Morgunblaðið - 19.08.1987, Page 46

Morgunblaðið - 19.08.1987, Page 46
46 IVGt MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987 mmm ást er... . . . að þurrka honum um muninn. TM R«o. U.S. Pat. Off.—all rights res«rv«J C 1986 Los Aogetes Tímes Syndicate Hefur doktor Sjússnikk tekist eitthvað ótrúlegt? HÖGNI HREKKV ^SI Úr Kringlunni Morgunblaðið/Sven-ir Lágkúra í Kringlimni Eins og líklega flestir aðrir ís- lendingar hef ég fylgst af kostgæfni með fréttum af framgangi nýjasta afreks íslenskra verslunarmanna, Kringlunni. Er mér skapi næst að halda að þegar fomleifafræðingar framtíðarinnar fara að raða saman þekkingarbrotum sínum og reyna að skrifa sögu plánetunnar verði íslendingar síðari hluta 20. aldar- innar flokkaðir með Rómverjum til foma fyrir stórhug og glæsileika í byggingarlist. Jafnvel Grikkjum ef svo fer sem horfir og fleiri stein- steypuhallir fá að standa til minnis um menningu okkar. Við lestur á kynningarblaði Morgunblaðsins á Kringlunni var þó sem ögn rynni af mér aðdáunin á íslenskum verslunarmönnum. Ekki er hægt að kvarta yfir nafninu sem kastalanum var gefið en þar með lauk eiginlega því sem hægt var að segja ógrátandi um nafngift- ir á svæðinu. Tökum nokkur dæmi um nöfn á verslunum og öðmm fyrirtækjum: Serína, Genus, Bossanova, Maxim, A—ha, Menuet, Benetton — Sisley, Japis, Kvikk, Míró, Hard Rock Café, Centmm, Cosmo, Stefanel, Dídó, Kókó, Taxi og síðast en ekki síst óskapnaðurinn Califomia — Think Pink. Hvemig getur það átt sér stað að fullorðið fólk sem virðist ekki líklegt til að stunda skæmliðastarf- semi á öðmm sviðum segir tung- unni okkar stríð á hendur með þessum hætti? Ég var rétt í þann mund að sverja þess dýran eið að stíga aldr- ei inn fyrir dyr þessa húss þegar ég rakst á einn aðila sem hafði sýnt vemlega hugkvæmni við val á nafni. Hvíta húsið, öllu betra nafn er vart hægt að hugsa sér á hreins- un, og það varð ti! þess að ég get hugsað mér að eiga viðskipti við einhvem í þessu húsi. Flestir hinna geta ekki átt von á því að ég muni versla við þá og hygg ég að fleiri hugsi slíkt hið sama. Spakur Hvar er góðærið? Ég spyr, hvar er góðærið mikla? Sjálfur verð ég ekki var við það né heldur vinnufélagar mínir á fjöl- mennum vinnustað en við verðum vör við verðhækkanir sem um mun- ar á matvöm og öðm. Ég hef ekki meira á milli handanna en 1986 eða 1985, alls ekki. Svo er einnig með fólk sem ég ræði við, enginn kann- ast við góðærið. Ef svona mikið góðæri er, því var verið að skatt- leggja matvömna? Ég hélt að í góðæri ættu skattar og annað að lækka. En því miður, öllu er snúið við í góðærinu og nú tala þeir um að skattleggja fólk enn meir því að minnka þurfi þensluna, fólk hafi of mikið á milli handanna. Enn spyr ég þessa herramenn, til dæmis fyrrverandi og núverandi forsætisráðherra, af hveiju töluðuð þið ekki um þetta fyrir kosningar? Annar ykkar hafði orð á því að fólk færi í utanlandsferðir. Já, rétt er það en við borgum okkar ferðir sjálf, ég spyr hvenær borguðuð þið síðast utanlandsferð úr eigin vasa? Skrefatalning allan sólarhringinn er nýr skattur og em það svik við notendur. Þáverandi forsætisráð- herra sagði að aldréi ætti að hafa skrefatalningu um kvöld og um helgar, því þegir hann nú? Máttvana mótmælti borgarstjóm skrefatalningu en því miður án ár- angurs, smán fyrir annars góðan borgarstjóra. Góðærið mikla fer til hinna ríku, ekki launþega landsins. Kristinn Sigurðsson Víkverji skrifar Frásögn Jóns Ásgeirs Sigurðs- sonar í Morgunblaðinu síðast- liðinn laugaradag af skólakrökkun- um í miðjum Bandaríkjunum, sem hafa snúist gegn okkur Islendingum í hvalamálinu, vakti Víkveija til umhugsunar um það, hvort