Morgunblaðið - 24.11.1987, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
Kýpur:
Konur mótmæla
skíptíngu ejrjarinnar
Fóru yfir jarðsprengjusvæði sem að-
skilur gríska og tyrkneska hlutann
Nikósíu, Reyter.
MÖRG hundruð grískumælandi
konur á Kýpur mótmæltu skipt-
ingu eyjarinnar á sunnudaginn
með því að ganga yfir jarð-
sprengjusvæðið sem sldptir
eyjunni. Hættu konurnar lífi sínu
við þetta. Er þetta í fyrsta sinn
í þrettán ár sem fólk fer þarna
á milli grisku og tyrkneskumæl-
andi hluta eyjarinnar.
Um 350 konur fóru yfir 50 metra
breitt jarðsprengjusvæðið sem
Sameinuðu þjóðimar hafa umsjón
með. Jafnmargar konur eyddu deg-
inum á jarðsprengjusvæðinu þar
sem þær settu upp mótmælaborða.
Þegar konumar komu yfir á tyrk-
neskumælandi hlutann ræddu þær
við blaðamenn áður en friðargæslu-
sveitir Sameinuðu þjóðanna, tyrk-
neski herinn og lögregla umkringdu
þær til að vama því að þær gætu
haft frekari samskipti við íbúana.
Fimm konum tókst að bijóta sér
leið framhjá gæslumönnunum en
vom fljótlega gripnar af lögreglu.
Talsmaður kvennanna, Helen Sot-
eriou, sagði við blaðamann Reut-
ers-fréttastofunnar að þær teldu
aðgerðimar hafa náð tilgangi
Strauss
endur-
kjörinn
Munchen, Reuter.
FRANZ Josef Strauss, forsætis-
ráðherra Bæjaralands, var
endurkjörinn formaður Kristi-
lega sósíalistaflokksins (CSU),
bræðraflokks Kristlega demó-
krataflokksins (CDU), á laugar-
dag.
Strauss var endurkjörinn formað-
ur CSU 14. skiptið í röð með 889
atkvæðum gegn 98 á flokksþinginu
í Múnchen, en sex sátu hjá. Hann
hefur gegnt formennsku í flokknum
frá árinu 1961.
Strauss er 72 ára. Hann hefur
gegnt starfí forsætisráðherra Bæjar-
lands frá árinu 1978.
þeirra. „Við vildum athuga hvort
við kæmumst yfir, og vekja athygli
heimsins á því að tyrkneski herinn
vamar Kýpurbúum að ferðast um
þeirra eigið land.“
Fjöldi erlendra kvenna tók þátt
í þessum aðgerðum. Konumar til-
heyra samtökum sem betjast gegn
skiptingu Kýpur, hafa þær áður
reynt að fara yfir jarðsprengju-
svæðið en ekki tekist það fyrr en nú.
Leiðtogi tyrkneskumælandi Kýp-
urbúa, Rauf Denktash, bað leiðtoga
grískumælandi íbúa eyjarinnar að
reyna að koma í veg fyrir að slík
„óábyrg atvik“ endurtækju sig.
Bretland:
Breskir unglingar telja sig eiga undir högg að sækja í lífinu ef marka má umfangsmikla skoðanakönn-
un, sem birt hefur verið á Bretlandi.
Táningar eiga við þung-
lyndi að stríða og líður illa
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
NÆRRI helmingi 17 ára ungl-
inga I Bretlandi finnst þeir eiga
undir högg að sækja og líður illa,
að því er fram kemur í umfangs-
mikilli könnun á breskum
ungmennum.
„Youthscan" er víðtækasta rann-
sókn á æviferli manna, sem ráðist
hefur verið í hér í landi. Árið 1970
var ákveðið að fylgjast með öllum
bömum, sem fæddust eina viku í
aprílmánuði, frá vöggu til grafar. Á
þessari viku fæddust 15.000 böm,
og hefur skipulega verið fylgst með
þeim fram að þessu. Nú eru þau
17 ára.
