Morgunblaðið - 24.11.1987, Síða 1

Morgunblaðið - 24.11.1987, Síða 1
96 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 267. tbl. 75. árg. ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Samkomulag Bandaríkjanna og Kúbu um innflytjendur: Róstur Kúbiunanna í tveimur fangelsum _ Atlanta, Oakdalc, Reutcr. ^ ÁTÖK brutust í gær út milli kúbanskra fanga og fangavarða í fang- elsi í Atlanta í Bandaríkjunum. Einum og hálfum sólarhring áður höfðu kúbanskir fangar náð fangelsi í Oakdale í Lousiana-fylki á sitt vald. Þijátíu manns særðust í óeirðunum í fangelsinu í Atlanta. Kúbumennirnir mótmæla samningi Bandarikjanna og Kúbu um að 2.700 fangar verði fluttir heim til Kúbu. Samningaviðræður standa enn milli yfirvalda og fanganna í Atlanta og Oakdale en á hvorum staðnum halda Kúbumennimir á þriðja tug fangavarða i gíslingu. Samkomulag Kúbu og Banda- ríkjanna frá því á föstudag er svipaðs eðlis og samningur ríkjanna um innflytjendur frá árinu 1984. Því samkomulagi riftu Kúbumenn sama ár í mótmælaskyni við út- varpssendingar Bandaríkjamanna sem heyrðust á Kúbu. Kúbumenn hafa líkt og þá samþykkt að taka aftur við 2.700 mönnum sem stigu á land í Flórída árið 1980. Þeir voru engir aufúsugestir í Banda- ríkjunum enda sagðir vera glæpa- menn og geðsjúklingar sem Fidel Castro, leiðtogi á Kúbu, hefði verið feginn að losna við. Samkvæmt samkomulaginu sem. nú gengur í gildi er 20.000 Kúbumönnum lejrft að flytjast til Bandaríkjanna á ári auk 3.000 pólitískra flóttamanna og fjölskyldna þeirra. Fangamir í Oakdale og Atlanta, sem gert hafa uppsteyt undanfama daga, óttast að sögn verri aðbúnað heima fyrir en í fangelsi í Banda- ríkjunum. í Oakdale kveiktu þeir í fangageymslum á sunnudag og hnepptu verði sína í gíslingu. Sam- dægurs var nokkrum gíslanna sleppt, en samningaviðræður milli fanganna og yfirvalda hafa ekki borið árangur. Svipað var upp á teningnum í Atlanta. Þar hefur meirihluti Kúbumannanna, sem senda á heim, verið í haldi. Lög- regla segir að það kunni að taka nokkra daga að yfirbuga kúbönsku uppþotsmennina enda hafi þeir „engu að tapa". Irland: Bandaríkin: Ijárlagahallinn jókst í október Washington, Reuter. Reuter Lögregla i Atlanta í Bandaríkjunum bægir umferð frá fangelsinu þar sem kúbanskir flóttamenn efndu til óeirða í gær með þeim af- leiðingum að þrjátíu menn slösuðust. Lögreglan leitar að vopnabúri skæruliða Dublin, Reuter. HALLI á fjárlögum í október- mánuði í Bandaríkjunum var 20% meiri en í sama mánuði í Alnæmi: Bóluefni í augsýn? París, London, Reuter. FRANSKIR visindamenn segj- ast hafa stigið fyrsta skrefið í átt til framleiðslu bóluefnis gegn alnæmi. Þeir hafa upp- götvað eggjahvítuefni sem hindrað getur útbreiðslu sjúk- dómsins. Vísindamenn hjá erfðaverk- fræðifyrirtækinu Transgene í Frakklandi segjast hafa fundið svo kallað F-gen í alnæmisveir- unni. F-genið kemur í veg fyrir að ónæmiskerfí líkamans „upp- götvi" sýktar frumur. Þar virðist komin skýring á því að nokkur ár geta liðið áður en ónæmiskerfí manns sem sýnir mótefni gegn alnæmisveirunni fer að láta undan síga. Vonir eru nú bundnar við að F-gen verði eitt af undirstöðu- efnum í hugsanlegu bóluefni gegn alnæmi. Breskir vísindamenn hafa greint frá jákvæðum niðurstöðum tilrauna með alnæmissjúklinga. Aðferð þeirra líkist meðferð eitur- lyfjasjúklinga og felst í því að senda rafboð í gegnum hörund sjúklingsins. Mikil leynd hvílir yfir þessum tilraunum en frést hefur að dauðvona sjúklingur hafí með þessari aðferð þyngst