Morgunblaðið - 24.11.1987, Page 43

Morgunblaðið - 24.11.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987 43 Morgunblaðið/Ingólfur FViðgeirsson Unnið við útskipun á frystri síld í japanska skipið ms. Ohyo Maru á Eskifirði. Mikil vinna við síldar- verkun á Eskifirði Eskifirði. MIKIL vinna hefur verið undan- farið í Hraðfrystihúsi Eksifjarð- ar við vinnslu síldar. Undanfarn- ar þijár vikur hefur verið unnið á vöktum allan sólarhringinn við að frysta síld. Að sögn Benedikts Jóhannsson- ar, verkstjóra, hefur starfsfólkið staðið sig mjög vel í þessari miklu vinnutöm, en unnið er á tveimur vöktum í frystihúsinu og starfa um 20 manns á hvorri vakt, auk þess sem nokkru fleiri vinna þar yfir daginn. Benedikt sagði að nú þegar hefðu verið fryst um 559 tonn á Japansmarkað, auk um 100 tonna, sem seld væm til Englands. Þá hafa einnig verið fryst um 10 tonn af síldarflökum hjá fyrirtækinu. Sú síld, sem fer á Japansmarkað, auk um 100 tonna, sem seld væm til Englands. Þá hafa einnig verið fryst um 10 tonn af síldarflökum hjá fyrirtækinu. Sú síld, sem fer á Jap- ansmarkað, er sótt hingað af japönskum skipum, og er núna ver- ið að lesta í Ms. Ohyo Mam, en fyrr í vikunni lá hér Ms. Falcon frá Tokyo og lestaði einnig sfld. Bene- dikt Jóhannsson sagði að Ms. Ohyo Mam myndi liggja hér fram á föstu- dag og lesta það sem fryst yrði fram að þeim degi, en það yrði jafn- framt restin af því, sem framleitt yrði fyrir Japansmarkað á þessari vertíð. Um 4.300 tonn hafa nú farið til bræðslu í loðnuverksmiðju Hrað- frystihúss Ekifjarðar hf., og má segja að það hafi komið sér vel fyrir þá, þar sem loðnuveiðar hafa gengið frekar treglega fram að þessu. Þá er búið að salta í um 34 þúsund tunnur á Eskifirði og em stöðvamar að ljúka við að salta upp á þá kvóta, sem þeim hefur verið úthlutað nú þegar. Þó var búist við að úthlutað yrði í dag viðbótarkvóta upp á um 19 þúsund tunnur, sem salta á í staðinn fyrir það magn, sem fór í sjóinn er ms. Suðurland fórst á sl. vetri. Reikna má með að þessar 19 þúsund tunnur geri um 200—300 tunnur á hvert söltun- arplan. Þær 34 þúsund tunnur, sem búið er að salta, skiptast þannig á söltun- arstöðvar, að Friðþjófur hf. hefur saltað í um 8.600 tunnur, Auðbjörg um 8.200 tunnur, Sæberg hf. um 5.300 tunnur, Þór hf. um 4.700- tunnur, Eljan hf. um 4.000 tunnur og Askja hf. um 3.200 tunnur. — Ingólfur Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Frá afhendingu gjafanna. Talið frá vinstri: Bjarni H. Ansnes skóla- stjóri, Guðrún Hermannsdóttir, Guðbjörg Bjögvinsdóttir og Helga Teitsdóttir í stjórn kvenfélagsins. Að baki þeim standa Eyjólfur Guðnason, Hjörleifur Ólafsson og Jóhannes Sigmundsson frá Kiwan- isklúbbnum Gullfossi. Hátt fisk- verð erlendis ÞRJÚ fiskiskip seldu afla sinn eriendis í gær, mánudag. Fengu þau öll hátt verð fyrir aflann. Verð á karfa í Þýzkalandi var um 70 krónur, þorskur fór á yfir 70 í Bretlandi og ýsa og koli á enn hærra verði. Freyr SF seldi 52 lestir, mest þorsk í Hull. Heildarverð var 3,7 milljónir króna, meðalverð 70,08. Fyrir þorsk fengust 74,72 krónur að meðaltali og 82,39 fyrir ýsu. „Óæðri" tegundir drógu verðið nokkuð niður. Náttfari RE seldi 94 lestir, mest þorsk í Grimsby. Heildarverð var 6,7 milljónir, meðalverð 71,11. Fyrir þorsk fengust