Morgunblaðið - 24.11.1987, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
27
ac° ac° 70°
í höfuðdráttum er hér sýnd sú leið, sem geislavirk efni reka í sjó
frá Sellafield til Austur-Grænlands. Sýnt er hlutfallslegt magn geisla-
virkra efna í rúmmetrum (- Bq 137 Cs m-8) og rektimi þeirra. Gefin
er upp fjarlægðin í kilómetrum meðfram rekleiðinni. Hlutfallslegt
magn má einnig lesa sem hundraðshluta af magninu i Norðursjó.
ar. Að frumkvæði þáverandi
samgönguráðherra, Matthíasar
Bjarnasonar, tók stofnunin Do-
unreay-málið upp á vettvangi
Parisarsamningsins um varnir
gegn mengun sjávar frá lands-
stöðum. Var tilgangurin að reyna
til þrautar að hafa áhrif á endan-
lega staðsetningu stöðvarinnar.
Á ársfundi samningsaðila, 1.—3.
júní sl., var, að frumkvæði ís-
lendinga, samþykkt ályktun um
mengunarvarnir við nýjar endur-
vinnslustöðvar fyrir brennslu-
efni kjarnaofna.
Er því bæði ósanngjamt og
rangt að halda þvi fram, að
íslensk stjórnvöld hafi ekki sýnt
þessu máli neinn áhuga. Það
hafa þau svo sannarlega gert,
þó alltaf megi gera betur. Nýleg
tillaga til þingsályktunar, um að
rikisstjórnin mótmæli fyrirhug-
aðri endurvinnslustöð, er því í
raun nokkuð seint á ferð, þótt
hún sé góðra gjalda verð, því
afstöðu Islands til málsins hefur
með skýrum hætti verið komið á
framfæri við Breta.
Niðurlag
Vegna hagsmuna, sem í húfi eru
fyrir íslensku þjóðina, er full ástæða
fyrir íslendinga að fylgjast náið
með og reyna að hafa áhrif á endan-
lega staðsetningu fyrirhugaðrar
endurvinnslustöðvar. Ekki er síður
mikilvægt, að ákvörðun ríkisstjóm-
arinnar frá 23. maí 1986, um
reglulegar mælingar á geislavirkni
í umhverfinu og matvælum, verði
hrint í framkvæmd. Þá fyrst verður
hægt að fylgjast reglulega með því
hvaðan og í hversu miklum mæli
geislavirk efni berast inn á haf-
svæðin umhverfis ísland.
í síðari grein verður fjallað um
rannsóknir og mælingar á geisla-
virkni í umhverfínu og í matvælum
á íslandi.
Höfundur er forstöðumaður
Geislavama ríkisins.
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Helgi Halldórsson forseti bæjarstjómar afhendir Birni Sveinssyni
viðurkenningu fyrir hönd bæjarins. Guðmundur Magnússon situr hjá.
Heiðursmenn heiðr-
aðir á Egilsstöðum
EfriUstMum.
BÆJARSTJÓRN Egilsstaða
heiðraði fjóra menn fyrir mikið
og óeigingjarnt starf í þágu
sveitarfélagsins. Þessar viður-
kenningar eru veittar nú í tilefni
af að fjörutíu ár eru liðin frá því
að Egilsstaðir urðu sjálfstætt
sveitarfélag.
Þessir menn voru Bjöm Sveins-
son, Pétur Jónsson og Stefán
Pétursson en þeir skipuðu fyrstu
hreppsnefnd Egilsstaða og Guð-
mundur Magnússon fyrsti sveitar-
stjóri á Egilsstöðum. Ytra tákn þess
heiðurs sem er barmmerki með
ígreyptu skjaldarmerki Egilsstaða
afhenti Helgi Halldórsson, forseti
bæjarstjómar á síðasta bæjar-
stjómarafundi.
— Björn.
SKIN
HINN BJARTI TÓNN
gefur þér tilefni til að breyta skammdeginu.
Þú málar bara yfir það!
HÖRPUSKIN ný ^ HÖRPUSKIN fæst í
innanhússmálning £ "l, 10 björtum staðallitum
með 10% gljástigi t en litamöguleikarnir
sem gerir hana ^I eru mun fleiri-
Skiptu um lit á
skammdeginu - meö
HÖRPUSKINI.
HARPA líflnu lit.
áferðarfallega og
auðvelda í þrifum.
HÖRPUSKIN skaltu
nota á herbergin og
stofurnar. Hún er afar
einföld í notkun og
þekur mjög vel.
AUKM. 111.7/SfA