Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
ÚTBOÐSLÝSING
kr. 100.000.000 00/ioo
SkuWabréf meík 11,2% vöxtum wrötryggiogu
Sláturfélag Suðurlands hefur gefið út nýjan
flokk skuldabréfa, 1. fl. 1987. Alls eru gefin
út skuldabréf að nafnverði eitthundrað millj-
ónirkróna. Gefineru úteingreiðslubréf ffjór-
um flokkum, með eftirfarandi gjalddögum:
25.5.1990
25.5.1991
25.5.1992
25.5.1993
kr. 25.000,000
kr. 25.000,000 °¥ioo
kr. 25,000.000 ®¥ioo
kr. 25.000,000 °¥too
Öll skuldabréfin eru að nafnverði
kr. 100.000. Skuldabréfin eru verðtryggð
miðað við lánskjaravísitölu, án vaxta. Bréfin
eru seld með afföilum, sem tryggja kaupend-
um þeirra 11,2% vexti umfram verðtrygg-
ingu.
Sláturfélag Suðurlands kaupir til baka
skuldabréfin frá þeim ergenöum þeirra, sem
þess óska innan .brjggja .daga ftá því að ósk
um sölu barst. . ,
Sláturfélag Suðuríands æisir nú n'yjá kjötiðn-
aðarstöð og nýjar höfuðsíöðvar sínar að
Laugarnesi í Reykjavík, og verður andvirði
skuldabréfanna varið íi1 fcarnkvæmda þar.
Skuldabréf Sláturfélags Suðurlands fást
einnig hjá eftirtöídum aðiium:
Kaupþingi hf.,
Húsi Verslunarinnar, Reykjavík.
Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis,
Skólavörðustíg 11, Reykjavík,
Kaupþingi Norðurlands hf.,
Ráðhústorgi 5, Akureyri.
*
SlATURFÉLAG “
SUÐURLANDS
Skuldabréfaútboð 1. fl. 1987
Morgunblaðið/GL
Guðrún Eiríksdóttir ásamt gestgjöfum sínum, Bergljótu Skúladóttur
t.v. og- Guðrúnu Valdimarsdóttir.
Attræðisaf mæli
og vetrargleði
í Jónshúsi
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
GUÐRÚN Eiríksdóttir frá Sand-
haugum í Bárðardal varð áttræð
18. okt. sl. Hún hefur átt heima
i Kaupmannahöfn í 40 ár og er
Imörgum að góðu kunn, ekki sizt
íslendingum á öllum aldri hér í
íslendinganýlendunni og þeim
mörgu, sem líta inn í Jónshús.
Guðrún hefur átt sæti i stjórn
íslendingafélagsins í 32 ár.
Síðdegis á afmælisdaginn var
, móttaka í félagsheimilinu í Jóns-
| húsi, þar sem rúmlega ‘hundrað
1 gestir heilsuðu upp ■{>.' afmælisbam-
ið, en Bergljót gestgjafi bauð til
- veizluborðs af mildlli ,'raUsn.' Um
3 kvöldið hélt stjóm'íslendingafélags-
ins Guðrúnu samsæti og var jiangað
boðið um 40 gestum. Bárst af-
mælisbaminu fjöldi gjafa og blóma,
j auk skeyta að heiman, m.-a. frá
j forseta Islands, Vigdísi Finnboga-
j dóttur. í hófinu vom haldnar ræður
og Guðrún heiðruð á ýmsan hátt
i af félögum og einstaklingum, og
i var hún gerð að heiðursfélaga ís-
lendingafélagsins, en fyrir nokkrum
árum varð hún heiðursfélagi Félags
ísl. námsmanna. Guðrún Valdi-
marsdóttir varaformaður íslend-
ingafélagsins hafði veg og vanda
af undirbúningi veizlunnar.
Guðrún Eiríksdóttir biður fyrir
ij innilegar þakkir til allra, 'bæði hér
og heima, sem glöddu hana á af-
mælisdaginn, ekki sízt til þeirra,
' sem stóðu fyrir veizlunum. Hún er
| bæði hrærð og þakklát fyrir, hve
margir mundu eftir henni á þessum
merkisdegi.
Vetrargleði
Nýlokið er hátíðaviku íslendinga-
félagsins í Kaupmannahöfn, Vetr-
argleði ’87, sem byijaði fyrsta
vetrardag. Tókst þessi nýbreytni
frábærlega vel, bæði um skipulag
og aðsókn og var aðstandendum
sínum til mikils sóma. Mun láta
nærri, að rúmlega 1000 manns
tækju þátt í vetrargleðinni á einn
eða annan hátt.
Hófst dagskráin ávallt á íslenzku
myndefni og síðan borðaði fjöldi
manns íslenzkan mat og þar á eftir
var svo dagskrá í formi upplesturs,
tónleika, jazzkvölds, sýninga ís-
landsmyndar, bingós o.fl. Auk
þessa efnis, cem allt -fór fram í fé-
lagsheimiiinu í Húsi Jóns Sigurðs-
•sonar,. var gariga um íslendinga-
slóðir, guðsþjónústa í Skt:
Pálskirkju og hlutvelta íslenzka
safnaðarins í messukaffinu á.degi
eldra'íólksins, sem sendiherrahjón-
in, Sara Stoss cg Hörður Helgason,
buðu eldri borgurunum til. Og síðast
en ekki cízt kom Ómar Ragnarsson
ásamt Hauki Héiðari og skemmtu
þeir bömunum um miðjan dag, en
á dansleik um kvöldið, sem tæplega
300 manns sóttu. Skemmtu allir
árgangar cér vel saman þar, ný-
nemar meðal annarra, sem komu
beint frá Rússagildi Námsmannafé-
lagsins.
Upphafsmaður þessarar vel
heppnuðu viku var Kristín Odds-
dóttir Bonde, fráfarandi ritari í
stjóm íslendingafélagsins og bóka-
vörður þess, en hún hafði lengi
hugleitt, hvemig mætti auka að-
sókn að íundum og skemmtunum
íslenzku félaganna í félagsheimil-
inu. Kristín var líka framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar, en stjómin öll
stóð með henni, ekki sízt Amar
Ingólfsson, sem er mikil driffjöður
í félagsstarfinu nú, og einnig voru
viðbrögð námsmannafélagsins
mjög jákvæð.
Kristín leggur áherzlu á, hve
margt fólk á öllum aldri kom til