að meðaltali 69,51 ýsu 73,65 og kola 79,91. Viðey RE seldi hluta afla síns í Bremerhaven, mest karfa. Alls voru seldar 143 lestir fyrir 9,9 milljónir, meðalverð var 69,19. Viðey selur um 60 lestir til við- bótar í dag, þriðjudag. Þingflokkur Alþýðubandalagsins: Geir, Margrét og Svavar kosin í framkvæmdastj órn GEIR Gunnarsson, Margrét Frímannsdóttir og Svavar Gestsson voru á fundi þing- flokks Alþýðubandalagsins í gær kjörnir fulltrúar þing- flokksins í framkvæmdastjórn flokksins. Er þá fyllt tala 17 fulltrúa í stjórninni en aðrir fulltrúar voru kjörnir á lands- fundi flokksins fyrir rúmum tveimur vikum. Á fundi þingflokksins sl. mið- vikudag urðu deilur í þingflokkn- um þegar rætt var um fyrirhugað kjör fulltrúanna í framkvæmda- stjóminni. Þá var stungið upp á að fulltrúar flokksins yrðu Steingrímur Sigfússon, en jafn- framt var stungið upp á honum sem formanni þingflokksins, Margrét Frímannsdóttir og Sva- var Gestsson. Guðrún Helgadótt- ir, sem setið hefur í framkvæmda- stjóm flokksins sem fulltrúi þingflokksins, mótmælti þessu og sagði í samtali við Morgunblaðið fyrir helgi að hún hefði verið ós- ammála þeirri uppstillingu sem greinilega hefði þegar verið ákveðin og hefði af þeim sökum vikið af fundi. Ólafur Ragnar Grímsson form- aður Alþýðubandalagsins sat þingflokksfundinn í gær en hann hefur verið erlendis undanfarið. Á fundinum vom kjörnir áður- greindir fulltrúar í framkvæmda- stjórnina og til vara Steingrímur J. Sigfússon og Guðrún Helga- dóttir. Fyrir formannskjör í Alþýðu- bandalagið vom Guðrún Helga- dóttir og Geir Gunnarsson einu þingmenn flokksins sem lýstu yfir stuðningi við Ólaf Ragnar Grímsson. Smitandi húðsjúkdómur undir Vestur-Eyj afj öllum Holti. FYRIR stuttu varð vart við sér- kennilegan húðsjúkdóm í kúm á bænum Syðstu-Grund. Við fyrstu rannsóknir þykir allt benda til að upp sé kominn sjúkdómurinn hringskyrfi, sem síðast var vart hér á landi i Eyjafirði 1966-1969. Aðdraganda þessa sjúkdóms má rekja til þess að í vor kom að bæn- um sænsk stúlka, sem var með sár eða exem á olnboga. í ágúst fóm að koma sár á kýmar á bænum, sem heimilisfólk taldi stafa af sól- bmna. í seinni hluta október fór húsbóndinn að fá exembletti á úln- lið og þegar hann leitaði læknis virtist vera um að ræða þennan umrædda sjúkdóm, sem síðan var greindur að því er virðist í 11 kúm af 22 sem á bænum em. Laugardagskvöldið 21. nóvember Syðra-Langholti. NYLEGA voru Flúðaskóla færð- ar tölvur að gjöf, svo og fullkom- in saumavél sem mun koma sér vel við handavinnukennslu. Það var Kiwanisklúbburinn Gull- foss sem gaf þrjár tölvur frá Amstrad til skólans ásamt tveimur prentumm. Fyrir nokkm hafði skól- inn einnig keypt tvær tölvur. Þá gaf Kvenfélag Hmnamanna skólan- um eina tölvu til viðbótar, svo og fullkomna „overlock“-saumavél, sem notuð verður við handavinnu- kennsluna. Tölvurnar vom afhentar við at- höfn í skólanum þann 18. nóvember af fulltrúum gefenda og tók skóla- nefnd við þessum góðu gjöfum ásamt skólastjóra og oddvita Hmnamannahrepps. Þessi vönduðu tæki munu án efa koma að góðum notum í skólanum. Þá er þess einn- ig að geta að í undirbúningi em tölvunámskeið fyrir fullorðna og ef til vill frekari fullorðinsfræðsla. í okkar tæknivædda þjóðfélagi fer öllum að verða nauðsynlegt að