Morgunblaðið - 24.11.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
35
Tónlistaruppeldi í hættu
Listamannaþing 1987:
- segir í ályktun þingsins
AÐALFUNDUR Bandalags
ísienskra listmanna var haldinn
síðastliðinn laugardag og sóttu
fundinn fulltrúar allra aðildarfé-
laga Bandalagsins. Auk venju-
legra aðalfundastarfa, var á
fundinum kosin ný stjórn. Birgir
Sigurðsson, rithöfundur, sem
verið hefur forseti Bandalagsins
um tveggja ára skeið, lét af störf-
um á fundinum og var Arnór
Benónýsson, leikari, kjörinn í
hans stað. í framhaldi af fundin-
um var stóð Bandalagið fyrir
Listamannaþingi 1987, sem bar
yf irskriftina „Er skapandi vitund
í hættu.“
Hinn nýkjömi forseti Bandalags-
ins, Amór Benónýsson, setti þingið
og bauð gesti velkomna til um-
ræðna um hvort skapandi vitund
sé í hættu og í kjölfar þess hvemig
hið opinbera býr að sínum lista-
mönnum og hvort ekki sé tími til
kominn að listamenn stilli saman
kröftum sínum til að vinna að
menningarstefnu.
Fyrstur frummælenda var Njörð-
ur P Njarðvík, rithöfundur, sem
benti á að þegar rætt væri um
Stóriðja
- Hvert
stefnir?
Ráðstefna Verkfræð-
ingafélags Islands
VERKFRÆÐINGAFÉLAG Is-
lands efnir til ráðstefnu fimmtu-
daginn 26. nóvember með heitinu
Stóriðja — Hvert stefnir? Ráð-
stefnan verður haldin í Kristalsal
Hótels Loftleiða og mun hún
standa yfir frá kl. 13.00 til kl.
18.30.
Sú spuming er áleitin af hvéiju
lítið hefur orðið úr áformum um
uppbyggingu stóriðju hér á landi
undanfarinn áratug, eða allt frá því
að ákveðið var að reisa Jámblendi-
verksmiðjuna á Gmndartanga.
Ráðstefnunni er ætlað að leita svara
við þeirri spumingu, jafnframt því
að horft verður fram á við og reynt
að meta hvort ástæða er til að ætla
að breytinga sé að vænta.
Eftirtalin munu flytja stutt er-
indi: Friðrik Sophusson iðnaðarráð-
herra, Jóhannes Nordal Seðla-
bankastjóri, Jóhann Már Maríusson
aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar,
Hjörleifur Guttormsson alþingis-
maður, Geir A. Gunnlaugsson
framkvæmdastjóri Marels hf.,
Kristín Einarsdóttir alþingismaður
og Birgir Amason forstöðumaður á
Þjóðhagsstofnun.
Að loknu kaffíhléi verður sett upp
pallborð, þar sem ætlunin er að
kryfja spumingamar: Af hverju
áform um frekari uppbyggingu
stóriðju hafa ekki gengið eftir og
hvað þurfi að breytast til þess að
svo verði? Við pallborðið munu sitja:
Friðrik Sophusson, Jóhannes Nor-
dal, Kristín Einarsdóttir, Hjörleifur
Guttormsson, Geir A. Gunnlaugs-
son og Jakob Bjömsson orkumála-
stjóri. Stjómandi pallborðsum-
ræðna verður Jón Steinar
Guðmundsson skólastjóri Jarðhita-
skóla háskóla Sameinuðu {nóðanna
og ráðstefnustjori Viðar Olafsson
formaður VFÍ.
Ráðstefnan er öllum oin og er
þátttökugjald 2.800 kr. Skráning
er í síma 688505.
(Fréttatilkynning)
„skapandi vitund," væri nauðsyn-
legt að setja listamanninn og verk
hans í samband við það samfélag
sem tekur á móti verkunum og
sagði að hver listamaður ætti líf
sitt undir tvöfaldri sköpun; sköpun
þess sem býr það til og sköpun
þess sem tekur á móti verkinu með
skynjun sinni, endurskoðar verkið
út frá eigin vitund. Hver sem tæki
á móti listaverki með skynjun sinni,
væri meðskapandi verksins. Allir
menn væm fæddir listamenn með
skapandi vitund. „Hinsvegar,"
sagði Njörður, „lifír þessi skapandi
vitund misgóðu lífí og í sumum
deyr hún alveg."
Næst tók til máls Steinunn Þór-
arinsdóttir, myndlistarmaður. Hún
kvaðst telja fulla þörf á að staldra
við og athuga þessa spumingu í
þjóðfélagi eins og okkar; hvort hér
geti hin skapandi vitund þroskast
og lifað. Steinunn lagði áherslu á
að einn sterkasti þátturinn í skap-
gerð mannsins sé „þráin eftir að
lifa og sköpunin er tæki hans í
baráttunni við að vera til," og hún
bætti við að þessvegna tryði hún
því að skapandi vitund myndi lifa af.
Stefán Öm Stefánsson, arkitekt,
talaði um byggingarlistina sem hef-
ur verið nefnd móðir listanna.
