk. Þá kom Egill með tillögu um að við fæmm til Kaupmannahafnar þá næsta sumar og það var þegar ákveðið. Nú þurfti að afla fjár til fararinn- ar. Enginn peningur var í vasa þá stundina, en þetta var hugsjón ungra drengja. „Ég á móðursystur í Kaupmannahöfn,“ kvað Egill og ég undirritaður átti systur þar, svo við töldum víst að tekið yrði vel á móti okkur. Sumarið 1923 fómm við svo báð- ir til fyrirheitna landsins. Við fengum fljótlega atvinnu og komum okkur fyrir í leiguherbergi. Það er margs að minnast, smáævintýra og erfíðleika, eins og gengur. Við Egill bjuggum í sama húsi í tvö ár, þar til aðstæður breyttust. Heim til íslands komum við 1928, með sveinsbréf upp á vasann. Gras- baladraumurinn hafði ræst. Egill vann lengst af hjá Jóni Símonar- syni bakarameistara en einnig hjá Torberg-konditorí, Laugavegi 5. Egill var einstakur maður í sínu fagi, stundvís, afkastamikill og góð- ur drengur. Að skilnaði þakka ég honum, elsku vini mínum, fyrir æskuvináttu hans, tryggð og drenglyndi. Ég votta aðstandendum samúð mína. Magnús Kristjánsson Birting afmælis- og minningargreina Morgnnblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavik og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR STEINDÓRSSON, Ásbraut 17, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 19. ágúst kl. 15.00. Fyrir hönd aöstandenda, Ester Sæmundsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föð- ur okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR SIGURÐSSONAR, Baldursgötu 13. Vigdfs Guðmundsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Ingi Guðmundsson, Björn Guðmundsson, °9 Baldur Guðmundsson, Halldór Ásmundsson, Ingibjörg Skarphóðinsdóttir, Bergþóra Snæbjörnsdóttir barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og út- för eiginkonu minnar og móður okkar, HÓLMFRÍÐAR RUNÓLFSDÓTTUR, Dflahæð 5, Borgarnesi, Valgarð Björnsson, Jófrfður Valgarösdóttir, Kristfn M. Valgarðsdóttir, Sverrir Valgarösson, Þröstur Valgarðsson, Ester Gunnarsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför eiginmanns míns, fósturföður, tengdaföður og afa, HERMANNS SNÆLAND AÐALSTEINSSONAR frá Hóli. Guðbjörg S. Guðmundsdóttir, Guðný Ó. Jónsdóttir, Þorfinnur J. A. Harðarson, Eyrún Björg Þorfinnsdóttir, Hermann Hallberg Þorfinnsson. + Innilegt þakklæti færum við öllum sem sýndu okkur vinsemd og hlýhug vegna fráfalls elskulegs eiginmanns, sonar, föður og tengdaföður, JÓNS S. GUÐNASONAR arkltekts, Sigrid Lödemel Guðnason, Ragnhildur Á. Jónsdóttlr, Marfa Kristín Jónsdóttir, Guðbjörn Jónsson, Guðbjörn Rúnar Jónsson, Guðlaugur Bergmundsson. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, GUNNARS FRIÐLEIFSSONAR, Steinfrfður Gunnarsdóttlr, Anna Friðleifsdóttir, Sólveig Friðleifsdóttir, Rakel Loftsdóttlr, Aðalhelður Stefónsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir vinsemd og samúð við andlát og útför eigln- manns míns, sonar, föður, tengdafööur og afa, PÉTURS DANlELSSONAR, Jóna Elrfksdóttir. Daníel Pótursson, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.