Morgunblaðið - 24.11.1987, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
Háir vextír
Grunnvextir á Kjörbók
eru nú 32% á ári og leggjast þeir við
höfuðstól tvisvar á ári.
Ef innstæða, eða hluti hennar,
hefurlegið óhreyfð í 16 mánuði
hækka vextir í 33,4%
og í 34% eftir 24 mánuði.
Þrepahækkun þessi er afturvirk,
hámarks ársávöxtun er því allt að
36,9% án verðtryggingar.
Verðtrygging
Á 3ja mánaða fresti er ávöxtun
Kjörbókarinnar borin saman við
ávöxtun 6 mánaða bundinna
verðtryggðra reikninga.
Reynist ávöxtun verðtryggðu
reikninganna hærri er greidd uppbót
á Kjörbókina sem því nemur.
Örugg
og óbundin
Þrátt fyrir háa vexti og verðtryggingu
er innstæða Kjörbókar alltaflaus.
Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0,85%,
en reiknastþó ekki af vöxtum tveggja
síðustu vaxtatímabila.
Kjörbókln er bæði einfalt og öruggt
sparnaðarform.
j i
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Þriðji yfirbyggði bát-
urinn kominn heim
Höfn, Homafirði.
VÍSIR SF-64, er kominn til
heimahafnar eftir yfirbyggingn.
Hann er þriðji háturinn í flotan-
um á Höfn, sem byggt hefur
verið yfir í haust.
Að auki var sett ný brú á bátinn
og flest tæki þar' í endumýjuð. Inn-
réttingar í íbúðum skipverja voru
og teknar í gegn að hluta til. Verk-
ið var unnið í Stálsmiðjunni í
Reykjavík, og að sögn Jóns Gunn-
ars Helgasonar, annars eigenda
bátsins, mjög vel unnið. Verkinu
seinkaði þó talsvert, en breyting-
arnar hafa staðið jrfír frá því í
byijun ágúst.
Stefán Amgrímsson skipstjóri og
annar eigenda Vísis heldur senn til
síldveiða með bátinff.
Þá em nýlega famir tveir bátar
til viðbótar frá Höfn til ámóta end-
umýjunar. Það em Skógey og
Hvanney.
- JGG
Morgunblaðið/Garðar Rúnar Sigurgeirsson
Sjúkrahúsið á Seyðisfirði.
Sjúkrahúsið á Seyðisfirði:
Trésmiðja Garðars
Eymundssonar með
lægsta tílboð í frágang
Seyðisfirði.
NÝLEGA var greint frá niður-
stöðum útboðs í næsta áfanga
sjúkrahúsbyggingar á Seyðis-
firði. Boðinn var út frágangur
á eldhúsi og þvottahúsi í ný-
byggingu sjúkrahússins. Alls
bárust fjögur tilboð, lægsta til-
boðið hljóðaði upp á 5.814.270,
00 sem er 96% af kostnaðará-
ætlun og er frá Trésmiðju
Garðars Eymundssonar á Seyð-
isfirði.
í samtali við fréttaritara sagði
Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri
að bæjarstjóm hefði samþykkt að
taka tilboði Trésmiðrju Garðars, en
framkvæmdadeild Innkaupastofn-
unar ríkisins hefði lagt til að því
tilboði yrði tekið. Hann sagði að
þessum áfanga ætti að vera lokið
fyrir 1. apríl á næsta ári, sam-
kvæmt samningnum við Trésmiðju
Garðars. Og næsti áfangi, sem
væri lokaáfangi þessarar sjúkra-
húsbyggingar, öll efri hæðin sem
væri allt legurýmið eða 26 sjúkra-
rúm og rými tengt því, yrði boðið
út á miðju næsta ári. Þar væri um
35 milljóna króna framkvæmd að
ræða á núvirði og væri fram-
kvæmdatími áætlaður frá 1.
september 1988 og út árið 1989,
þá ætti þessari sjúkrahúsbyggingu
að vera lokið, sagði Þorvaldur.
— Garðar Rúnar
MYNDBANDSTÆKI