til- einka sér þá miklu möguleika sem tölvurnar bjóða upp á. í Flúðaskóla em nú 138 nemend- ur, en unglingar í þremur efstu bekkjardeildunum em einnig úr Gnúpverjahreppi og af Skeiðum, og boðaði settur yfírdýralæknir Sig- urður Sigurðarson til fundar að Heimalandi með fólki af nágranna- bæjum við Syðstu-Grund, ásamt með héraðslæknum og dýralæknum í sýslunni. Lýsti hann sjúkdómnum sem leggðist á homefni húðarinnar og gæti borist á öll húsdýrin, þó einkum á nautgripi, sauðfé og hross. Þessi sjúkdómur hefði borist tvisvar til landsins, fyrst með inn- fluttum nautgripum frá Skotlandi 1933 og síðar með dönskum flósa- manni sem réðst að Syðri-Gmnd í Eyjafírði 1966. í bæði skiptin hefði verið komist fyrir þessa veiki, sem væri viðloðandi í skepnum erlendis og hlyti það að vera keppikefli allra aðila að vinna að því að svo mætti einnig verða í þetta sinn. Rakti hann síðan nákvæmlega baráttuna við sjúkdóminn í Eyjafirði á ámnum frá 1966 til 1969, greindi frá að- Loftur Þorsteinsson oddviti þakkar fyrir höfðinglegar gjafir. eiga þessi sveitarfélög sína fulltrúa í skólanefnd. Skólastjóri Flúðaskóla er Bjami H. Ansnes. — Sig. Sigm. ferðum til að koma í veg fyrir útbreiðslu, sagði frá helstu dýralyfj- um og kynnti reglugerð frá 1967 um varnir gegn smitandi hrings- kyrfi. Eyþór Óskarsson læknir á Hvols- velli greindi frá sjúkdómnum í mönnum og því að í dag væm góð lyf til gegn þessum húðsjúkdómi, sem væri borið á sár kvölds og morgna uns það hyrfí, venjulega á 7 til 10 dögum. Þessi sjúkdómur væri ekki smitnæmur milli manna. Algengast væri að sjúkdómurinn smitaðist af sýktum dýmm til manna og því væri engin þörf á einangmn fólks en að sjálfsögðu væm þeir sem sýktust hvattir til að gæta hreinlætis. Síðan lýstu læknamir sjúkdómnum, sem er eins og upphleyptur roði hringlaga sem minnir á exem, svona 3 til 4 sm að ummáli. Roðinn breytist síðan og í miðju hringsins kemur hvítur blettur. Báðu læknamir að ef eitt- hvað þessu líkt kæmi upp yrði þegar leitað til læknis af fólki frá þessum nágrannabæjum. Þar sem smitleiðir em fyrst og fremst af sýktum dýr- um var ákveðið að kanna feril sýktra dýra sem fóm í sláturhús í haust og láta þá starfsmenn sem komu nærri þessum dýmm vita um það. Eins var ákveðið að stefna að einangmn þessara sýktu dýra sem nú væri vitað um og láta rannsaka dýr af næstu bæjum. Eðlilega hafði komið upp nokkur óhugur í fólk, þegar það frétti fyrst um þennan óþekkta húðsjúkdóm, en við þá umfjöllun sem læknar gáfu á fundinum, létti mjög á fund- armönnum, við að heyra að hér væri ekki um smitnæman sjúkdóm að ræða millum manna. Fréttaritari Tveir dreng- ir fyrir bíl TVEIR drengir urðu fyrir bíl í Reykjavík á laugardag. Dreng- irnir, sem eru 6 og 4 ára gamlir, sluppu lítt meiddir. Fyrra slysið varð um kl. 13 á laug- ardag. Þá var 4 ára drengur á leið vestur yfír Ingólfsstræti og varð hann fyrir bfl sem var ekið suður götuna. Hann slapp þó með skrám- ur. Um hálfri stundu síðar varð 6 ára drengur fyrir bíl á Elliðavogi, fyrir neðan Barðavog. Drengurinn var á leið vestur Elliðavoginn, en bfllinn ók í suður. Drengurinn lenti á framhomi bílsins, sem var þá nærri stöðvaður, og skrámaðist á fæti. Flúðaskóla færð- ar tölvur og saumavél að gjöf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.