Morgunblaðið - 24.11.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
31
markað stefnu um innihald slíks
náms.
Endurnienntun
kennara
Talað er um endurmenntun kenn-
ara bæði í skýrslunni um íslenskuna
og stærðfræðina. í íslenskuskýrsl-
unni er talað um að kennarar þurfi
að eiga þess kost að sækja reglu-
lega námskeið í ákveðnum þáttum
kennslunnar og í stærðfræðiskýrsl-
unni segir m.a. að kennarar þurfí
að eiga þess kost að sækja tíma
við Háskólann með skipulegum
hætti. Ekki er nánar farið út í að
gera tillögur um heildarfyrirkomu-
lag á endurmenntun starfandi
kennara.
í þessu sambandi er rétt að geta
þess að námsbraut í uppeldis- og
kennslufræðum hefur sent frá sér
tillögur að endurmenntun fram-
haldsskólakennara sem unnar voru
í samvinnu við fulltrúa frá Hinu
íslenska kennarafélagi. Þar er lagt
til að uppeldis- og kennslufræðin í
HÍ, í samvinnu við Endurmenntun
HÍ, taki að sér endurmenntun fram-
haldsskólakennara á sama hátt og
Kennaraháskólinn hefur nú um
margra ára skeið sinnt endur-
menntun grunnskólakennara með
skipulegum hætti. Yrði sú endur-
menntun skipulögð í samvinnu við
KHI. Nú fer endurmenntun fram-
haldsskólakennara fram að frum-
kvæði og á vegum fagfélaga
kennara, þ.e. á þeirra eigin vegum
en með fjárstuðningi frá Endur-
menntun HÍ.
í tillögunum er m.a. lagt til að
endurmenntun kennara í einstökum
greinum fari fram jafnhliða starfí
á starfstíma skóla. Kennarar komi
saman á minni og stærri fundum
með jöfnu millibili í eitt skólaár og
markmiðið er að þeir þrói með sér
bætta kennsluhætti og reyni þá í
starfí jafnhliða náminu. Jafnvel
verði þróað námsefni í sambandi
við námið. Þeir sem taki þátt í nám-
inu fái kennsluafslátt í þijár stundir
á viku meðan á náminu stendur eða
í eitt skólaár. í tillögunni er lagt
til að slíkt nám fari af stað í tveim
greinum í nokkrum skólum. Það
fari af stað með ráðningu eins
stjómanda úr hvorri grein og verk-
stjóra úr skólunum. Þeir verði
ráðnir með nokkrum fyrirvara og
öðlist þjálfun á námskeiði í nokkrar
vikur áður en hið almenna nám fer
af stað þar sem meðal annars verði
útbúin kennslugögn. Tillagan barst
menntamálaráðuneytinu snemma í
sumar en formlegt svar hefur ekki
enn borist.
Margt þarf endur-
bóta við
Eins og segir fyrr í þessari grein
var tilefni hennar að bregðast við
órökstuddri gagnrýni á nám í upp-
eldis- og kennslufræðum sem í
mörgum tilfellum virðist byggð á
röngum eða engum upplýsingum. í
greininni hefur verið sagt frá
ákveðnum þáttum þesssa náms sem
við, sem að því stöndum, teljum að
hafí orðið til framfara. Það skal
tekið fram að lokum að margt þarf
enn endurbóta við. Á reglulegum
fundum kennara og leiðsagnar-
kennara um þróun námsins, sem
fóru af stað við upphaf þessa miss-
eris, eru nú í mótun frekari breyt-
inga, sem m.a. eru byggðar á
hugmjmdum kennaranna sjálfra,
ábendingum starfandi kennara í
grunnskólum og framhaldsskólum
og nema sem sótt hafa námið und-
anfarin ár.
Það getur vart talist veijandi
fyrir menntamálaráðuneytið að
skrifa undir og gefa út skýrslu um
ákveðna þætti skólastarfs, sem að
allt of stórum hluta er sleggjudóm-
ar eða órökstuddar fullyrðingar.
En með tilliti til náms kennara verð-
ur útkoma umræddra skýrslna
vonandi annars vegar til þess að
teknar verði til greina óskir náms-
brautar í uppeldis- og kennslufræð-
um um aukin fjárframlög til
endurbóta á náminu og hins vegar
að deildir Háskólans taki höndum
saman um að miða námsframboð
sitt betur við kennslu í viðkomandi
greinum.
Höfundur er kennslustjóri í upp-
eldis- og kennslufræðum íHáskóla
tslands.
Metsölubloð á hverjum degi!
STOLPI
Vinsæli töivuhugbúnaðurinn
Staðgreiðslukerfi skatta
Nýtt launakerfl, sem byggt er á hinu vinsæla launa-
kerfí okkar.
• Mjög sveigjanlegt og létt að læra.
• Gert fyrir nánast öll afbrigði launagreiðslna.
• Mánaðarlegar skilagreinar þó greitt sé vikulega.
• Gert fyrir 999 launþega og 99 deildir.
• Hægt að tengja stimpilklukkum, fjárhags- og
verkbókhaldi.
• í STÓLPA eru sjö önnur alsamhæfð kerfí.
• Gengur á allar PC, XT og AT tölvur, IBM sam-
ræmdar.
• Góð þjónusta og kennsla.
Námskeið: 25, nóv., 10., 17. og 28. des. kl. 8.00-17.00.
Verð með söluskatti kr. 44.000,-
Litli STÓLPI fyrir 10 launþega kr. 19.800,-
Námskeið, einn dagur kr. 4.000,-
Þú lærir á kerfíð, setur inn upplýsingar um alla
launþega og reiknar út launin á einum degi (allt
að 40 launþegar).
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar.
Sala, þjónusta
Markaðs- og söluráðgjöf,
Björn Viggósson,
Ármúla 38, 108 Rvk.,
sími 91-687466.
Hönnun hugbúnaðar
Kerfisþróun,
Kristján Gunnarsson,
Ármúla 38, 108 Rvk.,
sími 91-688055.
eiWM STERKI TÓWW'
- fær stöðugt meiri hljómgrunn.
Ástæðurnar eru augljósar.
SPRED LATEX er ný
og endurbætt innan-1
hússmálning með
25% gljástigi en var
áður 15%.
SPRED LATEX er
vatnsþynnanleg akrýl-
málning, afar slitsterk
og auðveld í þrifum.
Þess vegna notar þú
hana þegar þú málar
eldhúsið, baðið og
ganginn eða aðra fleti
sem mikið mæðir á.
SPRED LATEX
- innan þinna veggja
SPRED LATEX fæst í
10 staðallitum en
litamöguleikarnir eru
margfalt fleiri.
STTJ rss
I p ^ ^
HARPA lífinu lit.
AUK ht. 111.11/SlA