Morgunblaðið - 24.11.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
Ný ljóðabók eftir
Heiðrek Guðmundsson
BÓKAÚTGÁFA Menningar-
sjóðs hefur gefur gefið út
ljóðabókina Landamæri eftir
Heiðrek Guðmundsson skáld á
Akureyri, en ný bóíc frá hans
hendi sætir jafnan tíðindum.
Útgefandi kynnir Landamæri
og höfundinn svofelldum orð-
um á bókarkápu:
„Heiðrekur Guðmundsson gaf
út fyrstu bók sína fyrir 40 árum,
en elsta kvæði hennar var þá 10
ára gamalt, svo að hann hefur
fengist við ljóðagerð í hálfa öld
á íslensku skáldaþingi. Með
Landamærum staðfestir hann
enn frumleik og sérstöðu. Kvæð-
in eru stutt og hnitmiðuð en vitna
um dýpt og þrótt. Heiðrekur
ræktar akur sinn af vandvirkni
og alúð.
Landamæri eru áttunda bók
skáldsins og kvæðin ort á árun-
um 1980—87. Heiðrekur
Guðmundsson fer hér víðá nýjar
brautir í listsköpun sinni en held-
ur þó tryggð við fyrri sjónarmið
og vinnubrögð. Yfir ljóðunum
vakir karlmennska og baráttu-
hugur þessa lífsrejmda skálds er
kemst gjaman að tímabærri og
athyglisverðri niðurstöðu eins og
t.d. í Stofuhominu:
Þar átti sér afdrep forðum
elsta konan á bænum,
sat með prjóna og sagði
þér sögur og ævintýri.
En farin er hún að heiman
í húsið til jafnaldra sinna.
Þá sóttir þú sjónvarpstæki
og settir í stofuhomið.
Fyrri bækur Heiðreks eru:
Arfur öreigans, 1947; Af heiðar-
brún, 1950; Vordraumar og
vetrarkvíði, 1958; Mannheimar,
Heiðrekur Guðmundsson.
1966; Langferðir, 1972; Skildag-
ar, 1979; Mannheimar (úrval,
1983).“
Landamæri em 83 blaðsíður
að stærð. Kápu gerði Margrét
E. Laxnness, en bókin er unnin
í Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
(Fréttatilkynning)
VEÐURHORFURIDAG, 24.11.87
YFIRLIT á hédegi í gær: Vlð austurströnd Grænlands vestur af
landinu hefur myndast smólægð sem þokast austnorðaustur, en
1200 km suöur f hafl er 1040 millibara víðóttumikil hæð og fró
henni hæöarhryggur norðaustur um ísland.
SPÁ: í dag verður fremur hæg suðvestiæg átt ó landinu og víðast
8kýjað. Utilshóttar súld veröur við vesturströndina og snjómugga
til fjalla en þurrt að mestu annars staðar. Enn verður frost sums
staðar inn til landsins, einkum á Austurlandi, en víöast 2ja—4ra
stiga hiti við sjóinn.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR: Suðlæg eða suðvestlæg
ótt og rigning eða súld um sunnan- og vestanvert landið en þurrt
norðaustanlands. Hiti 2—6 stig.
TÁKN:
'(^)" Heiðskírt
a
:4k
m
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnlr vlnd-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heii fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / #
/ # / * Slydda
/ * /
* * #
* * * * Snjókoma
* # #
10 Hltastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
1[VEÐUR VÍÐAUM HEIM kl. 12:00 i gær að fsl. tfma hlll vaður i Akureyrl +3 »lcý)«ð Reykjavfk +1 »ký)a&
Bergen 2 skýjað
Heislnkl #2 snjókoma
ian Mayen +8 léttskýjað
Kaupmanneh. 8 alskýjað
Naruareeuaq 4 þokáfgrsnnd
Nuuk 14 rignlng
Oató 2 súld
Stokkhólmur B slskýjað
Þórahöfn 2 akýjað
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 7 þokumóða
Aþena 18 skýjsð
Barcelona 10 mlstur
Berlln 4 rign. á s. klst.
