Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
Vélfryst
skautasvell
opnað
í næsta
mánuði
NÝRRI sænskri frystivél hefur
verið komið fyrir við nýtt skauta-
svæði Skautafélags Akureyrar á
Krókeyri við Naustaveg. Vélin
kostaði fimm milljónir og var
fjármögnuð með erlendum lán-
tökum. Nú er beðið eftir 500
Áheyrendur á fyrirlestri Gisla Jónssonar.
LOKAÆFING
Föstudaginn 27/11 kl. 20.30
Laugardaginn 28/11 kl 20.30
ALLRASÍÐUSTU
SÝNINGAR.
jZeilfélag ^Akutegtai
Hsfnarstrati 67 . Pósthólf 522 . Slmi 2-40-73 .
Erum í miðbænum
Gisting og morgunverður.
Verið velkomin.
GISTIHEIMILIÐ ÁS,
Skipagötu 4, sími 96-26110.
BIIALEIGA
Reykjavík S: 91 -31815/686915
Akureyri S: 96-21715/23515
Borgames S: 93-71618
Blönduós S: 95-4350/4568
Sauðárkrókur S: 95-5828
Siglufiörður S: 96-71489
Húsavík S: 96-41940/41594
Egilsstaðir S: 97-11550
Vopnafjörður S: 97-31145/31121
Höfn Homafiröi S: 97-81303
interRent
Helgar-og
viðskiptaf erðir til
Reykjavíkur
Ótrúlega hagstætt verð
Verðfrákr. 6.859,-
Ferðaskrifstofa Akureyrar,
Ráðhústorgi 3, sími 25000.
AKUREYRI
HAFNARSTRÆTI 85
ð 23905 og 23634
Háskólinn á Akureyri:
Fj ölmenni á
fyrirlestrum
HÁSKÓLINN á Akureyri hefur
gengist fyrir allmörgum fyrir-
Iestrum nú á fyrstu starfsönn.
Nokkrir opnir fyrirlestrar hafa
verið haldnir í beinum tengslum
við nám á hjúkrunarfræði- og
iðnrekstrarbraut en auk þess
hafa verið haldnir sjálfstæðir
fyrirlestrar, ætlaðir almenningi.
Þann 16. nóvember síðastliðinn.
var fyrsti erlendi fyrirlesturinn á
vegum Háskólans á Akureyri, en
til hans var stofnað í tengslum við
Náttúrugripasafnið á Akureyri. Þá
kom hingað til lands rússneski
fræðimaðurinn V. Konichev, en
hann er prófessor í landafræði við
Moskvuháskóla. Fyrirlestur hans
fjallaði um freðmýrar og sífrera í
Síberíu og var fluttur í Möðruvöll-
Morgunblaðið/GSV
Sjömenningarnir kynntu áform sín eftir setningu KEA-mótsins í
íþróttahöllinni á Akureyri sl. föstudagskvöld, þar sem landsliðs-
hópurinn var staddur. Á myndinni eru Geir Guðsteinsson, Ásmundur
Jónsson, Friðrik Friðriksson, Snorri Finnlaugsson, Stefán Jónsson
og Eiríkur Helgason. Á myndina vantar Björn Friðþjófsson.
Handboltalandsliðið:
Fær hálfa milljón frá Dal-
víkingnm gegn gulli á OL
LANDSLIÐ íslands í handbolta
verður hálfri milljón kr. ríkari
ef það nær gullinu á Ólympíu-
leikunum í Seoul sem fram fara
næsta haust. Silfrið færir þeim
400.000 krónur í aðra hönd og
bronsið 300.000 krónur. Fyrir
fjórða sætið fá strákarnir
200.000 krónur og fyrir það
fimmta fá þeir 100.000 krónur.
Þetta skemmtilega áheit kom frá
sjö kunningjum á Dalvík sem segj-
ast vera miklir áhugamenn um
íþróttir. Þeir segjast koma saman
til að horfa á leiki, ýmist fótboltann
á sumrin eða handboltann á vet-
uma. „Við leigðum okkur sal úti í
bæ þegar heimsmeistarakeppnin í
handbolta fór fram í Sviss í fyrra
„til að ergja ekki eiginkonumar",
eins og Geir Guðsteinsson, einn sjö-
menninganna, komst að orði. „Við
sendum kempunum blómakörfu
með baráttukveðjum þegar þeir
unnu Rúmenana, 25:23, komust þar
með áfram og náðu að lokum 6.
sætinu. Útlitið var hinsvegar ekki
bjart eftir fyrsta leikinn þegar þeir
töpuðu fyrir Suður-Kóreumönnum
sem þeir áttu vandalaust að geta
unnið."
Þeir félagamir telja mjög raun-
hæft að spá íslendingunum einu
af fímm efstu sætunum þó þeir álíti
það talsverða bjartsýni að gera
strax ráð fyrir einu af þremur efstu.
