Morgunblaðið - 24.11.1987, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
Minning:
SigríðurR. Helgason
Guðmundsdóttir
Margar minningar koma upp í
hugann þegar ég sest niður og
hugsa um þessa elskulegu konu og
langar mig að festa nokkrar þeirra
á blað.
Regína fæddist 14. desember
1909, dóttir hjónanna Sesselju
Amdóttur og Guðmundar Helga-
sonar, sem látin em fyrir allmörg-
um ámm. Hún ólst upp suður með
sjó eða nánar tiltekið í Garðinum.
Var henni sá staður mjög kærkom-
inn. Hún naut þess að koma þangað
í ferðum sínum heim til lslands.
Þar rifjaði hún upp leiki og skóla-
göngu sína og þekkti vel þá staði
þar sem þau krakkamir léku sér
eða sóttu skóla. Okkur hjónunum
þótti yndislegt að fylgja henni og
manni hennar í þessum ferðum, sem
má segja að hafi verið fastur liður
í þeirra heimsóknum til íslands,
síðustu árin. Við nutum þess að
sitja á húsatóftum þar sem hús
foreldra hennar hafði staðið og
drekka kaffí og borða meðlæti. Hún
hafði frá mörgu að segja og rifjaði
upp ýmislegt sem á daga hennar
hafði drifið. í einni slíkri ferð hitti
hún Unu í Garði sem var kennarinn
hennar í bamaskóla. Þær rifluðu
upp ýmislegt frá liðnum dögum.
Móðir mín og Regína voru æskuvin-
konur og skólasystur. Talaði móðir
mín oft um góðmennsku þessa fólks
og sagði mér hversu góðar stundir
hún hafði átt á heimili foreldra
Regínu og systkina. Enda er árin
liðu, bundust með fjölskyldu þeirra
og foreldrum mínum sterk vináttu-
bönd. Kom það vel í ljós þegar
móðir mín veiktist, stuttu eftir að
ég fæddist. Tóku foreldrar Regínu
mig í fóstur og var ég hjá þeim þar
til Sesselja móðir Regínu lést árið
1939. Eftir að ég fór til foreldra
minna sótti ég áfram mikið til þeirra
systra, sem auk Regínu voru; Helga
Kristín, yndisleg kona sem lést
langt fyrir aldur fram, og Sesselja
sem lifir systur sínar. Þessi heimili
stóðu mér alltaf opin og á ég góðar
minningar þaðan, því þrátt fyrir
stóran bamahóp sinn tóku þær
ávallt brosandi á móti mér. Tveir
bræður Regínu, þeir Sigurður og
Guðmundur, fórust í sjóslysi árið
1938, þá menn í blóma lífsins.
Hálfbróiðir hennar, Helgi Guð-
mundsson, lifir systur sína ásamt
Sesselju sem áður er getið. Það var
alltaf elskulegt samband á milli
þeirra systra enda nutu þær þess
að hittast.
Eiginmaður Regínu var Geirjón
Helgason, fyrrverandi lögreglu-
þjónn í Reykjavík, mikill indælis
maður. Þau bjuggu á Laugavegi
86 hér í borg, til ársins 1952 er
þau fluttust búferlum vestur um
haf með fjölskylduna. Við hana
hafði þá bæst tengdasonur, Grettir
Bjömsson, harmonikkuleikari, en
hann er giftur Emu dóttur þeirra
hjóna. Stuttu eftir komuna vestur
fæddist áttunda bam þeirra Regínu
og Geiijóns, dóttirin Regína. Hin
bömin em: Sigríður Ámý, Helgi,
Sesselja, Geiijón, Karolína og
Helga. Ema og Grettir fluttu til
íslands aftur 1960 og hafa búið hér
síðan. Hin bömin eiga sín heimili í
Vancouver. Bamabömin em orðin
mörg og vom þau dáð af ömmu og
afa, sem vom sínum bömum alltaf
góðir foreldrar. Um þau hjón mætti
mikið rita, ævi þeirra var litrík. Þau
ferðuðust víða um heim. í Vancouv-
er var þeirra heimili en ísland var
þeirra land. Þangað áttu þau flestar
ferðimar sem ekki verða taldar. Það
var alltaf gott að fá þau hingað og
einnig gott að heimsækja þau. Þess
nutum við hjónin er við sóttum þau
og fjölskylduna þeirra heim. Þá
vom þau vakandi yfir því að
skemmta okkur sem best hvem
dag, og létu sitt ekki eftir liggja í
að keyra okkur og sigla vítt og
breitt. Á þessum ferðalögum var
gjaman talað um ísland og alltaf
af hinu góða. Regína og Geiijón
áttu fallegt heimili og höfðu mikil
umsvif, enda mikið dugnaðarfólk
meðan staðið var. Það var því mik-
ið áfall þegar Geiijón fór að missa
heilsuna og kom þá best í ljós hinn
mikli kærleikur sem ríkti á milli
þeirra hjóna. Regína stóð eins og
klettur við hlið hans þar til yfir lauk,
en hann lést í Vancouver 10. apríl
1984 eftir langt veikindastríð.