Chlcago 7 haiðskfrt
Feneyjar 8 rignlng
Frankfurt 8 slcýjað
Qlaagow 8 léttskýjað
Hamborg 8 þokumóða
Las Palmaa 22 láttskýjað
London 6 rign.ás.klat.
LoaAngeles 11 láttskýjað
Lúxomborg 4 rign.ogaúld
Madrfd 8 skýjað
Malaga 16 skýjað
Mallorca 12 þrumuv.
Montreal #8 léttakýjað
NewYork 0 rsykur
Parfs B skýjað
Róm 10 þrumuveður
Vín 8 skýjsð
Washington vantar
Wlnnlpeg #10 léttskýjað
Valenda 13 alskýjað
Þyrla Landhelgisgæslunnar
slasaðan sjómann í Núp ÞH:
Gátum sætt lagi
við að ná þeim
UPP í þyrluna !
- segir Páll Halldórsson flugstjóri
„ÞAÐ var vissulega ógnvekjandi að sjá skipið hreyfast mikið þarna
niðri, bæði velta og stampa, en ég þekki félaga mína i þyrluáhöfn-
inni og treysti þeim fullkomlega," sagði Friðrik Sigurbergsson,
læknir á Borgarspítalanum. Friðrik var í áhöfn þyrlu Landhelgis-
gæslunnar TF-SIF sem náði í slasaðan sjómann af Núpi ÞH austur
fyrir Hornbjarg á sunnudag. Hann seig úr þyrlunni niður í skipið
við erfiðar aðstæður, þar sem hann hlúði að sjómanninum og upd-
irbjó hann fyrir flutninginn. Var slasaði maðurinn siðan hífur í
sjúkrabörum upp i þyrluna og flogið með hann til Reykjavíkur. Sjó-
maðurinn, sem er 19 ára gamall, festi annan fótinn í lykkju á
færalínu og missti fótinn ofan við ökkla. Var hann lagður inn á
Borgarspítalann og liður nú eftir atvikum að sögn læknisins.
Auk Friðriks Sigurbergssonar
læknis voru í áhöfn þyrlunnar í
þessari ferð Páll Halldórsson flug-
stjóri, Jakob Ólafsson flugmaður
og Sigurður Steinar Ketilsson stýri-
maður. Páll Halldórsson lýsir ferð-
inni þannig:
„Við vorum kallaðir út í sjúkra-
flug klukkan 10.20 á sunnudags-
morgun. Þá hafði orðið alvarlegt
slys um borð í línubátnum Núpi ÞH
3. Einn skipveijinn var mikið slas-
aður á fæti. Báturinn var norðaust-
ur af Hombjargi og var með
stefnuna á Skagaströnd. Veðrið var
þannig að ekki var hægt að leggja
strax af stað. En eftir að við vorum
búnir að kanna veðurútlitið kom í
ljós að báturinn var að sigla inn í
verra veður og létum við hann því
breyta stefnunni fyrir Hombjarg.
Við fómm frá Reykjavík klukkan
11.55 og þorðum ekki annað en að
koma við á ísafírði til að bæta við
elsneyti vegna veðursins. Við tókúm
eldsneyti með þyrluna í gangi til
að spara tíma og fómm frá ísafirði
kl. 13.20. Þaðan urðum við að fara
í Jökulfirði, yfír Hombjargið og
síðan austur að bátnum. Hann var
12 sjómflur austur af Hombjargi-
Komum við að honum klukkan
13.45. Við höfðum hugsað okkur
að senda lækninn niður miðskips
bakborðsmegin og taka sjúklinginn
einnig þar upp. En þegar við kom-
um að skipinu kom í ljós að það
var útlokað vegna bómu sem þar
Samtökin Gamli miðbærinn:
ÓmaJklega vegið að
Davíð Oddssyni
Styðja byggingu ráðhúss við Tjörnina
„AÐALSTJÓRN Gamla miðbæjarins styður heilshugar ikvörðun meiri-
hluta borgarsljómar um uppbyggingu ráðhúss við ijömina“ segir
meðal annars !i samþykkt nem gerð var einróma :i ífyrsta Vundi nýkjör-
innar aðalstjóraar samtakanna „Gamli miðbærinn". f ramþyktinni
segir ennfremur að sljórain mótmæli þeim fullyrðingum að málið
hafi ekki verið kynnt i*em skyldi. Samtökin iiafi frá ipphafi fylgst
náið með nálinu og dregur riýórnin f efa að nokkru ninni fyrr hafi
verið staðið jafn vel að kynningu verkefnis á vegum rikis eða borg-
ar. Þá segir i samþyktinni að ádeilur á Davið Oddsson borgarstjóra
varðandi málsmeðferðina uéu tneð öllu ómaklegar.