„Síðan era rannar margar kynslóð-
ir og niðjatalið orðið svo langt,"
sagði Stefán, „að jmgstu kvistimir
í dag kannst trúlega varla við for-
móðurina. Hann bætti því við að
að honum hefði læðst sá granur
að hin skapandi vitund gæti ef til
vill verið í vissum áhættuhópi í því
fjölmúlavíli, sem nú steðjar að úr
öllum áttum. „ Skoðanamyndarar
og vitundarskaparar era á hveiju
homi og annarri hverri bylgjulengd
Morgunblaðið/Bjami
Arnór Benónýsson, nýkjörinn
forseti Bandalags íslenskra lista-
manna
og margt, sem stendur þinni eigin
skapandi vitund til boða, annað en
að vera að basla upp á eigin spýtur."
Kristín Jóhannesdóttir, kvik-
myndaleikstjóri, spurði hvort
hættan hefði ekki alla tíð veri við
hvert fótmál og hvort ekki væri
allt útlit fyrir að þannig yrði það
áfram svo fremi sem líf hrærðist
með mönnum. Hún tók það fram
kannski væri hugtakið vitund, skap-
andi vitund, nokkuð víðtækt og
óljóst og gæti átt bæði við vitund
skapandans og vitund mótttakan-
dans og lagði áherslu á að skapandi
starfsemi væri framleiðsla á ein-
hveiju nýju, einhveiju sem ekki var
til áður. „Skýrasta dæmið um skap-
andi atferli," sagði Kristín, „má
lesa í samnefndri sögu, það er að
segjá sköpunarsögunni: í upphafi
skapaði Guð himin og jörð. Jörðin
var þá auð og tóm og myrkur
grúfði jrfír djúpinu og andi Guðs
sveif jrfír vötnunum. Guð sagði:
verði ljós. Og það varð ljós.“
Síðastur til að taka til máls um
hvort skapandi list er í hættu var
Amór Benónýsson, leikari, sem
sagði, meðal annars: „Skapandi list
er í hættu og hefur alltaf verið,
mismikilli kannski, en alltaf í hættu
eins og allt sem býr jrfír lífi. Raun-
ar held ég að þessi ógn, þessi
jrfirvofandi dauði sé aflvaki allrar
sköpunar." Hættuna í dag, kvað
Amór, fyrst og fremst felast í því
að efnishyggja tröllríði nú sam-
félagi okkar, svo að með ólíkindum
sé og sköpunarþörf þegnanna virð-
ist í æ ríkara mæli beinast að því
að upphugsa leiðir til að græða
peninga. „Afleiðing þessa er, meðal
annars, gífurleg vinnuþrælkun og
stress, og humaniskar greinar
mannlífsins hafa hrapað niður vin-
sældalistann í verðmætamati
þjóðarinnar," sagði Amór ennfrem-
ur.
Á eftir framsöguerindum vora
umræður um stöðu listgreinanna á
íslandi í dag og þar lýstu fundar-
menn áhyggjum sínum jrfír þeirri
stefnu ríkisvaldsins að leggja niður
rekstrarframlög til tónlistarskóla
landsins og fela viðkomandi sveita-
stjómum rekstur þeirra alfarið.
Urðu umræðumar til þess að í lok
þingsins var samin svohljóðandi
ályktun:
„Listamannaþing, haldið 21. nóv-
ember 1987, lýsir áhyggjum sínum
jrfír því að ríkisvaldið hyggist fella
niður beinan stuðning við rekstur
tónlistarskólanna í landinu. Þingið
telur að með því sé tónlistarappeldi
landsmanna teflt í tvísýnu.
Jólatilboð M VISIIl
á sturtuklefum
og baðveggjum
Hinir heimsþekktu
sturtuklefarog
baðhurðir
Stapahrauni 2,
Hafnarfírði, s: 651550
Útsölustaðir:
Vald. Poulsen, Rvik
B.B. byggingavörur, Rvík
Húsiö, Rvík
Pensillinn, Isafirði
Byggirsf., Patreksfirði
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi
Þ. Skagfjörð, Sauöárkróki
KEA byggingavörur, Akureyri
Skapti hf., Akureyri
Kaupf. Þingeyinga, Húsavik
Kaupf. Héraðsbúa, Egilsstöðum
Kaupf. Fram, Neskaupstað
Kaupf. A.-Skaftfellinga, Höfn
Kaupf. Rangæinga, Hvolsvelli
Kaupfélagið Þór, Hellu
QA Böðvarsson, Selfossi
Kaupfélag Vestmannaeyja, byggingavd.
Jámogskip, Keflavik
Trésmiðjan Akur hf Akranesi.
—Arrow^
Vandaóar skyrtur
í öllum stæróum
LAUGAVEGI 81-63
SÍMI 14519
UOSASTILLINGA-
VERKSTÆÐI
OSRAM
bílperur
WAGNER
Ijósa samlokur
Eigum fyrirliggjandi
Ijósastillingatæki
[1] JÖHANN OLAFSSON & C0. HF.
Sundaborg 13, sími 688588.