Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
Ráðherrafundur um
utanríkisviðskipti
Framangreint má lesa út úr
könnun sem Gunnar Þór Jónsson,
yfirlæknir slysadeildar Borgarspít-
alans, og Grétar O. Róbertsson
læknir hafa gert á framhandleggs-
brotum á höfuðborgarsvæðinu árin
1985 og 1986. Könnunin leiddi
einnig í ljós að langflest óhöpp af
þessu tagi verða í miðbæ
Reykjavíkur og næsta nágrenni.
Um 80% slasaðra töldu að slysin
mætti rekja til vanrækslu einkaað-
ila, fyrirtækja eða opinberra aðila
við hálkueyðingu eða snjómokstur
á gangstéttum í verslana- og við-
skiptahverfum.
Astæða þess hve rosknum kon-
um er hættara en öðrum við
meiðslum af þessu tagi er bein-
þynning, að sögn Gunnars Þórs.
Hann segir mikilvægt að roskið
fólk, einkum konur, noti mann-
brodda og annan hálkuveijandi
skófatnað á vetrarferðum um
borgina. Þá segirGunnar Þór Jóns-
son að niðurstöður könnunarinnar
veiti yfirvöldum vísbendingu um
Morgunblaðið/Þorkell
Gunnar Þór Jónsson yfirlæknir. Myndin er tekin í Bankastrætinu
en þar brotnuðu einna flestir framhandleggir á árunum 1985
og 1986. Nú hafa hins vegar verið lagðar hitalagnir undir gang-
stéttina í Bankastræti og því ekki eins hætt við óhöppum þar
og áður.
Brot á framhandlegg:
Rosknar konur í mestri hættu
FRÁ nóvember til raars verður
mikill meirihluti þeirra óhappa
sem leiða til framhandleggs-
brota í Reykjavík og nágrenni.
Rosknu vinnufæru fólki á ferð
í hálku er margfalt hættara en
öðrum við áverkum af þessu
tagi.
að nauðsynlegt sé að setja ákveðn-
ar reglur um snjómokstur og
afísingu á götum og gangstéttum
í verslunar- og viðskiptahverfum.
Frekari kartöflusala til Noregs:
Fer eftir viðbrögðum
úti og samstöðu bænda
- segir Páll Guðbrandsson formaður kartöflubænda
ÓFORMLEGUR fundur þeirra
norrænu ráðherra sem fara
með utanríkisviðskipti fer fram
i Reykjavík í dag, þriðjudaginn
24. nóvember. Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra
verður fundarstjóri.
Ráðherramir komu til landsins
í gær og sátu kvöldverðarboð ut-
anríkisráðherra í Ráðherrabú-
staðnum við Tjarnargötu.
Ráðherramir sem taka þátt í
fundinum em: Nils Wilhjelm iðn-
aðarráðherra Danmerkur, Anita
Gradin utanríkisviðskiptaráðherra
Svíþjóðar, Pertti Salolainen utan-
ríkisviðskiptaráðherra Finnlands,
Karin Stoltenberg, staðgengill
norska viðskiptaráðherrans Kurt
Mosbakk, og Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra, sem
er fundarstjóri eins og áður segir.
Samkvæmt ákvæði stjómar-
sáttmála um breytingar á stjóm-
sýslu er meðal annars gert ráð
fyrir þeim breytingum að utanrík-
Guðmundur Finnur Björnsson
Lýst eftir tví-
tugum manni
LÝST er eftir 20 ára gömlum
manni, Guðmundi Finni Bjöms-
syni frá Hvannabrekku, nú til
heimilis að Tjarnargötu 10 í
Reykjavík.
. Guðmundur er um 182 sm. hár,
grannur og ljóshærður og notar
gleraugu. Hann var klæddur í ljós-
gráan herrafatajakka og ljósgráar
buxur í skyrtu og með bindi og í
svörtum skóm. Guðmundur sást
síðast um miðnætti aðfaranótt
síðastliðins sunnudags við sam-
komuhúsið Hollywood við Armúla.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um
ferðir Guðmundar eftir þann tíma
eru vinsamlega beðnir að gera lög-
reglunni viðvart.
JHoröimhlnb ií>
í dag
LI1K r 6 Wfl A S» Niw. ITÓKIÓ/I« 3
BLAÐ B
isráðuneytið taki við utanríkisvið-
skiptum af viðskiptaráðuneytinu.
Sú breyting hefur þó enn ekki
tekið formlegt gildi þar sem lög
þar að lútandi hafa ekki enn verið
samþykkt.
Starf skj aranefnd
HÍK og stjórnvalda:
Tillagna að
vænta í vikunni
TILLAGNA starfskjaranefndar
Hins íslenska kennarafélags,
menntamálaráðuneytis og fjár-
málaráðuneytis er að vænta
siðar í þessari viku. Nefndin
hefur það verkefni með höndum
að endurskoða launakerfi og
vinnutilhögun framhaldsskóla-
kennara, samkvæmt bókun í
kjarasamningum HÍK við ríkis-
valdið frá því í vor.
í nefndinni eiga sæti þrír full-
trúar HÍK, auk tveggja fulltrúa
frá menntamálaráðuneytinu og
eins frá fjármálaráðuneytinu.