um 19 kíló á hálfu ári og að hann lifi nú nær eðlilegu lífí. fyrra samkvæmt upplýsingum sem birtar voru í gær. Þessi tíðindi ýta undir svartsýnis- raddir um að samkomulag Bandaríkjastjórnar og þingsins um niðurskurð fjárlagahalla hafi ekki gengið nógu langt. Október er fyrsti mánuður fjár- lagaársins í Bandaríkjunum og því hafa menn beðið spenntir eft- ir fréttum af hallanum í þeim mánuði. I fyrra var hann 25,29 milljarðar dala í október en er nú 30,74 milljarðardala. Bandaríkja- dalur féll enn í verði á fjármála- mörkuðum í gær sem sýnir að samkomulagið frá því á föstu- dagskvöld hefur ekki enn náð að hafa tilætluð áhrif á gengi gjald- miðilsins. Sjá frétt á síðu 36. ÍRSK lögregla og herlið hleyptu í gær af stokkunum umfangs- mestu lögregluaðgerð í sögu Irska lýðveldisins. Markmiðið er að finna fjóra skipsfarma af vopnum sem talið er að IRA, írski lýðveldisherinn, hafi smyglað inn í landið. Að minnsta kosti sjö þúsund lög- reglumenn taka þátt í leitinni að vopnunum. „Eg er þeirrar skoðunar að þama sé á ferðinni mesta ógnun sem IRA hefur nokkm sinni beint gegn írska lýðveldinu," sagði Gerry Collins dómsmálaráðherra landsins. Hann sagði ennfremur að allt að tvö þúsund sjálfvirkir rifflar og skothylki auk Sam-7 eldflauga, sem skotið. geta niður flugvélar, væru að öllu líkindum staðsettar á ír- landi. Collins sagði aðspurður um hvort eitthvað væri hæft í að vopn- in kæmu frá Líbýu: „Það er vitað að vopnin koma frá Miðjarðarhafs- svæðinu." Óttast er að IRA hyggist nota vopnin til að ráðast á Maze- fangelsið á Norður-írlandi og annað í írska lýðveldinu þar sem for- sprakkar IRA eru hafðir í haldi. Breskar öryggissveitir hafa svip- aðar aðgerðir uppi á Norður-írlandi. Þær koma í kjölfar upplýsinga frá bresku leyniþjónustunni um að á árunum 1985 til 1986 hafi vopnun- um verið smyglað inn á austur- strönd landsins. Viðræður Shultz og Shevardnadzes: Bjartsýni ríkir í Genf Genf, Reuter. Reuter GEORG Shultz og Eduard Shevardnadze hófu í gær tveggja daga viðræður í Genf í Sviss. Viðræðunum er ætlað að reka smiðs- höggið á samkomulag risaveldanna um upprætingu meðal- og skammdrægra kjarnaflauga á landi fyrir leiðtogafund í Washington 7.- 10. desember. „Við höfum átt góðar og uþpbyggilegar sam- ræður,“ sagði Shultz við fréttamenn í gær eftir að morgunfundi hans og Shevardnadzes lauk. Ráðherramir sögðu báðir við upphaf viðræðn- anna að þeir væru bjartsýnir á að takast mætti að ganga frá helstu ágreiningsefnum, eins og Eduard Shevardnadze gerir hlé á viðræðun- um við Georg Shultz og horfir á mynd sem tekin var þegar Reagan og Gorbachev hitt- ust i Genf fyrir tveimur árum. um eftirlit með því að ákvæðum samkomulags- ins verði framfylgt. Einn samningamanna Bandaríkjanna í Genf sagði þó er Shultz kom á vettvang: „Ég er ekki viss um að hann skilji hve langt er enn í land.“ Fulltrúar beggja aðila voru ekki reiðubúnir að upplýsa fréttamenn um gang viðræðnanna. Samt sem áður þótti það benda til, að skriður væri kominn á viðræðum- ar að þegar þeim lauk í gærkvöldi hélt Shevardnadze á fund sovésku samninganefnd- arinnar en ekki heim á hótel. Sovétmenn hafa veitt bráðabirgðasamþykki sitt fyrir því að Mikhail Gorbachev hitti banda- ríska kaupsýslumenn að máli í Washington. James Giffín, forseti samtaka sem helga sig viðskiptum risaveldanna, sagði í gær að á slíkum fundi gæti Sovétleiðtoginn skýrt fyrir mönnum hvað fælist í nýrri efnahagsstefnu Sovétríkjanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.