Morgunblaðið - 24.11.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
23
Haukadalsá
í Dölum
eftirEinar
Hannesson
Við Hvammsfjörð eru margar
laxveiðiár, þó að þær séu flestar (
hópi minni straumvatna hér á landi,
sem lax er í. Tvær ánna skera sig
úr sakir þess hversu góðar lax-
veiðiár þær eru, enda vinsælar af
stangaveiðimönnum um áratuga-
skeið. Þetta eru Laxá í Dölum og
Haukadalsá. Haukadalsá verður
hér á eftir tekin til sérstakrar um-
fjöllunar varðandi veiðimál, en áður
hefur hér í blaðinu verið gerð grein
fyrir Laxá í Dölum og nýtingu
hlunninda í henni.
Straumvatn, stöðuvatn
ogþverár
Ós Haukadalsár í sjó er um 8 km
í suður frá Búðardal, skammt norð-
an sjávaróss Miðár, og fellur í
miðjan hæl Hvammsfjarðar, ef svo
má taka til orða þar sem fjörðurinn
er eins og stígvél í laginu, sem
kunnugt er. Ain er dragá með
stöðuvatn á kerfinu. Aðrennslis-
svæði árinnar í sjávarósi er 239 km2
sem er aðeins minna en aðrennslis-
svæði Laxár í Dölum. Áin sjálf er
um 34 km á lengd og efstu drög
hennar fast við Tröllakirkju (1001
m á hæð).
Haukadalsvatn
og efri áin
Á vatnakerfí Haukadalsár er
samnefht vatn, sem er 3,3 km2 að
flatarmáli í 37 m hæð yfir sjó og er
í 6 km fjarlægð frá sjó. Þá falla í
ána nokkrar þverár og lækir, eink-
anlega í Þverá 17 km á lengd í
samnefndum dal, sem kemur í ána
6 km frá sjó, og fellur í hana að
norðanverðu, og Villingadalsá, sem
sameinast ánni að sunnanverðu í
24 km fjarlægð frá sjó. Vatnakerf-
ið ofan Haukadalsvatns er nefnt
Efri Haukadalsá. Fiskgengi hluti
alls svæðisins er 25 km á lengd eða
að Réttarfossi, sem er í 175 m hæð
yfir sjó. Fall árinnar er því sem
svarar 0,7 m á hveija 100 metra
vegalengd.
Það fyrirkomulag gilti lengst af
um nýtingu veiðihlunninda á svæð-
inu, að hver jörð ráðstafaði veiði
fyrir sínu landi, eins og algengast
var áður fyrr í sambandi við veiði-
skap í ám og vötnum. Veitt var
með netum og eitthvað mun kistu-
veiði hafa verið stunduð.
Stangaveiði stunduð
lengi
Það mun hafa verið um 1930 sem
að áin neðan Haukadalsvatns var
leigð út til stangaveiði og frá þeim
tíma til þessa dags hefur verið veitt
í henni eingöngu á stöng. Það voru
þekktir stangaveiðimenn á þeim
tíma, sem leigðu ána. Má í því sam-
bandi nefna Eggert Kristjánsson,
stórkaupmann, Steindór Gunnars-
son, prentsmiðjustjóra, og þá tekur
„Víst er að leigutekjur
af veiði á vatnasvæði
Haukadalsár og veiði-
skap eiganda í Hauka-
dalsvatni eru mjög
góðar og hafa vissulega
treyst búskap í þessari
sögufrægu sveit.“
við af þeim Lárus Jóhannesson, lög-
maður, og enn síðar Gunnar Möller,
lögmaður. Um ráðstöfun veiði hafa
eigendur að hluta til staðið saman
og aðrir leigt öðrum eða ánni allri
neðan vatns hefur verið ráðstafað
sameiginlega, eins og gert hefur
verið nú um árabil.
Veiðifélag stofnað
í Haukadalsvatni stundar hver
landeigandi veiði fyrir sínu landi
og er veitt bæði í net og á stöng
og stangaveiði leigð. út. Arið 1948
var veiðifélagið Birtingur stofnað
um Efri-Haukadalsá. Félagið beitti
sér fyrir fiskirækt á svæðinu og
hefur leigt ána út til stangaveiði,
en þar hefur verið góð silungsveiði
auk nokkurrar laxveiði. Hins vegar
var heildarfélag um allt svæðið sett
á laggimar 1972, með allar jarðir,
sem land eiga að öllu svæðinu, en
þær eru 28 talsins.
Þrískipt vatnakerf i
Ágreiningur vegna ólíkra við-
horfa til hlutanna kom upp innan
félagsins í sambandi við ráðstöfun
laxveiði. Það leiddi til þess að
ákveðið var með sérstöku sam-
komulagi aðila, að félagið starfaði
í þremur deildum, sem hver fyrir
sig ráðstafaði veiði á sínu svæði.