Guðlaugur Bergmann íormaður
stjómar Gamla miðbæjarins nagði S
namtali við Morgunblaðið :ið allir
stjómarmenn á fundinum hefðu ver-
ið sammála um að ráðhús Reykjavik-
ur mætti hvergi annare staðar rísa
en í miðbænum. „Við vorum einnig
sammála um að staðsetningin I þess-
um (jótasta hluta tjamarendans
myndl verða fyöminni og miðborg-
inni hin mesta prýði,“ sagði Guð-
laugur ennfremur. „Þeir sem hafa
rótað upp moldviðrinu undanfarið
hafa verið með rangtúlkanir, meðal
annars látið að því liggja að verið
væri að setja ráðhúsið út í miðja
Tjöm þótt vitað sé, að húsið skerðir
aðeins um 1% Tjamarinnar sjálfrar.
Sömuleiðis virðist sem þorri þessara
mótmælenda hafí ekki skoðað teikn-
ingar, sem við í stjóm samtakanna
höfum eðlilega gert, þar sem þetta
skiptir okkur gífurlega miklu máli.
Á teikningunum geta menn séð að
ráðhÚBÍð verður aðeins til mikillar
prýði og að það verður mun
skemmtilegra að skoða Tjömina en
nú er, eins og hlutimir em á þessum
stað.“
Guðlaugur sagði að einnig hefðu
verið hávœrar raddir um að bílaum-
ferð myndi stóraukast i miðbænum
vegna r&ðhússins, en þær ályktanir
væm á algerum misskilningi byggð-
ar. „Bilaumferð eykst ekkert- í
miðbænum þótt ráðhúsið rísi þar.
Hins vegar virðist þessu fólki vera
itla við bila þótt nllur borri venjulegs
fólks hafí kosið sér bílinn sem sam-
göngutæki. Við úr miðbæjarsamtök-
unum höfum fengiö ákúmr frá þessu
sama fólki fyrir að hugsa aðeins um
bfla og bflastæði og að koma á betri
akbrautum að og frá bænum. Okkur
er spum hvort það séu aðeins fáein-
ir útvaldir, sem búa nálægt mið-
bænum, sem eiga að fá að sjá
Tjömina og gömlu fallegu húsin, eða
hvað annað sem fólk sækir í mið-
borgina. Það hefur sýnt sig á
stóraukinni bifreiðaeign landsmanna
að þetta er sá ferðamáti sem fólk
kýs sér og ef að ekki er góð að-
keyrela og frákeyrsla og góð bíla-
stæði í miðbænum þá verða aðeins
fáeinir útvaldir sem koma til með
að ráfa um miðborgina og njóta allra
gersemanna, sem gamli miðbærinn
hefur óneitanlega upp á að bjóða.
Okkur fínnst ómaklega að Davíð
Oddsyni vegið. Við teljum fáa menn
hafa jafnmikinn áhuga á að vemda
gamla miðbæinn og Davíð og það
hefur hann sannað hvað eftir annað.
Hann yrkir meira að segja ljóð um
gamla miðbæinn, geri aðrir betur.
Að ætla honum að vilja skemma og
eyðileggja eitthvað á þessum stað
er alveg fráleitt. Ég held persónu-
lega að þetta upphlaup vegna
byggingu ráðhússins sé eitt af þess-
um árlegu fyrirbrigðum í skamm-
deginu. Þetta eru bara skammdegis-
órar,“ sagði Guðlaugur Bergmann.