Morgunblaðið - 19.08.1987, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 19.08.1987, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987 félk f fréttum Keppendur í hita leiksins. Billy Joel og aðdáendur í Moskvu Billy Joel í Sovét Bandaríski popparinn Billy Joel fór í sex daga hljómleikaferð um Sovétríkin núna í byijun mánað- arins, og vakti stormandi lukku hjá ungmennum þar eystra. A opnunar- tónleikunum í Olympíuhöllinni í Moskvu þótti Joel hinir 20.000 áhorfendur helst til prúðir, og hvatti hann þá til að koma upp að svið- inu. Aðdáendur poppgoðsins létu ekki segja sér það tvisvar, stóðu upp og dönsuðu í göngunum það sem eftir var af tónleikunum, enda engin ástæða til að vera bældur í Rússlandi nú á dögum Gorbachevs og glasnosts. Þaulsætnir íþróttakappar Staurseta er íþrótt sem maður skyldi ætla að væri ekki ýkja spennandi að horfa á, en samt mættu yfir 100.000 manns að fylgj- ast með staursetukeppninni í hol- lenska bænum Noordwijkerhout á dögunum. Þar sátu 18 staursetu- kappar sem fastast, staðráðnir í að bæta gamla metið, sem var 104 klukkustundir. Þó að sumum kunni að virðast að íþrótt þessi kreíjist lítilla burða eða snerpu, þá fer því fjarri að hvaða meðaljón sem er geti tekið þátt í henni. „Það þarf mikla ein- beitni til að ná hinu rétta hugar- ástandi og sofna ekki,“ sagði hin 25 ára gamla Jose Turk, eini kven- maðurinn sem þátt tók í keppninni, „maður þarf að tæma hugann gjör- samlega, núllstilla hugsanastarf- semina". Ekki tókst öllum jafnvel við það, og fylgdust áhorfendur spenntir með baráttu þriggja kepp- enda við vöðvakrampa, sem endaði í vatninu. Að morgni fimmta dags- ins voru aðeins 7 manns eftirstand- andi - sitjandi réttara sagt - en þessi mikla þaulsætni bar að lokum ávöxt, því gamla metið var bætt um heilar 30 mínútur. Því miður fylgir nafn hins nýja methafa ekki með heimildum okkar. Ef einhver lesandi hefur brotið heilann um hvemig eðlileg líkams- starfsemi gangi fyrir sig þama uppi á staur fyrir framan §ölda áhorf- enda, þá var neyðartilfellum þannig sinnt að íláti var komið til viðkom- andi keppanda, og sérhannað tjald sveipað um hann. „Aðrar keppnir leyfa 5 mínútna hlé frá staurse- tunni á hverri klukkustund," sagði Jan Huybrechts, formaður íþrótta- félagsins sem sá um keppnina, „slíkt er allt of auðvelt til að geta kallast alvöru staursetukeppni". COSPER Það er hárþvottadagur í kvennabúrinu í dag. Stefanía Mónakóprinsessa og Mario Oliver hafa aldrei verið ástfangnari, Rainer fursta til mikillar hrellingar. Mario reynir að blíðka Rainer fursta Mario Oliver, stóra ástin í lífi Stefaníu Mónakóprins- essu þessa stundina, gerir nú allt hvað hann getur til að komast í sátt hjá Rainer fursta Mónakó, foður Stefaníu. Það er ekki nema von, ef satt er að kærustuparið hyggist gifta sig fyrr en seinna. Bæði hafa þau lýst því yfir að þau hyggist gera það. Rainer hefur fram til þessa ekki viljað sjá hinn mögulega tengdason eða heyra. Þegar Stefanía fór til Mónakó til að vera viðstödd Grand Prix kapp- aksturinn varð aumingja Mario að bíða sinnar heittelskuðu í Can- nes í Frakklandi. Mario mun hafa tekið upp settlegri háttu, stytt ljósan makkann og greiðir hann nú á hveijum degi og gengur virðulegar til fara, allt í von um að hljóta náð fyrir augum furst- ans. Með hveijum degi minnkar von Rainers fursta um að þetta sam- band sé bara eitt af mörgum ástarsamböndum yngri dóttur hans, sem fljótlega detti upp fyrir eins og hin fyrri. Og það bætir líklega ekki heilsuna hjá gamla manninum að heyra sögusagnir um að skötuhjúin hafi gift sig í laumi og jafnvel að Stefanía sé vanfær af völdum Marios. Stefanía reyndi að sannfæra alla um það eftir Grand Prix kapp- aksturinn að Mario hefði ekki getað fylgt henni þar sem hún hefði verið þar sem prinsessa, og þau væru ekki formlega trúlofuð. Þetta væri bara siðvenja, en ekki fyrir vilja föður hennar. Hún gleymdi því bara blessunin að Rainer fursti lætur sjálfur hvar- vetna sjá sig með Iru von Fursten- berg og eru þau þó ekki trúlofuð. Stóra systir, hún Karólína, hefur sagt í viðtali að Mario verði aldrei samþykktur í Mónakó. Það lítur því ekki of vel út með einingu í fjölskyldunni ef Stefanía tæki upp á því að gifta sig án samþykkis föðurins. Elskendumir búa nú saman í Los Angeles, en þar á og rekur Mario næturklúbb. Stefanía segir um samband þeirra að þau séu bæði ástríðufull, skapmikil og af- brýðissöm. „Það fer mjög í taugamar á mér þegar ég sé Mario kyssa ungar fallegar stelp- ur á kinnina til hægri og vinstri þegar hann er við vinnu í nætur- klúbbnum," segir hún. „Ást mín á Mario hefur gert mig jafnlynda og staðfasta. Þetta hefur pabbi líka séð og það gerir hann lukku- legan. Og hann vill bara að ég sé hamingjusöm." Spurningin er bara sú hvort Rainer vill að hún sé hamingjusöm með einmitt Mario.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.