Helmingur unglinganna segist
vera þunglyndur eða niðurdreginn
að jafnaði, að því er fram kemur í
könnun, sem gerð var meðal þeirra
á þessu ári. Margir þeirra borða
óhollt fæði og hreyfa sig lítið, og
eru að mati sérfræðinga að grafa
sér gröf snemma á ævinni. Fáir
hafa fyrir því að borða morgunverð
og þónokkrir byija daginn á
vínstaupi. Um þriðjungur þeirra
segist vera ofsafenginn í skapi, og
helmingur þeirra segist oft komast
úr jafnvægi.
Minna en helmingur unglinganna
segist hafa áhuga á heilbrigði og
fæðu. Áhugaleysið kemur fram í
mataræðinu og lítilli hreyfingu.
Helmingur þeirra borðar franskar
kartöflur allt að fimm sinnum á
viku. 40% þeirra borða hvítt brauð
á hveijum degi. Einn af hverjum
fimm borðar ekki morgunmat virka
daga og fáir borða morgunmat um
helgar.
Diykkjuvenjur unglinganna
valda þó mestum áhyggjum. Tveir
þriðju hlutar þeirra sögðust hafa
drukkið vín í vikunni, áður en könn-
unin fór fram, og helmingur þeirra
sagðist hafa drukkið fímm glös eða
meira. Flestir sögðust drekka til að
yfirvinna feimni eða af því að það
væri skemmtilegt.
Neville Butler prófessor, yfirum-
sjónarmaður rannsóknarinnar, mun
leggja þessa niðurstöðu fyrir fund
Konunglega heilbrigðisfélagsins á
fimmtudag. Hann segir, að þetta
séu bráðabirgðaniðurstöður unnar
úr 500 fyrstu svörunum, en ekki
er búist við, að lokaniðurstöðurnar
breytist í neinum megjnatriðum við
frekari athugun.
Ekki er ljóst, hveijar verða lang-
tímaafleiðingar þess, að ungling-
amir skeyta ekkert um hollar
neysluvenjur. Dr. Denis Burkett,
sem er brautryðjandi í rannsóknum
á sambandi mataræðis og sjúk-
dóma, sagði um þessar niðurstöður,
að búast mætti við, að tíunda hver
kona í þessari rannsókn fengi gall-
steina, og ijórir af hveijum tíu
karlmönnum fengju kransæðasjúk-
dóma.
Óeirðirnar í Rúmeníu:
Tveir lögreglu-
menn sagðir hafa
fallið í Brasov
Bildam Sonntagsegir borgina nú
hersetna
Flug'stjórimi fékk
slag í lendingmmi
New York, Reuter.
FLUGSTJÓRI farþegaþotu af
gerðinni DC-10 fékk hjartaslag
í lendingu á laugardagskvöldið.
Með snarræði kom aðstoðar-
flugmaðurinn í veg fyrir
stórslys.
Atvikið átti sér stað er DC-10
breiðþota frá American Airlines
lenti á Newark-flugvellinum í
New Jersey eftir 85 mínútna flug
frá Chicago. Flugvélin hafði snert
jörðu en stefndi útaf flugbraut-
inni. Aðstoðarflugmaðurinn, C.
T. „Tom“ Meeker, sá, að flugstjór-
inn, Don Ely, sat álútur í sæti
sínu og hékk fram í öryggisbeltin.
Greip Meeker þá í taumana, stýrði
þotunni aftur inn á flugbrautina
og lauk lendingunni eins og ekk-
ert hefði í skorizt.
Talsmaður flugfélagsins sagði
að flugstjórinn hefði stjómað þo-
tunni í aðfluginu og lendingunni
en aðstoðarflugmaðurinn sinnt
öðmm störfum, meðal annars
kallað til hans upplýsingar um
hæð og hraða. Á lokastefnunni
tók hann eftir því að lækkun flug-
vélarinnar var ójöfn og aðflugs-
hraðinn óstöðugur. Það taldi hann
þó ekki alvarlegt en þegar þotan
tók að sveigja út af brautinni
kallaði hann viðvöranarorð til
flugstjórans. Þegar hann fékk
ekkert svar leit hann yfir til flug-
stjórans og sá að hann hafði
hnigið fram í öryggisbeltinn og
virtist meðvitundarlaus. Greip
flugmaðurinn þá í taumana.