Hörður Lárusson, deildarstjóri
framhaldsskóladeildar mennta-
málaráðuneytisins, er formaður
nefndarinnar. Hann sagði að
nefndarfundur yrði í dag og til-
lagna nefndarinnar væri að vænta
í vikunni. Hann sagðist ekki eiga
von á öðru en að samkomulag
yrði um tillögur nefndarinnar, en
þær yrðu ekki gerðar opinberar
fyrr en nefndin hefði lokið störfum
og þær verið kynntar hlutaðeig-
andi aðilum.
ALBERT Guðmundsson formað-
ur Borgaraflokksins segist ekki
eyða tíma sínum í að hlusta á
Þorstein Pálsson tala um frið og
sættir því ljóst sé að Þorsteinn
leggi ekkert upp úr slíku. Þetta
kom fram þegar Albert var
spurður álits á kafla í ræðu Þor-
steins Pálssonar forsætisráð-
herra á flokksráðsfundi
Sjálfstæðisflokksins þar sem
Þorsteinn sagðist telja það meg-
inmarkmið og höfuðverkefni að
í FRAMHALDI af för sendi-
nefndar markaðsstjóra Búnað-
sameina sjálfstæðismenn í einum
flokki.
„Ég hef ekki eytt miklum tíma
í að lesa ræðu Þorsteins Pálssonar.
Ég hef verið að lesa Perestrojku
eftir Gorbachev um helgina," sagði
Albert Guðmundsson. „Og ég get
ekki lagt neinn trúnað á tal hans
um sameiningu og sættir. Þetta er
álíka og kom hjá honum á friðar-.
daginn þegar hann óskaði eftir að
það yrði friður á milli okkar og ég
fylgdi því eftir með samtali sem
arbankans og fulltrúa bænda til
Noregs á dögunum hefur verið
ákveðið að senda út einn gám
af kartöflum, eða 12 tonn. Fer
eftir viðbrögðum við þeim kart-
öflum í Noregi og samstöðu
bænda hér heima hvort af meiri
útflutningi getur orðið, að sögn
formanns Landssambands kart-
öflubænda.
Páll Guðbrandsson í Hávarðar-
koti, formaður Landssambandsins,
var í sendinefndinni. Hann segir
að Noregur sé það land sem væn-
legast sé að snúa sér tii varðandi
útflutning á kartöflum. Þar vanti
kartöflur og segir Páll að okkar
kartöflur falli Norðmönnum vel í
geð. Hins vegar sé verðið ekki
nema 7—8 krónur, eða svipað og
kostnaðurinn við að pakka kartöfl-
unum hér heima. Segir hann að
þetta sé vonlaust dæmi nema ein-
hver aðstoð fáist. Komi til dæmis
vel til greina að leggja verðjöfnun-
argjald á alla framleiðsluna, t.d. 2
til 2,50 krónur á kíló, til að koma
umframframleiðslunni í þó þetta
verð með útflutningi. Einnig mætti
hugsa sér að Framleiðnisjóður
veitti aðstoð.
har.n rangtúlkaði við þingflokkinn.
Svo ég eyði engum tíma í að hlusta
á Þorstein Pálsson tala um frið og
sættir. Það er ljóst að hann leggur
ekkert upp úr því,“ sagði Albert
síðan.
„Þegar Albert var spurður hvort
flokksfólk f Borgaraflokknum væri
sama sinnis sagði hann að Þorsteinn
Pálsson hefði engan trúnað í í Sjálf-
stæðisflokknum hvað þá utan hans.
„Hann er búinn að fyrirgera þeim
trúnaði fyrir löngu. Hann hafði sín
tækifæri en glopraði þeim öllum
niður," sagði Albert Guðmundsson.
Þá þyrfti að vera samstaða um
málið meðal kartöflubænda, því
ekki fengist útflutningsleyfi fyrir
kartöflur nema frá þeim bændum
sem hefðu leyfi til sölu á kartöflum
til útsæðis, og þeir væru aðallega
á Norðurlandi. Sú samstaða væri
ekki fyrir hendi en yrði að nást.
Einnig sagði Páll að vandamál
væru með flutninginn. Mesti kart-
öfluskorturinn væri á vestur-
ströndinni og í Norður-Noregi, en
engar fastar áaetlunarsiglingar
væru þangað frá íslandi.
Friðrika Benónýs
Nýr bókmennta-
gagnrýnandi
FRIÐRIKA Benónýs hefur
verið ráðin til að skrifa bók-
menntagagnrýni fyrir
Morgunblaðið. Fyrsti rit-
dómur hennar birtist í blaðinu
i dag á bls. 14.
Friðrika fæddist á Húsavík
1956, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á ísafírði 1981
og lýkur BA-prófi í almennri
bókmenntafræði frá Háskóla
íslands næsta vor.
/
mKH
Morgunblaðið/Júlíus
ELDUR í RUSLI
ELDUR kom upp í ruslatunnum í bakgarði við Skólavörðustíg
í gærkvöldi. Slökkviliðið brá skjótt við og réð niðurlögum elds-
ins áður en Ijón hlaust af. Tunnurnar stóðu nálægt gamalli
viðbyggingu úr timbri með járnklæðningu og rifu slökkviliðs-
menn eina járnplötuna frá til að ganga úr skugga um hvort
eldurinn hefði læst sig í timbrið. Svo reyndist ekki vera.
Eyði ekki miklum
tíma í ræðu Þorsteins
- segir Albert Guðmundsson