Deildimar em: 1) Haukadalsá, neð-
an vatns, 2) Haukadalsvatn, og 3)
Efri-Haukadalsá. Sérstök stjóm er
fyrir hveija deild og hefur hún kom-
ist á með tvær deildir. Enn á eftir
að setja á laggimar stjóm fyrir
vatnið sérstaklega. Það verður von-
andi gert fljótlega. Gert var ráð
fyrir að þetta samkomulag gilti
ákveðinn tíma og er sá tími senn
liðinn.
Veiðiskýrslur
og- veiðitölur
Á vatnasvæði Haukadalsár em
lax, urriði og bleikja, bæði stað-
bundinn og sjógenginn silungur.
Um laxveiðina liggja fyrir góðar
skýrslur þegar til lengri tíma er lit-
ið. Hins vegar er minna vitað um
veiðimagn úr Haukadalsvatni, en
það er ágætt veiðivatn.
Metveiði 1.322 laxar
Meðalveiði á stöng ( Haukadalsá
neðan vatns á ári á tímabilinu
1966-1985 eða í 20 ár em 789
laxar. Mesta veiði á einu ári var
sumarið 1972 en þá fengust alls
1.322 laxar á stöng í ánni neðan
vatns. Sama meðaltal fyrir
1970—1979 vom 949 laxar. Auk
þess hafa veiðst laxar í Efri-Hauka-
dalsá, nokkrir tugir laxa sum árin,
mest 65 laxar, og önnur minna, og
í Haukadalsvatni hefur fengist eitt-
hvað af laxi í net. Heimilaðar hafa
verið mest samtímis sex stengur
við lax- og göngusilungsveiði í
straumvatni á öllu svæðinu.
Fiskirækt á svæðinu
Á áranum um og eftir 1930 var
reist klakhús við ána og var það
starfrækt í nokkur ár. Klakmaður
var Guðjón Jónsson. Þannig var
sleppt kviðpokaseiðum af Hauka-
dalsárstofni og einnig af stofni
Laxár í Dölum. Eftir að sumaralin
laxaseiði komu til sögunnar á sjötta
áratugnum og síðar gönguseiði af
laxi, hefur slíkum seiðum verið
sleppt nokkuð árvisst í vatnakerfíð.
V eiðimannahús
Tvö veiðimannahús hafa verið
byggð við neðri ána.
Veiðitími og veiðistaðir
Laxveiðitíminn í Haukadalsá er
frá miðjum júnímánuði til jafn-
lengdar í september ár hvert. Að
venju er á degi hvetjum hlé um
miðjan daginn, eins og yfírleitt
tíðkast í laxveiðiánum.
Veiðistaðir ( Haukadalsá neðan
vatns munu vera 32 talsins. Besti
veiðistaðurinn á svæðinu nefnist
Homið, en auk þess má nefna veiði-
staðina Long Strong og Systrapoll
sem einnig em gjöfulir.
Leigntakar
Fyrr var getið um nokkra menn,
sem komu við sögu stangaveiði í
neðri Haukadalsá á ámnum fyrir
seinni heimsstyijöldina. Síðar verða
leigutakar í ánni, að hluta til, ýms-
ir. Þar er helst að geta Stangaveiði-
félags Akraness, sem lengst hafði
ána á leigu, Stangveiðifélag Hafn-
arfjarðar, auk fjölda einstaklinga.
Þá má nefna Guðbrand Jömndsson
frá Vatni, sem átti hlutdeild í ánni
og leigði part hjá öðmm og endur-
leigði það svæði. Við þá sögu kom
einnig Helgi Magnússon, sem var
í hópi þekktra stangaveiðimanna á
sínum tíma.
Víst er að leigutekjur af veiði á
vatnasvæði Haukadalsár og veiði-
skap eiganda í Haukadalsvatni em
mjög góðar og hafa vissulega treyst
búskap í þessari sögufrægu sveit.
Höfundur er skrifstofustjóri
Veiðimálastofnunar.
Efri-Haukadalsá, efst i Haukadal. í baksýn sést að Giljalandi.
Þessar verslanir bjóða upp
á pöntunarþjónustu
á gluggatjöldum frá Vogue
og hafa sýnishorn á staðnum.
Álnabúðin, Mosfellssveit.
Efnaval, Vestmannaeyjum
Pöntunarfélag Rangæinga, Rauðalæk
Kaupfélag Árnesinga, Selfossi.
Kaupfélag Dýrfirðinga, Þingeyri
Kaupfélag Fram, Neskaupstað.
Kaupfélag Héraðsbúa, Reyðarfirði
Kaupfélag ísfirðinga, ísafirði.
Kaupfélag Langnesinga, Þórshöfn.
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki.
Kaupfélag Skaftfellinga, Höfn í Hornafirði.
Kaupfélag Stöðfirðinga, Stöðvarfirði
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík.
Versl. Díana, Ólafsfirði.
Versl. Femína, Keflavík.
Versl. Ósk, Akranesi.
Versl. Skemman, Akureyri.