Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 33

Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 33 Heiðursskjalið afhent, talið frá vinstri: Arnar Ingólfsson, Kristín Oddsdóttir Bonde, Guðrún Eiríksdóttir afmælisbarnið, Bergþóra Kristjánsdóttir og Birgir Möller. íslenska borðið í Oddfellowhöllinni. ÓDÝRIR - VANDAÐIR VESTUR-ÞÝSKIR TJALDSKÁLAR Bjartir og rúmgóðir vinnu-, geymslu- eða sýningaskálar. Létt og meðfærileg sölutjöld. Bjartir og rúmgóðir vinnu-, geymslu- eða sýninga- skálar fáanlegir með stuttum fyrirvara. Henta vel sem samkomuskýli. Einnig getum við útvegað minni sölutjöld. Skálarnir eru úr níðsterkri álgrind klæddir endingargóðum PVC vörðum dúk. Þeir eru fljótlegir og auðveldir í uppsetningu og flutningum. Henta bændum, verktökum, fyrirtækj- um í framleiðsluiðnaði og fleirum. Hafið samband við Palla h/f og fáið sendan ítarlegan bækling um þessa snjöllu lausn. Fallar hf. <o ;0 cn 3 CO vetrargleðinnar. Margir komu í fyrsta sinn til íslenzks félagsskapar hér og fy'öldi gesta jókst dag frá degi, en tilgangurinn var einmitt sá að fá stærri og fjölbreyttari hóp til þátttöku og sýna, hve mikil þörf er fyrir félagsheimilið og starfsem- ina þar. Góð aðsókn að dansleiknum gerir, að ekki varð halli á skemmt- anahaldinu, en öll önnur skemmtun var ókeypis. Þá minnir Kristín á, hve gott er að eiga Flugleiðir sem hauk í homi. Hápunkturinn var að fá Ómar Ragnarsson hingað, en hann kom beint frá upptöku vestur á ísafírði, og sagði Kristín frábært, að svo önnum kafinn maður skyldi geta komið. Mikið mæddi á Bergljótu Skúla- dóttur gestgjafa þessa viku, er svo margir snæddu góðan og þjóðlegan mat hennar. Bergljót vill ítreka þakkir til Kristínar fyrir dugnað hennar og framtak við að koma á þessari vel skipulögðu og fádæma vel sóttu vetrargleði, sem áreiðan- lega verður endurtekin, fyrst svo vel tókst til nú. íslenskur matur í Oddf ello whöllinni KUKS, Komiteen for Udlands- foreningers Kulturelle Samvirke, er menningarsamstarfsnefnd stofnuð af vináttufélögum landa í milli fyrir 17 árum. 65 félög eiga aðild að nefndinni, sem árlega stendur fyrir listsýningum og veizluhöldum, og kemur listafólk víða að fram á veg- um hennar. Oft ber samkomur þessar upp á dag Sameinuðu þjóð- anna, 24. okt., og var svo að þessu sinni. í ár var hátíðin haldin í hinni virðulegu Oddfellowhöll við Bredgade. Skemmtikraftar voru frá 7 þjóðlöndum og svo var dansleik- ur, þar sem m.a.s. var dönsuð Les Lanciers upp á gamla móðinn. Há- punktur kvöldsins var hin mikla matarveizla, sem aðilar frá 30 þjóð- um lögðu efni til og höfðu sendiráð þeirra flestra undirbúning með höndum. En formaður Kaupmanna- hafnardeildar Norræna félagsins, Erik Munch, hvatti til framleiðslu íslenzka matarins. íslenzka borðið var eitt hið glæsi- legasta og matarmesta í fallegum salarkynnum Oddfellowhallarinnar. Bergljót Skúladóttir gestgjafi í Jónshúsi annaðist matseld af sínum kunna myndarskap og sá um útlit borðsins með aðstoð Arfeqs Johan- sens. Var biðröð eftir íslenzka matnum allan tímann, og fengu færri en vildu lambasteik, hangi- kjöt, steikta ýsu, lax og brennivín, enda mörg hundruð manns saman komin á þessu hátíðlega kvöldi þjóð- anna. — G.L. Ásg. • • > Oldrunarfræðifélag Islands: Ráðstefna um aldraða og félagslega þjónustu Öldrunarfræðifélag íslands gengst fyrir ráðstefnu í Kristals- sal Hótel Loftleiða í dag, þriðju- daginn 24. nóvember. Efni ráðstefnunnar er aldraðir og félagsleg þjónusta. Einkum verður þar tekið til umfjöllunar nýtt form á vistheimilum fyrir aldraða eða sam- býli og ennfremur verða reifaðar nýjungar í félagslegri þjónustu í heimahúsum. Dagskráin er eftirfarandi: Kl. 13.15-13.45 Jón Snædal læknir: Hvers vegna sambýli? Kl. 13.45-14.15 Sigurveig Sigurðar- dóttir félagsráðgjafi: Sambýli aldr- aðra með elliglöp. Kl. 14.15-14.45 Bragi Guðbrandsson félagsfræðingur: Sambýli aldraðra í Kópavogi. Kl. 14.45-15.15 Kaffi Kl. 15.15-15.45 María Gísladóttir hjúkrunarfræðingur. Kl. 15.45-16.15 Anna Gunnarsdóttir félagsráðgjafi. Kl. 16.15-16.45 Ámi Sigfússon borg- arfulltrúi. Gert er ráð fyrir framsögu í 20 mínútur og fyrirspumum í 10 mínút- ur á eftir. Fundarstjóri verður Ársæll Jóns- son læknir. Ráðstefnan hefst kl. 13.15 og fer skráning þátttakenda fram á staðn- um. Ráðstefnan er öllum opin. Pallar hf. Vesturvör 7 Kópavogi Símar 42322 - 641020 ® Metabo Hausttilboðl RAFHLOÐUBORVEL Verð: Tilboðsverð: 100 wött, í tösku 13.541 HÖGGBORVELAE *0Rt ■zrsÉ 480 wött, í tösku 500 wött, 1 STINGSÖG 1000 wött, í tösku 450 wött, í tösku íssm 7.270 9.068 16.529 9.221 SLIPIROKKAR ^Hstmskífa ÍIJSO 8.482 125 mm skífa 122584^ 10.486 B.B. BYGGINGARVORUR SUÐURLANDSBRAUT4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.