Morgunblaðið - 24.11.1987, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐJÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
61
„Ef þú ert hræddur við ferðalag
á nýjar slóðir áttu við vandamál að
stríða," sagði hann sefjandi.
Mér var farið að þykja þetta
spennandi. Og hann hélt áfram með
sinni djúpu röddu:
„Nú ætlum við að fara í aðra
neðri veröld."
Og við áttum öll að leggjast niður
með höfuðin saman og slappa full-
komlega af.
„Nú vil ég að þið farið í huganum
á einhvem stað úti í náttúrunni sem
þið eigið góðar minningar um. Þar
einhvers staðar er lítil hola og nú
vil ég að þið smjúgið óhrædd ofan
í þessa holu, þar til þið komið í
nýjan heim og þar getið þið spurt
spuminga," sagði hann og byijaði
að beija tmmbuna.
Ég fann hvemig líkami minn varð
máttlaus og ég lá eins og skata á
gólfinu. Og ímyndunaraflið þaut af
stað. Ég sat í moldarflagi og er ég
stakk hendinni ofan í volga moldina
fann ég risavaxnar rætur. Ég tog-
aði í rætumar og þá rann ég ofan
í jörðina. Ég smaug í gegnum sa-
faríka moldina, togaði mig niður
eftir rótunum. Og hvert tmmbuslag
passaði við rótarsprotana sem
brotnuðu. Ég fór neðar og neðar,
rótin varð grennri og ég var einn í
myrkrinu. Akkúrat þar sem rótin
endaði, þar komst ég út. Og ég sá
grösugar hæðir eins langt og augað
eygði. Og það var sólskin og bjart.
Er ég virti fyrir mér landslagið þá
spmttu upp dýr hér og þar. Fílar,
bangsar, froskar og flugur. Til mín
kom köttur sem spilaði á gítar,
íkomi sem glaður spilaði fótbolta,
hestur með vængi, gæs úr gulli,
syngjandi negrafroskar sem smelltu
með fíngmnum, ugla sem las í bók,
ljón í þungum þönkum, fíll með rúll-
ur í hárinu, lítill andamngi með
regnhlíf. Öll þessi dýr söfnuðust
saman og horfðu á mig. Ég dustaði
af mér moldina og vissi að hér fékk
ég svar við spumingunni.
„Getið þið sagt mér hvort bókin
muni lifa í framtíðinni?" sagði ég.
Uglan leit upp úr bókinni og depl-
aði auga. Ljónið vaknaði upp af
þönkum sínum. Hesturinn hætti að
blaka vængjunum. Þau horfðu á
mig forviða.
„Mun bókni lifa?“ endurtók ég.
Én þau svömðu engu. Horfðu
bara á mig eins og ég ætti bágt.
Svo misstu þau áhugann og gengu
frá mér fyrirlitnislega. Kötturinn
tók að spila á gítarinn og syngja,
uglan fór að lesa sögur fyrir aðra,
hestur flaug upp í himininn, fíllinn
puntaði hárið sitt og ljónið klóraði
sér í kollinum og hélt um munn sinn.
Ég er stundum seinn að skilja.
En nú rann upp fyrir mér ljós.
Hvemig gat ég spurt um annað eins.
Svo Iengi sem mannskepnan hefur
ímyndunarafl munu bækur verða
gefnar út. Bækur em vængir hug-
ans. Lesandinn kemst yfir í annan
ímyndaðan heim. Er það ekki ein-
mitt það sem við þráum öll?
Ég flýtti mér upp á yfírborðið.
Þegar ég kom upp, var þýskur vörð-
ur inni í herberginu og skammaðist
háum rómi. Hann kvartaði undan
trommuhávaða og hótaði öllu illu
með hárri raustu. Hann þurfti
greinilega að komast á stressnám-
skeið.
Nei, heyrðu, mér flaug í hug ...
Nú getur skíðafólk hugsaö sér gott til glóðarinnar því í vetur býöur
Reisuklúbburinn ótrúlegt úrval spennandi skíðaferða til Austurríkis,
Frakklands og Bandaríkjanna. Skíöastaðirnir eru viö allra hæfi
og allur aðbúnaður eins og best veröur á kosið.
Þeir sem vilja ferðast á eigin vegum fá hjá okkur bílaleigubíl í Luxemborg,
Salzburg, Zurich eöa Genf og gistingu á fjallahótelum í
Austurríki og Frakklandi.
Það bíður enginn sama úrval og Reisuklúbburinn, komdu á
skrifstofurnar og fáðu þér bækiing!
AUSTURRÍKI — DALIRIMIR ÞRÍR
Brottfarir vikulega frá 19. desember.
Verö frá kr. 35.910,- í þríbýli í 2 vikur.
íslenskur fararstjóri.
AUSTURRÍKI - LECH
Brottfarir: 19. des., 23.jan„ 6. feb., 13. feb.,
20. feb., 19. mars og 26. mars.
Verö frá kr. 50.324,- í tvíbýli í 2 vikur.
íslenskur fararstjóri.
REISUKLIJBBURINN
SAGA PÓLARIS FERÐAMIÐSTÖÐIN ATLANTIK
Suðurgötu 7 Kirkjutorgi 4 Aðalstræti 9 Hallveigarstíg 1
Sími 624040 Sími 622011 Sími 28133 Símar 28388-28580
FRAKKLAND - AVORIAZ
Brottfarir: 30. jan., 13. feb„ 27. feb„ 12. mars og
26. mars.
Verö frá kr. 38.547,- 4 í íbúö í 2 vikur.
Verö frá kr. 42.607,- 2 í íbúö í 2 vikur.
FRAKKLAND - CHAMOIMIX
Brottfarir: 30. jan„ 13. feb„ 27. feb„ 12. mars og
26. mars.
Verö frá kr. 35.397,- 4 í íbúö í 2 vikur.
Verö frá kr. 38.554,- 2 í íbúö í 2 vikur.
BAIMDARÍKIIM - VAIL COLARADO
Brottför 28. febrúar — aöeins ein ferö.
Verö frá kr. 61.822,- 4 í íbúö í 2 vikur.
pr. gengi 1.11.87.
STRIK/SÍA