Að lendingu lokinni bað Meeker
farþegana afsökunar á skryk-
kjóttri lendingu, sem hann sagði
að hefði mátt rekja til vandamála
í flugstjómarklefanum. Farþe-
gamir, sem vora 83 sögðust ekki
hafa tekið eftir neinu óvenjulegu
í lendingunni.
Flugstjórinn fékk læknishjálp
strax eftir að þotan hafði verið
stöðvuð og síðan var honum ekið
í skyndingu á næsta sjúkrahús,
þar sem hann var úrskurðaður
látinn klukkustund eftir lendingu
þotunnar. Hann var 51 árs, hafði
starfað hjá American Airlines frá
árinu 1959 og átti 11.000 flug-
stundir að baki í DC-10-þotum.
Meeker aðstoðarflugmaður
réðist til American Airlines árið
1978 og hefur 1.500 flugstundir
að baki á þotum félagsins.
Hamborg og Vínarborg, Reuter.
AÐ SÖGN vestur-þýska blaðsins
Bild am Sonntag (BamS) voru
tveir lögregluþjónar drepnir í
óeirðunum í rúmensku borginni
Brasov á sunnudag í fyrri viku.
í síðustu viku bárust fregnir um
víðtækar óeirðir í Rúmeníu til
Vesturlanda, en í BamS birtust
nánari fregnir, sem sagðar voru
byggðar á frásögnum sjónar-
votta.
Blaðið, sem er sunnudagsútgáfa
blaðsins Bild, skýrði frá því að um
20.000 verkamenn úr þremur verk-
smiðjum hefðu misst þolinmæðina
þegar kommúnistastjórnin ætlaði
að þvinga þá til þess að taka þátt
í „kosningum". Tilkynntu yfirvöld
verkamönnunum að þeir gætu ekki
farið heim að lokinni kvöldvakt, en
færa þess í stað um borð í lang-
ferðabíla, sem kæmu þeim á kjör-
stað.
Við þetta sættu verkamenn sig
ekki, gerðu uppreisn og þrömmuðu
um miðborg Brasov. Nokkrir þeirra
gerðu áhlaup á ráðhúsið þar sem
þeir skára einn lögregluþjón á háls
og börðu annan til dauða, ef marka
má frásögn BamS. Múgurinn réðist
því næst til atlögu við aðalstöðvar
flokksins og rændu þær og rapluðu.
Óeirðirnar héldu áfram næstu fimm
stundir. Kveikti fólkið í bifreiðum,
braut verslunarglugga og lagði eld
að stjórnarbyggingum.
Óeirðunum lauk ekki fyrr en
bryndrekasveitir hersins komu á
vettvang og lokuðu borginni. Síðan
hefur herinn haft borgina undir
sinni stjóm og era hermenn gráir
fyrir járnum á hveiju götuhomi.
BamS gat þess ekki hvort einhveij-
ar handtökur hefðu siglt í kjölfar
óeirðanna.
Fréttaskýrendur segja að í.raun
hafi kosningasmölun kommúnista
einungis verið dropinn, sem fyllti
mælinn. Talið er að ástæðan, sem
að baki liggi, sé ömurlegt efnahags-
ástand landsins og landlægur
orkuskortur, en nú þegar era Rúm-
enar famir að búa sig undir að
hafa litla sem enga húshitun og
lýsingu í vetur. Sama var upp á
teningnum í fyrra, en sérfræðingar
telja að orkuskorturinn verði meiri
í ár ef eitthvað er.
Á laugardag var frá þvl skýrt
að flokksþingi rúmenska kommún-
istaflokksins hefði verið frestað um
viku, til þess að „gefa stofnunum
flokksins tækifæri til þess að búa
sig undir þingið við réttar aðstæð-
ur“. Ekki er ljóst hvort frestunina
má rekja til óeirðanna, sem era
hinai verstu í landinu síðan 1977
þegar þúsundir námamanna fóra í
verkföll.