Morgunblaðið - 24.11.1987, Síða 34

Morgunblaðið - 24.11.1987, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 Heimsreisufarar Útsýnar í Kína MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá heimsreisuför- um Útsýnar sem hafa verið á ferð í Kína en voru i Thailandi þegar skeytið var sent: „A meðan fréttir berast af mögu- legri þjóðarsátt heima á Fróni vinna heimsreisufarar Útsýnar markvisst að betri samskiptum austurs og vesturs. Hópurinn hefur nú lokið ferðalagi sínu í Kína og er þessa dagana staddur í Thailandi á hvítri baðströnd í 30 stiga hita. Þrátt fyrir mannhafið í þessu fjölmennasta ríki jarðar var gefínn gaumur að hinum mikilvægu smá- atriðum. Sem dæmi má nefna að meðan hópurinn dvaldist í Beijing á „Great Wall Sheraton" hótelinu, þá ráku margir úr hópnum upp stór augu er þeir kveiktu á sjón- varpinu. Til að kóróna frábæran aðbúnað hópsins sýndi hótelið kvik- myndir með íslenskum texta á kvöldin og þótti þá mörgum nóg um. Hópurinn dvaldist í fímm borg- um Kína; Höfuðborginni Beijing, Xian, Shanghai, Guilin og Guangz- how (Kanton). Stóðu menn ýmist á öndinni yfír stórkostlegum bygg- ingar- og listafrekum sem hér er að fínna eða með öndina í hálsinum á kínverskum matsölustöðum þar sem innfæddir kokkar leyfðu eyjar- skeggjum úr norðri að bragða daglega á nýjum affekum sínum úr eldhúsinu. Þess má geta að sá siður að borða með hníf og gaffli er nú aflagður, borðar nú hópurinn aðeins með pijónum, og er haft á orði að fjölskyldumeðlimir sem heima sitja, megi vænta þar ýmissa breytinga er Kínafarar snúa heim. Hina 15 daga sem hópurinn dvald- ist í Kína sá hann marga af hápunktum kínverskrar menning- ar. Má þar nefna Torg hins himneska friðar í Beijing, þar sem grafhýsi Maos er, Forboðnu borg- ina sem er einstök samsetning halla og garða, Kínamúrinn, en maður sér fyrst hversu gífurlegt mann- virki hann er þegar maður stendur á honum, Terracottahermennina í Xian, safn 8000 hermanna og hesta í fuliri líkamsstærð, grafínna í jörðu við grafhýsi keisarans Qin Shi Huang Di. Allt ber þetta vitni um stórkostlega menningu sem hér hefur ríkt og síðast en ekki síst er að nefna hið kínverska mannlíf í dag í sinni óendanlegu fjölbreytni. Af öðrum hápunktum ferðarinnar er að nefna siglingu á Li Anni, en þar er að fínna eitt fegursta lands- lag á jörðu. Eru þetta helstu umræðuefni heimsreisufara þessa dagana á milli þess sem þeir sökkva sér niður í heimspekilegar vanga- veltur um hvort Ting eða Ming veldið hafí skilað meiri menningar- arfí til kínversku þjóðarinnar. Ferðalagið hefur gengið með ein- dæmum vel, og heimsreisufarar biðja að heilsa ættingjum, og vinum heima á Fróni." Morgunblaðið/KGA Fákur; Erindi um almenna notkun reiðtygja FRÆÐSLUNEFND Fáks stendur fyrir fundi í Félagsheimili Fáks, Víðivöllum, þriðjudaginn 24. nóvember kl. 20.30. Á fundinum flytur Erling Sig- urðsson erindi um almenna notkun reiðtygja, kosti þeirra og galla. Tekur hann m.a. fyrir hnakka, vandamál í sambandi við mél, höfuðleður, múla, hófhlífar og leðurfeiti. Skyggnur verða sýndar. Eftir erindið svarar Erling fyrirspumum. í lok fundarins verða svo sýnt úr mynd frá fjórðungsmótinu á Melgerðismelum 1987. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þannig lítur Verslunarhúsið sf út séð frá Austurbergi. Enn á eftir að setja skyggni fyrir ofan gluggana á jarðhæðinni. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Guðjón Pálsson, annar eigandi hússins, er hér við bakdyr húss- ins sem snúa að félagsmiðstöð- inni í Gerðubergi. Ný verslunarmiðstöð opnar í Breiðholtinu 1800 fermetrar á þremur hæðum - kostnaður 77 milljónir króna VERIÐ er að leggja síðustu hönd á verslunarhúsnæði við Gerðu- berg 1 í Breiðholti og er stefnt að því að opna í byijun desember. Það er Guðjón Pálsson bygginga- meistari sem byggði húsið en hann og sonur hans, Birgir Guðjónsson, eru skráðir eigendur þess og munu sjá um reksturinn. Húsið er 1800 fermetrar að flatarmáli á þremur hæðum og er heildarrúmmál 5600 rúmmetrar. Kostnaður við húsið er áætlaður 76,7 milljónir. Að sögn Guðjóns hefur ekkert verið til sparað í byggingu þess. Gengið verður inn í það á tveimur stöðum. Á jarðhæðina, frá Austur- bergi, og á fyrstu hæðina, frá bakhliðinni sem snýr að félagsmið- stöðinni í Gerðubergi. Verslunarhúsið verður rekið á svipaðan hátt og Kringlan, eigendur einstakra verslana leigja húsnæðið og sjá um innréttingar sjálfir. Á jarðhæðinni er gert ráð fyrir versl- unum þar sem hægt verður að fá hljómtæki, plötur, tískuvörur og bamaföt auk þess sem ísbúð og blóma- og gjafavöruverslun verða þar. Á fyrstu hæðinni verða kaffí- stofa, snyrtivöruverslun, leikfanga- verslun, sportvöruverlsun, skóbúð og bóka og ritfangaverslun og á annarri hæð er gert ráð fyrir ýms- um þjónustufyrirtækjum. Hár- greiðslustofa verður þar, einnig rakarastofa og snyrtistofa auk þess sem iíklegt er að tannlæknir starfí þar. Verslunarhúsið verður flóðlýst að utan og bílastæði eru næg. Inn- an dyra munu málverk eftir Arthúr Ragnarsson prýða veggi. HÁSKÓLATÓNLEIKAR I NORRÆNA HUSINU SJÖTTU Háskólatónleikar vetrarins verða i Norræna hús- inu miðvikudaginn 25. nóvem- ber kl. 12.30-13.00. Á tónleikun- um flytja Sigrún Valgerður Gestsdóttir sópran og David Knowles píanóleikari laga- flokkinn Söngvasveig (Lieder- kreis) Op. 39 eftir Robert Schumann. Ljóðin samdi Josep von Eichendorff. Þau eru til í íslenskri þýðingu Þorsteins Gylfasonar. Sigrún Valgerður Gestsdóttir hóf tónlistamám í Hveragerði þar sem hún er fædd og uppalin. Hún nam söng hjá Guðrúnu Sveins- dóttur og Engel Lund við Tónlist- arskólann í Reykjavík og stundaði framhaldsnám hjá Marjorie Thomas við Royal Academy of Music í Englandi og síðar í Banda- ríkjunum og Austurríki. Sigrún hefur komið víða fram sem ljóð- og óratóríusöngvari, einnig sungið með íslensku óperunni. Auk söng- starfa er hún kennari við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. David Knowles lauk einleikara- prófí frá Northem College of Music í Manchester árið 1980. David Knowles píanóleikari. Hann fluttist til Egilsstaða árið 1982 og kenndi við Tónskóla Fljótsdalshéraðs til ársins 1985, er hann flutti til Reykjavíkur. David starfar sem undirleikari við Sigrún Valgerður Gestsdóttir söngkona. söngdeild Tónlistarskóla Garða- bæjar og söngskólann í Reykjavík, áður var hann organisti Krists- kirkju. David hefur komið fram sem undirleikari víða um land.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.