„Okkur þykir vissulega miður ef
við svo þurfum ekki að safna neinu
þegar úrslitin eru ráðin. Við von-
umst til að aðrir fari að dæmi okkar
og styðji strákana. Það fylgja þessu
að vonum mikil fjárútlát. Ef til
dæmis Akureyringar gerðu eins
þyrftu þeir að heita fímm milljónum.
á fyrsta sætið ef bomar era saman
þessar klassísku höfðatölur Akur-
eyringa og Dalvíkinga," sagði Geir.
Glsli Jónsson í ræðustól á fyrir-
lestri um bókmenntir á 17. og
18. öld
um, húsi Menntaskólans.
Gísli Jónsson, menntaskólakenn-
ari, hefur nú lokið við að flytja þijá
af fjórum laugardagsfyrirlestrum
sínum um íslenskar bókmenntir á
lærdómsöld. Mikil aðsókn hefur
verið að þessum fyrirlestram, því
sem næst húsfyllir á hátíðasal Verk-
menntaskólans í nýbyggingu hans
á Eyrarlandsholti. Gísli hefur í lestr-
um sínum fjallað um bókmennta-
starf og menningaráhrif Guðbrands
Þorlákssonar og Brynjólfs Sveins-
sonar og verk og feril fjölmargra
skálda, Hallgríms Péturssonar,
Jóns Vídalín og austfírsku skáld-
anna, svo einhver séu nefnd, og að
lokum svarað fyrirspumum. Fjórði
og síðasti fyrirlestur Gísla í þessari
röð verður laugardaginn 28. nóvem-
ber næstkomandi og hefst klukkan
2. Hann mun þá aðallega ræða um
bókmenntir á 18. öld.
Föstudaginn 27. nóvember verð-
ur einnig opinn fyrirlestur á sal
Verkmenntaskólans og hefst klukk-
an 3. Þá kemur þar bandarískur
hjúkranar- og félagsfræðingur, dr.
White, sem starfar við University
of Florida. Hún mun lesa fyrir um
fölskylduhjúkran og þjóðfélag. Að-
gangur er öllum fíjáls meðan
húsrúm leyfír.
Á sfðari önn þessa fyrsta starfs-
árs era fyrirhugaðir allmargir
fyrirlestrar af ýmsu tagi, ýmist
tengdir námsefni skólans eða sjálf-
stæðir.
stútum á tengingu sem tengdir
verða leiðslunum i svellinu og
eru þeir væntanlegir til Akur-
eyrar á næstu dögum. Að því
búnu verður svellið prufukeyrt
og opnað almenningi að öllum
likindum i næsta mánuði, að sögn
Guðmundar Péturssonar, for-
manns skautafélagsins.
Guðmundur bjóst við að svellið
yrði opið átta mánuði ársins enda
þyldi það ekki nema um tíu stiga
hita. Reiknað er með að rekstrar-
kostnaður verði tvö til þijú hundrað
þúsund. Selt verður inn á svæðið
og verður gjaldskrá álíka aðgangs-
eyri í sundlaug. Tónlist verður á
svæðinu, fastir æfíngatímar fyrir
félagsmenn og búast má við föstum
þjálfara. Næsta vetur verður vænt-
anlega maður fenginn erlendis frá
til þjálfunarstarfa.
Svellið er 58 metrar á lengd og
28 metrar á breidd. Á næsta ári
verður farið út í það að laga nán-
asta umhverfí og austan við hið
svokallaða hokkísvæði verður út-
búinn 400 metra skautahlaupa-
hringur. Guðmundur sagði að
meiningin væri að halda skautamót
í framtíðinni, en það fer eftir því
hve fljótt Reykvíkingamir kæmust
í gang. „Ef það verður ekki á næst-
unni tel ég víst að fleiri íþróttafélög
hér á Akureyri komi til því það
vantar fyrst og fremst keppni til
að lífga þetta. Veittar vora 12
millj. kr. á síðustu fjárlögum
Reykjavíkurborgar til vélfrysts
skautasvells, en ég veit ekki til
þess að neitt hafí verið gert í því.
Samkvæmt skipulagi er svellinu
ætlaður staður í Laugardalnum."
Heildarkostnaður við svellið nem-
ur um tíu milljónum króna, þar af
tekur frystivélin helming kostnað-
arins. „Það er auðvitað áhyggjuefni
ef íþróttasjóður legst niður. Við eig-
um rúmlega 3,7 millj. kr. inni hjá
ríkinu og menn era ekki of bjartsýn-
ir á að jöfnunarsjóður sveitarfélaga
skili hlutverki sínu eins og íþrótta-
sjóður þó gerði." Guðmundur sagði
að meiningin hefði verið að opna
svellið með pomp og prakt, en hugs-
anlega yrði öllum uppákomum
frestað fram yfír jól. Þá gerðu fé-
lagsmenn sér von um að hægt verði
að fá hingað til lands listhlaupapar
frá Sovétríkjunum til að sýna listir
sínar.
Morgunblaðið/GSV
Athafnasvæði Skautafélags Akureyrar á Krókeyri.