Regína kom til íslands með jarðn-
eskar leifar manns síns í júní 1984,
til greftrunar í íslenskri mold, því
þau hjón höfðu bæði óskað þess,
að þegar þau myndu halda á fund
feðra sinna, yrðu þau jarðsett í
landinu sínu. Þessi ferð var Regínu
erfið, ekki hvað síst vegna erfiðra
tíma hjá vinum hennar hér heima.
Hún ákvað að koma aftur eftir 1—2
ár. En skjótt hafði sól bmgðið
sumri. Hún veiktist og þurfti að
gangast undir erfiðar aðgerðir, sem
þá virtust ganga sæmilega vel svo
hún ákvað að koma heim fyrir ári.
Af því gat ekki orðið því enn gerði
sjúkdómurinn vart við sig og þurfti
hún því að gangast undir enn eina
aðgerðina. Það endaði jió með því
að hún kom heim. Til Islands ætl-
aði hún að koma og hitta dóttur
sína, systur, bróður og vini. Ég
veit að öll bömin gerðu allt sem
hægt var svo hún gæti komið heim
enda sagði hún: „Ég á svo góð
böm.“ Sigríður, elsta dóttir hennar,
fylgdi móður sinni hingað til ís-
lands, enda var Regína búin að
vera á heimili þeirra Walters og
veit ég að það er á engan hallað
því allir í fjölskyldunni vita að Sigga
litla, eins og við kölluðum hana, var
stoð hennar og stytta í erfiðum
veikindum hennar. Fyrir skömmu
hafði verið ráðin stúlka til að veita
henni aðstoð, svo hún mætti áfram
búa á sínu fallega heimili í Vancouv-
er, og var hún með þeim hér frá
8. júlí til 4. ágúst í góðu yfirlæti
vina. Það var stórkostlegt að vera
vitni að þeim mikla kjarki og þreki
sem Regína hafði yfír að ráða, er
hún kom til mín í hjólastólnum var
hún kát og glöð yfír að vera komin
heim, hún þakkaði Guði fyrir þetta
því hún var trúuð kona. Sú mikla
reisn sem þessi kona bjó yfir hafði
ekki dvínað. Hún var falleg sem
áður.
Nú þegar leiðir skiljast bið ég
Guð að blessa ástvini Regínu og
Geiijóns. Hafi þau þökk fyrir allt
og allt.
Drottinn vakir — drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar - Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér.
Hræðstu eigi, hel er fortjald
hinum megin birtan er.
Höndin sem þig hingað leiddi
himins til þig aftur ber.
Drottinn eiskar - Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(S.K. Pétursson)
Sesselja Ásgeirsdóttir
I KAFFIÐ
Hermesetas Gold
með náttúrulega
sætuefninu
ASPARTAME
Gæðavara frá Sviss
FÆST í APÓTEKUM
Athugið verð!
Hermes hf.
EIRIÁBYRGD!
10.000 króna tékkaábyrgð,
gegn framvísun bankakorts.
Notkun bankakorta eykur öryggi allra í
tékkaviðskiptum. Við ábyrgjumst tékka að
upphæð allt að 10.000 krónum - sé banka-
korti framvísað.
Á bankakortinu eru tvö öryggisatriði sem
þurfa nauðsynlega að koma heim og saman
þegar tékki er innleystur, til þess að við-
komandi banki eða sparisjóður ábyrgist
hann:
1. Rithandarsýnishorn.
T 115 0000 0003 3081 2. Númer bankakortsins.
71 9955-J.006 121053-519
JÖNÍHA JÓHANNSOÓTTiR
v, wieiaor 01/89
Meiri ábyrgð með bankakorti
- því máttu treysta!
<
Alþýðubankinn,
Búnaðarbankinn,
Landsbankinn,
S am vinnubankinn 3/
Útvegsbankinn,
Verzlunarbankinn
og Sparisjóðirnir.
4