íslensk- um stjórnvöldum hefði ekki dottið í hug að senda einhvem fulltrúa sinn í þennan skóla til að ræða við bömin og skýra út fyrir þeim, hvað fyrir okkur vakir. Raunar þyrfti að tala við fleiri en krakkana. Áhuga þeirra á hvölum má rekja til for- rits, sem þeir hafa fengið til að læra vistfræði. Er talið, að þetta forrit, sem Bank Street-kennara- skólinn í New York býr til, sé notað í um 2.000 skólum í Bandaríkjun- um. Væri ekki ástæða fyrir gæslu- menn íslenskra hagsmuna í hvalamálum að kynna sér efni þess og reyna að útiloka, að það leiði til óvildar í garð þess sem íslenskt er og boðið er til sölu í Bandaríkjun- um? Frásögnin af skólabörnunum í Frankfort Square-skólanum í Illino- is-ríki er enn til marks um, að frumkvæðið í andstöðunni við hval- veiðar okkar og annarra er ekki í stjómarskrifstofum heldur í gras- rótinni sjálfri, hjá þeim, sem kjósa menn á þing. Enda er það reyndin bæði austan hafs og vestan, að framkvæmdavaldið á i vök að verj- ast vegna kröfugerðar frá þing- mönnum um hertar aðgerðir til að vemda umhverfið. Til þess að vinna málstað okkar fylgis þurfum við að svara fyrir okkur á réttum stað. Þótt mikilvægt sé að ræða við valdamenn í Washington er hitt mikilvægara að hafa áhrif á al- menningsálitið. XXX * Isama laugardagsblaði Morgun- blaðsins birtist grein eftir Adolf H. Petersen um dönskukennslu. Þar heldur höfundur því fram, að norska og sænska hafi „mikla yfirburði fram yfir dönskuna" eins og hann orðar það, og danskan eigi að víkja fyrir þeim málum í íslenska skóla- kerfinu. Víkveija er kunnugt um það af eigin raun, að unglingar í grunn- skólum hrífast ekki beinlínis af dönskunni, þegar þeir kynnast henni. Framburður hennar er svo íjarlægur, að það er í raun ógerlegt að tileinka sér hann. Víkveiji í dag gleymir því aldrei, þegar hann kom fyrst til Kaupmannahafnar og ætl- aði aldrei að geta gert sig skiljan- legan, þótt hann vissi, að hann talaði dönsku. Minnist Víkveiji þess ekki, að hann hafí átt í jafn miklum erfíðleikum með neitt annað tungu- mál, sem hann getur notað sér til bjargar. Síðar hefur hann tileinkað sér einhvers konar blöndu af norsku, sænsku og dönsku, sem hann kemst sæmilega af með, þeg- ar hann þarf að tala við Skandinava. Það færist í vöxt, að íslendingar forðist að tala dönsku eða annað norrænt mál, þegar þeir ræða við Norðurlandabúa. Heyrist því stund- um haldið fram, að best sé að nota ensku í slíkum samtölum, af því að þá sitji allir við sama borð. Þessu viðhorfi ber að hafna og leggja þess í stað aukna rækt við, að Is- lendingar tileinki sér eitthvert mál nágranna okkar og vina. Til þess eru norska og sænska mun að- gengilegri en danska. XXX Ef sú skoðun nær fram að ganga, að þá fyrst sitji Norður- landabúar við sama borð í samtölum sín á milli, ef þeir ræða saman á ensku, yrði enskan að verða „vinnu- mál“ í norrænu samstarfi. Þá yrðu öll skjöl Norðurlandaráðs samin á ensku og fundir í ráðinu færu fram á ensku. Ólíklegt er, að til þess komi nokkurn tíma. Þróunin ætti frekar að vera í þá átt, að mál allra þjóðanna í ráðinu verði jafn rétthá. Fordæmi eru fyrir öllu: í Evrópu- bandalaginu eru öll skjöl þýdd á tungur aðildarþjóðanna meðal ann- ars með þeim rökum, að á vettvangi bandalagsins séu teknar ákvarðan- ir, sem hafí lagagildi í aðildarríkjun- um. í EFTA aftur á móti, þar sem íslendingar eru með Norðmönnum, Svíum, Finnum, Austurríkismönn- um og Svisslendingum er enska „vinnumálið“, þótt engin aðildar- þjóðanna tali það. Og svo höfum við Norðurlandaráð, þar sem íslend- ingar og Finnar geta ekki notað eigið mál nema með sérstökum til- færingfum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.